Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Mánudagur, 17.4.2017
Lífeyrissjóðirnir bregðast ýmsum sjóðfélögum sínum
Helgi Helgason, fyrrv. formaður Ísl. þjóðfylkingarinnar, fékk þessa frásögn senda í pósti (stytt af honum).
Ég á íbúð sem ég keypti 2005. Þegar hrunið kom hækkaði afborgunin úr um 100 þús. á mánuði í tæplega 180 þús. á mánuði. Með aukavinnu og sparsemi hef ég getað staðið við greiðslur í öll þessi ár, meðal annars með því að hafa núðlur í hvert mál fyrir fjölskylduna, í mörg ár.
Svo sá ég að lífeyrissjóðurinn minn býður 3,6% vexti á lánum en lánin mín eru á 4,15% til 5,2% vöxtum. Á lánareiknivél lífeyrissjóðsins reiknaði ég út að ef ég skuldbreytti lánunum á kjörum lífeyrissjóðsins þá myndi greiðslubyrði lækka um 45 þús. á mánuði. Svo ég sótti um lán hjá þeim en fékk þau svör að ég gæti ekki borgað af þessu!
Lánið hjá lífeyrissjóðnum hefði verið um 130 þús. á mánuði, en síðastliðin 8 ár hef ég borgað 180 þús. af bankaláninu. Þegar ég benti á þetta var svar lífeyrissjóðsins: Computer says NO! Þegar ég spurði frekar þá var bent á neytendalög sem sett voru af Árna Páli (Samfylkingu og VG) og hafa verið hert af öðrum ráðherrum.
Er nema von að fólk sé að taka smálán sem bera himinháa vexti til að geta keypt sér í matinn? Sem betur fer er ég með svarta vinnu en ég er að gefast upp.
Svona er því miður ástandið hjá mörgum í dag. En það er merkilegt að það skuli vera stjórnvöld sem standa í vegi fyrir því að fólk geti hjálpað sér sjálft. Ætli Þorsteinn Víglundsson félagsmálaráherra viti af þessu?
Athyglisverð umræða um þennan pistil er hér á opinni Facebók Íslensku þjóðfylkingarinnar, og meðal annarra tekur þátt í henni hinn nýkjörni formaður Guðmundur Þorleifsson. (Aths. JVJ)
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.4.2017 kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 17.4.2017
Erdogan Tyrklandsforseti fær nánast einræðisvöld, gegn fólki þar í stóru borgunum, en með stuðningi sveitafólks og Tyrkja í Evrópu
73,5% Tyrkja í Austurríki, sem greiddu atkvæði um að færa Erdogan þessi miklu völd, sögðu JÁ, 63% í Þýskalandi, rúml. 75% í Belgíu og 71% í Hollandi. Tryggari eru þeir islamista-forsetanum en lýðræðishugsjón Evrópumanna. Það sama er að segja um afstöðu kjósenda á dreifbýlli svæðum Tyrklands, í Mið-Tyrklandi, sunnar og norðar við Svartahaf.
Karlinn rétt mer þetta með rúmu 51% atkvæða, og því getur það hafa ráðið úrslitum, að kosningasvik hafi verið í tafli, eins og yfirvöld eru nú þegar sökuð um og kröfur uppi um að kæra það. En ekki auðvelda þessi úrslit gengi lýðræðisflokka og fjölmiðla að andmæla hinum yfirlýsta islamista Erdogan, en nú þegar hefur hann beitt blöð, útvarps- og sjónvarpsstöðvar miklu harðræði eftir uppreisnartilraunina gegn honum í fyrra.
Að vera með mikinn meirihluta meðal hinna 2,9 milljóna Tyrkja í Evrópu á bandi forsetans í þessu máli, styrkir ekki trú fólks hér í álfu á að gott geti hlotizt af því að standa uppi í hárinu á Erdogan varðandi flótta fólks í gegnum Tyrkland til Evrópu. Fyrir að halda slíkum flótta í skefjum fær tyrkneski ríkissjóðurinn mörg hundruð milljarða árlega frá ríkjum eins og Þýzkalandi, Austurríki og Evrópusambandinu, en Erdogan hefur þegar ítrekað beitt þeim hótunum, að flóttamannabylgju verði hleypt í gegn, ef stjórnmálastétt Evrópuríkja situr ekki og stendur eins og honum þókknast.
Menn geta svo leitt getum að því (m.a. með hliðsjón af því, að erfitt er að þjóna tveimur herrum), hvort tugir milljóna annarra múslima í Evrópu hafi til að bera sambærilega afstöðu gagnvart lýðréttindum og lýðræðisskipulagi búseturíkja sinna eða vilja fylgja islömskum siðvenjum, m.a. sjaríalögum, en fjöldi sjaríadómstóla er nú þegar við lýði í Bretlandi, Þýzkalandi o.fl. Evrópulöndum, með sorglegum afleiðingum. Eitt er víst, að ekki styrkir þetta réttindi kvenna.
Við Íslendingar þekkjum fleiri en eitt dæmi um mikla erfiðleika íslenzkra kvenna, sem gifzt hafa múslimum og annaðhvort misst allt forræði barna sinna* eða verið nálægt því.**
* Sophia Hansen missti þannig af forræði sinna dætra og mestöllum samgangi við þær.
** Sbr. bókina Barist fyrir frelsinu eftir fjölmiðlamógúlinn Björn Inga Hrafnsson (287 bls., Vaka-Helgafell 2002), en efni bókarinnar er lýst þannig á forsíðunni: "Áhrifamikil saga Guðríðar Örnu Ingólfsdóttur og Hebu Shahin og ævintýralegur flótti þeirra frá Egyptalandi."
Jón Valur Jensson.
![]() |
Meirihluti Tyrkja í Evrópu sagði já |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 9.4.2017
Hryllings-ofsóknir islamista gegn kristnum í algleymingi: 37 koptar drepnir við messur í Egyptalandi þennan pálmasunnudag!
Þetta gerðist í tveimur kirkjum. "Ríki islams" lýsti ábyrgð á hendur sér vegna beggja hryðjuverkanna,* þar sem 37 að minnsta kosti eru látnir.**
Níu milljónir talsins eru koptar í Egyptalandi, einn elzti kristni trúflokkur heims, og hafa orðið fyrir sífjölgandi árásum af hálfu heittrúar-múslima á síðustu misserum.***
Er nú svo komið, að ofsóknir gegn kristnu fólki í heiminum eru orðnar á borð við það sem mest hefur verið áður,**** í hinu heiðna Rómaveldi.
Þetta hefur heimurinn haft upp úr linkind við öfgamúslima. Ef Evrópu- og Ameríkumenn taka ekki rækilega við sér vegna blóðbaðsins gegn kristnum mönnum í Mið-Austurlöndum, fer það þó að gerast í sívaxandi mæli þegar spjótin taka að beinast gegn þeim sjálfum og kristnihaldi meðal vestrænna manna.
Einn þáttur í vitundarvakningu Evrópumanna hlýtur að vera því bundinn hvernig ISIS-samtökin hafa hagað sér í Frakklandi, Belgíu, Rússlandi og Svíþjóð síðustu eitt-tvö misserin. Stóraukið fylgi við flokka, sem taka afstöðu gegn hinni óvinsælu múslimavæðingu landanna, er ein helzta afleiðingin. Nú eru t.d. Svíþjóðardemókratar komnir með næstmest fylgi allra sænskra flokka, og Marine Le Pain verður að minnsta kosti nr. 2 í kapphlaupinu í frönsku forsetakosningunum á næstunni. Pólitískir andstæðingar Íslensku þjóðfylkingarinnar geta aðeins skamma hríð dulizt þess sannleika, að í sömu átt mun þróunin ganga hér á landi.
* http://news.sky.com/story/deadly-explosion-near-a-church-in-egypt-10831418
** http://edition.cnn.com/2017/04/09/middleeast/egypt-church-explosion/index.html
*** Sbr. hér: Fremja sannir múslimar og karlmenni fjöldamorð á kristnum konum og börnum?
**** Sjá hér: Um árleg tvöföldun á fjölda kristinna sem láta lífið vegna trúar sinna (úr predikun sr. Maríu Ágústsdóttur í Dómkirkjunni) og hér: Ofsóknir á kristnu fólki 2015 jöfnuðust á við þjóðernishreinsanir
Jón Valur Jenssson.
![]() |
35 farast í mannskæðum árásum á kirkjur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 8.4.2017
Árásarmaðurinn í Stokkhólmi var ISIS-maður, vann ódæðið fyrir Ríki islams - Komnir til að vera? - og viðbrögð okkar?
Að sögn Aftonbladets er hann 39 ára, af úzbekistönskum uppruna og fylgismaður hryðjuverkasamtakanna Ríkis islam.
Skv. SVT-sjónvarpsstöðinni fannst taska með sprengjuefnum í flutningabílnum, svo hermi heimildir innan lögreglu og að sprengjusveit hafi verið kölluð til.
Maðurinn mun vera sá í hettutreyjunni sem lögreglan lýsti eftir í gær og er nú undir yfirheyrslum hennar.
Ljóst er að fylgismenn Ríkis islams eru af mörgum þjóðernum og Svíum mikill vandi á höndum að verjast þeim í fjölbreyttri flóru innflytjenda sinna. Þótt Svíar hafi ekki herlið í Mið-Austurlöndum virðist það engu skipta fyrir ISIS, enda nægir þeim að Svíar hafa selt ríkisstjórnum þar hergögn. En málið virðist umfram allt að ráðast á allt sem vesturlenzkt er.
Jafnvel fyrir okkur Íslendinga er hið fjölmenna múslimasamfélag í Skandinavíu, rétt eins og í Belgíu, Frakklandi, Hollandi, Bretlandi og Þýzkalandi, orðið að flóknum vettvangi og viðsjárverðum, þar sem öfga-islam getur þrifizt, ofbeldismenn dulizt og náð áhrifum til ills, já, til að "bera ávöxt" haturs síns í skelfilegum fjöldamorðum!
Og þetta er ekki tíminn til að sitja og aðhafast ekkert og bíða bara næstu frétta! En til hvaða stjórnmálamanna getum við horft í von um að þeir þori að axla þá ábyrgð að treysta hér í sessi öruggt samfélag frelsis og lýðræðis? Lítið til dæmis til þessa formanns stjórnmálaflokks, sem tjáði sig hér í gær.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Telja sig hafa ökumanninn í haldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 7.4.2017
Eru islamistar að færa sig upp á skaftið í Svíþjóð? Blóðugt hryðjuverk skelfir Svía
Árásin á almenning í miðborg Stokkhólms í dag, með því að aka vörubíl inn í manngrúa, þar sem fjórir eru látnir og 15 særðir, setur hroll í Svía. Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur lýst þessu sem hryðjuverki. Einn gerandi hefur náðst og mun hafa játað á sig glæpinn (þessi viðbót skv. nýlegri frétt). Talið var, að heyrzt hefði af skothvellum í Stokkhólmi, en það er óstaðfest enn.
Er fyrir fram líklegt, að hinar gestrisnu móttökuþjóðir múslima í álfunni sleppi við hryðjuverk? Ekki hefur reynslan sýnt það, og ekki er það heldur líklegt á Norðurlöndunum. Trúlega er nú komið að gestrisnasta landinu, Svíþjóð, að fá yfir sig hryðjuverk islamista. Sé svo, sjá menn væntanlega, að þessi grein var ekki að ósekju skrifuð: Er þagnar- og þöggunar-múrinn sænsk-íslenski loksins að rofna?
Þar mun koma, að áliti undirritaðs, að augu æ fleiri Íslendinga muni opnast fyrir þeirri staðreynd, að meirihlutaviðhorf gagnvart innflytjendamálum hafa snúizt svo á síðustu misserum, að Evrópuþjóðir eru á einu máli með Íslensku þjóðfylkingunni um að stöðva beri straum múslima inn í Evrópu!
Gætum þess einnig, að Norðurlandabúar eiga greiðan aðgang til Íslands, m.a. til atvinnu hér og búsetu. Er okkur þar til að mynda ætlað það skyldu-hlutverk að meðtaka fólk af ólíklegasta uppruna og ofsatrúarmenn þar á meðal sem Svía, Dani eða Norðmenn, hafi þeir fengið ríkisborgararétt í þeim löndum.
Lögreglan hér er nú þegar með Ísland á næsthæsta viðbúnaðarstigi gagnvart hryðjuverkum [1], og ekki dregur þessi sorgaratburður úr þörfinni á fullri árvekni lögregluyfirvalda hér.
[1] Sbr. þessa grein: Tveir með tengsl við hryðjuverkasamtök óskuðu hér eftir alþjóðlegri vernd. Ísland gegnumstreymisland. Hryðjuverkahætta á Íslandi enn "metin í meðallagi"
PS. Hér er eitthvað sýnt á myndbandi af vettvangi:
http://www.independent.co.uk/news/world/europe/stockholm-attack-latest-killed-shots-fired-lorry-truck-ahlens-mall-crash-crowd-sweden-people-a7672636.html
Jón Valur Jensson.
![]() |
Stokkhólmur: Þetta vitum við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 4.4.2017
Er Dagur B. Eggertsson svona óskaplega lélegur í reikningi?
Hvernig stendur á því að hann lætur Ólaf Ólafsson (Samskipum/Kvíabryggju) komast upp með að greiða innan við eina milljón kr. fyrir hverja íbúð sem borgin leyfir honum að reisa? Birtist í þessu ástæða þess, að allt gengur á afturfótunum í rekstri Dags á borginni - hann geti bara ekki betur?
Og margt á hann óútskýrt um viðskiptabandalag sitt við Ólaf þennan.
Trúlega er Dagur örvilnun næst vegna aumlegrar frammistöðu sinnar í íbúðamálunum, sbr. þessa frábærlega fyndnu Bakþanka Sirrýjar Hallgrímsdóttur í Fréttablaðinu í dag.
Jón Valur Jensson.
![]() |
6.250 íbúðir byggðar á næstu 5 árum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 30.8.2017 kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 3.4.2017
Ályktun um varnar- og öryggismál Íslands
Íslenska þjóðfylkingin ályktar að öryggismál þjóðarinnar séu í ólestri. Mesta hættan að innra öryggi ríkisins er hryðjuverkaógnin sem vofir yfir Evrópuríkjum um þessar mundir og um ófyrirséða framtíð og er Ísland þar ekki undanskilið. Bregðast þarf við á tvennan hátt. Annars vegar að efla löggæslu með því að fullmanna lögregluna og Landhelgisgæsluna. Hins vegar með stofnun heimavarnarliðs eða öryggissveita.
Þess er krafist af öflugasta ríki NATÓ að aðildarríki axli ábyrgð á eigin öryggi og hafa flest aðildarríki heitið að leggja meira fram til sameiginlegra varna. Núverandi ríkisstjórn þegir þunnu hljóði um þetta mikilvæga þjôðaröryggismál en það gerir Íslenska þjóðfylkingin ekki og krefst þess að farið verði í þetta af fullri alvöru og samkvæmt skyldum fullvalda ríkis.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 3.4.2017
Tvær af ályktunum landsfundar flokksins í dag, um framboð til borgarstjórnar og um lífsverndarmál
Báðar voru samþykktar samhljóða.
I: Tillaga Guðmundar Þorleifssonar, sem á fundinum var kosinn formaður flokksins:
"Íslenska þjóðfylkingin lýsir yfir að hún mun bjóða fram í komandi borgarstjórnarkosningu. Það verður lögð áhersla á að afturkalla lóð undir moskubyggingu; viðhaldi gatna verði komið í viðunandi horf; stuðlað verði að uppbyggingu á félagslegu húsnæði með því að lóðakostnaður verði einungis samkvæmt útlögðum kostnaði."
Og hér síðast er vitaskuld verið að tala um gatnagerðargjöldin og önnur gjöld vegna lóðaúthlutana.
II: Tillaga Guðmundar Pálssonar læknis (um stytta útgáfu af lengri tillögu frá Jóni Val Jenssyni, Guðlaugi Ævari Hilmarssyni, Guðmundi Pálssyni og Maríu Magnúsdóttur):
"Ófædd börn eiga rétt til lífsins. Flokkurinn tekur einarða afstöðu gegn nýframkomnum hugmyndum um róttækar breytingar á fóstureyðingalöggjöfinni og mun taka á þessum málum með það að markmiði að draga sem mest úr fóstureyðingum."
Hér var í báðum tilvikum um ánægjulegar ákvarðanir að ræða í stefnumálum flokksins og full sátt um þær.
Þriðja ályktunin, sem samþykkt var á fundinum, frá Birgi Loftssyni sagnfræðingi, um löggæzlu-, varnar- og öryggismál, verður kynnt hér á morgun.
jvj
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 2.4.2017
Íslenska þjóðfylkingin endurnýjar krafta sína á landsfundi
Landsfundur Íslensku þjóðfylkingarinnar, sá annar frá stofnun hennar, var haldinn í dag, endurskoðuð lög hennar samþykkt og ný stjórn kjörin - flokksstjórn að verulegu leyti óbreytt, en nýr formaður er Guðmundur Karl Þorleifsson og nýr varaformaður Reynir Heiðarsson. Ennfremur var kosinn nýr ritari: Sverrir Sverrisson. Þessir þrír skipa framkvæmdastjórn flokksins. Allir sitja þeir í 15 manna flokksstjórninni, og voru hinir tólf sjálfkjörnir, en kosið um þrjá varamenn, og eru þeir Guðlaugur Ævar Hilmarsson, Geir Harðarson og Garðar Ottesen.
Þessir sitja nú í flokksstjórn ÍÞ:
- Guðmundur Karl Þorleifsson formaður.
- Reynir Heiðarsson varaformaður.
- Sverrir Sverrisson ritari.
- Birgir Loftsson.
- Helgi Helgason.
- Hildur Hrönn Hreiðarsdóttir.
- Hjördís Diljá Bech.
- Jens G. Jensson.
- Jón Valur Jensson.
- Kjartan Örn Kjartansson.
- María Magnúsdóttir.
- Sigurður Bjarnason.
- Sigurlaug Oddný Björnsdóttir.
- Sveinbjörn Guðmundsson.
- Þorsteinn Einarsson.
Gjaldkeri flokksins verður kosinn af framkvæmdastjórn flokksins og skal heyra beint undir hana, skv. 15. grein félagslaganna.
Nánar verður sagt hér frá landsfundinum og ályktunum hans síðar í kvöld.
JVJ.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 1.4.2017
Nær 70% Breta fylgjandi Brexit - en Evrópusambandið reynir að leggja stein í götu Breta
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar, víðtækrar skoðanakönnunar YouGov telja 69% brezk stjórnvöld gera rétt með því að ganga úr Evrópusambandinu, aðeins 21% er andvígt því og telur að koma þurfi í veg fyrir þau áform.
Þetta eru skýrar áherzlur og ættu að sýna þjóðarstuðning við stefnu Theresu May sem verður þó að glíma við harla ágenga og ófyrirleitna mótleiki Evrópuveldisins (sjá hér neðar: Evrópusambandið reynir eftir megni að leggja stein í götu Breta).
Í fréttinni kemur fram, að
af þeim sem telja rétt að ganga úr Evrópusambandinu hafi 44% kosið með þeim hætti í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fram fór í Bretlandi síðasta sumar þar sem 52% kusu með því að yfirgefa sambandið. Fjórðungur þeirra kusu gegn því að ganga úr Evrópusambandinu en telja engu að síður stjórnvöld gera rétt í ljósi niðurstöðunnar. (Mbl.is)
Takmarkaður er áhugi á því að halda annað þjóðaratkvæði um niðurstöður viðræðna Evrópusambandsins og Bretlands um úrsögn landsins samkvæmt könnuninni. 45% telja að breska ríkisstjórnin eigi að klára málið án frekari aðkomu þings og þjóðar, 27% vilja annað þjóðaratkvæði og 15% vilja að þingið greiði atkvæði um væntanlegan samning.
Forsætisráðherra Bretlands, Theresa May, hefur sagt að hún sé reiðubúin að ganga frá samningaborðinu ef ekki verði í boði nægjanlega góður samningur. Enginn samningur sé betri en slæmur samningur. Meirihluti Breta er sammála þessu samkvæmt skoðanakönnuninni eða 55%. Tæpur fjórðungur telur rétt að fallast á þann samning sem verði í boði. (Mbl.is)
Leið Breta á að verða tvíhliða viðskiptasamningar
Ennfremur er góður stuðningur við það með hvaða hætti May hyggst ganga úr Evrópusambandinu. Það er að sækjast eftir tvíhliða, víðtækum fríverslunarsamningi. Þannig telja 61% að leið forsætisráðherrans virði niðurstöðu þjóðaratkvæðisins en 11% telja svo ekki vera. Tæpur helmingur, eða 49%, segjast ánægð með þá leið en fjórðungur óánægður.
Þá hafa fleiri trú á að May geti skilað góðri niðurstöðu fyrir Bretland í viðræðunum við Evrópusambandið en þeir sem hafa það ekki eða 48% gegn 39%. (Mbl.is, nánar þar.)
Evrópusambandið reynir eftir megni að leggja stein í götu Breta
Viðbrögð ESB ættu að geta kennt Íslendingum einhverja lexíu - eða þeim sem ekkert höfðu lært af því, hvernig Brussel-valdaklíkan ætlaði að fara með okkur í makríldeilunni (að "úthluta" okkur 3,2% hlut í veiðunum á NA-Atlantshafi! - og um sama leyti setti ESB löndunarbann á Færeyinga!) og einnig í Icesave-málinu (að dæma á okkur, saklaus, fulla greiðsluskyldu vegna þeirra reikninga í einkabanka!!!). Bretar hefðu líka mátt búast við svipuðum trakteringum af þessum fyrrum samlagsmönnum sínum.
Stórveldasambandið hefur þegar krafið Breta um greiðslu 50-60 milljarða evra vegna úrsagnarinnar, andvirði um 6.000-7.000 milljarða íslenzkra króna! (sbr. erlend skrif hér).
Þá berast fregnir af því, að Evrópusambandið krefst þess nú, að Bretlandi verði nægjanlega ágengt í skilnaði sínum við sambandið, áður en viðræður um viðskiptasamning þeirra á milli geti hafizt! - en þessi krafa kemur fram í viðræðuáætlunum ESB sem birtar voru í morgun (Mbl.is segir frá þessu í annarri frétt að morgni 31. marz: ESB verður ekki við ákalli May). Sbr. einnig hér: ESB vill bolast áfram með harðri valdbeitingu gegn Bretum vegna Brexit.
Hvort minnir þessir erfiðleikar Breta ekki á fleygan kviðling Jóns prófessors Helgasonar í Árnasafni í Kaupmannahöfn:
Sú þjóð sem veit sér ekkert æðra mark
en aurasníkjur, sukk og fleðulæti,
mun hljóta notuð herra sinna spark
og heykjast lágt í verðgangsmanna sæti.
Sú þjóð sem dottar dáðlaus, viljasljó,
og dillar þeim er ljúga, blekkja, svíkja,
skal fyrr en varir hremmd í harða kló.
Hægt er að festast, bágt mun úr að víkja!
Undirstrikun hér!
Jón Valur Jensson.
![]() |
Telja rétt að ganga úr ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)