Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Mánudagur, 8.5.2017
Niðurstaða frönsku forsetakosninganna ...
var í raun stórsigur Le Pen, þó svo að hún hafi ekki verið kosin forseti Frakklands. Hún jók fylgi við forsetaframboð frönsku Þjóðfylkingarinnar um 100% frá því að faðir hennar tók þátt í því. Við skulum fagna, 34,1% fylgi við flokkinn er stór sigur, og þeir koma til með að eiga næsta forseta Frakklands. Bylgja föðurlandsvina er komin til með að vera, óskum föðurlandsvinum í Frakklandi til hamingju með meiriháttar árangur.
Guðmundur Þorleifsson, formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar.
![]() |
Macron næsti forseti Frakklands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Fimmtudagur, 4.5.2017
Eitthvað fyrir okkur að læra af? Flóttafólk frá Sýrlandi fremur fáa glæpi meðal þýzkra, en hælisleitendur marga
Þessi frétt á Eyjunni 30. apríl mun hafa farið fram hjá mörgum:
"Glæpum hælisleitenda í Þýskalandi fjölgar um meira en 50%

Thomas de Maizere, innanríkisráðherra Þýskalands.
Nýjar tölur sem birtar voru fyrir skömmu varpa ljósi á gríðarlega aukningu glæpa sem hælisleitendur fremja í Þýskalandi. Margir óttast að þessar tölur verði nýttar af hægriöflum í Þýskalandi í aðdraganda þingkosninga sem fram fara í landinu í september. Samkvæmt innanríkisráðuneytinu sem tók saman tölurnar fjölgaði tilkynningum um glæpi sem talið er að hælisleitendur hafi borið ábyrgð á um 52,7% frá 2015 til 2016.
Þetta er ekki eitthvað til að líta framhjá. Þeir sem fremja alvarlega glæpi hér missa þar með rétt sinn til að dvelja hér,
segir Thomas de Maizere, innanríkisráðherra Þýskalands.
Samkvæmt tölunum eru hælisleitendur grunaðir um að hafa framið 174.438 glæpi árið 2016. Fjöldi þeirra í Þýskalandi jókst mikið á sama tíma en hækkunin var samt langt umfram fjölgunina segir Maizere.
Hlutfall þeirra sem grunaðir eru og eru af erlendu bergi brotnir, einkum hælisleitenda er hærri hjá almennum borgurum.
Innanríkisráðherrann varar þó við því að allir hælisleitendur séu dæmdir vegna glæpa lítils minnihluta.
Við getum ekki látið flóttafólk sem býr meðal vor liggja undir stöðugum grun. Mikill meirihluti býr með okkur og fylgir lögum okkar og reglum.
Flestir glæpirnir eru framdir af síbrotamönnum og einungis 1% hælisleitenda bera ábyrgð á 40% allra þeirra glæpa sem hælisleitendur fremja. Flóttafólk frá Sýrlandi er samkvæmt tölfræðinni ólíklegra til að fremja glæpi en þeir sem koma frá öðrum ríkjum.
Þeir sem koma frá Balkanskaga, Marokkó, Alsír og löndum sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum fremja flesta glæpi en þeir eiga einnig litla möguleika á að vera veitt hæli.
Heildarfjöldi glæpa í Þýskalandi dróst eilítið saman í fyrra en glæpir sem framdir eru af öfgasinnum á hægri væng stjórnmálanna jukust um 14,3% prósent. Árásum á flóttamannahæli fækkaði úr 1031 árið 2015 niður í 995 í fyrra. Telegraph greinir frá."
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 1.5.2017
Ávarp formanns Íslensku þjóðfylkingarinnar í tilefni 1. maí
Ástæða er til að taka undir þessi vel völdu orð og kröftugan boðskap Guðmundar Þorleifssonar:
Íslenska þjóðfylkingin sendir öllum landsmönnum baráttukveðju í tilefni dagsins.
1. maí er og á að vera hugleikinn öllum þeim sem annt er um mannréttindi og jöfnuð í samfélagi okkar.
Íslenska þjóðfylkingin hafnar nútíma þrælahaldi með innflutningi á ódýru vinnuafli, til þess eins að moka auðnum undir fáa útvalda.
Íslenska þjóðfylkingin krefst þess að lámarkslaun verði 300.000 kr., þau verði skattlaus og skerðingar krónu á móti krónu á aukatekjum öryrkja og aldraðra verði aflagðar.
Einnig mótmælir Íslenska þjóðfylkingin áformum ríkisstjórnar Íslands, sem hafa það að leiðarljósi að halda áfram skerðingum á framfærslu þeirra sem minna mega sín.
Íslenska þjóðfylkingin skorar á verkalýðsleiðtoga að standa í lappirnar og krefjast réttmætra launa, vera óhræddir við að setja inn ákvæði í samninga sem taka mið af launaskriði þeirra sjálftökustétta sem mismuna samfélaginu.
Íslenska þóðfylkingin krefst þess að hafist verði handa til verndar minni og meðalstórra fyrirtækja.
Íslenska þjóðfylkingin krefst tafarlausra úrbóta á lóðaskorti sveitarfélaganna og þeim verði skylt að útvega lóðir á kostnaðarverði. Fjármálastofnanir verði einnig skyldaðar til að koma á viðunandi fyrirkomulagi lána fyrir þá sem hyggjast ráðast í kaup eða byggingaframkvæmdir á húsnæði til eigin afnota.
Það er kominn tími til að íslenska þjóðin standi saman gegn ósanngjörnu auðvaldskerfi sem lítur á þegna samfélagsins sem þræla sína.
Guðmundur Karl Þorleifsson.
![]() |
Misskipting leiðir til harðnandi átaka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.5.2017 kl. 19:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 30.4.2017
Dagur verkalýðsins, 1. maí. Ávarp formanns Íslensku þjóðfylkingarinnar.
Íslenska þjóðfylkingin sendir öllum landsmönnum baráttukveðju í tilefni dagsins.
1. maí er og á að vera hugleikinn öllum þeim sem annt er um mannréttindi og jöfnuð í samfélagi okkar.
Íslenska þjóðfylkingin hafnar nútíma þrælahaldi með innflutningi á ódýru vinnuafli, til þess eins að moka auðnum undir fáa útvalda.
Íslenska þjóðfylkingin krefst þess að lámarkslaun verði 300.000 kr., þau verði skattlaus og skerðingar krónu á móti krónu á aukatekjum öryrkja og aldraðra verði aflagðar.
Einnig mótmælir Íslenska þjóðfylkingin áformum ríkisstjórnar Íslands, sem hafa það að leiðarljósi að halda áfram skerðingum á framfærslu þeirra sem minna mega sín.
Íslenska þjóðfylkingin skorar á verkalýðsleiðtoga að standa í lappirnar og krefjast réttmætra launa, vera óhræddir við að setja inn ákvæði í samninga sem taka mið af launaskriði þeirra sjálftökustétta sem mismuna samfélaginu.
Íslenska þóðfylkingin krefst þess að hafist verði handa til verndar minni og meðalstórra fyrirtækja.
Íslenska þjóðfylkingin krefst tafarlausra úrbóta á lóðaskorti sveitarfélaganna og þeim verði skylt að útvega lóðir á kostnaðarverði. Fjármálastofnanir verði einnig skyldaðar til að koma á viðunandi fyrirkomulagi lána fyrir þá sem hyggjast ráðast í kaup eða byggingaframkvæmdir á húsnæði til eigin afnota.
Það er kominn tími til að íslenska þjóðin standi saman gegn ósanngjörnu auðvaldskerfi sem lítur á þegna samfélagsins sem þræla sína.
Guðmundur Karl Þorleifsson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 29.4.2017
Stefnir í að Ísland verði mesta fóstureyðingaland Norðurlanda og þótt víðar væri leitað!
Fjölgun fóstureyðinga í 1021 í fyrra og HRIKALEG áform alþingismanna um langtum róttækari lagaheimildir gefa tilefni til að minna á, að Íslenska þjóðfylkingin, sem er kristinn flokkur, ólíkt flokkunum sjö á Alþingi, samþykkti eftirfarandi ályktun á landsfundi sínum 2.apríl sl.:
"Ófædd börn eiga rétt til lífsins. Flokkurinn tekur einarða afstöðu gegn nýframkomnum hugmyndum um róttækar breytingar á fóstureyðingalöggjöfinni og mun taka á þessum málum með það að markmiði að draga sem mest úr fóstureyðingum."
Hér var um ánægjulega ákvörðun að ræða í stefnumálum flokksins og full sátt um hana.
En með fjölgun fóstureyðinga um næstum 100 milli ára (úr 926 árið 2015) þá er tíðnin hér komin upp í 13 fóstureyðingar á hverjar þúsund konur á frjósemisaldri (15-49), en eru 13,3 á hverjar 1000 konur á Norðurlöndunum. Með "líberalíseringu" laganna frá 1975 -- með því að gera þetta formlega að "sjálfsákvörðunarrétti" konunnar einnar og með lengingu fósturvígsheimildanna úr 12/16 vikum upp í fullar 22 vikur -- stefnir þess vegna í, að Ísland verði mesta fóstureyðingaland Norðurlanda og þótt víðar væri leitað!
Gegn þessu mun einn flokkur standa og veita ábyrgðarlausum og gersamlega óupplýstum alþingismönnum fullt aðhald. Sá eini flokkur er Íslenska þjóðfylkingin.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Fjölgun fóstureyðinga ekki óvenjuleg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 28.4.2017
Ábyrgðarlaus stjórnvöld vilja í raun fækka í lögreglunni um 6-8 manns!
Þegar fjölga þarf í lögreglunni um 100-200 manns, ætlar ríkisstjórnin enn að þrengja að henni með 90 milljóna "aðhaldskröfu" sem kostar fækkun í mannafla um 6-8 manns! Sigríður Guðjónsdóttir lögreglustjóri er ekki par hrifin:
Miðað við veltu embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu má því reikna með að fækka þurfi um 6-8 stöðugildi lögreglumanna strax á næsta ári, segir í umsögn hennar til Alþingis.
Þá er þessi aðhaldskrafa sögð úr takti við fullyrðingar í frumvarpinu að fjármögnun löggæsluáætlunar sé tryggð. Bent er á að í frumvarpinu sé meðal annars ekki minnst á að lögreglumönnum verði fækkað. (Mbl.is)
Þessum skollaleik þarf að linna. Hér er ástæða til að minna á þessi orð í einni af ályktunum landsfundar Íslensku þjóðfylkingarinnar 2. þ.m.:
Íslenska þjóðfylkingin ályktar að öryggismál þjóðarinnar séu í ólestri. Mesta hættan að innra öryggi ríkisins er hryðjuverkaógnin sem vofir yfir Evrópuríkjum um þessar mundir og um ófyrirséða framtíð og er Ísland þar ekki undanskilið. Bregðast þarf við á tvennan hátt. Annars vegar að efla löggæslu með því að fullmanna lögregluna og Landhelgisgæsluna. Hins vegar með stofnun heimavarnarliðs eða öryggissveita.
JVJ.
![]() |
Kallar á fækkun lögreglumanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 23.4.2017
Macron og Le Pen áberandi efst í frönsku forsetakosningunum. "Bylting," segir The Times
Í 1. skipti í 59 ára sögu 5. lýðveldisins tapa stóru flokkarnir báðir fyrri umferð. Óháði miðjumaðurinn Macron er efstur með 23,8% atkvæða, Le Pen með 21,5%, tveir næstu með tæp 20% hvor, sósíalistinn Hamon langtum neðar með 6,5% að töldum 36,4 millj. atkvæða kl. rúml. 7 í morgun (skv. BBC, enn kl. 8.20). Um tíma var Marine le Pen komin upp fyrir Macron, en með atkvæðum úr stærstu borgum landsins hefur hann aftur komizt í efsta sætið. Þjóðfylkingin nýtur hins vegar meiri stuðnings fólks á stjálbýlli svæðum landsins.
Margir telja Le Pen eiga litla möguleika á að vinna í seinni umferðinni eftir hálfan mánuð, enda hafa flestir hinna frambjóðendanna lýst yfir stuðningi við Emmanuel Macron, sem er sá nýi, óvænti spútnik í þessari baráttu, sem fáir bjuggust við að gæti borið sigur út býtum fyrir um hálfu ári, áður en upp fór að komast um ýmis spillingarmál frambjóðenda; franska þjóðin hefur þannig kosið gegn spillingu í þetta sinn. En það er of snemmt að spá fyrir um úrslitin að lokum, það getur m.a. ráðizt af frammistöðu þessara tveggja í kosningabaráttunni og að ekkert nýtt og gruggugt komi upp úr dúrnum um fortíð þeirra.
En Marine Le Pen hefur staðið sig glæsilega; það hefur farið um bæði Brusselmenn og "góða fólkið" í Frakklandi, hve mikið henni varð ágengt, en meðal stefnumála hennar var að afnema evruna og að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðild innan hálfs árs.
En þetta verður ekki endapunktur sögunnar; þróunin heldur áfram, m.a. ójöfn fjölgun innfæddra og aðfluttra, og í Frakklandi sem víðar í álfunni er það hægfara efni í enn meiri togstreitu, árekstra og jafnvel langtum alvarlegri þjóðfélagshræringar en hingað til það sem af er þessari öld.
Gott gengi Le Pen mun vafalaust einnig stuðla að auknum hlut frönsku Þjóðfylkingarinnar í þingkosningum og til héraðsþinganna og í bæjarstjórnum Frakklands. Ekki dregur það úr ánægju Íslensku þjóðfylkingarinnar með þessa snjöllu, þjóðhollu, en öfgalausu baráttukonu.
PS. The Times (of London) kallar úrslit þessara kosninga New French revolution as outsiders sweep to victory. Í fréttinni er myndband sem sýnir "how Le Pen made it to the final round." En ESB-stuðningsmaðurinn Macron fer ekki dult með hvert hann leitar styrks, enda hefur Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og þýzka ríkisstjórnin óskað honum til hamingju með "sigurinn".
Jón Valur Jensson.
![]() |
Macron vill verða rödd vonar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.4.2017 kl. 20:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Sunnudagur, 23.4.2017
Talibanar og Ríki islams eru jafn-verðug allsherjarstríðs gegn þeim
Talibanar sýna það enn og aftur með grimmdar-morðum sínum* að þeir eru af sama sauðahúsi og ISIS-menn, fremja fjöldavíg hvar sem þeir komast til þess.
Samt voru nokkrir íslenzkir stjórnmálamenn að mæla upp í þeim vígamennskuna, hafa kannski reynt að túlka þá sem þjóðfrelsismenn í baráttu gegn erlendri heimsvaldastefnu eins og Víet Cong á sokkabandsárum þessara misvitru stjórnmálamanna okkar! Var Steingrímur J. sérstaklega orðaður við samúð með þessum ribbalda- og trúarofstækisflokki, innfluttum raunar í kjarna sínum frá Saudi-Arabíu til Afganistans; en hugsanlega hefur hann séð að sér í þessu máli, af augljósri og blóðugri reynslu af þessum mannhöturum og kven-fyrirlítendum, þótt hann kunni enn ekki að iðrast sumra innlendra synda sinna eins og í Icesave-málinu. En svo lengi lærir sem lifir. Svo er það bara spurning með hreinskilnina, hvort hún fái að njóta sín eða er stungið undir stól.
* Sjá tengilinn hér neðar, með hrikalegri frásögn af morðæði talibana.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Þeir drápu marga vini mína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 21.4.2017
Sönn sjálfstæðisstefna rakar að sér fylgi, ólíkt ESB-innlimunarstefnunni
Theresa May og Íhaldsflokkur hennar stefna á stórsigur í boðuðum þingkosningum 8. júní. Nú er fylgi þeirra jafnvel tvöfalt á við Verkamannaflokkinn, skv. könnun YouGov: 48% gegn 24%, hefur risið upp á við eftir ákvörðun May um kosningar í sumar, en í annarri könnun þar á undan hjá sama fyrirtæki var fylgi íhaldsmanna 44%. Mbl.is segir frá þessu og byggir á Telegraph.
Frjálslyndir demókratar eru þriðji stærsti flokkurinn með 12% og Breski sjálfstæðisflokkurinn (UKIP) mælist með 7% en var áður 10%.
Vera má, að bilið milli stóru flokkanna verði ekki svona mikið, því að
önnur skoðanakönnun fyrirtækisins ComRes bendir til þess að Íhaldsflokkurinn sé með 46% fylgi og Verkamannaflokkurinn 25%. Stjórnmálaskýrendur gera ráð fyrir að Íhaldsflokkurinn vinni stórsigur í kosningunum á sama tíma og Verkamannaflokkurinn tapi miklu fylgi frá síðustu kosningum þegar flokkurinn hlaut 30% fylgi. Þá var fylgi Íhaldsflokksins 37%. (Mbl.is)
Tvöfalt fylgi Íhaldsflokks á við Verkamannaflokk myndi hins vegar skila þeim fyrrnefnda miklu meira en tvöföldum þingmannafjölda - 200 þingmanna yfirburðir væru líklegri.
En ljóst er af þessu, að Íhaldsflokkurinn hefur stigið skrefin í rétta átt með því að leggjast heilshugar á sveif með Brexit-stefnunni. Ástandið á Evrópusambandinu gefur síst tilefni til hrifningar meðal Breta, og nú er verkefnið einfaldlega að tryggja í sessi nýja stöðu mála, með fullum rétti landsins til allra sinna viðskiptasamninga, án aðkomu ESB-möppudýra, ráða og þinga í Brussel.
Við Íslendingar ættum þjóða helzt að skilja mikilvægi sjálfstæðis og fullveldisréttinda landsins, sem tryggt hafa okkur 200 mílna landhelgi, réttinn til að ákveða veiðar okkar sjálfir (ólíkt ESB-þjóðum) og gefið okkur dýrmæta og í rauninni glæsta sigra gegn öllu veldi og ofríkistilburðum Evrópusambandsins í bæði Icesave- og makrílveiði-málunum.
Íslenska þjóðfylkingin er allra flokka einarðastur gegn inngöngu Íslands í ESB.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Fengi tæpan helming atkvæða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 18.4.2017
Íslenska þjóðfylkingin styður Le Pen sem næsta forseta Frakklands
Hér er leiðtogi Frakka, Marine Le Pen, sem stendur með sinni þjóð, eini valkosturinn sem Frakkar eiga til verndar gegn islamsvæðingu landsins á borð við Tyrkland.
Eftirfarandi sagði hún á kosningafundi:
"Ég mun vernda ykkur. Það fyrsta sem ég geri sem forseti verður að koma á frönskum landamærum á ný."
"Valkostirnir á sunnudag eru einfaldir. Það er valkostur á milli Frakklands sem rís aftur og Frakklands sem sekkur."
Íslenska þjóðfylkingin styður Le Pen sem næsta forseta Frakklands.
Guðmundur Þorleifsson.
![]() |
Le Pen ætlar að stöðva komu innflytjenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)