Bloggfærslur mánaðarins, október 2019

DNA-sýnum safnað úr ólöglegum innflytjendum

Það virðist í raun sanngjörn aðferð og væg, miðað við ýmsar harka­legri, að banda­rísk stjórn­völd ætla nú að taka DNA-sýni allra hæl­is­leit­enda sem hafa verið hneppt­ir í varð­hald eft­ir að hafa komið ólög­lega til lands­ins.

Geri viðkomandi ekkert af sér, mun þetta ekki há þeim í landinu, fái þeir að­gang. Verði þeim vísað frá, en birtist aftur, mun auðvelt að bera kennsl á þá.

Trumpstjórnin hefur nú minnkað innflytjendakvóta um 40% og hafið byggingu hinnar rándýru öryggisgirðingar á landamærunum að Mexíkó. Eins og stjórnvöld flestra ríkja vill ríkisstjórn Trumps hafa visst taumhald á innflutningi fólks.

Það kann að vera einbert tíma­spursmál hvenær önnur ríki taki upp þá eftir­lits­aðferð, sem um ræðir hér ofar. En brjóti hún í bága við persónu­verndar­tilskipun Evrópu­samband­ins, munu þjóðirnar í því sambandi, sem og Ísland og Noregur, fara á mis við þá vörn sem felst í því að hafa lífsýni fólks tiltæk í vörslu lögreglu.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Ætla að safna DNA-sýnum úr öllum hælisleitendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband