Bloggfærslur mánaðarins, mars 2019

Samherjar, takið eftir: Vorum að vinna sigur á Austurvelli :)

Það eru farsæl málalok, að þrýstingur margra olli því, að hneyksl­an­leg mót­mæla­aðgerð No Bord­ers-liða, hælis­leitenda o.fl. rót­tæk­linga heyrir nú sög­unni til, tjaldið stóra farið og þeirra hafur­task sem setti ljótan svip á Aust­urvöll.*

https://www.facebook.com/groups/447238292142338/

Sjá líka fréttir hér: visir.is/g/2019190318796/sja-fram-a-brottvisanir-i-stad-samradsfunda og hér (með vælugangs-sniði No Borders-talsmanna í fyrirsögn Moggans): mbl.is/frettir/innlent/2019/03/18/motmaelin_farin_ad_bitna_a_heilsunni/

Já, það er víst betra að halda sig í hlýjunni á Ásbrú!

JVJ.

* Sbr. hér: jonvalurjensson.blog.is/blog/jonvalurjensson/entry/2232165/#comment3713196


mbl.is Mótmælin farin að bitna á heilsunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MÓTMÆLASTAÐA Í DAG VIÐ ALÞINGI

Íslenska þjóðfylkingin boðar til þögullar mótmælastöðu á Austurvelli í dag kl. 13-14.
 
Við mótmælum ofbeldi hóps hælisleitenda, "No Borders" o.fl. róttæklinga  gegn íslensku samfélagi og lögreglunni okkar á Austurvelli. Mætum með íslenska fánann í friðsömum og þögulum mótmælum.
 
Í frétt frá aðstand­end­um mótmælanna mátti lesa, að þeir lýstu aðgerðum sínum þannig: "The occupation of the square has officially started! It is just the beginning!"
 
Fá­mennur hópur löglausra hælis­leitenda (lítill hluti þeirra 600 sem komnir eru inn í landið frá 1. janúar) hefur síðan með ofur­róttækum stuðn­ings­mönnum sínum yfirtekið Austurvöll og haft þar alla sína hentisemi
 
Allir þjóðræknir menn, sem heimangengt eiga á þennan útifund á laugardaginn, geta tekið þátt í þeirri þöglu, en virðingar­fullu aðgerð, sem boðuð er til stuðn­ings lögum og almannafriði og lögreglu landsins, sem aðeins gerði skyldu sína og meiddi ekki einn ein­asta mann, þegar hún veitti ólög­mæt­um aðgerðum mótspyrnu á Austur­velli í vikunni.
 
Jón Valur Jensson.

Þjóðfylkingin boðar til útifundar á Austurvelli nk. laugardag vegna ofbeldis mótmælahóps þar í gær

Í skoðana­könnun Út­varps Sögu var spurt til há­deg­is í dag: "Styð­ur þú kröf­ur þeirra hæl­is­leit­enda sem mót­mælt hafa að undan­förnu?" -- NEI sögðu 94%, JÁ sögðu tæplega 5% og hlutlausir 1,7%. ALLUR STRAUM­UR­INN ER MEÐ GAGN­RÝN­END­UM MÓT­MÆLA­HÓPSINS Á AUSTURVELLI Í GÆR!
 
Íslenska þjóðfylkingin hefur nú boðað til þögullar mótmælastöðu á Austurvelli nk. laugardag kl. 13-14 með þessari auglýsingu á Facebók flokksins:
 
Mótmælum ofbeldi hælisleitenda gegn íslensku samfélagi og lögreglunni okkar á Austurvelli laugardaginn 16. mars kl. 13 til 14. Við ætlum að mæta með íslenska fánann í friðsömum og þögulum mótmælum.
 
Í viðtengdri frétt (sjá tengil hér neðar) má lesa, frá aðstand­end­um mótmælanna í gær, að þeir tala um þær aðgerðir þannig: "The occupation of the square has officially started! It is just the beginning!"
 
Ætlar almenningur þessa lands að sætta sig við það, að fá­mennur hópur löglausra hælis­leitenda, með ofur­róttækum stuðn­ings­mönnum þeirra ("No Borders"-liði, stjórn­leys­ingjum o.fl.), yfirtaki eða "hertaki" sjálfan Austur­völl?! Því verður seint trúað.
 
Allir þjóðræknir menn, sem heimangengt eigið á þennan útifund á laugardaginn, takið þátt í þeirri þöglu, en virðingar­fullu aðgerð, sem boðuð er til stuðn­ings lögum og reglu, okkar lögmæta ríkis­valdi og lögreglu landsins, sem aðeins gerði skyldu sína og meiddi ekki einn ein­asta mann, þegar hún veitti ólög­mæt­um aðgerðum mótspyrnu á Austur­velli í gær.
 
Jón Valur Jensson.

mbl.is Hyggjast gista á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af nokkrum könnunum á fylgi ÍÞ

Fylgi Þjóð­fylk­ing­ar­innar hefur skiljanlega, eftir tvö meiri háttar áföll fyrir flokkinn, við þing­kosn­ing­arnar 2016 og 2017, hrunið í könnunum og kosn­ingum. En það má alveg rifja hér upp nokkrar kannanir, óháð niður­stöðum kosninga:
 
Í skoðanakönnun MMR 15. nóv. 2016 var Íslenska þjóð­fylkingin með aðeins 0,6% fylgi. https://thjodfylking.blog.is/blog/thjodfylking/entry/2185145/
 
Í ágúst 2017 var Íslenska þjóðfylkingin komin upp í 1,6% í nýrri MMR-könn­un https://thjodfylking.blog.is/blog/thjodfylking/entry/2201082/
 
Í skoðanakönnun á vef Útvarps Sögu í byrjun okt. 2017 fekk Íslenska þjóðfylkingin 4,96%.  https://thjodfylking.blog.is/blog/thjodfylking/entry/2203725/
 
Og í skoðana­könnun á vef Útvarps Sögu birtri 12.4.2018 sögðust 6,42% myndu kjósa Íslensku þjóðfylk­inguna í borgar­stjórnar­kosn­ingunum. https://thjodfylking.blog.is/blog/thjodfylking/entry/2214640/
 
Þessar kannanir bera því vitni, að ÍÞ hefur oft átt nokkurn hljóm­grunn meðal kjósenda, og þar á geta vel orðið breyt­ingar til batn­aðar við nýjar og breyttar aðstæður, sem ekki verða séðar fyrir. Fleiri kannanir en þessar hafa verið gerðar, þar sem flokkurinn kemur við sögu, en þetta er látið nægja í bili. Ýtarlegri samantekt verður birt seinna, þegar meira hefur tínzt saman af þessu tagi.
 
Nú er líklegt, að Sigríður Andersen sé að gera hvað hún getur til að fæla ekki fleiri frá eigin flokki til íhalds­samari flokka í innflytj­enda­málum.
 
Þar að auki er ÍÞ eignalaus flokkur og sjóðs-laus og stendur því vitaskuld á meðan veikum fótum í athyglisbaráttu við flokka sem árlega "ræna" hundruðum milljóna króna úr ríkissjóði í eigin flokksskrifstofur í stað þess að láta félagsmennina standa undir útgjöldum þeirra, úr eigin vösum, eins og við í ÍÞ höfum árum saman þurft að gera!
 
Jón Valur Jensson.

Hrollvekjandi niðurstöður norskra dómsmála – Þrjú af hverjum fjórum grófum ofbeldisbrotum eru framin af innflytjendum - DV

 
 
Fréttamenn norsku TV2 sjónvarpsstöðvarinnar fóru nýlega yfir alla dóma, er varða alvarleg ofbeldis­brot/líkams­árásir, sem féllu í Osló frá því í árs­byrjun 2018 fram til mánudags í þessari viku. 140 manns hlutu dóm fyrir slík brot á tímabilinu. 

Niðurstöðurnar eru sláandi en samkvæmt þeim voru 98 hinna dæmdu inn­flytjendur eða um tveir þriðju hinna sakfelldu. [Raunar hvorki 3/4 né 2/3, heldur 70%, jvj.]

Um er að ræða mál þar sem hnífsstungur, högg og misþyrmingar koma við sögu. Í sumum málanna hlutu fórnarlömbin alvarlega áverka, sem munu jafnvel fylgja þeim allt lífið, og önnur voru í lífshættu. Í þriðjungi málanna voru hnífar, glerbrot eða flöskur notaðar. Meirihluti hinna dæmdu eru karlmenn.

Það er því ljóst að í þessum málaflokki er hlutfall innflytjenda mun hærra en það er í samsetningu Oslóarbúa. Samkvæmt tölum frá norsku hagstofunni eru 33 prósent íbúa Osló innflytjendur. Undir skilgreininguna innflytjandi falla þeir sem hafa flutt til Noregs eða eru fæddir í Noregi en eiga foreldra sem fæddust erlendis.

Ragnhild Bjørnebekk, sem vinnur að rannsóknum á ofbeldisbrotum, sagðist í samtali við TV2 ekki vera hissa á þessu háa hlutfalli innflytjenda. Hún sagðist telja að ein af ástæðunum sé að margir innflytjendanna koma úr samfélögum þar sem ofbeldi er algengara en í Noregi. Þetta sé einnig oft viðkvæmt fólk sem hafi upplifað miklar hörmungar."

Og nú er það bara spurning hvort góða fólkið fer að viðurkenna staðreyndir! --JVJ.

 
 
 
 

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband