Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Mismunun augljós í hælisleitendamáli. Og hingað er boðið flóði af kvótaflóttamönnum, þvert gegn 0-stefnu Dana!

Vilja menn lög í þágu fáeinna einstaklinga sem eru í engu verri aðstöðu en tugir annarra sem ekki er sinnt? 

Áætlun Dana var: 500 kvótaflóttamenn á ári; jafngildir 30 hér, en 100 er ósk Engeyjarfrænda!

En algert HLÉ á móttöku kvótaflóttafólks ákváðu Danir jafnvel í fyrra! Stefnan hafði verið 1500 á þriggja ára tímabili, en verður 0 manns nákvæmlega, því að þeir vita sem er, að aðlögun þeirra, sem komnir eru, hefur verið ófullnægjandi, og ætla sér ekki að sitja uppi með illa orienterað lið í landinu.

Kvóti Engeyjarfrænda af samkynhneigðum karlmönnum frá Kenýa, þar sem þeir eru ekki ofsóttir, en þó taldir kvótaflóttamenn, verður tíu manns á næsta ári. Danir eru 16,5 sinnum fleiri (5,6 milljónir) en landsmenn hér (340þ). Ef þeir tækju hlutfallslega við jafnmörgum og Íslendingum er ætlað, væri skammtur þeirra af samkynhneigðum karlmönnum 165 á næsta ári, en verður: ENGINN

Hér ætla svo Engeyjarfrændur að fá 100 kvótaflóttamenn árið 2018, þótt ekkert stríð geisi í Evrópu, Norður-Afríku né Mið-Austurlöndum lengur. Ef Danir tækju þá hlutfallslega við jafnmörgum kvótaflóttamönnum, yrðu þeir 1650 talsins á því ári. En í reynd verða þeir ENGIR! (Heimild: Fréttablaðið í dag, smáfrétt á bls.6.)

Engeyjarfrændur vilja greinilega vera miklir menn í augum "Góða, göfuga, gáfaða fólksins", þess hins sama sem gekk hart fram með kröfur sínar á síðasta kosningaári og kvaðst sjálft ætla að taka við flóttamönnum og hælis­leitendum í sín hús, en gleymdi svo að efna loforðið! Er þetta fólkið (með sínum Illuga Jökulssyni) sem á að móta hér stefnu í málum? Á ekki frekar að fara eftir reynslunni, eins og Danir og Norðmenn gera nú?

Jafnvel Bjarni Benediktsson er byrjaður að átta sig á því, að það er ekki eðlilegt, að lögreglan geti ekki haft tal af hælisleitendum á Kjalarnesi nema undir vopnum! (sjá nýja grein Björns frænda hans Bjarnasonar: Söguleg ummæli forsætisráðherra um útlendingamál).

Svo voru sumir að halda því fram, að Íslenska þjóðfylkingin færi með fleipur!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Frumvarp um Mary og Hanyie lagt fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaffispjall á skrifstofu Íslensku þjóðfylkingarinnar fimmtudaginn 14. september

Kaffispjall á skrifstofu Íslensku þjóðfylkingarinnar fimmtudaginn 14. september

Fimmtudaginn 14. september verður Helgi Helgason með kaffispjall á skrifstofu Íslensku þjóðfylkingarinnar að Dalshrauni 5 í Hafnarfirði frá kl. 16 til 18.

Húsnæðismál, fátækt og málefni hælisleitenda hafa verið í brennidepli undanfarið. Eru kosningar framundan?

Stjórnin.


STÓRTÍÐINDI Í HÆLIS­LEIT­ENDA­MÁLUM: Virkar aðgerðir til að senda tilhæfulausa hælisleitendur heim

Dómsmálaráðherra hefur gefið út reglu­gerð­ar­breyt­ingu sem dregur úr þjón­ustu við stóran hluta hælis­leit­enda sem fengið hafa synj­un eða dregið um­sókn sína til baka. Veru­lega verður dregið úr þjón­ustu, s.s. hús­næði og vasa­pen­ingum til hælis­leit­enda sem koma frá ríkjum sem skil­greind eru sem örugg skv. nýrri reglu­gerð sem tók gildi 1. september. Með þessu verður máls­meðferð flýtt til muna. Fari við­komandi ekki sjálf­viljugir úr landi, hefur Útlend­inga­stofnun vald til að vísa mönnum úr landi. "Innanríkisráðherra segir tilgang­inn að flýta máls­meðferð til muna, en Rauði krossinn gagnrýnir breytingarnar harðlega." (Stöð 2 í kvöld)

Stöð 2 segir frá:

Hersir Aron Ólafsson fréttamaður: "Breytingar á gildandi reglugerð um útlendinga voru staðfestar með undir­skrift dómsmála­ráðherra um síðustu mánaða­mót, en breyt­ingarnar lúta að málefnum hælis­leitenda. Eitt ákvæði hinnar nýju reglu­gerðar veitir Útlend­inga­stofnun heimild til að taka ákvarðanir í s.k. forgangs­málum strax að loknu fyrsta viðtali og án samhliða skriflegs rök­stuðnings. Til slíkra forgangs­mála teljast umsóknir sem eru taldar "bersýnilega tilhæfu­lausar.""

Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra: "Það eru annars vegar þá umsóknir frá öruggum ríkjum svokölluðum og hins vegar umsóknir sem fela ekki í sér ástæðu fyrir hælisumsókn, svo sem eins og flótta undan stríðsátökum og þar fram eftir götunum."

Fréttamaður: "Það sem af er ári hafa um 40-45% hælis­umsókna hér á landi verið frá einhverju hinna svokölluðu öruggu ríkja, og falla umsóknir þeirra því í flokk hinna tilhæfulausu. Á síðsumar­mánuðum hefur hlutfallið þó verið mun hærra, en í júlí voru um 70% umsækj­enda frá skilgreindu öruggu ríki. Þetta skýrist þó helzt af því, að Georgíu var bætt á lista öruggra uppruna­ríkja um miðjan júlímánuð, en helmingur allra hælisumsækjenda í júlí voru Georgíumenn. Tals­maður hælis­leitenda hjá Rauða krossinum setur spurninga­merki við notkun listans:"

Kristjana Fenger, fulltrúi Rauða kross Íslands: "Við teljum að það sé vel hægt að vinna mál hratt og á réttlátan máta án þess að skerða réttaröryggi, án þess að notast við reglugerðarákvæði og lista yfir þessi upprunaríki. Útlendinga­stofnun hefur tiltölulega frjálsar hendur með hvaða ríki eru sett á þennan lista, og það er ekki sérlega gagn­sætt hvers konar mat fer fram þegar ríki eru sett á hann."

Þorsteinn Gunnarsson hjá Útlendinga­stofnun: "Örugg upprunaríki eru sem sagt listi sem Útlendingastofnun setur yfir þau ríki þar sem við höfum framkvæmt ákveðna forskoðun eða grunn­skoðun á þessum ríkjum og teljum að þau uppfylli þau skilyrði sem almennt eru gerð til þess að ríki teljist réttarríki og viðurkenna mann­réttindi eins og okkar staða kveður á um."

Fréttamaður: "Með reglugerðinni er aftur á móti einnig dregið úr þjónustu við hælisleitendur sem hafa dregið umsóknir sínar til baka eða fengið við þeim synjun. Í slíkum tilfellum er bæði heimilt að fella niður þjónustu til hælisleitenda, sem og að hætta að greiða þeim framfærslufé."

Sigríður Andersen dómsmálaráðherra: "Það gengur auðvitað ekki að vera að veita slíka þjónustu eða veita fólki framfærslufé sem hefur fengið synjun um hæli hér og enn síður gagnvart fólki sem dregur umsókn sína til baka."

Fréttamaður: "Er þá ekki hætta á að það standi hérna fólk eftir aura- og matarlaust og komist ekki aftur heim?"

Dómsmálaráðherra: "Ja, það eru úrræði líka. Það er líka heimild fyrir Útlendinga­stofnun til þess að grípa inn í það með brott­vísunum, og það er verið að skerpa heimild Útlendinga­stofnunar til að vísa mönn­um brott úr landi og með endurkomu­banni inn á Schengen-svæð­ið, þannig að þessi reglu­gerð­arbreyting er nauðsynleg í mörgu tilliti."

Nánast var sagt frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2 (ekki Rúv), sjá hér:  

http://www.visir.is/section/media99?fileid=SRC9F7F5D8C-70E8-4C8B-922E-14767A424B8A

Jón Valur Jensson.


mbl.is Skora á ráðherra að stöðva brot gegn börnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er jafnvel Merkel farin að átta sig á mistökum sínum?

Það er undarlega öfugsnúið að segjast vera of­sóttur eða búa við óbæri­legt stríðs­ástand í ættar­landi sínu, sækja því um og fá hæli hjá þýzkum eða sænskum góð­menn­um, en kjósa svo helzt að fara í sumar­frí til gamla, vonda landsins!

Angela Merkel, kanslari Þýskalands.

Angela Merkel er alveg hissa á þessu, en við umhugsun áttar hún sig á því, að "það gangi ekki upp að fara í leyfi til landsins þar sem viðkomandi segðist vera ofsóttur. Það gæti orðið til þess að hæl­is­um­sókn­in yrði end­ur­skoðuð" (Mbl.is).

Þó það nú væri! En hugsanlega eru þessir hælis­leitendur ekki allir að spóka sig í fríinu, heldur sumir hverjir að hitta gamla baráttu­félaga og fá jafnvel hjá þeim leiðsögn og fyrirskipanir um baráttuna í nýja landinu. Það sama gerðu nokkrir helztu íslenzku kommúnistarnir, að sækja sér línuna til Moskvu, og hví skyldu fylgismenn hryðjuverkasamtaka ekki gera það sama? Gæfumunurinn á þessu tvennu er þó sá, að barátta kommúnistanna hér á landi var ekki komin á sama ofbeldisstig og hjá ISIS-samtökunum sem hreykja sér af því þegar þau valda sem mannskæðustum hryðjuverkaárásum.

En prestsdóttirin úr Austur-Þýzkalandi er kannski byrjuð að skilja það í smá­skömmtum, þrátt fyrir önnur og stærilátari orð hennar í fyrradag, að iðulega hefði hún mátt hugsa sig tvisvar um, áður en hún tók stórtækar ákvarðanir um að opna land sitt fyrir milljón flóttamönnum nánast á einu bretti. En það er einnig í fréttum, að tugir þúsunda Sýrlendinga eru nú á heimleið, einkum frá Tyrk­landi, en "yfir 40 þúsund Sýr­lend­ing­ar hafa farið yfir landa­mær­in síðan það varð leyfi­legt 15. ág­úst, en um fjög­ur þúsund fara þangað yfir á hverj­um degi."

Og þá er spurning hvað gerist í Þýzkalandi. Þar fara fram þingkosningar á næstunni og búizt við að rótttæku samtökin AfD auki þá fylgi sitt. Allt getur hins vegar gerzt með Kristilega demókrata, sem voru í lægð um áramótin í skoð­ana­könn­unum, en hafa nokkuð bætt við fylgi síðan, en greinilega hefur Merkel talað út og suður um málin síðan og er kannski fyrst og fremst að hugsa um að halda sjálfri sér og flokkn­um á floti, en það er mikil og vanþakklát púlsvinna.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Fari ekki í frí til heimalandsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn er ókristinn flokkur, það er málið

Styrmir Gunnarsson spyr, hissa á veruleikanum: Hvers vegna í Þýzka­landi en ekki á Íslandi? og á við: Hvernig ná Kristilegir demókratar í Þýzka­landi 38% fylgi, en Sjálfstæðisflokkurinn ekki 25%?

Svör:

  1. Að kjósa kristinn flokk er ekki að kjósa heiðinn efnis­hyggju­flokk. Sjálf­stæðis­flokkurinn hefur svikið eina upprunalega stoð sinnar hugmynda­fræði, þ.e. kristna manngildis­hugsjón og virðingu við kristin gildi, þar á meðal lífsgildið.
  2. Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn róttækur nýfrjálshyggjuflokkur og röskur í sinni einkavina­væðingu, í stað þess að eiga sér styrka stoð í sinni gömlu varðveizlu­hyggju (conservatism), sem fylgdi honum frá stofnun hans með sameiningu Íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins um 1929.
  3. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki lengur flokkur allra stétta, heldur auðmagns og fjármálaafla öðru fremur og nýtur þaðan styrkja í flokkssjóði sína.
  4. Sjálfstæðisflokkurinn hefur svikið öryrkja og aldraða um lofaðar kjarabætur.
  5. Sjálfstæðisflokkurinn tekur ekki skýra afstöðu með kristnum Vestur­löndum, heldur er opinn í báða enda gagnvart því að fá hingað flóðbylgju mikið til múslimskra innflytjenda; þetta virtist a.m.k. blasa við af mjög virkri þátttöku hans í að semja og samþykkja nýju Útlendinga­lögin á Alþingi 2016, enda þótt einn ráðherra, Sigríður Andersen, sýni nú andóf gegn þessari stefnu.
  6. Í skólamálum hefur Sjálfstæðis­flokkurinn hvað eftir annað sýnt, að hann lúffar fyrir þrýstingi vinstri manna og andkristinna um vaxandi áhrif þeirra í skóla­kerfinu, þar sem m.a. er reynt að hreinsa út kristin áhrif og setja heiðin inn í staðinn.

Sjálfstæðisflokkurinn nær ekki alhliða stuðningi stórs hluta almenn­ings með þessu móti, það ætti Styrmir að skilja, hann sem sjálfur skrifaði ágæt Reykja­víkur­bréf í Moggann um kristna arfleifð þessa flokks síns fram yfir miðja 20. öld. Að hann nær ekki nema 24,5% fylgi í nýjustu MMR-könnun, ætti því ekki að koma Styrmi á óvart, jafnvel þótt þetta gerist í kjölfar þess, að vinstri flokk­arnir hafa beðið skipbrot í kosningum vegna vondra verka sinna.

En Sjálfstæðis­flokkurinn er ekki einn um svik við kristnar manngildishugsjónir. Hver á fætur öðrum hafa pólitísku flokkarnir ýmist hætt yfirlýstum stuðningi við kristin gildi eða að stofnaðir hafa verið nýir án þess að minnzt sé á slík gildi.

Íslenska þjóðfylkingin er nú einn flokka með skýrar kristnar áherzlur. "Íslenska þjóðfylkingin styður kristin gildi og viðhorf. ÍÞ virðir trúfrelsi, en hafnar trúarbrögðum sem eru andstæð stjórnarskrá. ÍÞ hafnar því að moskur verði reistar á Íslandi. Búrkur verði bannaðar og umskurður stúlkna af trúarlegum ástæðum. ÍÞ hafnar skólahaldi islamista á Íslandi. ÍÞ vill styðja þá innflytjendur sem aðlagast íslensku samfélagi." (Úr stefnuskrá flokksins.)

Ennfremur er þetta yfirlýst stefna flokksins, í þessari samþykkt landsfundarins í vor: "Ófædd börn eiga rétt til lífsins. Flokkurinn tekur einarða afstöðu gegn nýfram­komnum hugmyndum um róttækar breyt­ingar á fóstur­eyð­inga­löggjöfinni og mun taka á þessum málum með það að markmiði að draga sem mest úr fóstur­eyðingum." Með þessu er Þjóðfylkingin eini flokk­urinn með slíka lífs­verndar­hugsjón, andstætt Sjöflokknum á Alþingi, sem 27. marz sl. sýndi blygðunar­lausa meðvirkni með fráleitum tillögum um að gera fóstur­eyðingar algerlega frjálsar og allt til loka 22. viku meðgöngu! EINI and­stæði flokk­urinn er Íslenska þjóðfylkingin.

Já, andstætt Sjálfstæðisflokknum þorum við að hafa þessa stefnu til varnar kristnum og þjóðlegum arfi okkar, án þess að setja okkur á neinn hátt yfir aðrar þjóðir. En við viljum standa vörð um ófædd börn, sem eru framtíð þjóðarinnar, og um landa­mæri þjóð­ríkisins, andstætt stefnu "No Borders"-öfga­hópsins, sem hefur notið of mikillar undan­látssemi yfirvalda hér og jafnvel átt vísan beinan stuðning svokallaðs "útvarps allra landsmanna"!

Jón Valur Jensson.


Fækkum hraðabungum í höfuðborginni!

Það er löngu kominn tími til að skafa burt stóran hluta af óþörf­um hraða­bung­um í Reykja­vík. Víða duga aðrar umferðar­merkingar, en bæði bílar og menn verða leik­soppar harðra ákeyrslna á hraða­bungur, m.a. í snjókomu, dimmu eða litlu skyggni.

Menn finna það á sjálfum sér, ekki sízt í strætis­vögnum, hve óþægi­legur þessi hoss­ingur er fyrir lík­am­ann, og hefur þeim tilfellum fjölgað með fjölgun erlendra bílstjóra strætis­vagna­fyrir­tækjanna, manna sem trúlega hafa ýmist litla aksturs­reynslu eða öku­próf sem jafnast ekki að gæðum við það sem íslenzkir bílstjórar hafa.

Ennfremur hefur orðið tjón á bílum við að þeir skullu á hraða­bungum.

Þess vegna hittist skemmtilega á, að það er einmitt framkvæmda­stjóri borg­ar­fyrirtækis í slíkum vagnaferðum, Jóhannes Rúnarsson, frkvstj. Strætós bs., sem vekur athygli á þeim baga sem þessar bungur eru fyrir strætis­vagnana, jafnvel þannig, að þær "tefja rafvæðingu strætis­vagna­flotans á höfuð­borgar­svæðinu, og hefur afhending fjögurra rafvagna dregist um nokkra mánuði vegna þessa," eins og hann segir í fréttar­viðtali við Mbl.is.

Já, nú mega Hjóla-Hjálmar og Dagur borgar­stjóri á útleið sannar­lega fara að endurskoða sína umferðar-pólitík, sem í þessu efni sem öðrum er á ská og skjön við eðlilega skynsemi og iðulega í beinni mótsögn við vilja borgarbúa.

Tekið skal fram, að vitaskuld þarf að gera undantekningar um hraðabungur á götum þar sem reynslan sýnir að vegfarendum getur stafað hætta af hrað­akstri. En almennt myndi draga úr honum með notkun eftirlits­myndavéla.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Hraðahindranir tefja rafvæðingu Strætó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viljum við svona sýndarmennsku-stjórnmálamenn?

Frönsku forsetarnir Macron, Hollande og Sarkosy eiga það sameiginlegt að hafa sólundað af ríkisfé í það að láta sminka sig og farða! Rakari Hollandes fekk 12,6 millj.kr. árlega úr ríkissjóði. Kona hans var á háum ríkis­laun­um, Macron vildi einnig ráða sína í forseta­höll­ina. Hann er fyrir vikið hrap­aður niður í það að vera óvin­sælli en Trump Bandaríkja­forseti, sá sem manna mest er rægður nú um stundir í frétta­stofum heims.

Sar­kozy eyddi 8.000 evrum, einni millj­ón króna, á mánuði í förðun þegar hann gegndi embætti for­seta! Þvílík pjattrófa!

Um þetta hafði verið fjallað í Vanity Fair, og er það einmitt við hæfi!

En hreykjumst ekki upp gagnvart Frökkum; gætum fremur að okkar eigin yfir­stétt, eins og seðla­banka­stjóranum og ýmsum ráðherrum sem þiggja óverð­skulduð laun og fríðindi á kostnað skatt­greið­enda. Það sama á við um borgar­fulltrúa og vara­borgar­fulltrúa, þrátt fyrir takmörkuð fundahöld og vinnu. Þetta þarf allt að endurskoða, þegar þar að kemur.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Háar fjárhæðir í förðun forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylgið hrynur af ríkisstjórninni - Flokkur fólksins, ÍÞ og Dögun með 9,7%

Íslenska þjóðfylkingin er komin upp í 1,6% í nýrri MMR-könn­un, sannar­lega í rétta átt!

Og ríkis­stjórnin er ein­dregið farin að stefna á HRAP: Sjálf­stæð­is­flokkur tapar 5% af sínu þjóðar­fylgi, Björt framtíð fellur út af þingi (3,6%), ríkis­stjórnin sjálf hrapar úr 34,1% niður í 27,2%!

Þótt flokkur ESB-Benedikts virðist eiga sér "við­reisnar von" með 6,0% "nú", þá er það samt ekki NÚ, heldur var könn­unin gerð 15. til 18. þessa mán­aðar, þá var hneykslið um ólög­mætar styrk­upphæðir til Viðreisnar (einkum frá auðkýf­ingum) á kosninga­árinu enn ekki komið í ljós; en þetta svindl gaf þeim flokki yfirburði í kosningaauglýsingum, þess nýtur hann nú í þing­manna­fjölda, ráð­herra­launum og pólitísku valdi, sem vekur þó sára­litla hrifningu kjósenda eftir á, enda nær Viðreisn ekki fylgi Flokks fólksins, sem er komið upp í 6,7%.

Já, ríkisstjórn á útleið, skyldi maður vona, enda fáir spenntir fyrir henni, rétt rúmlega fjórði hver maður!!

Sjá frétt og línurit um úrslitin hér á vefsíðu MMR!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Ríkisstjórnin með 27,2% fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svíar viðurkenna staðreyndir, auka fé til lögreglu af brýnni nauðsyn vegna óaldar

Þeir ætla að auka framlög til lögreglu um tvo milljarða SEK (26,5 ma.ísl.kr.), í 7,1 ma.SEK og hefur aldrei verið meira.

Þetta kom fram á blaðamanna­fundi sem Stef­an Löf­ven, for­sæt­is­ráðherra Svíþjóðar, og Morg­an Johans­son, dóms­málaráðherra lands­ins, héldu í Eskilstuna í dag. Þar sagði Löf­ven að um væri að ræða viðleitni til að auka ör­yggi vegna ný­legra skotárása víða um landið.

„Þetta skap­ar hræðilegt óör­yggi fyr­ir fólk í þess­um íbúðar­hverf­um. Það er ekki ásætt­an­legt, við verðum að tak­ast á við vand­ann rétt,“ sagði for­sæt­is­ráðherr­ann. Bætti hann við að marg­ar saka­mál­a­rann­sókn­ir væru felld­ar niður og á sum­um stöðum furðaði fólk sig á því ef lög­regl­an kæmi yfir höfuð ef það hringdi. (Mbl.is)

Laun lögreglumanna verða líka hækkuð.

Þetta lýsir vandanum vel og ekki síður hitt, að níu manns voru skotn­ir í Svíþjóð um helg­ina, þar af þrír sem lét­ust. Gústaf Adolf Skúlason, sem er búsettur í námunda við Stokkhólm, hefur verið að lýsa þessum hlutum í pistlum sínum hér og snemma morguns í byrjun hverrar viku á Útvarpi Sögu, en hefur að ósekju mætt nokkurri tortryggni.

Það má segja, að uppivöðslusemi glæpagengja sé lögreglunni sænsku ágætis tækifæri til að beita sér líka gegn hættulegri árásargirni múslima í landinu. Þetta hefur "Góða fólkið" enn síður viljað viðurkenna, en við getum aðeins óskað Svíunum góðs árangurs við að koma böndum á ólöglegt athæfi meðal hinna fjölmennu múslima í landinu (fjölda þeirra er erfitt að meta, er þó a.m.k. þriðjungur milljónar, eins og allir sem búsettir eru á Íslandi).

Þó er spurning hvort vandinn sé í raun orðinn óviðáðanlegur.

Lengi hefur verið ljóst, að framlög til löggæzlu á Íslandi hafa verið allt of lítil, og er það vansi bæði fyrrverandi og núver­andi stjórnvalda, þvert gegn t.d. stefnu Íslensku þjóðfylkingarinnar. En skyldi stefnubreyting jafnvel sænskra krata ná að hreyfa við okkar stöðu spýtukörlum í röðum ráðherra?

Jón Valur Jensson.


mbl.is Hækka framlög til lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryðjuverk Marokkómanna einnig á Norðurlöndunum - viðbúnaður enn ekki nægur

14 eru látnir eftir árás­ina í Barce­lona, 15 í lífs­hættu og 45 aðrir enn á sjúkra­húsi. Í Turku, Finn­landi, reynd­ist hnífa­árásar­maður frá Mar­okkó, drap tvo og særði átta í gær. Morð­ingj­arnir í Barcelona voru frá Marokkó. 

Finnska lög­regl­an seg­ir að um hryðju­verka­árás hafi verið að ræða er mað­ur­inn, sem er átján ára, hóf að stinga veg­far­end­ur á markaðstorgi borg­ar­inn­ar. Hún seg­ir að vís­bend­ing­ar séu um að árás­in hafi verið skipu­lögð. Fimm voru hand­tekn­ir í íbúð í Tur­ku í nótt, grunaðir um að tengj­ast mál­inu. Þeir eru einnig mar­okkósk­ir rík­is­borg­ar­ar. Þá hef­ur lög­regl­an lagt hald á bíl og lýst eft­ir manni sem sagður er hættu­leg­ur en haldi ekki til í Finn­landi í augna­blik­inu. (Mbl.is)

Finnska lög­regl­an telur að árás­inni hafi verið beint gegn kon­um:

„Við höld­um að árás­armaður­inn hafi ráðist sér­stak­lega gegn kon­um og að menn­irn­ir sem særðust hafi verið að koma þeim til varn­ar,“ sagði aðstoð­ar­yf­ir­lög­regluþjónn­inn Christa Cr­an­roth á fund­in­um. Yngsta fórn­ar­lambið var fimmtán ára og það elsta 67. Fórn­ar­lömb­in eru af ýms­um þjóðern­um, m.a. finnsk, bresk, ít­ölsk og sænsk. (Mbl.is)

Það er undarlegt að hlusta á valda spekinga Steypustöðvar Rúv í Vikulokum Helga Seljan, rétt eins og umræðuna víðar: að þetta sé t.d. tengt sjálfsvígs­áráttu margra ungra karl­manna, að rótina sé gjarnan að finna hjá okkur sjálfum og að lausnin við þessu fári (sem þó sé ekki eins alvarlegt og umferðarslys) sé gjarnan fólgin í því að halda áfram í góðri samstöðu eins og ekkert hafi gerzt: bezt að sýna, að þetta bíti ekki á okkur: að við gefumst ekki upp! 

Alveg er ljóst, að unnt er að koma í veg fyrir hryðjuverk með eftirliti og for­varnaraðgerðum. M.a. var vel hægt að setja upp umferðartálmanir á Römbl­una, göngu­götuna í Barcelona, þar sem sendi­bíllinn komst ½ km vegalengd, drepa­ndi og særandi á annað hundrað manns! En yfirvöld Barce­lona létu sér morð­árásir öfga­múslima í Nice og Lund­únum ekki að kenningu verða! Voru þau að horfa í kostnaðinn?! Eða varðveita frelsið?!

Gott eftirlit spænsku lögreglunnar tryggði að unnt var að beita sér af hörku gegn fimm manna hryðju­verka­hópnum í hinni árásinni, nálægt Barce­lona.

Hitt voru alger mistök leyniþjónustu og lögreglu að láta m.a. þann, sem fyrst var grunaður um að aka sendibílnum á Römblunni, ganga lausan, því að hann hafði lýst yfir þeirri eindregn­ustu ósk sinni að fá að drepa "trúleysingja" (og átti þar ekki sízt við kristna). Sérhvern, sem spýr úr sér þvílíku hatri, á að loka á bak við lás og slá og gjarnan í upprunalandi þeirra, það verður hæfileg refsing (samningar um slíkt eru mikil­vægir; við munum hafa gert slíkan samning a.m.k. við Litháen, í viðleitni gegn glæpa­gengjum þaðan).

Þá er það partur af eðlilegum forvarnar­aðgerðum að hafa strangt eftirlit með því, hvað fram fer í moskum og trúarskólum múslima, því að þar hefur hatrinu á Vesturlandamönnum verið dreift ótæpilega.

Sömuleiðis er afar mikilvægt að fara eftir þeim vilja 73% aðspurðra Evrópu­manna, að STÖÐVA beri inn­flutning fleiri múslima til álfunnar. Enginn flokkur hér á landi þorir að taka á þessu vandamáli annar en Íslenska þjóðfylkingin.

Í apríl drap múslimskur maður frá Úzbekistan fjóra í Stokkhólmi og gumaði eftir á af verki sínu: "Ég keyrði á hina trúlausu," sagði hann á vef Aftonbladet. Höfum hér líka í huga, að öfga­full­ir islam­ist­ar í Svíþjóð hafa nær tí­faldazt í fjölda á sjö árum! 16. júní sl. upplýsti yfirmaður sænsku öryggis­lög­reglunnar (Säpo) að ÞÚSUNDIR róttækra islamista séu nú í Svíþjóð. Og þessir menn hafa auðvelt ferðafrelsi til Íslands!

Til hvers erum við að bjóða þjóðum okkar upp á nærvist slíkra manna? Hér dugir ekkert minna en harka, öll linkind í þessum málum getur aðeins vegið að okkar eigin öryggi og lífum saklausra borgara. Og þessi er staðreynd málsins: Evrópuþjóðir sem loka nánast á aðkomu múslima (s.s. Pólverjar, Slóvakar og Ungverjar) sleppa alveg við hryðjuverk - hinar miklu síður.

Jafnvel hér á landi metur grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra hættuna vegna mögu­legra hryðju­verka "í meðallagi"! Því eru t.d. öryggisráðstafanir í dag, á Menningarnótt, sjálfsagðar.

En þessi er stefna Íslensku þjóðfylkingarinnar: ÍÞ vill herta innflytjenda­löggjöf og innleiða 48 tíma regluna í málefnum hælisleitenda. Það er ekkert vit í öðru en að setja þá fjármuni, sem til þarf, í lausn þessa vandamáls.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Árásinni beint gegn konum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband