Færsluflokkur: Bílar og akstur

Líf: vill ENGIN MISLÆG GATNAMÓT FRAMAR!

Líf Magneudóttir reynir að fá upp­slátt í fjöl­miðl­um út á sína lofts­lagstrú og a­ðgerð­ir sem hótað er til að STÓR­SKERÐA BÍLA­UMFERÐ. Við deilum ekki þeirri trú með henni!

Arfa­vitlaus er stefna hennar í um­ferð­ar­málum, gengur fram hjá hinum hag­kvæma, skil­virka kosti mis­lægra gatna­móta (sem ríkið leggur 80% kostn­aðar til á stofn­brautum), en Líf, Dagur og þeirra liðs­menn leggja áherzlu á að þrengja sem allra mest að bíla­eig­endum sem þurfa að komast leiðar sinnar til vinnu, útrétt­inga, keyrslu með krakk­ana, til tóm­stunda og til ferða­laga. 

Bílaeigendur eiga eftir að gera upp­reisn við kjör­kass­ana gegn fáráðs­hyggju vinstri flokkanna og taglhnýtinga þeirra í "Viðreisn", gegn þessum gervi­pólitík­usum sem þykjast vera með ofur­þróað sam­vizku­bit vegna innan við einn þús­und­asta úr prómilli af meintum kolefnis­útblæstri heimsins, en eru samt örugg­lega ekki til í að hætta sínum eilífu flug­ferðum á kostnað ríkis og sveitar­félaga! Þurfi einhver á samvizku­biti að halda í þessu efni, er það liðið sem stuðlar að sem mestum stopp­um og lausa­gangi bíla við gatnamót (og það mengar einmitt í alvöru, ólíkt kolefninu), sem og þeir borgar­fulltrúar sem mest hafa unnið sér inn af flug­vizku­biti.

Borgin ætti enn­fremur að banna nagla­dekk, sem spæna upp mal­bik og dreifa heilsu­spill­andi ryki. En ekk­ert nýtt gerist á þeim bæn­um, Ráð­húsinu við Tjörnina, sem Davíð ætlaði örugg­lega ekki það hlut­verk að vera virki stöðnunar og afturhalds í borginni.

En við í Þjóðfylk­ingunni höfum ekki meðtekið hina tízkubundnu, en ósönnuðu loftslagstrú vinstri flokkanna.

Jón Valur Jensson.


Fækkum hraðabungum í höfuðborginni!

Það er löngu kominn tími til að skafa burt stóran hluta af óþörf­um hraða­bung­um í Reykja­vík. Víða duga aðrar umferðar­merkingar, en bæði bílar og menn verða leik­soppar harðra ákeyrslna á hraða­bungur, m.a. í snjókomu, dimmu eða litlu skyggni.

Menn finna það á sjálfum sér, ekki sízt í strætis­vögnum, hve óþægi­legur þessi hoss­ingur er fyrir lík­am­ann, og hefur þeim tilfellum fjölgað með fjölgun erlendra bílstjóra strætis­vagna­fyrir­tækjanna, manna sem trúlega hafa ýmist litla aksturs­reynslu eða öku­próf sem jafnast ekki að gæðum við það sem íslenzkir bílstjórar hafa.

Ennfremur hefur orðið tjón á bílum við að þeir skullu á hraða­bungum.

Þess vegna hittist skemmtilega á, að það er einmitt framkvæmda­stjóri borg­ar­fyrirtækis í slíkum vagnaferðum, Jóhannes Rúnarsson, frkvstj. Strætós bs., sem vekur athygli á þeim baga sem þessar bungur eru fyrir strætis­vagnana, jafnvel þannig, að þær "tefja rafvæðingu strætis­vagna­flotans á höfuð­borgar­svæðinu, og hefur afhending fjögurra rafvagna dregist um nokkra mánuði vegna þessa," eins og hann segir í fréttar­viðtali við Mbl.is.

Já, nú mega Hjóla-Hjálmar og Dagur borgar­stjóri á útleið sannar­lega fara að endurskoða sína umferðar-pólitík, sem í þessu efni sem öðrum er á ská og skjön við eðlilega skynsemi og iðulega í beinni mótsögn við vilja borgarbúa.

Tekið skal fram, að vitaskuld þarf að gera undantekningar um hraðabungur á götum þar sem reynslan sýnir að vegfarendum getur stafað hætta af hrað­akstri. En almennt myndi draga úr honum með notkun eftirlits­myndavéla.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Hraðahindranir tefja rafvæðingu Strætó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband