Bloggfærslur mánaðarins, október 2018

GLÆSILEG niðurstaða í skoðanakönnun um fóstur­eyðinga­frumvarp Svandísar Svavarsdóttur

Þvílík niðurstaða í þeirri könnun Útvarps Sögu 25.-26. þ.m., þar sem spurt var: "Ertu sammála frumvarpi Svandísar Svavars­dótt­ur sem gerir ráð fyrir að heimila fóstur­eyðingar til loka 22 viku meðgöngu?"

Alls voru greidd 425 atkvæði. NEI sögðu 91,7%! JÁ sögðu einungis 5,6%, en hlutlaus voru 2,6%.
 
Niðurstöðurnar voru mjög áþekkar annarri könnun á sama vef ÚS, sem gerð var og birt 28. febr. 2017 og spurði út í það hvort fólk vildi rýmri fóstur­eyðinga­löggjöf, en þá reyndust rúmlega fimmfalt fleiri andvígir því en hlynntir að auka heimildir til fóstureyðinga.
 
Ljóst ætti að vera af þessu, að Svandís Svavarsdóttir hefur fengið almenning rosalega upp á móti sér með sínu öfga­kennda frumvarpi, enda eru ummæli um málið á Facebók* og víðar mjög af því andstöðu-tagi. Fólk virðist almennt hneykslað á bíræfni heilbrigðis­ráðherrans! Þess vegna var það aumkunar­verður áróður hjá yfirlækni kvenna­deildar Landspítalans í Sjón­varpi fyrir fáeinum kvöldum, að þetta (frumvarpið og 22ja vikna mark­ið!!) væri það sem almenn­ingur vildi ! --Þvílík skreytni !!!
 
En  stefna Íslensku þjóðfylkingarinnar er alveg á hreinu í þessu máli. Hér er ályktuflokksþings okkar vorið 2017:

 

Ófædd börn eiga rétt til lífsins. Flokkurinn tekur einarða afstöðu gegn nýfram­komnum hugmyndum um róttækar breyt­ingar á fóstur­eyðinga­löggjöf­inni og mun taka á þessum málum með það að mark­miði að draga sem mest úr fóstureyðingum.

Íslenska þjóðfylkingin er EINI stjórnmála­flokkurinn sem boðað hefur þessa stefnu, síðan Borgaraflokkur Alberts Guðmunds­sonar og félaga hans leið undir lok, en stofnaður var hann 1987 og tókst einmitt að koma lífs­verndar­sinnuðu fólki á þing: Huldu Jensdóttur, Ásgeiri Hannesi Eiríkssyni, Guðmundi Ágústssyni og Kolbrúnu Jónsdóttur, sem öll stóðu að frumvörpum í átt til fósturverndar, þveröfugt við Lenínista­flokkinn Vinstri græn!

 
 
Jón Valur Jensson.

mbl.is Þungunarrof verði heimilt út 22. viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrífst akademískt frelsi án tjáningarfrelsis? Berufsverbot notað í þágu pólitísks rétttrúnaðar!

Er það hlutverk Háskólans í Reykjavík að ofsækja kennara sína vegna þátttöku þeirra í léttu rabbi í lokuðu rými utan vettvangs skólans?

Er það hlut­verk fjöl­miðils eins og DV að lauma blaða­manni inn í rabb­hóp til að slá því síðar upp sem æsi­frétt, að einhver hafi rætt með galsa­fengn­um hætti, meira í gamni en alvöru, um hitt kynið? Birt­ist í því virðing DV fyrir tján­ingar­frelsi manna? Er ekki frelsi manna til "skoð­ana sinna og sann­færingar" (73. gr. stjórn­ar­skrár Íslands) ein megin­forsendan fyrir tilveru­rétti dagblaða eins og DV og samfélagslegu hlutverki þeirra?

Er ritstjórn þess fjölmiðils hreykin af því að hafa komið því til leiðar, að hálærðum háskólakennara var bolað úr starfi með engum fyrirvara vegna skoðana sinna, sem hann gerði ekkert til að dreifa meðal kennara né nemenda og heldur ekki meðal almennings?

Vill ritstjórn DV upplýsa um það, hve alvarleg brot hún telur menn þurfa að fremja til að verðskulda tafarlausa uppsögn úr starfi? Á dóms­vald í slíku máli í háskóla að vera í höndum einnar mann­eskju eða háskóla­ráðs? Og skiptir engu við mat á meintum glæp, með hverjum hætti hann var "framinn" -- er t.d. einkahjal manna engu síður refsivert fyrirbæri þar en opinber orð eða gjörðir?

Hæstaréttardómur mun falla í máli Snorra kennara Óskarssonar gegn Akur­eyrar­bæ hinn 1. nóvember n.k., þ.e.a.s. lokaþáttur réttarhalda gegn bæjarstjórninni, sá sem lýtur að bótakröfu hans vegna ólögmætrar uppsagnar hans úr starfi fyrir 6 árum. 

Forsíðumynd sem Kristinn Sigurjónsson notar Horfir Háskólinn í Reykjavík fram á það með eftir­vænt­ingu að verða dæmdur í tugmilljóna sekt vegna ólögmætrar uppsagnar vinsæls og hæfs og vel máli farins kennara, Kristins Sigurjónssonar?

Hvort stuðlar þetta framferði HR að vaxandi eða minnkandi trausti á skólanum úti í samfélaginu, meðal væntanlegra háskólanema, kennara og stuðnings­aðila? Hyggur æðsta ráð skólans, að þessi skyndilega aðför hans að starfsöryggi og lífs­viður­væri hins ágæta kennara hvetji fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga til að láta meira fé af hendi rakna til skóla­starfs Háskólans í Reykjavík?

Og hefur háskóla­rektor HR ekki hugkvæmzt, að með þessum gjörðum hafi háskólinn brotið gegn ákvæðum 73. greinar stjórn­ar­skrárinnar um tjáningarfrelsi? Braut hin fyrir­vara­lausa uppsögn starfsmannsins ekki þennan lokalið 70. gr. stjórnar­skrárinnar að auki: "Hver sá, sem er borinn sökum um refsiverða háttsemi skal talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð."

Selur mannauðs­stjóri HR sjálfri sér sjálf­dæmi sem í senn sak­sókn­ara og dómara í máli kennara skólans og hvað þeir kunna að hafa sér til gaman­mála úti í bæ?

Munu Bandalag háskóla­menntaðra manna (BHM) og BSRB ekki mótmæla þessari ófyrir­leitnu árás á starfs­réttindi eins af sínum skjól­stæðingum?

PS. Er það ekki ótrúlegt að einhver stelpa, sem kallast mannauðs­stjóri, geti á nokkrum mínútum rúínerað áratuga kennslu­starfi mikil­hæfs og vel menntaðs kennara? Takið líka eftir, að hann kaus EKKI að kynna þessar skoðanir, þessi gamanmál öllu heldur, fyrir mér og þér og hverjum sem er, heldur lét orð sín falla í lokuðum hópi. Hann myndi t.d. aldrei tala svona í alvöru á Útvarpi Sögu. Þar þekkja menn hann einmitt sem einn hinn al-málefna­legasta sem þar kemur í þætti, yfirvegaður og jafnan með góð rök á takteinum. Og ég ber fullkomið traust til orða hans um að hann meti konur mikils, enda á hann konu, móður, dóttur eða dætur ...

Um þetta mál Kristins hefur mjög mikil umræða farið fram á Facebókar-þráðum í dag og fram á nótt, enfremur að nokkru á Útvarpi Sögu, en þar var einmitt Snorri Óskarsson í viðtali á 5. tímanum í dag, sjá hér: Var vísað úr starfi í miðri kennslu­stund, í stuttri frétt og svo hljóðskrá þar sem hlusta má á allt viðtalið. 

Almennt hefur straumurinn verið með Kristni í Facebókar-umræðu málsins og sitthvað vel sagt. Tökum t.d. með þessa tilvitnun í Guðmund Pálsson lækni: 

Hann ætti að fara í mál og sjá hvernig reiðir af. Kona sem hefði sagt svona á "karlastað" með karlforstjóra (eða mann­auðs­stjóra) hefði aldrei verið rekin fyrir að segja "að hún vilji helst ekki vinna með körlum". Ég held engum hefði dottið í hug að reka konu fyrir svo ágætleg og persónuleg orð. Menn hefðu gantast svolítið með þetta um stund og reynt að dekra hana upp og gera ánægða, málið búið. 
Þetta er bara klaufaskapur og húmors­leysi, hún kann sig ekki manneskjan.

Og Sigurður Þórðarson í Ginseng, stýrimanns­lærður, var með góða ábendingu:

Kristinn sendur á atvinnu­leysis­bætur eftir 19 ára farsælan feril við Háskólann í Reykjavík. Hildur Lilliendahl sem haft hefur uppi svo svívirðileg ummæli um karlmenn á netinu að þau eru alls ekki eftir hafandi hefur hlotið starfsframa hjá Reykjavíkur­borg, verkefnastjóri á sviði jafnréttismála.

Og Olafur Isleifsson bætir við: Maður hefur oft heyrt konur segja verri hluti um karla.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Leitar lögfræðings og vill lítið segja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðverj­ar fjölga nú heimsend­ing­um hæl­is­leit­enda frá Norður-Afr­íku

"Þýsk yf­ir­völd hafa und­an­farið reynt að stöðva flótta­fólk sem þangað kem­ur frá Als­ír, Mar­okkó og Tún­is og fell­ur ekki und­ir alþjóðlega skil­grein­ingu á flótta­fólki. Það er fólk á flótta und­an fá­tækt og ör­birgð, ekki stríðsátök­um." (Mbl.is)

Já, nú hafa þessi mál allvíða breytzt til batnaðar, m.a. hjá Dönum og Svíum. (Lesendur eru hvattir til að setja hér inn ábendingar um fleiri slíkar breytingar, hvar sem er í álfunni.)

Bild hef­ur eft­ir ónafn­greind­um heim­ild­um inn­an úr stjórn­kerf­inu að ít­rekaðir fund­ir og viðræður að und­an­förnu hafi skilað sam­starfi við ríki Norður-Afr­íku um að skipt­ast á upp­lýs­ing­um um þá sem vísa á úr landi og að tekið verði við þeim aft­ur í ríkj­un­um sem þeir koma frá. (Mbl.is)

Þetta má kalla góðan árangur þýzkrar diplómatíu, að beita sér þannig gegn skipulagslausu innstreymi fólks, án þess að því hafi verið boðið að vera og án tillits til hugsanlegra þarfa og getu landsins sjálfs.

Rík­is­stjórn Þýska­lands hef­ur jafn­framt unnið að skrán­ingu ríkj­anna þriggja sem ör­uggra landa sem ger­ir þeim auðveld­ara um vik að senda flótta­fólkið til baka ...

segir í sömu heimild, en að festa þetta í lög gengur aftur á móti miður, því að anarkískir Græningjar hafa beitt sér gegn lagasetningu í þessa átt, og var svo sem við því að búast úr þeirri áttinni (illa áttað lið). En ekki mun standa á því, að þýzk stjórnvöld vilji hjálpa þjóðum þessara þriggja landa til að bæta þar menntun og efnahag og auka þar atvinnutækifæri. Það er líka rétta leiðin til að taka á vanda þessara landa, í stað þess að sópa skipulagslítið inn fólki frá framandi menningarheimum, þar sem víða er pottur brotinn, ekki aðeins í menntunarstigi, heldur jafnvel í menningar- og siðahefðum sem rekast illilega á vestræna menningu, sem er í grunninn kristin og grísk-rómversk (með góðum viðaukum hér í norðrinu úr okkar norrænu menningu smile) og hefur mótazt og slípazt á iðnbyltingar- og velferðartímum.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Vilja skrá ríkin sem örugg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigur í Bandaríkjaþingi, Brett Kavanaugh, staðfastur í vörn og sókn, er nýjasti hæstaréttardómarinn

Klárlega maður dagsins:

epa07074880 (FILE) - Federal appeals court judge Brett Kavanaugh listens to US President Donald J. Trump (not pictured) announce him as his nominee to replace retiring Supreme Court Justice Anthony Kennedy, in the East Room of the White House in
 
Ófyrirleitnum ásökunum þurfti hann að sæta, en lýsti því yfir í miðjum atganginum, að hann myndi aldrei gefast upp fyrir áreitnisliðinu. Frú Christine Blasey Ford græðir ugglaust á aðra milljón dollara fyrir óvott­fest­ar og óstað­festar ásakanir sínar, en hann fær að fylgja sinni samvizku í málum að störfum sem hæstaréttar­dómari, eins og hann hefur hingað til gert sem dómari, og var fróðlegt að fylgjast með ræðu þing­konunnar Collins fyrr í dag, þar sem hún rakti það, hve einstaklega vel hann hafði staðið sig í margvís­legum málum og iðulega staðið mjög með konum, til dæmis. Sjálf hafði hún áður bæði stutt tilnefningar Bills Clinton og Bush til hæstaréttardómara; hún ákveður sig á málefna­grundvelli, ekki eftir flokkslínum og virðist mjög virðingarverð þingkona. Og í dag kaus nú með Kavanaugh.
 
Snertir þetta mál Íslensku þjóðfylk­inguna á einhvern hátt? Já, það mun koma í ljós á næstu árum eða misserum! Hreyfing víða um lönd, þ.m.t. í Evrópu, fyrir því að takmarka árásir á ófædda í móður­kviði mun mjög sennilega fá ærlega hvatningu vestan um haf frá nýjum úrskurði Hæsta­réttar Banda­ríkjanna. En Íslenska þjóðfylkingin lýsti þessu yfir á sínu flokksþingi:

Ófædd börn eiga rétt til lífsins. Flokkurinn tekur einarða afstöðu gegn nýfram­komnum hugmyndum um róttækar breyt­ingar á fóstur­eyðinga­löggjöfinni og mun taka á þessum málum með það að mark­miði að draga sem mest úr fóstureyðingum.

Og eins og einn samherji undirritaðs orðaði það: "Nú ætla ég að vænta þess, að Hæstiréttur Banda­ríkjanna teygi ekki oftar og togi og afflytji landslög, til að styðja við fóstureyðingar."
 
Jón Valur Jensson.

mbl.is Kavanaugh samþykktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frumvarp um fóstureyðingar gengur þvert gegn stefnu Þjóðfylkingarinnar um verndun ófæddra Íslendinga

Konur hafa almennt verið sér meðvitandi um það síðustu fjóra áratugi, að fóstureyðingar af félagslegum ástæðum væru heimilar að landslögum til loka 12. viku meðgöngu, ekki 16. viku! Skjátlaðist þeim um þetta? NEI, því að í lögunum segir svo um aðalreglu þessa máls:

10. gr. "Fóstur­eyðing skal framkvæmd eins fljótt og auðið er og helst fyrir lok 12. viku meðgöngutímans."

Einnig: "Fóstureyðing skal aldrei framkvæmd eftir 16. viku meðgöngu­tímans, nema fyrir hendi séu ótvíræðar læknis­fræði­legar ástæður og lífi og heilsu konunnar stefnt í því meiri hættu með lengri meðgöngu og/eða fæðingu" o.s.frv. (Fósturdeyðinga-ólögin nr.25/1975) Þetta hafa konur í vanda almennt tekið sem grænt ljós laganna á 12 vikna leyfi til "félags­legra" fóstur­eyðinga fremur en 16 vikna, enda sést það líka af tíðni­tölum aðgerð­anna, töldum eftir vikum frá meðgöngu. 93,8% þeirra árið 2015 fóru fram fyrir lok 12. viku meðgöngu, en í unda­n­tekninga­tilfellum fóru svo 4,2% þeirra fram á 13.-16. viku árið 2015.

Þess vegna er vert að benda á, að tal heil­brigðis­ráðherra um að nú eigi að lengja heimildina til fóstur­eyðingar úr 16 í 18 vikur hljómar eins og blekk­ingar­leikur, því að fram að þessu töldu konur sig almennt ekki hafa þetta frelsi nema til loka 12. viku og leituðu sjaldan eftir því síðar. Það er því reynt að láta það hljóma svo, að þetta sé í reynd ekki svo veigamikil breyting! En eins og ljóst er af ofangreindu er það blekking. Og nú verður, ef Svandís nær að keyra málið í gegnum Alþingi, auglýst öllum, að fóstur­eyðingar verði heimilar til loka 18. viku meðgöngu, þegar hún er nær hálfnuð! Óneitanlega var þetta stefna bæði Magnúsar Kjartans­sonar, Austra-manns Þjóðviljans, og læriföður hans Leníns (með slíkum lögum hans 1920).

Og trú sinni flokkshefð vill Svandís, að þetta verði nú heimilt ... ekki út frá ákveðnum málefna­forsendum eða indicationum, heldur að beiðni konunnar, án þess að hún þurfi að nefna til neina nauðsyn sína!!! Einmitt þá stefnu hafði Magnús Kjartansson um 1973-4. En alveg er borðleggjandi, að þetta hvort tveggja, leng­ingin úr 12 í 18 vikur og "frjálsa" ákvörðunar­valdið hjá konunni (og barns­faðirinn algerlega hafður réttlaus!), mun stórauka flóð fóstur­eyðinga, eins og það væri ekki nógu mikið fyrir, 1044 á síðasta ári, um þriðjungur allra mannsláta!

Boðað frumvarp heilbrigðis­ráðherra um málið er því skuggaleg frétt. Það gengur 100% gegn stefnu Íslensku þjóðfylkingarinnar, því að í stað þess, að gefin verði út enn fleiri skotleyfi á ófædda Íslendinga, viljum við ganga í þveröfuga átt, eins og fram kemur í samþykkt flokksþings okkar:

Ófædd börn eiga rétt til lífsins. Flokkurinn tekur einarða afstöðu gegn nýfram­komnum hugmyndum um róttækar breyt­ingar á fóstur­eyðinga­löggjöfinni og mun taka á þessum málum með það að mark­miði að draga sem mest úr fóstureyðingum.

Íslenska þjóðfylkingin er EINI stjórnmála­flokkurinn sem boðað hefur þessa stefnu, síðan Borgaraflokkur Alberts Guðmunds­sonar og félaga hans leið undir lok, en stofnaður var hann 1987 og tókst einmitt að koma lífsverndarsinnuðu fólki á þing: Huldu Jensdóttur, Ásgeiri Hannesi Eiríkssyni, Guðmundi Ágústssyni og Kolbrúnu Jónsdóttur, sem öll stóðu að frumvörpum í átt til fósturverndar, þveröfugt við Lenínistaflokkinn VG!

Jón Valur Jensson.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband