Bretar stefna á stórfellda stækkun Heathrow-flugvallar í Vestur-Lundúnum, meðan vantrúaðir vinstrimenn á Íslandi þrengja að miðstöð okkar innanlandsflugs!

Ekki er ónýtt að 1000 manns starfi á Reykjavíkurflugvelli, en um 77.000 ný störf myndast við lagningu 3. flugbrautar við Heathrow. Flug­vél­um yfir London mun fjölga um nær 50% og 200.000 í viðbót búa við hávaða þaðan. Sjötta flug­stöðin bætist og við. Kosta mun verkið allt um 17,6 millj­arða punda, þ.e. 2500 mill­jarða ís­lenskra króna, og þorpið Harmondsworth í ná­grenni Heathrow verður rifið.

Þarna skortir ekki á stórhug og róttækar breytingar, enda mikið um þetta deilt og t.d. bæði Boris Johnson utanríkisráðherra og múslimski borgarstjórinn í London andvígir þessum áformum.

En hér heima láta menn það sumir ægja sér, að flugvöllur sé yfirhöfuð í höfuð­borginni, eins og það sé ekki alvanalegt í borgum heims, og aðrir ætlast fyrst og fremst til að fá þarna lóðir (sem verða raunar dýrkeyptar), þótt gnægð lóða sé til á borgarlandinu!

Snorri Óskarsson, sem vera átti oddamaður framboðs Þjóðfylk­ingarinnar í NA-kjördæmi, var með athyglis­verðar hugmyndir um Reykja­víkur­flugvöll og fleira, er undir­ritaður hitti hann í lok ferðar um kjördæmið, þar sem reynt var að leggja hans mönnum á Austurlandi lið við söfnun undirskrifta vegna fram­boðs­ins (of seint, því miður, við hefðum þurft allt að hálfri viku til viðbótar til að ná þessu; en það fer bara í reynslubankann).

Við Snorri erum báðir eindregið fylgjandi því, að Reykjavíkurflugvöllur fái að vera þar sem hann er, og báðir vissum við, að lengja mætti neyðarbrautina með nýjum hætti þrátt fyrir hryðjuverkið sem Valsmenn og meirihluti borgar­stjórnar eru að vinna á NA-hluta þeirrar flugbrautar; en með því verki er verið að stórskaða flugöryggi í landinu og umfram allt að tefla lífi sjúklinga í hættu á komandi árum. En í stefnuskrá Íslensku þjóðfylk­ingarinnar segir: ÍÞ vill að staðsetning núverandi innanlands­flugvallar verði til frambúðar.

Tillaga Snorra um nauðsynlega, tiltölulega auðvelda lenginu neyðar­brautar­innar út í sjó er bæði raunhæf og innan viðráðan­legra kostnaðar­marka. Ekki þyrfti að ryðja burt nema einu litlu húsi við SV-enda núverandi brautar (rétt við það svæði þar sem undir­ritaður átti heima fimm fyrstu æviár sín á Shellvegi), en þar má svo lengja brautina að vild út í Skerja­fjörð. Yrði það mjög lítið mál saman­borið við hugmynd­irnar stórtæku sem menn voru með um að leggja glænýjan flugvöll (og byggja flugstöð sömuleiðis) á Löngu­skerjum úti í firðinum.

Allt þetta er hægt, ef vilji er fyrir hendi. En treysta menn borgar­stjór­anum Degi til annars en að þvælast fyrir því sem orðið getur lands­mönnum og borgarbúum til gagnkvæmra nytja?

Jón Valur Jensson. 


mbl.is Samþykktu stækkun á Heathrow
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rosalega er bretar vitlausir, að byggja eina flugbraut fyrir 2500 milljarða. Þeir hefðu átt að fá ráðleggingar hjá Rögnunefndinni okkar sem komst að þeirri niðurstöðu að vel mætti byggja flugvöll fyrir okkur, væntanlega með ÞREM fæugbrautum, í Hvassahrauni fyrir 21 milljarð eða innan við 1% af því sem þessi eina braut á að kosta. Ruglaðir menn þarna í Englandi.

Svo má minna á það að landsvæði Reykjavíkurflugvallar er aðeins rúmlega 1%, já eitt prósent af BYGGINGARSVÆÐI Reykjavíkur. Sjaldan hefur verið talað meira um svona lítill blett og mega margir skammast sín að vilja rústa honum, eign þjóðarinnar en ekki Reykvíkinga eingöngu.

Örn Johnson´43 (IP-tala skráð) 25.10.2016 kl. 21:13

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Lásu menn ekki fréttina? Þar neðst stendur:

"

Borg­ar­stjóri London, Sa­diq Khan, hef­ur ásakað rík­is­stjórn­ina um að „valta yfir skoðanir Lund­úna­búa“ þar sem hann hafi verið kos­inn til embætt­is sem aug­ljós and­stæðing­ur nýrr­ar flug­braut­ar við Heathrow. „Ný flug­braut muna hafa hrika­leg­ar af­leiðing­ar fyr­ir loft­gæði í London. Loft­meng­un í kring­um flug­völl­inn er nú þegar meiri en lög­bundn­ar kröf­ur um NO2 segja til um,“ seg­ir Khan. „Fleira fólk verður vart við flug­vélaga­há­vað frá Heathrow en flug­völl­un­um í Par­ís, Frankfurt, Amster­dam og Madrid til sam­ans. Ný flug­braut þýðir að 200 þúsund til viðbót­ar verða var­ir við hávaðann.“

Ein­hverj­ir telja að ákvörðun rík­is­stjórn­ar­inn­ar falli um sjálfa sig. Ekki verði af bygg­ingu nýrr­ar flug­braut­ar við Heathrow, þrátt fyr­ir op­in­ber­an stuðning ráðherra. Telja þeir að stjórn­völd­um muni reyn­ast erfitt að kom­ast yfir mót­stöðu al­menn­ings og sveita­stjórna vegna kostnaðar, hávaða, loft­meng­un­ar og al­mennr­ar óánægju."

Magnús Helgi Björgvinsson, 25.10.2016 kl. 23:48

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, já, gott og vel, Magnús, þetta sá ég, en það breytir engu um hitt, að stórt er hugsað í Lundúnum, ekki eins og í músarholunum í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem menn eru með allan hugann við reiðhjól og gangandi fólk, þótt við hjólreiðamenn höfum alltaf komizt allra okkar ferða og þurfum ekkert á þessum asnalega dýru, malbikuðu stígum að halda, einungis á helztu stofnleiðum inn í borgina og með stærstu götum.

En gott er innlegg þitt, Örn Johnson, eins og oftar.

Jón Valur Jensson, 26.10.2016 kl. 00:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband