Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2018

Það sem svo margir vissu ekki um Hillary Clinton

Það eru margir sem virðast gleyma því að val banda­rískra kjósenda við síðustu forseta­kosn­ingar þar í landi stóð á milli Donalds Trump og Hillary Clinton. Trump vann með því að vera kosinn af „the deplor­ables“ eða hinum hörmu­legu/ömur­legu samkvæmt Hillary Clinton, en það kallaði hún alþýðu­fólkið. Það er vel hægt að nálgast svar við spurn­ingunni um hvernig komið væri málum ef Hillary hefði unnið, með því að lesa sér til um hana og um munnsöfnuð hennar og gjörðir.

Á bak við Hillary stóð peninga­valdið, bankar og stórfyrirtæki og svo vinstri/ liberal elítan, en allt það lið styður alþjóða­væð­inguna og opin landamæri á kostnað hins vinnandi manns, sem elítan lítur niður á.

Það fólk sem getur ekki á sér setið í „Trump bashing“ eða enda­lausri tilbúinni gagnrýni sinni á Donald Trump Bandaríkja­forseta vill hins vegar alls ekki að minnst sé á orðsporið um óheiðar­leikann sem yfirstéttar­konan Hillary Clinton hefur alla tíð borið með sér, enda oft kölluð „Crooked Hillary“ eða hin spillta. Það sem því liði hefur á hinn bóginn tekist að gera er að bera út sögur um og mála myndir af Trump, sem fæstar eru að sýna sig að standist skoðun þegar nánar er að gáð með yfirvegun.

Án þess að fara nánar út í Trump sjálfan hér, þá sýnir sig glöggt að áróður hatursins eru ær og kýr hinnar ný-marxisku vinstri „hámenningar“ og Soros­ismans um eyðingu þjóðríkisins og þjóðlegrar og kristinnar borgaralegrar menningar sem hefur gefið bestu lífskosti allra tíma. Eins og því miður svo víða, þá sýna sömu "crooked" eigindir sig glöggt hér heima, ekki hvað síst með aðstoð skipulagðrar innrætingar pólitískra fjölmiðla eins og Rúv o.fl. Mér finnst það allt jafn ógeðfellt og það er vissulega hættulegt.

Kjartan Örn Kjartansson.

YOUTUBE.COM
 
Some shocking things about Hillary Clinton. WATCH MORE VIDEOS LIKE THIS ONE HERE: 10 Things…

mbl.is Sakar Google um að hagræða niðurstöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sannleikurinn er sagna bestur -- úr merkilegri ræðu Viktors Orbán

"Það er í dag bannað í Evrópu að segja sannleikann. Það er bannað að segja að Evrópa sé undir ógnum fólksflutninga. Það er bannað að að segja að milljónir manna sé tilbúnar til þess að færa sig til okkar. Það er bannað að segja að þjóðflutningar (mass migration) koma með glæpi og hryðjuverk til landa okkar. Það er bannað að segja að þessi fjöldi sem kemur frá framandi menningarheimum stofnar lífsháttum okkar í hættu, menningu okkar, gildum okkar og kristnum siðvenjum ..."

"Það er bannað að segja að Brussel sé að rífa í sig og gleypa fleiri og fleiri sneiðar af sjálfstæði okkar og að í Brussel sé fjöldinn allur að skipuleggja komu bandaríkja Evrópu."

Sjá nánar hér á x-e.is: Sannleikurinn er sagna bestur: Úrdráttur úr stórmerkilegri ræðu Viktors Orbán forsætisráðherra Ungverjalands sem flutt var 2016

H.H.


Reykjavíkurbréf afhjúpar klúðrið í stjórnun Reykjavíkurborgar

"Hann [Dagur B.Egg.] er bara svona. Tveimur vikum fyrir síðustu kosningar og eftir átta ár við völd tók hann óvænt að lofa því að "setja Miklubraut í stokk" og voru verktakar þá í óða önn að láta handraða grjóti í net beggja vegna við hana og áttu enn ófrágengið verkið Klambratúnsmegin! Þeir vissu ekki hvort þeir ættu að trúa á stokk eða steina."

Þetta er bara eitt dæmi úr þessu Reykjavíkurbréfi í dag, þar sem rakin eru sorglega hláleg atriði um ofstjórn og stjórnleysi í Ráðhúsinu í Reykjavík. Er þar ekki sízt komið inn á lóða- og byggingarmál í borginni, fimm unnin kærumál á hendur henni, leikskólamál o.fl.

Reykjavíkurbréfin eru með því albezta sem sést í blaðamennsku á Íslandi, oft launfyndin og kitla marga hláturvöðva. Ekki eru þau birt á netinu nema áskrif­endum Morgunblaðsins, sem geta vitaskuld lesið þau í blaðinu sjálfu. Gaman­sem­in þarna og frábær stílbrögðin eru því gjarnan hulin sjónum meirihluta Íslendinga.

En Halldór Jónsson verkfræðingur hefur á stundum tekið sér bessaleyfi til að endurbirta heilu og hálfu Reykjavíkurbréfin, og það gerði hann einmitt á bloggi sínu í dag, á 232. afmælisdegi Reykjavíkur sem kaupstaðar, og má lesa það hér (en lokaorðin í 4-5 klausum mun HJ eiga sjálfur, sem og inngangsorðin): 

Borgarmálin

Jón Valur Jensson.


Múslimum fjölgar hratt í Evrópu, meðan kristnum fækkar

[Ef ástandið var orðið svona 2007, hvernig er það nú? Já, hér sést, að hlutirnir eru í raun fljótir að gerast!]

Hvað sem mönnum kann að finnast um stutt­mynd­ina Fitna, sem fjallar um islam og islam­isma í Evrópu, þá eru eftir­far­andi tölur um múslimi í Hollandi og álf­unni allri sannarlega augna­opnandi:

Fjöldi múslima í Hollandi: 

  • 1909:  54
  • 1960:  1399
  • 1990:  450.000
  • 2004:  944.000

Fjöldi múslima í Evrópu árið 2007: 54.000.000.

Þetta er skv. pistli Skúla Skúlasonar: FITNAH TEXTI MYNDARINNAR ÍSLENSKAÐUR, 3. ÞÁTTUR.

Á sama tíma og þessi gríðarlega aukning hefur átt sér stað á fjölda Múhameðstrúarmanna á síðustu áratugum, hefur ekki aðeins trúuðum kristnum mönnum fækkað, heldur stefna sumar þjóðirnar sjálfar hraðbyri að eigin útþurrkun. Þegar barnafjöldi á hverja konu á barneignaaldri er kominn niður í 1,3, eins og reyndin er í Rússlandi, Þýzkalandi, Tékklandi, á Spáni og Ítalíu, þá fækkar börnum barneignakynslóðarinnar tífalt á hverjum fimm kynslóðum (um 120-150 árum) og hundraðfalt á tíu kynslóða tímabili. Þessi fólksfækkun nefndra landa og fleiri á sér stað þrátt fyrir mun meiri fjölgun ýmissa innflytjenda, þannig að demógrafískt séð eru þar að eiga sér stað jafnvel enn meira afgerandi breytingar: hinn evrópski kynstofn kristinna manna á hægri útleið, meðan aðrir gerast erfingjar landsins.

Og hvernig lízt mönnum nú ná? 

Sorglegast alls í sambandi við þessa fólksfækkun er hversu stór hluti hennar á sér stað vegna fósturdeyðinga og (jafnvel hér á landi) ófrjósemisaðgerða í stórum stíl. Sá bóndi, sem þannig hagaði sér við bústofninn, yrði seint sagður stefna að því að verða fjárríkur maður.

 

Þessi grein er hér endurbirt af Moggabloggi undirritaðs 5. apríl 2008 (Múslimum fjölgar hratt í Evrópu, meðan kristnum fækkar). Þar voru alls 72 athugasemdir í fjörugri umræðu á eftir greininni! --JVJ.


Tilraunir islamista til fjöldamorða í Evrópu eru hvergi nærri hættar

26 ára Lewis Ludlow stefndi að því að myrða nær hundrað manns með því að leigja sendiferðabíl og keyra honum á fólk á Oxford-stræti. Brezku lögreglunni tókst með netnjósnum og snarræði að koma upp um kauða í tæka tíð. Á Visir.is var fjallað um þetta í gær, en Mbl.is þegir enn.

Hann hefur játað á sig glæpinn, "sömuleiðis að hafa gefið Íslamska ríkinu peninga. Ludlow tók upp íslamstrú fyrir nokkrum árum og lýsti yfir hollustu við ISIS.

Ludlow var fyrst handtekinn árið 2015 og fannst myndefni frá Íslamska ríkinu á tölvum hans. Hann var hins vegar ekki ákærður, samkvæmt Sky News.

Í febrúar á þessu ári komu yfirvöld í veg fyrir að hann ferðaðist til Filippseyja og var vegabréf hans fellt úr gildi. Í kjölfarið skipulagði hann áðurnefnda árás" (Visir.is),

sjá nánar í spennandi frásögn í sömu frétt af því hvernig hann náði samvinnu við fleiri islamista og skipulagði árás sína út í æsar, en lögreglunni brezku tókst að lauma sér inn á samskipti þeirra og snúa loks á hann í tæka tíð. Hann er nú í varðhaldi og bíður dóms, sem kveðinn verður upp 2. nóvember nk.

Víða um Vesturlönd fer slík starfsemi hryðjuverka-sinna fram og erfitt við að eiga; þetta krefst mikilla forvarna á vegum lögreglu og leyniþjósnustu í hverju landi, ekki sízt þar sem mikill fjöldi múslima býr og auðvelt er fyrir skaðræðis­menn að leynast innan um þá.

Gríðarlegur fjöldi hælisleitenda sækir til Evrópu, frá Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum og lengra að; ná þeir nú einna helzt landi á Spáni, og hrósa margir slíkir happi að komast til fyrirheitna landsins, þótt þar ríki framandi menning, en ýmsir í hópnum eru víðs fjarri því að sýna þakklæti sitt í verki, eins og sjá má á myndbandi sem vísað er á neðst í þessari færslu; verst væri þó, ef hryðjuverkadólgum tækist að laumast með slíkum hópum. 

Myndaniðurstaða fyrir oxford street Myndaniðurstaða fyrir oxford street
 
Oxford Street er mikil verzlunargata í Lundúnum og fjölmennt þar flesta daga.
 
Kort af Oxford St, London, Bretland
 
Hér er myndbandið, með inngangi á sænsku, athyglisvert strax þar í byrjun.
 
en þegar á myndina líður, koma fram virkilega óþægilegir hlutir (og kveikið þar á hljóðinu):

INVANDRINGEN HAR BLIVIT INVADERINGEN

Den spanska solkusten har förvandlats till den nya porten till Europa efter att Italien och Malta stängt gränsen mot Medelhavet.

Spaniens nya sosseregering tillåter verksamheten fastän lokala myndigheter ber om hjälp.

...Sjá meira
 
 
 Jón Valur Jensson.

Saudi-Arabar bregðast hart við gagnrýni Kanada með mynd sem minnir á árásina á Tvíburaturnana!

Víða gætir viðkvæmni um islam. Boris Johnson hafði ekki fyrr hafnað búrku­banni í stíl Dana en hann lét orð falla sem móðga múslima­vini, jafnvel Theresu May, sem krefst afsök­unar­beiðni, sem Boris hafnar!

Saudi-Arabar brugð­ust hart og illa við áskorun Kanada­stjórnar um að baráttu­menn fyrir mannrétt­indum yrðu leystir úr haldi: 

Ríkisstjórnin í Riyad tilkynnti, að sendiherra Kanada yrði rekinn heim;

ennfremur að hætt yrði við nýjan viðskipta- og fjárfestinga-samning við Kanada,

og saudi-arabíska sjúklinga lætur stjórnin í Riyad taka út af spítölum í Kanada til að senda þá til annarra landa!

Nokkrum klukkustundum síðar tísti stofnun, hlynnt saudi-arabískum stjórnvöldum, færslu þar sem sýnd var mynd af Air Canada-flugvél sem stefndi beint á hæstu byggingu Toronto, CN-turninn (heimild: ný frétt í The Guardian: Saudi group posts photo of plane about to hit Toronto´s CN tower amid spat with Canada). Þessi stofnun (organization) hefur síðan beðizt afsökunar á færslunni.

Hér er mynd af háhýsunum miklu í Toronto:

Toronto’s CN tower. The altered image showed an Air Canada plane aimed at Toronto’s skyline. Undirrituðum tókst ekki að ná myndinni með flugvélinni, en hún sést í tilvísaðri Guardian-frétt. Þeirri mynd fylgir ógnandi texti.
 
Boris Johnson, fyrrv. utanríkisráðherra Breta, lét það bara vaða í gær, sagði í grein í Daily Telegraphað múslimskar konur í búrkum "líti út eins og póstkassar" og bar þær saman við "bankaræningja".
 

Theresa May forsætisráðherra tók undir áskoranir á hr. Johnson að biðjast afsökunar og sagði að athugasemdir hans hefðu "clearly caused offence" (greinilega misboðið mönnum). Hann hefði notað ranga orðræðu um lykil-málefni, "women´s ability to wear the burka, if they choose to do so; that should be a matter for a woman to choose" (heimild). (Ekki er danska þingið á sama máli, og þær raddir heyrast líka í Bretlandi sem krefjast búrkubanns, sbr. þessa grein í The Telegraph, birta kl. 22 þennan þriðjudag, 7. ágúst: Allison Pearson: Don’t ban Boris… ban the burka!)

En í beinu framhaldi af mótmælum frú May:

But a source close to Mr Johnson said he "won´t be apologising", adding it was "ridiculous" to attack his views.

"We must not fall into the trap of shutting down the debate on difficult issues," the source added.

"We have to call it out. If we fail to speak up for liberal values then we are simply yielding ground to reactionaries and extremists."

 
Boris Johnson

Johnson ´won´t apologise´ for burka comments

The former foreign secretary stands by his remarks despite the Tory chairman telling him to apologise. (BBC.co.uk, heimildin um þetta mál, einnig https://www.telegraph.co.uk/politics/2018/08/07/boris-johnson-told-apologise-tory-party-chairman-brandon-lewis/)

Þetta eru allt glænýjar fréttir af stöðu múslimaumræðunnar í þremur löndum heims; greinilega verður ekki mikill friður um þessi meintu "trúarbrögð friðarins" í bráð eða lengd.
 
Jón Valur Jensson.

Geta íslenzkir vinstri menn og "frjálslyndir" hugsað sér að læra af reynslu Svía?

Fylgi Svíþjóðar­demó­krata stór­eykst, nálgast jafnvel 30% (kosið verður í sept.)! M.a.s. jafnaðar­menn vilja nú fækka flóttamönnum sem koma til Svíþjóðar um helming! Partur af bakgrunni málsins:

"Arabíska númer tvö í Svíþjóð.

Arabíska er nú orðin næst­algeng­asta móður­málið í Svíþjóð. Finnska, sem hingað til hefur verið næst­algengasta tungumálið, er þar með komin í þriðja sæti.

Líklegt þykir að arabíska sé móðurmál yfir 200 þúsund einstak­linga í Svíþjóð en straumur flóttamanna kom til Svíþjóðar árið 2015. Fjöldi þeirra er talinn hluti af skýringunni."

Þetta var frétt í sjálfu Frétta­blaðinu 4. júní sl. Í umræðum á Visir.is upplýsti Hermann Stakkadal Sölvason:

"Ekki hefur verið gerð trúarkönnun í Svíþjóð síðan 1930. 
Amerikanska forsknings­centret Pew h[efur] komist að þeiri niðurstöðu að árið 2016 væru 8,1% af Svíum múslimar og árið 2050 hafi þeim fjölgað [í] 30%, það er að segja ef Svíar hætta að taka á móti svona mörgum múslimum sem þeir hafa gert síðustu árin.
Múslimar í Svíþjóð eru komnir inn í ríkisstjórn og dómskerfi."

Það mun taka langan tíma fyrir Svíþjóð að jafna sig á innflytj­enda­bylgju síðustu ára. Almennur rómur er gerður að því þar, að allt of geyst hafi verið farið í málin, eins og sést af breyttri stefnu flestra flokka víðast hvar í Skandinavíu.

"Sænsk­ir jafnaðar­menn hafa kynnt nýja stefnu í inn­flytj­enda­mál­um sem miðar að því að draga mjög úr fjölda flótta­manna sem kem­ur til Svíþjóðar. [...]

Ráðherra inn­flytj­enda­mála í Svíþjóð, Helene Fritzon sem sit­ur á sænska þing­inu fyr­ir jafnaðar­menn, sagði á blaðamanna­fundi þar sem nýja stefn­an var kynnt að við eðli­leg­ar aðstæður kæmu 14-15 þúsund hæl­is­leit­end­ur til Svíþjóðar en á síðasta ári hafi þeir verið 27 þúsund. Hún lagði þó áherslu á að hún vildi ekki gefa upp ákveðna tölu varðandi það hvað ætti að að vera mark­mið stjórn­valda þegar kæmi að fjölda hæl­is­leit­enda.

„Já þýðir já og nei þýðir nei“

Meðal ann­ars vilja sænsk­ir jafnaðar­menn að tíma­bundn­ar strang­ari regl­ur um mál­efni hæl­is­leit­enda sem sett­ar voru árið 2016 verði fest­ar var­an­lega í sessi þar til Evr­ópu­sam­bandið hafi samþykkt nýj­ar regl­ur í þeim efn­um. Enn­frem­ur til að mynda að eft­ir­lit með skil­ríkj­um þeirra sem koma til Svíþjóðar verði hert og sett­ar verði skorður við frelsi þeirra sem fengið hafa hæli til þess að velja hvar í land­inu þeir setj­ist að. 

Stefn­an ger­ir sömu­leiðis meðal ann­ars ráð fyr­ir því að þeir sem neitað hafi verið um hæli í Svíþjóð þurfi að bíða í tvö­falt lengri tíma en nú er áður en þeir geti sótt um hæli á nýj­an leik og að þeim hæl­is­leit­end­um sem neita að yf­ir­gefa landið af fús­um og frjáls­um vilja eft­ir að um­sókn þeirra hef­ur verið hafnað verði bannað að koma þangað aft­ur. 

Haft er eft­ir Stef­an Löf­ven, for­sæt­is­ráðherra Svíþjóðar og leiðtoga Jafnaðarmanna­flokks­ins, í sænsk­um fjöl­miðlum að aðal­atriðið væri það að hæl­is­leit­end­ur yf­ir­gæfu landið ef um­sókn þeirra væri hafnað. „Grund­vall­ar­atriðið verður að vera að já þýðir já og nei þýðir nei. Ef þú átt eng­an rétt á að vera í Svíþjóð þá get­urðu ekki notið sænskr­ar vel­ferðar. 

Fram kem­ur í frétt Bloom­berg að sænsk­ir jafnaðar­menn færu með þessu í fót­spor jafnaðarmanna í Dan­mörku sem kynnt hafi herta inn­flytj­enda­stefnu og væru með það til skoðunar að starfa með Danska þjóðarflokkn­um, sem lengi hef­ur talað fyr­ir harðri inn­flytj­enda­stefnu, að lokn­um þing­kosn­ing­um þar í landi á næsta ári." (mbl.is)

Ætla íslenzkir stjórnmálamenn að læra eitthvað af þessu? Þykir þeim róttækustu enn hentugast að sæta færi á að varpa auri á þá norrænu stjórn­málamenn sem reyna að breyta ástandinu til batnaðar?

Telur Helga Vala sig nú mann með mönnum meðal norrænna stjórn­mála­manna? Og þykir Guðmundi Andra Thorssyni gott að berja höfði við stein?

Jón Valur Jensson.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband