100-190 ma. Borgarlína & Miklu­brautar­stokkur "strax", aðal-kosn­inga­loforð Dags, gufa upp í einni svipan, er SDG og BB sjá, að sjón­hverfinga­maðurinn er berrassaður

SDG: Ég skildi svar ráðherra sem svo að það sé ekki svig­rúm hjá rík­inu til að fjár­magna þessi verk­efni. Borg­ar­yf­ir­völd geta ekki vænst þess að fá fjár­magn í borg­ar­línu eða að setja Miklu­braut í stokk úr rík­is­sjóði. 

BB: Fjórðungs­aukn­ing til vega­mála er mikið átak, hvernig sem menn vilja líta á það. "Það mun ekki duga til að standa und­ir tug­millj­arða verk­efni eins og borg­ar­lín­an er."

Þar með hafa stórkarlalegustu kosningaloforð Dags B. Eggertssonar reynzt vera undirstöðulaus -- allt heila klabbið blásið af í tveimur ræðum, enda er fjármagn ekki til fyrir þessum ga-ga-eyðsluverkefnum og enginn vilji hjá landstjórninni til að draga ábyrgðarlausan gasprarann að landi; hann getur blaðrað á eigin ábyrgð, ekki fjármálaráðherrans né ríkissjóðs!

PS. Vinstri menn í borgarstjórn tala um, að Borgarlínan kosti 80 milljarða, en aðrir hafa spáð allt að 170 milljörðum króna. Miklu­brautar­stokkurinn á að kosta 21 milljarð króna, en við gerð hans mundi þurfa að beina mestallri umferð burt; met yrðu slegin í umferðarhnútum við Sæbraut, Bústaðaveg og fleiri helztu götur.

PPS. Vitaskuld tókst Fréttablaðinu í dag að þegja algerlega um þessi tíðindi frá Alþingi í gær! Þau ætla ekki að taka þátt í því að opinbera það hvernig þessi spilaborg Dags er hrunin: fótunum algerlega kippt undan tveimur helztu kosningaloforðum hans!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Sigmundur spurði Bjarna um borgarlínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband