Færsluflokkur: Samgöngur
Miðvikudagur, 27.11.2019
Líf: vill ENGIN MISLÆG GATNAMÓT FRAMAR!
Líf Magneudóttir reynir að fá uppslátt í fjölmiðlum út á sína loftslagstrú og aðgerðir sem hótað er til að STÓRSKERÐA BÍLAUMFERÐ. Við deilum ekki þeirri trú með henni!
Arfavitlaus er stefna hennar í umferðarmálum, gengur fram hjá hinum hagkvæma, skilvirka kosti mislægra gatnamóta (sem ríkið leggur 80% kostnaðar til á stofnbrautum), en Líf, Dagur og þeirra liðsmenn leggja áherzlu á að þrengja sem allra mest að bílaeigendum sem þurfa að komast leiðar sinnar til vinnu, útréttinga, keyrslu með krakkana, til tómstunda og til ferðalaga.
Bílaeigendur eiga eftir að gera uppreisn við kjörkassana gegn fáráðshyggju vinstri flokkanna og taglhnýtinga þeirra í "Viðreisn", gegn þessum gervipólitíkusum sem þykjast vera með ofurþróað samvizkubit vegna innan við einn þúsundasta úr prómilli af meintum kolefnisútblæstri heimsins, en eru samt örugglega ekki til í að hætta sínum eilífu flugferðum á kostnað ríkis og sveitarfélaga! Þurfi einhver á samvizkubiti að halda í þessu efni, er það liðið sem stuðlar að sem mestum stoppum og lausagangi bíla við gatnamót (og það mengar einmitt í alvöru, ólíkt kolefninu), sem og þeir borgarfulltrúar sem mest hafa unnið sér inn af flugvizkubiti.
Borgin ætti ennfremur að banna nagladekk, sem spæna upp malbik og dreifa heilsuspillandi ryki. En ekkert nýtt gerist á þeim bænum, Ráðhúsinu við Tjörnina, sem Davíð ætlaði örugglega ekki það hlutverk að vera virki stöðnunar og afturhalds í borginni.
En við í Þjóðfylkingunni höfum ekki meðtekið hina tízkubundnu, en ósönnuðu loftslagstrú vinstri flokkanna.
Jón Valur Jensson.
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 03:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 18.8.2018
Reykjavíkurbréf afhjúpar klúðrið í stjórnun Reykjavíkurborgar
"Hann [Dagur B.Egg.] er bara svona. Tveimur vikum fyrir síðustu kosningar og eftir átta ár við völd tók hann óvænt að lofa því að "setja Miklubraut í stokk" og voru verktakar þá í óða önn að láta handraða grjóti í net beggja vegna við hana og áttu enn ófrágengið verkið Klambratúnsmegin! Þeir vissu ekki hvort þeir ættu að trúa á stokk eða steina."
Þetta er bara eitt dæmi úr þessu Reykjavíkurbréfi í dag, þar sem rakin eru sorglega hláleg atriði um ofstjórn og stjórnleysi í Ráðhúsinu í Reykjavík. Er þar ekki sízt komið inn á lóða- og byggingarmál í borginni, fimm unnin kærumál á hendur henni, leikskólamál o.fl.
Reykjavíkurbréfin eru með því albezta sem sést í blaðamennsku á Íslandi, oft launfyndin og kitla marga hláturvöðva. Ekki eru þau birt á netinu nema áskrifendum Morgunblaðsins, sem geta vitaskuld lesið þau í blaðinu sjálfu. Gamansemin þarna og frábær stílbrögðin eru því gjarnan hulin sjónum meirihluta Íslendinga.
En Halldór Jónsson verkfræðingur hefur á stundum tekið sér bessaleyfi til að endurbirta heilu og hálfu Reykjavíkurbréfin, og það gerði hann einmitt á bloggi sínu í dag, á 232. afmælisdegi Reykjavíkur sem kaupstaðar, og má lesa það hér (en lokaorðin í 4-5 klausum mun HJ eiga sjálfur, sem og inngangsorðin):
Borgarmálin
Jón Valur Jensson.
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 14:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 27.6.2018
Vill borgarstjórn Dags B. Eggertssonar ekki fækka umferðarslysum?
Enn einu sinni varð umferðarslys á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í kvöld. Hvað ætli þau séu orðin mörg, sem komast hefði mátt hjá á þessum mestu slysagatnamótum landsins? En SKEMMDARVERK vilja Dagur & félagar fremja til að koma í veg fyrir mislæg gatnamót þar, fremur en að gera skyldu sína og láta setja upp slíkt mannvirki sem fyrst til að 1) draga úr slysum, 2) auðvelda liðugri umferð um þessar stofnbrautir Reykjavíkur og 3) minnka mengun í borginni, því að kyrrstæðir bílar í gangi menga miklu meira en bílar á eðlilegum ökuhraða. (Að Dagur, Holu-Hjálmar & Co. séu á móti mengun, er bara mýtha, sem hentar þeim sjálfum, þar til upp um þá kemst.)
Þetta er sett hér fram út frá því, sem undirrituðum barst til eyrna, að Dagsmenn í borgarstjórn vilji láta reisa íbúðabyggð á horni Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, nálægt Kringlunni! En með því væri brugðið fæti fyrir fyrri áform (ekki Dagsmanna!) um að byggja þar mislæg gatnamót.
Stefna Dagsmanna er ekki aðeins það, sem kalla má naívisma í samgöngumálum, heldur beinlínis lífshættuleg og skaðvaldur fyrir borgarbúa sem aðra sem leið eiga um borgina. Þess vegna er í raun brýn nauðsyn að stuðla að því, að gervimeirihlutinn, sem nú stjórnar borginni og vill sem minnstar lýðræðislegar ákvarðanir í borgarstjórn (öllu skal vísað til lokaðra funda borgarráðs!), falli sem fyrst vegna innri ágreinings og umfram allt vegna þrýstings frá borgarbúum sem sætta sig ekki við fáræðisstjórn Dags B. og félaga, sem hafa EKKI umboð frá meirihluta borgarbúa til að bregða fæti fyrir mislæg gatnamót!
Jón Valur Jensson.
![]() |
Einn fluttur á sjúkrahús eftir árekstur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 00:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 21.6.2018
Ómar Ragnarsson þarf að svara þessu um sinn umboðslausa samflokksmann Dag B. Eggertsson
Af hverju hefur flugmaðurinn Ómar Ragnarsson ekki komið með neina gagnrýni á Dag B. Eggertsson, eftir að það vitnaðist, að hann stefnir á að leggja niður Reykjavíkurflugvöll, jafnvel á kjörtímabilinu? Fekk hann umboð til þess frá kjósendum? Bað hann um það umboð? Missti hans flokkur ekki 6% fylgis kjósenda í kosningunum? Fengu gömlu samstarfsflokkarnir úr síðasta borgarstjórnarmeirihluta ekki 38,19% atkvæða í kosningunum 26. maí? Og jafnvel með atkvæðum "Viðreisnar", hafa þeir nema 46,35% atkvæða kjósenda? Er það í alvöru umboð frá kjósendum til svo róttækrar og alvarlegrar árásar á Reykjavíkurflugvöll að leggja hann niður?
Og hvað segir flugmaðurinn Ómar um það? Hann er nú ekki kunnur sem neinn öfgamaður hingað til.
Jón Valur Jensson.
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 22.5.2018
Grátbrosleg hugmyndafræði býr að baki antibílisma Samfylkingarinnar og forherðingar gegn mislægum gatnamótum
Helga Vala Helgadóttir kom upp um botnlausa fáfræði þeirra í Mbl.pistli, þar sem hún hélt þessu blákalt fram:

* "Umferðartafirnar kosta þjóðina mikið fé. Samtök iðnaðarins segja aðgerðaleysi í vegamálum vera dýrkeypt. Samtök iðnaðarins (SI) áætla að 15 þús. klst. sé dag hvern sóað í umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu. Það samsvari 25 klst. á íbúa á ári. Þetta kemur fram í greiningu SI á vegamálum."
![]() |
Sjö flokkar næðu inn manni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt 23.5.2018 kl. 00:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 25.4.2018
Lítil ánægja með stjórnmálastéttina; hrun Samfylkingar heldur áfram
Áberandi er í nýrri könnun Fréttablaðsins, að 49,2% gefa ekki upp neinn flokk sem þau vilji kjósa! Heil 21,3% vildu ekki svara, 16,6% sögðust óákveðin, 11,3% ætla ekki að kjósa eða hyggjast skila auðu. En meðal þeirra, sem einna sízt vilja svara spurningu blaðamanna hins vinstri sinnaða Fréttablaðs, eru þeir mörgu, sem hafna innflytjendastefnu vinstri flokkanna, einkum stuðningsmenn Íslensku þjóðfylkingarinnar, sem fekk 6,42% í skoðanakönnun á vef Útvarps Sögu 12. þ.m., sjá https://thjodfylking.blog.is/.../thjodfylking/entry/2214640/
Þrátt fyrir orðalag Fréttablaðsins: "Samfylkingin fylgir fast á hæla Sjálfstæðisflokknum," skilja nú heil 4,5% á milli flokkanna. Svo langt hefur Dagur dregizt aftur úr Eyþóri Arnalds, en hafði áður verið með mesta fylgið.
Svo er þess naumast farið að gæta hér, sem upp komst innan við sólarhring fyrir þessa könnun: þ.e. að skýjaborgir Dags um Borgarlínu og að setja Miklubraut í stokk eru í raun HRUNDAR, verða aldrei að veruleika á þessu kjörtímabili, hvorki til þess peningar í borgarsjóði né í ríkissjóði, samkvæmt upplýsingum fjármálaráðherra á Alþingi í fyrradag, og Vegagerðin kemur af fjöllum að heyra um þennan Miklubrautar-stokk upp á 21 milljarð, og hefur hún þó æðsta framkvæmdavald um þá stofnbraut!
Þessir tveir rándýru útgjaldapóstar eru hvergi inni á framkvæmdaáætlun vegamála, sem nú hefur þó fengið um 25% aukið framlag ríkissjóðs, enda mikil þörf á því vegna lélegs ástands þjóðvega og nauðsynjar á að fækka einbreiðum brúm. Það er borin von hinna veruleikafirrtu vinstri manna í Reykjavík, að þeir geti látið ríkið draga sig að landi með sín hraustlega svæsnu kosningaloforð. En borgin sjálf gæti ekkert áorkað í þessu efni án aukinnar lántöku, sem hún hefur hins vegar ekkert lánstraust til, enda eitt verst stæða sveitarfélagið!
PS. Í skoðanakönnun á vef Útvarps Sögu frá hádegi í gær til hádegis í dag var spurt: Telur þú að borgarmeirihlutinn muni falla í komandi kosningum? Þar svöruðu 84,88% JÁ, 12,4% NEI, en 2,7% voru hlutlaus. Þetta eru mjög afgerandi niðurstöður.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 26.8.2017
Fækkum hraðabungum í höfuðborginni!
Það er löngu kominn tími til að skafa burt stóran hluta af óþörfum hraðabungum í Reykjavík. Víða duga aðrar umferðarmerkingar, en bæði bílar og menn verða leiksoppar harðra ákeyrslna á hraðabungur, m.a. í snjókomu, dimmu eða litlu skyggni.
Menn finna það á sjálfum sér, ekki sízt í strætisvögnum, hve óþægilegur þessi hossingur er fyrir líkamann, og hefur þeim tilfellum fjölgað með fjölgun erlendra bílstjóra strætisvagnafyrirtækjanna, manna sem trúlega hafa ýmist litla akstursreynslu eða ökupróf sem jafnast ekki að gæðum við það sem íslenzkir bílstjórar hafa.
Ennfremur hefur orðið tjón á bílum við að þeir skullu á hraðabungum.
Þess vegna hittist skemmtilega á, að það er einmitt framkvæmdastjóri borgarfyrirtækis í slíkum vagnaferðum, Jóhannes Rúnarsson, frkvstj. Strætós bs., sem vekur athygli á þeim baga sem þessar bungur eru fyrir strætisvagnana, jafnvel þannig, að þær "tefja rafvæðingu strætisvagnaflotans á höfuðborgarsvæðinu, og hefur afhending fjögurra rafvagna dregist um nokkra mánuði vegna þessa," eins og hann segir í fréttarviðtali við Mbl.is.
Já, nú mega Hjóla-Hjálmar og Dagur borgarstjóri á útleið sannarlega fara að endurskoða sína umferðar-pólitík, sem í þessu efni sem öðrum er á ská og skjön við eðlilega skynsemi og iðulega í beinni mótsögn við vilja borgarbúa.
Tekið skal fram, að vitaskuld þarf að gera undantekningar um hraðabungur á götum þar sem reynslan sýnir að vegfarendum getur stafað hætta af hraðakstri. En almennt myndi draga úr honum með notkun eftirlitsmyndavéla.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Hraðahindranir tefja rafvæðingu Strætó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 21.6.2017
Flugvöllurinn í Vatnsmýrinni treystist í sessi
Það er gleðiefni mörgum, að samgönguráðherrann stefnir að nýrri flugstöð í Vatnsmýri á næsta ári. Yfirgnæfandi meirihluti íbúa bæði dreifbýlis og þéttbýlis vill halda flugvellinum í Reykjavík. Hvassahraun útilokast bæði vegna veðurskilyrða* og af því að þar eru vatnsverndarsvæði Suðurnesjamanna. Eins er Hólmsheiðin enginn raunhæfur kostur.
Íslenska þjóðfylkingin styður eindregið flugvöllinn í Vatnsmýrinni. ÍÞ vill að núverandi staðsetning innanlandsflugvallar verði til frambúðar, segir í stefnuskrá flokksins.

Reykjavíkurflugvöllur úr lofti
"Ekki náðist í Dag B. Eggertsson, borgarstjóra, vegna málsins." - Skyndilega varð þeim málglaða orða vant! En hörð andstaða vinstri flokkanna í borgarstjórn gegn Reykjavíkurflugvelli tengist m.a. lóðastefnu þeirra og "þéttingu byggðar" og "Borgarlínunni" sem þeir vilja koma í gagnið, dýrkeyptri og vonlausri framkvæmd. Bjarni Jónsson verkfræðingur rökstyður það afar vel, að hugmyndafræðin að baki hennar er reist á sandi og "óskhyggju sem mun rýra lífskjör og lífsgæði" (sjá greinar hans HÉR og hér), en Íslenska þjóðfylkingin er einmitt andvíg Borgarlínunni, sem útilokað er, að muni borga sig.
* Sjá grein undirritaðs (sem vísar á afar fræðandi greinaskrif Þorkels Ásgeirs Jóhannssonar flugmanns): Hvassahraun er mun verri kostur en Rögnunefndin vill vera láta; ísing og snjókoma algengari en í Rvík.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Ný flugstöð rís í Vatnsmýrinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 17:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 25.10.2016
Bretar stefna á stórfellda stækkun Heathrow-flugvallar í Vestur-Lundúnum, meðan vantrúaðir vinstrimenn á Íslandi þrengja að miðstöð okkar innanlandsflugs!
Ekki er ónýtt að 1000 manns starfi á Reykjavíkurflugvelli, en um 77.000 ný störf myndast við lagningu 3. flugbrautar við Heathrow. Flugvélum yfir London mun fjölga um nær 50% og 200.000 í viðbót búa við hávaða þaðan. Sjötta flugstöðin bætist og við. Kosta mun verkið allt um 17,6 milljarða punda, þ.e. 2500 milljarða íslenskra króna, og þorpið Harmondsworth í nágrenni Heathrow verður rifið.
Þarna skortir ekki á stórhug og róttækar breytingar, enda mikið um þetta deilt og t.d. bæði Boris Johnson utanríkisráðherra og múslimski borgarstjórinn í London andvígir þessum áformum.
En hér heima láta menn það sumir ægja sér, að flugvöllur sé yfirhöfuð í höfuðborginni, eins og það sé ekki alvanalegt í borgum heims, og aðrir ætlast fyrst og fremst til að fá þarna lóðir (sem verða raunar dýrkeyptar), þótt gnægð lóða sé til á borgarlandinu!
Snorri Óskarsson, sem vera átti oddamaður framboðs Þjóðfylkingarinnar í NA-kjördæmi, var með athyglisverðar hugmyndir um Reykjavíkurflugvöll og fleira, er undirritaður hitti hann í lok ferðar um kjördæmið, þar sem reynt var að leggja hans mönnum á Austurlandi lið við söfnun undirskrifta vegna framboðsins (of seint, því miður, við hefðum þurft allt að hálfri viku til viðbótar til að ná þessu; en það fer bara í reynslubankann).
Við Snorri erum báðir eindregið fylgjandi því, að Reykjavíkurflugvöllur fái að vera þar sem hann er, og báðir vissum við, að lengja mætti neyðarbrautina með nýjum hætti þrátt fyrir hryðjuverkið sem Valsmenn og meirihluti borgarstjórnar eru að vinna á NA-hluta þeirrar flugbrautar; en með því verki er verið að stórskaða flugöryggi í landinu og umfram allt að tefla lífi sjúklinga í hættu á komandi árum. En í stefnuskrá Íslensku þjóðfylkingarinnar segir: ÍÞ vill að staðsetning núverandi innanlandsflugvallar verði til frambúðar.
Tillaga Snorra um nauðsynlega, tiltölulega auðvelda lenginu neyðarbrautarinnar út í sjó er bæði raunhæf og innan viðráðanlegra kostnaðarmarka. Ekki þyrfti að ryðja burt nema einu litlu húsi við SV-enda núverandi brautar (rétt við það svæði þar sem undirritaður átti heima fimm fyrstu æviár sín á Shellvegi), en þar má svo lengja brautina að vild út í Skerjafjörð. Yrði það mjög lítið mál samanborið við hugmyndirnar stórtæku sem menn voru með um að leggja glænýjan flugvöll (og byggja flugstöð sömuleiðis) á Lönguskerjum úti í firðinum.
Allt þetta er hægt, ef vilji er fyrir hendi. En treysta menn borgarstjóranum Degi til annars en að þvælast fyrir því sem orðið getur landsmönnum og borgarbúum til gagnkvæmra nytja?
Jón Valur Jensson.
![]() |
Samþykktu stækkun á Heathrow |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)