Færsluflokkur: Spilling í stjórnmálum
Þriðjudagur, 12.11.2019
Valhallarforystan, í bandi hjá vinstri öfgamönnum, vill enn bæta við 85 "flóttamönnum"!
Sjálfstæðisflokkurinn hefur smitazt af vinstrisýkinni í "stjórnarsamstarfi" með VG.
Í höfuðstöðvum SÞ hafa vinstri menn yfirtekið og pólitícerað stofnanir eins og Flóttamannastofnun, sbr. líka Marrakesh-samninginn, sem var ESB þókknanlegur og stjórnvöld hér voru svo léttvæg og skammsýn að samþykkja.
Sýrlendingum í flóttamannabúðum í Líbanon á fremur að hjálpa til heimflutnings og betra lífs þar en að dreifa þeim um allar jarðir.
Í Kenýa er ekki stríð, og við höfum ekkert að gera með "hinsegin flóttafólk" þaðan -- jafnvel nú þegar dæmi um áreitni sagðs homma þaðan við konu(r) hér! Það fólk er ekki í neinni lífshættu í Kenýa og vandi þess ekki okkar.
Það er ekkert allsherjar-borgarastríð lengur í Afganistan og Írak.
Bjarni Ben. hefur ekki aðeins kosið að lúta vilja Vinstri grænna í þessum málum --- ragur og dauðhræddur líka við "góða fólkið" í Samfylkingu --- heldur er jafnvel Sigríður Á. Andersen farin að tala um "að borgarar allra ríkja ættu að eiga sama rétt og ríkisborgarar EES, þ.e. að hafa frjálsa för til að sækja vinnu á Íslandi. Þetta þýðir í raun opin landamæri", eins og Jón lögmaður Magnússon bendir á í nýrri grein á Moggabloggi, og væri þá sigur No Borders-útsendara hér!
Nú er þörf á sameinuðu afli gegn þessum taumlausa innflutningi fólks, sem Ísland hefur ekki efni á að framfleyta, meðan við gerum illa við okkar eigið fátækasta fólk, sjúka og lífeyrisþega, og svo er gert ráð fyrir verulegum halla hér á næstu fjárlögum!
Já, nú er á öðru þörf en útvötnuðum, óþjóðlegum Sjálfstæðisflokki!
Fréttin um þessa nýju, furðulegu samþykkt ríkisstjórnarinnar um að "taka á móti 85 einstaklingum í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna" er einnig rædd hér á Eyjunni.
Jón Valur Jensson, á sæti í flokksstjórn ÍÞ.
Tekið verður á móti 85 flóttamönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spilling í stjórnmálum | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 29.5.2019
Sundurlyndi vinstri manna birtist víða, meðal annars ...
í gagnrýni Oddnýjar G. Harðard. á Katrínu Jakobsd. á eldhúsdegi Alþingis (sjá tengil).
Guðm. Andri Thorsson segir: "af jarðarinnar hálfu byrja allir dagar fallega," en svo fari mennirnir að böðlast. Skot á Dag B. Eggertsson og félaga hans í borgarstjórn, sem eru á veldi mikillar efnishyggju, ofurskattheimtu og hömlulausra ofurframkvæmda? Allt verður að víkja fyrir sókn þeirra í að leyfa byggingaraðilum að troða sér alls staðar niður með hótelbyggingar, jafnvel á grafreitum gamalla Reykvíkinga, og íbúðablokkir spretta upp á gorkúluhraða án þess að vandað sé til verka og án traustra iðnaðarmanna, enda er margt slíkt húsnæði þegar farið að gefa sig.
Svo eru vinstri menn og "umhverfissinnar" almennt farnir að snúa á haus sinni stefnu gagnvart náttúrunni með auðsveipri hlýðni við ESB-miðstýringar-orkumálastefnu sem miðar að meiri gernýtingu vatnsfalla og orkulinda en áður hefur þekkzt, ekki í þágu íslenzks iðnaðar og heimilanna, heldur til að selja slíka orku úr landi, öðrum til gróða og uppbyggingar iðnaðar í öðrum löndum -- áþekkt því að hætta að verka fisk í vandaðar neytendaumbúðir, heldur senda hann í sínu hráasta formi úr landi. En þriðji orkupakkinn er aðeins ein af fleiri birtingarmyndum hins vanhelga sambands "vinstri grænna" og hægri gróðaafla í landstjórninni.
Ögmundur Jónasson, fyrrv. ráðherra Vinstri hreyfingarinnar, græns framboðs, talar nú um þann flokk sem Hreyfinguna, framboð!
Jón Valur Jensson.
Oddný skaut fast á Katrínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spilling í stjórnmálum | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 4.5.2019
Geldingaflokkarnir vilja fækka þjóðinni
Alþingismenn vilja almennt, að hér megi gelda menn frá 18 ára aldri (jafnvel suma 16-17 ára, að ráði forráðamanna!), þótt Norðurlöndin hafi allt aðra reglu: að geldingar megi fyrst hefjast á 25 ára einstaklingum. En geldingaflokkunum nægir það ekki hér. Þeir virðast sjá það sem ÞJÓÐARNAUÐSYN að hér séu sem flestir ófrjóir og að sem fæstir fæðist, því að þeir kusu líka með því, að geldingarnar séu algerlega ÓKEYPIS!!
Þessir þingmenn vinna ekki í þjóðarþágu, virðast fremur á þeim buxunum að skipta hér um þjóð í landinu, fá bara sem flesta hælisleitendur í staðinn!!! Á meðan eignast hver hjón hér einungis 1,7 börn, sem nægja alls ekki til að halda okkur við sem þjóð, til þess þarf 2,1 barn á hver hjón/hvert par að meðaltali.
Trúi einhver ekki þessu um stefnu þingmanna í geldingamálum, þá geta þeir skoðað atkvæðagreiðslurnar á þingi í gær um frumvarp svokallaðs heilbrigðisráðherra um ófrjósemisaðgerðir.
Það vill svo til, að allir fósturmorðs-þingmenn gærdagsins eru líka geldingarstefnu-þingmenn, en það á því miður líka við um ýmsa fósturverndarþingmenn gærdagsins.
Samtals hafa 22.954 verið gerðir hér ófrjóir árin 1981-2017, eins og það sé ekki nóg til að stuðla að fækkun þjóðarinnar! Jafnvel með núgildandi löggjöf (fyrir endanlega samþykkt þessa frumvarps) eru hátt á 7. hundrað Íslendinga geltir á hverju einasta ári! Það sem verra er: Margir eiga eftir að hryggja sinn framtíðarmaka með því að geta aldrei eignazt sitt eigið barn!
Hvers lags þingmenn eru það á Alþingi sem kjósa með báðum þessum mannfækkunarfrumvörpum? Eru þeir of heilagir til að kjósa með áframhaldandi vexti og viðgangi þessarar þjóðar? Kannski innmúraðir í þá "fjölmenningarstefnu", sem margar þjóðir Evrópu eru nú orðnar heldur betur afhuga að fenginni reynslu?
Jón Valur Jensson.
Spilling í stjórnmálum | Breytt s.d. kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 16.4.2019
Guðlaugur Þór Þórðarson afhjúpaður vegna blekkinga gagnvart þjóðinni og þingflokki Sjálfstæðiflokks og vegna hagsmunatengsla
Vesalings vængbrotni Guðlaugur Þór! Grátt er hann leikinn af snilldarleiðara Staksteina í dag, maðurinn berháttaður vegna gervifyrirvara sinna, sem og Þorsteinn Pálsson vegna glæfralegs hugsunarháttar síns.
Nánast allsherjar-þjóðarfylgi er komið í ljós með þjóðaratkvæðagreiðslu um orkupakkamálið, sama hvað þau streitast öll við, Þórdís Kolbrún, Guðlaugur Þór, Þorgerður Katrín og hlaupastrákur hennar Þorsteinn Víglundsson, sem öll segja þjóðaratkvæðagreiðslu af og frá!
Þá virðist Guðlaugur ramm-hagsmunatengdur við vatnsorkuríkar jarðir, eða hver er ekki hagsmunatengdur eiginkonu sinni?! Eða nær það bara til Sigmundar Davíðs, ekki til sjálfstæðismanna (sem einu sinni hétu því nafni, en þurfa að fara að skipta um nafn, með sína óþjóðhollu forystu).
Skoðið þetta allt og fleira í nærgöngulli samantekt undirritaðs: ORKUPAKKAMÁLIÐ - engar blekkingar, hagsmunatengdi GÞÞ, um "fyrirvara", takk! - og fari í þjóðaratkvæðagreiðslu!
Jón Valur Jensson.
Ber vitni um málefnafátækt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spilling í stjórnmálum | Breytt s.d. kl. 16:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 5.4.2019
Gulltryggður okurgróði í vaxtamun gefur Landbankanum 10 milljarða í arð
Þetta er óeðlilegt, að ríkisbanki fái að níðast hér (ekki í öðrum frjálsum löndum) á alþýðufólki sem er að reyna að eignast þak yfir höfuðið, með áratuga vaxtapynd og verðtryggingu.
Setjum þessu liði stólinn fyrir dyrnar; verkalýðshreyfingin er byrjuð að reyna það, og hún hefur stuðning flokks okkar til þess.
Greiðir 9,9 milljarða í arð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spilling í stjórnmálum | Breytt s.d. kl. 05:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 14.2.2019
Endurmeta þarf lögmæti þess að Dagur B. & Co. sitji áfram að kjötkötlum borgarbúa
Taka ber undir þá kröfu Vigdísar Hauksdóttur, að endurmetið verði lögmæti eður ólögmæti borgarstjórnarkosninganna sl. vor að lokinni góðri skoðun þeirra og rannsókn.
Svo margt hefur raunar farið úrskeiðis í stjórn borgarinnar og komið upp á yfirborðið síðan í vor (braggamálið o.fl. brotamál gervimeirihlutans), að Dagur B. & Co. eiga pólitíska framtíð sína undir því, að þessar kosningar verði ekki endurteknar, sem þó virðist geta verið það eina rétta í málinu, eftir næsta augljós stjórnsýslubrot Ráðhúsmanna í sambandi við hlutdræg skilaboð send vissum hópum kjósenda rétt fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar.
Það er ekki ónýtt að lögfræðingurinn Vigdís hafi glöggt auga með þessum og öðrum brekum borgarstjórnar-gervimeirihlutans.
JVJ.
Skera úr um lögmæti kosninganna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spilling í stjórnmálum | Breytt s.d. kl. 20:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 13.2.2019
Sjálfstæðisflokkurinn er opinbert hneyksli
Það er opinbert hneyksli hve ríkisstarfsmönnun fjölgar undir stjórnarforystu Sjálfstæðisflokksins, um tæpl. 1.600 á 3 árum, 2015-2017, þar af 619 árið 2017!
Það er reginhneyksli hve flokkurinn hleður undir sjálfan sig til framboðs í kosningum með ýmsum bolabrögðum, ofurstyrkjum til sjálfs sín (hundruðum milljóna), 5%-reglunni, skiptingu eins lögsagnarumdæmis í tvö kjördæmi og þar fram eftir götunum.
Það er háskalegt hneyksli sem vofir yfir þjóðinni: að þessi Sjálfstæðisflokkur virðist ætla að samþykkja Þriðja orkupakka Evrópusambandsins!
Það er skelfilegasta hneykslið, að flokkur, sem í eina tíð gaf sig út fyrir að styðja kristin gildi, hefur tekið að sér að boða aukin fjöldadráp á börnum allt fram til þess, er þau eru komin svo langt í meðgöngu, að mörg slík hafa lifað það af að fæðast! (á þá staðreynd benti jafnvel Siðfræðistofnun í áliti sínu í fyrradag). Já, það er hneyksli að þessi flokkur virðir ekki mannslífið í móðurlífi og er þá frekar reiðubúinn að auka kvöl ófæddra (sem komin eru með fullt sársaukaskyn 20 vikna) til loka 22. viku meðgöngu!
Þessi forsmán þarf senn að leggja niður völd: andkristið forystulið Sjálfstæðisflokksins.
Jón Valur Jensson.
Ríkisstarfsmönnum fjölgaði frá 2015 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spilling í stjórnmálum | Breytt s.d. kl. 19:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 10.12.2018
EINN stjórnmálaflokkur sýnir ábyrgð gagnvart þjóðinni vegna þjóðflutningasamnings SÞ!
Íslenska þjóðfylkingin lýsir því yfir, að hún hafnar algerlega þeim SÞ-fólksflutningasáttmála, sem mörgum ríkjum heims er ætlað að staðfesta nk. mánudag 10. des. í Marokkó. Ríkisstjórnin hefur algerlega vanrækt að láta þýða og birta sáttmálann, þótt legið hafi fyrir í tvö ár, og ekkert gert til að kynna hann, fremur beitt þar þöggun!
Sáttmáli þessi hefur það meginmarkmið að koma á fót og tryggja stöðuga og samfellda fólksflutninga (regular migration) landa á milli og miðar öðru fremur að því að fjölga stórlega íbúum Evrópu, að því er virðist í margra tugmilljóna tali á hverjum áratug. Samþykkt sáttmálans er ekki sögð lagalega bindandi, en yrði þó pólitískt bindandi, rétt eins og Mannréttindasáttmáli SÞ 1948 reyndist verða. En hér er um gerólíkan sáttmála að ræða, fullveldisskerðandi fyrir þau lönd sem skrifa upp á hann, m.a. um landamæravörslu, og í reynd stórhættulegan þjóðríkinu sem slíku, þjóðtungunni, eftir því sem aðfluttum fjölgar, menningu og velferðarkerfi, sem mundi sligast undan álaginu. ÍÞ skorar á ríkisstjórnina að skrifa ekki undir og heitir á forseta Íslands að hafna því að staðfesta samninginn.
Mörg mikilvæg ríki afneita því með öllu að staðfesta sáttmálann, þ.á m. Austurríki, Ástralía, Bandaríkin, Danmörk, Eistland, Ítalía, Pólland, Sviss og Tékkland. Mörg ákvæði hans eru afar íþyngjandi fyrir viðkomandi þjóðríki, en auka stórlega réttindi aðkomufólks. Þar á meðal má nefna "Markmið 4, aðgerð f" sem felur í sér, að þótt ekki sé vitað, af hvaða þjóðerni farandfólkið (migrants) sé, þá eigi það ekki að koma í veg fyrir, að það fái landvist, og í Markm. 11 (f) er gert skylt að meðtaka ólöglega innflytjendur; staðhæfingu um "mismunun" megi nota til að mæla með hverjum þeim sem flytjast vill inn í land. Markm.16 (c) tryggir fjölskyldusameiningu viðkomandi og þar með margföldun innflytjenda sem tengjast honum. Markm.17/33 kveður á um að engin gagnrýnishugsun leyfist gagnvart framkomu innflytjenda (migrants, farenda), gagnrýni (criticism) er stranglega fordæmd. Markm.17 (a) beinist gegn frjálsri tjáningu og innflytjendur sjálfkrafa taldir saklausir og fórnarlömb. Markm.17 (c) felur í sér stjórn fjölmiðla og ritskoðun, fjölmiðlar verði að lýsa innflutningi fólks jákvætt, en þeir, sem geri það ekki, verði sviptir öllum stuðningi og fjárframlögum. Eitt ágengasta ákvæðið, Markm.17 (g), kveður á um að í allri kosningabaráttu (til þings og sveitarstjórna) beri að styðja við innflutning fólks. Í Markmiðum 7 (a & b), 15 (e) og 20 (i) eru svo sérstök ákvæði til að tryggja stöðu islamssiðar og sjaríareglna!
Þetta er á engan hátt sáttmáli sem miðast við velferð og öryggi Íslendinga eða réttmæta þjóðarhagsmuni okkar, einungis hag og meintan rétt aðfluttra. Aðförin að tjáningarfrelsinu er kapítuli út af fyrir sig og hverjum þingmanni til minnkunar sem samþykkir þennan kröfuharða sáttmála. En verður hann borinn undir atkvæði alþingismanna? Okkur er ekki einu sinni lofað því! Að engu er slíkur sáttmáli hafandi, segjum við í stjórn Íslensku þjóðfylkingarinnar.
Þessi lengri gerð af samþykkt stjórnar Íslensku þjóðfylkingarinnar er send öllum alþingismönnum o.fl. aðilum, en styttri gerð hefur verið send öllum helztu fjölmiðlum í dag.
Ísland tekur þátt í alþjóðasamþykkt um farendur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spilling í stjórnmálum | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 7.12.2018
Engan fullveldisskerðandi og þjóðskemmandi SÞ-fólksflutningapakka hingað!
Á vef Útvarps Sögu -- utvarpsaga.is -- er nú spurt: "Á Ísland að skrifa undir Marokkóyfirlýsinguna?" Tökum þátt og mótmælum með því áformum fullveldis-svíkjandi pólitíkusa, því að með undirskrift SÞ-fólksflutninga-sáttmálans (sem margar þjóðir hafna*) myndu þeir opna hér allar gáttir á innflyjendaflóð úr Asíu og Afríku á næstu árum!
Þjóðtungan, velferðarkerfið og þjóðríkið eru hér í beinni, yfirvofandi hættu, verði þetta lið ekki stöðvað.
Arnþrúður á Útvarpi Sögu var að greina frá því (samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu), að utanríkisráðherra hafi ákveðið að senda ráðuneytisstjóra til Marokkó vegna undirskriftafundarins (hallelújasamkomu fjölmenningarhyggjunnar) í Marokkó 10. þessa mánaðar!!!
Sjálfstæðismenn, standið undir nafni og mótmælið við þingmenn ykkar og Valhöll með skæðadrífu netbréfa og hringinga. Það sama ættu allir árvakrir kjósendur að gera gagnvart þingmönnum sínum. HÉR er hægt að komast í netföng þeirra og símanúmer!
Og málið er enn alvarlegra en hér er komið fram, fyrir sjálft málfrelsi landsmanna!
Nánar verður fjallað um þetta mál hér e.h. á laugardag.
* Meðal ríkja, sem hafna þessum Sameinuðu þjóða-fólksflutninga-sáttmála, eru Ástralía, Austurríki, Bandaríkin, Búlgaría, Eistland, Ísrael, Króatía, Pólland, Slóvakía, Sviss, Tékkland, Ungverjaland. Önnur ríki, t.d. Danmörk og Noregur, munu ekki skrifa undir nema með alvarlegum fyrirvörum til að tryggja rétt sinn. Ítalía mun trúlega fresta ákvörðun um málið, enda er það víðast hvar lítt eða ekki rætt meðal þjóða, t.d. meðal Þjóðverja. Í Þýzkalandi, eins og víðar, m.a. hér á Íslandi, hafa stjórnmálamenn, fjölmiðlar og flestir álitsgjafar haldið uppi markvissri þöggun um málið!
Jón Valur Jensson (á sæti í flokksstjórn ÍÞ).
Spilling í stjórnmálum | Breytt 8.12.2018 kl. 16:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 2.11.2018
Er einhver lífsverndarsinnaður flokkur til á landi hér? Já!
Starfsfólk kvennadeildar Lsp komst upp með að brjóta lög, sem því var skylt að gæta, og vill nú jafnvel ganga enn lengra!
M.a.s. úrskurðarnefndin fór ekki að lögum, leyfði fóstureyðingar eftir lok 16. viku af félagslegum ástæðum; afleiðingin: ekki ein einasta synjun árið 2017!
Þvílíkan skrípaleik og óvirðingu við jafnvel litlar lagatakmarkanir ástundar þetta sjálfræðislið, svo að minnir á sjálfstýriapparat vinstri manna í Efstaleiti sem brýtur eigin lögbundnu hlutleysisskyldur í hverri viku.
Af hverju bendir enginn á að keisarinn er í engu? Af hræðslugæðum, af meðvirkri feimni eða ábyrgðarlausu skeytingarleysi?
"Með lögum skal land byggja, en með ólögum eyða." Með lögbrotum hafa félagsráðgjafar á kvennadeild og aðrir starfsmenn þar verið að eyða saklausum mannslífum árum og áratugum saman. Þegar jafnvel þau hafa ekki þorað út fyrir 16 vikna lagamörkin um félagslegur forsendurnar, tekur svo úrskurðarnefndin að sér að brjóta þau lög!!
Víkja ber þeirri úrskurðarnefnd frá án tafar.
En nú færist skörin upp á bekkinn, því að virkustu aðilar við fóstureyðinga-færiband Landspítalans, þ.m.t. við mjög þroskuð fóstur, krefjast nú opins skotleyfis síns á ÖLL fóstur til loka 22. viku meðgöngu, þ.e. að þetta verði fært í lög sem "sjálfsákvörðunarréttur" mæðra, og þurfi ekki að nefna neina ástæðu til!
En stefna Íslensku þjóðfylkingarinnar er alveg á hreinu í þessu máli. Hér er ályktun flokksþings okkar vorið 2017:
Ófædd börn eiga rétt til lífsins. Flokkurinn tekur einarða afstöðu gegn nýframkomnum hugmyndum um róttækar breytingar á fóstureyðingalöggjöfinni og mun taka á þessum málum með það að markmiði að draga sem mest úr fóstureyðingum.
Íslenska þjóðfylkingin er EINI stjórnmálaflokkurinn sem boðað hefur þessa stefnu, síðan Borgaraflokkur Alberts Guðmundssonar og félaga hans leið undir lok, sjá næstu grein hér á undan.
En þótt Agnes biskup þegi yfir vansæmd fyrirhugaðrar löggjafar og Bjarni fjármálaráðherra reynist eins og meðvirk rola í málinu, þá sjást og heyrast þess víða merki, að fólki (og ekki sízt kvenfólki) er gersamlega misboðið yfir grófri stefnu viðkomandi spítalastarfsmanna og heilbrigðisráðherra, Svandísar, í þessu máli, með stefnu á víðtækt drápsleyfi allt upp í nær fimm og hálfs mánaðar gamalla fóstra!
Séu líkur á að Alþingi samþykki þessa svívirðu, þarf þjóðin að skora á forsetann að neita að undirrita slík ólög, en vísa málinu í þjóðaratkvæði.
Jón Valur Jensson. Höf. á sæti í flokksstjórn ÍÞ.
Engum fóstureyðingum synjað í fyrra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spilling í stjórnmálum | Breytt s.d. kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)