Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Sigríður Á. Andersen talar skýrt og tæpitungulaust um mál hælisleitenda í afar upplýsandi viðtali

Sigríður dómsmála­ráðherra var gestur Arn­þrúð­ar Karls­dóttur í Útvarpi Sögu í gær og mælt­ist þar mjög sköru­lega um ýmis mál, ekki sízt um hæl­is­leit­end­ur eða með­ferð um­sókna þeirra, en einn­ig um s.k. hat­ur­sorð­ræðu (og m.a. spurð út í ójafn­ræði í þeim málum), um fíkni­efnamál og um upp­reisn æru.
 
Nú er markvisst unnið að því að stytta máls­meðferðar­tíma hælis­leitenda, nú þegar er (að hennar sögn) hafin vinna til þess að ná því mark­miði, með því að ráða fleira starfs­fólk og greina hraðar hvers eðlis þær umsóknir sem berist séu.
 
Hún segir að sérstaklega þurfi að hraða máls­meðferð tilhæfu­lausra umsókna, en Sigríður segir þó, að þegar afgreiðslu umsókn­anna sé lokið sé ekki búið að klára málin; “svo þarf að koma fólkinu úr landinu og það getur tekið dágóða stund, einkum og sér í lagi ef fólk er ekki með skilríki, þá hafa þessi eigin lönd jafnvel neitað að taka við þessu fólki," segir Sigríður. (Af vef Útvarps Sögu.)
 
Undir lok þáttarins kom fram, að Sigríður nýtur stuðnings ríkisstjórnarinnar við styttingu málsmeðferðar hælisleitenda og jafnframt við tillögu hennar um að fella niður lagaákvæði um uppreisn æru.
 
 
Viðtalið við Sigríði er reyndar efni tveggja fréttagreina á vef Útvarps Sögu á þessum nýliðna þriðjudagi, og þar er einnig að finna tónlistarspilara þar sem menn geta hlustað á viðtalið allt.
Í síðarnefndu fréttinni kemur fram, að vitaskuld tekur Sigríður ekki í mál, að hér fengju menn að komast upp með barnabrúðkaup (eins og tíðkast meðal ýmissa þjóða, þ.á m. sumra múslimskra).
 
Því ber að fagna, að dómsmálaráðherra er með skýra og góða stefnu í þessum málum sem snúa að útlendingum, en þar á meðal eru mörg atriði sem ekki var drepið á hér ofar. Sem flestir ættu að hlusta á þáttinn sjálfan, einkum fyrri hlutann og bláendann.

Jón Valur Jensson.


Vilja menn að þetta gerist hér líka - niðurbrot landsmálsins o.fl. óæskilegt?

Gömul yfirþjóð, með sitt málsvæði víðar en í Þýzka­landi, kemst nú að raun um, að hratt inn­streymi flótta­manna & hælis­leitenda stuðlar að því að þýzka víki fyrir ensku í vax­andi mæli, í stað þess að allir læri tungu landsins. Á veit­inga­stöðum í sjálfri höfuðborginni Berlín er ekki hægt að treysta því lengur að starfsfólkið tali þýzku - enskan er það algengasta! Á þetta hafa bæði ferðamenn og fyrrnefndir hópar sín áhrif.

En þannig er þetta einnig að verða á sumum veitingastöðum okkar í Reykjavík, og er það fremur óþægileg upplifun fyrir landann. Menn geta vitaskuld hent gaman að þessu og sagt að þetta sé gott á okkar þjóðrembu, en reyndar tölum við ekki íslenzku af neinum þjóðrembuástæðum, hún er bara það sem er okkur eðlilegt og jafnframt, í allri hógværð, verðmætt sem tæki okkar í tilverunni til samskipta og til að miðla góðum hugmyndum og arfi og njóta þess sem við höfum lært af öðrum og af verðmætum bókmenntum landsins.

Við Íslendingar erum á okkar hátt með enn viðkvæmara tungumál en stórþjóðin vegna smæðar okkar, og því gæti þetta, sem er að gerast í Berlín, dunið yfir okkur á skemmri tíma en okkur órar fyrir, en vonandi varðveitist þjóðtungan hér um aldir og helzt árþúsund. Það er ekkert unnið við það að enskan, sem gjarnan er flatneskjuleg í munni flestra hér, taki yfir, og það mun ekki auka vegsemd okkar hér í heimi á nokkurn hátt.

Frá Þjóðverjum getum við lært þá lexíu, að mjög hratt innstreymi nýbúa getur valdið röskun í menningu og samskiptum fólks ekkert síður en félagslegum breytingum, lækkandi launum, röskun á leigu- og húsnæðismarkaði ásamt jafnvel ótraustari stöðu kvenna og áhrifum á glæpatíðni. Því verður ekki of varlega farið í þessum efnum og brýn nauðsyn, að nægilegt fé fari til þessara mála til að aðlögun hinna aðkomnu að máli okkar og samfélagi geti á örfáum árum tekizt með viðunandi hætti.

Hitt er svo allt annar handleggur, að stöðva þarf hælisleitenda­strauminn með skjótum hætti og snaggaralegum, eins og Sigríður Andersen hyggst gera. Eftir að það hefur tekizt, vinnst okkur þetta allt miklu léttar, og við verðum líka betur í stakk búin til að taka við raunverulegum flóttamönnum, eftir efnum og aðstæðum. Vegna þess að kristni er nú ofsótt í mörgum löndum heims langt umfram það sem þekktist fram yfir síðustu aldamót, ættum við þar að beina sjónum okkar helzt að kristnum bræðrum okkar og systrum, bæði frá Afríku og Asíu og jafnvel landi eins og Venezúela, þar sem frjálshugsandi fólk er farið að flýja öfgafulla sósíalistastjórn einu sinni enn.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Brjálaður vegna skorts á þýsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingmanna-þversagnir - krabbameins-göngudeild lokað því að 3 millj.kr. vantar; svo kasta þingmenn 5500 milljónum út um gluggann!

Kolbeini Proppé virðist þykja í lagi að ríkið borgi 20 milljóna gjald­þrot fyrir hann,* en að sumir Íslend­ingar verði að búa í tjaldi; á sama tíma vill hann láta moka 5500 milljónum í hælis­leit­endur bara á þessu ári - og meira síðar!

Svo segja þessir bullukollar að það þurfi að loka göngu­deild fyrir krabba­meins­sjúka á Land­spítalanum í sumar af því að það vanti 3 milljónir!!!

Það er augljóst hvað þessir óþjóðhollu menn hafa í forgangi: sína "gráu theoríu" (Goethe): pólitíska kreddu innflutta frá evrópskum vinstrimönnum.

* http://www.dv.is/folk/2016/7/1/kolbeinn-proppe-mer-var-radlagt-ad-gefast-upp/

SOB, HH, JVJ


Kolbeinn Proppé alþm. vill áfram velta milljörðum í hælisleitendur, veitir fátækum Íslendingum í tjöldum í Laugardal enga úrlausn!

Langt er síðan tveir vinstri flokkar misstu allt samband við almennt verka­fólk og fátæka alþýðu. Þeir glutruðu niður sak­leysinu og hrein­leik­anum í sinni Jóhönnustjórn þar sem alls­herjar­ráðherrann Stein­grímur J. fór ham­förum gegn skatt­greiðendum í Icesave-laga­setn­ingar­æði sínu. Sá er nú sessu­nautur og ráðunautur Kolbeins Proppé í þingflokki VG!

Kolbeinn vill áfram velta milljörðum (6-10 á árinu?) úr vösum skatt­greiðenda í tilhæfulausa hælis­leitendur frá múslima­ríkjum Balkanskaga, en gerir ekkert fyrir heimilis­lausar íslenzkar konur sem hírast kaldar í tjöldum í Laugardal ! 

Misjafnar undirtektir undir grein Kolbeins á Eyjunni ættu að sýna honum, að hann má fara hægar í sakirnar í sinni fjöl­menningar­ástríðu. Og hvaða ávinn­ingur er okkur að þessum bóta­þegum frá Albaníu og Makedóníu?

Maður einn hafði samband við undir­ritaðan og kvaðst eiga vin sem hingað hefði flutt fyrir mörgum árum frá umræddu svæði í álfunni; sá hefur verið hér í fullri vinnu, en kvaðst einmitt hafa verið að koma sér í burt þaðan sem lítill vinnu­andi hefði verið. "Hvað eru Íslend­ingar að hugsa, að bjóða svo þessu fólki hingað, sem gæti bara orðið ykkur að sama vandamáli?"

Eitt er víst, að það er ekki gert af því að okkur beri nein skylda til þess. Hröð hugarfars­spilling vinstri flokkanna og meðvirkni hægri flokkanna er megin­ástæða þess, að hér er allt opnað upp á gátt og það á sama tíma og skandinav­ísku þjóðirnar eru hver á fætur annarri að koma þessum óhóflegu aðgengis­málum tilhæfulausra hælis­leitenda í skaplegra form. Samráð tveggja kven-ráðherra, danskrar og norskrar, um að læra af Norð­mönnum (frétt í Sjónvarpi fyrir fáeinum dögum) er til marks um það.

Kannski við ættum að senda gervalla ríkisstjórnina í námskeið til Óslóar!

Jón Valur Jensson.


Nauðgunargengi innfluttra níddist skipulega á brezkum stúlkum 13-25 ára

Það, sem er sleppt að nefna í Mbl.is-frétt af þessum stór­tæku, lang­var­andi nauðg­unum 18 karla og 1 konu á stúlkum um árabil, er, að þetta er inn­flytj­enda­hópur umfram allt, frá músl­imsk­um lönd­um fyrst og fremst, en nánar til­tekið frá þessum löndum: Bangla­desh, Pak­istan, Indlandi, Írak, Íran, Tyrklandi.

Myndirnar og NÖFNIN með þeim (hér neðar) benda í þessa áttina:

First row: Nashir Uddin, Taherul Alam, Mohammed Hassan Ali, Mohammed Azram, Monjur Choudhury, Saiful Islam. Second row: Abdulhamid Minoyee, Jahanger Zaman, Mohibur Rahman, Prabhat Nelli, Nadeem Aslam, Eisa Mousavi. Third row: Habibur Rahim, Badrul Hussain, Carolann Gallon, Abdul Sabe, Redwan Siddquee, Yassar Hussain

First row: Nashir Uddin, Taherul Alam, Mohammed Hassan Ali, Mohammed Azram, Monjur Choudhury, Saiful Islam. Second row: Abdulhamid Minoyee, Jahanger Zaman, Mohibur Rahman, Prabhat Nelli, Nadeem Aslam, Eisa Mousavi. Third row: Habibur Rahim, Badrul Hussain, Carolann Gallon, Abdul Sabe, Redwan Siddquee, Yassar Hussain. Photograph: Northumbria Police/PA

Bezt er að segja hlutina eins og þeir eru. Þessi nauðgana­hópur er ekki sá eini á Bretlandi, hann kemur í kjölfarið á öðrum, sem minntu á hann um margt, þ.e. glæpa­gengjum í Rotherham og Rochdale, "which featured gangs of British Asian men abusing white girls" (Guardian), en fyrst og fremst var þar um Pakistana að ræða, frá því múslimska landi (rétt eins og helztu gerendur í áramóta­atburð­unum á torginu við Kölnar­dómkirkju um árið).

Kannski að "góða fólkið" íslenzka trúi þessu, af því að þessa ýtarlegri frétt er að finna í eftirlætisblaðinu The Guardian. En væntanlega þykir Guardian ástæða til að standa vörð um sakleysi viðkvæmra brezkra unglingsstúlkna í stað þess að horfa upp á það þegjandi og hljóðalaust, að þær séu fylltar og dópaðar til þess að unnt sé að níðast á þeim af þessu líka glæpahyski, sem aldrei hefði átt að stíga fæti á brezka jörð. Sumar þeirra voru hnepptar í kynlífsánauð.*

* Undirfyrirsögn Guardian-fréttarinnar er: Four trials find 17 men and one woman guilty of nearly 100 offences including rape and human trafficking of vulnerable women and girls.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Níddust á hópi ungra stúlkna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðfinna í Framsóknarflokki vill gera hann að enn einni málpípu "Góða fólksins" og múslimavina

Stóra fréttin í dag er raunar sú, að hún vill ryðja Sveinbjörgu Birnu úr 1. sæti Framsóknar og flugvallarvina, treystir því ekki að ná inn sem viðhengi eða vill ekki móðga Góða fólkið, segir í staðinn við flokksfólk: Ef þið viljið mig, verður það að vera á kostnað Sveinbjargar, bezt að kasta henni út! Ekki gott "systra­lag" né þakklæti í þeim boðskap og merkilegt hvernig bæði hún, ungir fram­sókn­ar­menn og Sigurður Ingi formaður sjálfur hafa látið Logana tvo (Bergmann og Einars­son Samfylkingar­formann), Fréttablaðs- og Rúv-liðið mata sig á sínum túlkunum á umræðu Sveinbjargar um nauðsyn sérkennslu fyrir börn hælis­leit­enda og flóttafólks.

Já, það er ódrengilegt af þeim að veitast þannig að flokkssystur sinni og rang­túlka orð hennar, í heimskulegri auðsveipni við litla bóga í þessum skóla- og innflytjendamálum.

Sjónarmið Sveinbjargar fær mjög víða hljómgrunn í samfélaginu, meðal annars í umræðum um greinar Loganna tveggja, sem eru nú ekki skörpustu hnífarnir í skúffunni í þessum efnum. Annar þeirra er jafnvel svo ruglaður, að hann heldur að ófædda 11 og hálfrar viku veran í móðurlífi konu sé "ekki fóstur, heldur frumuklasi"!! Ætti slík vanþekking að sæta almennum aðhlátri, ef ekki beinlínis fordæmingu, úr því að þetta sagði hann, formaður stjórnmálaflokks, á sjálfu Alþingi Íslendinga fyrir fáeinum mánuðum, 27. marz 2017 og var að nota þetta til að réttlæta frekari manndráp hinna ófæddu! (Um stefnu Íslensku þjóðfylk­ingarinnar í þeim málum má lesa í þessari grein.)

Það er eða ætti að vera alkunna, að skóli Þorgerðar Katrínar "án aðgreiningar" er illa heppnuð tilraun, sem þó hefur sem betur fer ekki komið í veg fyrir, að einhverfir og fleiri sérhópar geti fengið sérkennslu við sitt hæfi. Og þekkt eru dæmin um það erlendis líka, að innflytjendabörn fái fyrst sérkennslu í skólum í stað þess að vera látin dúsa í krakkahópi þar sem þau skilja ekki mælt mál og geta ekki fylgzt að gagni með kennslu fyrr en eftir marga mánuði. Það er einmitt tillitssemi við börn að fá kennslu á sínu eigin máli framan af a.m.k. og um leið innleiðslu í tungumál nýja landsins í sértímum, sem eru helgaðir þeim. Að ætla sér að gera tillögur Sveinbjargar um slíkt að árásarefni á hana er þeim til hneisu og hreinnar skammar sem að því standa. Hitt er svo reyndar stað­reynd og nýtur mikils fylgis, að við getum vel afgreitt hælis­umsóknir eins og Norðmenn gera, á tveimur sólar­hringum, ekki einu eða tveimur misserum, eins og hér viðgengst í slóðaskap vanhæfra yfirvalda.

Það gæti ennfremur orðið "sokkinn kostnaður" fyrir Framsóknarflokkinn ef hann missir hér af þessari hreinskilnu konu, sem tekið hefur á málum af röggsemi, og býður upp á aðra í staðinn, sem gerzt hefur meðvirk með aðhróp­endum þeirra sem setja fram málstað heilbrigðrar skynsemi og gagnrýna á sann­gjarn­an hátt magn­aðan og víta­verðan aulahátt borgar­stjórnar í mosku- og inn­flytj­enda­málum.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Allt eða ekkert hjá Guðfinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hælisleitendur eiga enga heimtingu á að njóta hér stjórnarskrártryggðra réttinda fyrir ríkisborgara þessa lands

Formaður Samfylkingar vill að "við öxlum sjálf­sagða [sic] ábyrgð: Að rétta þeim hjálp­ar­hönd, sem hingað leita, úr ömur­legum aðstæðum og af sárri neyð" og á þá við hæl­is­leit­endur frá öruggum löndum! Þeim fer sí­fjölgandi, verða líklega yfir 2000 á árinu.

En þeir eiga enga "sjálfsagða" heimtingu á að njóta hér ákvæðis 76. greinar stjórnarskrárinnar um félagsleg réttindi til aðstoðar af ýmsu tagi vegna sjúkdóma, örorku, elli og atvinnuleysis, sem og til menntunar o.fl.

Þarna bera hins vegar ríki og sveitarfélög þunga ábyrgð gagnvart okkar eigin ríkisborgurum, sem flestir stjórnmálaflokkar hafa þó vanvirt, eða hvað varð t.d. af "skjaldborg" vinstri stjórnar Jóhönnu eða um öll loforð flokkanna fyrir síðustu kosningar að bæta endanlega kjör aldraðra og öryrkja?

Góðmennskuyfirlýsingar Loga Einarssonar í þágu tilefnislausra hælisleitenda blekkja því fáa, eins og reyndar má glögglega sjá á þeim fjölmörgu andmælum sem Fréttablaðs-pistill hans sætir á vefslóð hans á Visir.is!

Jón Valur Jensson.

Sbr. einnig greinina Ábyrgð stjórnvalda er fyrst og fremst gagnvart ís­lenskum ríkis­borgurum, ekki erlendum, - eftir Birgi Loftsson sagnfræðing.


Ábyrgð stjórnvalda er fyrst og fremst gagnvart ís­lenskum ríkis­borgurum, ekki erlendum, - eftir Birgi Loftsson sagnfræðing

Ég heyri fólk rífast endalaust um þjóð­félags­ástandið í dag sem snýr að hús­næðis­málum og hælis­leitendum. Kíkjum á málið.

Árið 2013, samkvæmt svari Útlendingastofn­unar, kostaði hver hælis­leit­andi kr. 54.600 á viku sem gerir 220.000 kr. á mánuði. Hver er kostn­að­urinn í dag? Viðbúið er að hver hælis­leitandi fái ýmislegt ókeypis á meðan. Líklega þarf hann ekki að borga fyrir hús­næðið sem hann býr í en það getur verið af ýmsum toga. Til dæmis hótel­herbergi, herbergi á Víðinesi eða Fitjum, íbúðir og jafnvel ein­býlishús. 

Til samanburðar fær atvinnu­laus maður 180.000 kr og guð má vita hvað öryrkjar og aldraðir fá en ég býst við að þeir fái að meðaltali um 200 þúsund krónur á mánuði. 

Á öðrum stað segir að hver flóttamaður (sem væntan­lega er ekki lengur hælis­leitandi heldur flóttamaður sem er borgað er fyrir), fái 4-6 milljónir á ári, fær íslenskukennslu, ókeypis húsnæði og margvíslega aðra þjónustu. 

Hælisleitendur stefna í að vera um 2000 í ár (þar af 98% með tilhæfu­lausa ástæðu fyrir hælisleit). Ef meðal­kostn­aðurinn á hvern einstakling er 5.000.000 kr., þá er heildar­kostnað­urinn: 10.000.000.000 kr. en fyrir þá sem kunna ekki inn á svona stóra tölu, þá eru þetta 10 milljarðar kr. Held samt að kostn­aður sé nærri 6 milljarðar samkvæmt tölu sem ég sá um daginn.

Sumir segja að ekki megi blanda saman þessari umræðu, það er fátæku fólki í húsnæðisleit og öðrum hópum sem hafa orðið undir í íslensku þjóðfélagi, við hælis­leit­endur og það sé ekki sanngjarnt. En er það svo?

Á meðan stjórnvöld láta bara örlitla kökusneið af þjóðar­kökunni í þennan málaflokk, þá er það nokkuð einfalt dæmi að þeir verða að berjast innbyrðis um örsneiðina og þá er auðljóst að það ber að tala um þessa hluti í sömu andrá. 

Um 900 milljónir manna ganga til svefns hungr­aðir á hverjum degi í heim­inum. Eigum við ekki að hjálpa þeim öllum? Svarið er að við getum það ekki. 

Svo má benda á þá staðreynd að íslensk stjórnvöld gera hvað sem er til að tryggja að enginn hælis­leit­andi fari á götuna. Enginn fer á götuna, punktur! Besta dæmið um það er þegar húsnæði Lögreglu­skóla Íslands var nýtt til að taka við metásókn hælis­leitenda hingað til lands. Þá riðu fjölmiðlar röftum í hneykslun sinni yfir slæmri meðferð á aumingja fólkinu að láta það hírast tíma­bundið í annars ágætu húsnæði. Sveitar­félögin (líka út á landi) gera þetta ekki fyrir Íslendinga í nauð og verður fólk að fara hreppaflutningum eins og í gamla daga, vegna þess að kerfið þykist ekki bera ábyrgð. Skammar­legt var hvernig tugir þúsunda Íslendinga misstu húsnæði sitt í hruninu og lítið var gert til að bjarga því.

Ábyrgð stjórnvalda er fyrst og fremst gagnvart íslenskum ríkisborgurum, sem fæðst hafa hér á landi, borgað sína skatta og skyldur, en ekki einhverja sem segjast vera eitthvað sem enginn getur sannað að svo sé. Á meðan fólk býr í tjöldum og er svangt, hefur ekki efni á leiguíbúð né læknis­þjónustu (þekki persónulega mörg dæmi um slíkt), þá er ábyrgðin fyrst og fremst stjórnvalda sem verða að forgangs­raða.

Birgir Loftsson á sæti í flokksstjórn Íslensku þjóðfylkingarinnar.


Tillögur Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur í skólamálum barna hælisleitenda eru skynsamlegar

Það er merkilegt að ekki megi setja fram skyn­sama skoðun á fyrir­komu­lagi skóla­göngu barna sem koma með fólki sem er að sækja um alþjóð­lega vernd, eins og fína orðið er yfir hælis­leit­endur, sem og flótta­fólk. Er ekki tími til kominn hjá elítu­fólk­inu að skoða málin dálítið betur? Það eina, sem Sveinbjörg í Framsókn og flug­vallar­vinum er að setja fram, er að koma á kennslu fyrir þessi börn meðan þau eru í biðstöðu, þannig að þeim gangi betur að aðlag­ast hinu almenna skóla­kerfi og röskun verði sem minnst á kennslu í hinu almenna skólakerfi.

Vill almenningur sem á börn á skólastigi að kennsla verði annars flokks vegna þess eins að meginþorri tíma kennara fari í að sinna börnum sem koma frá öðrum menningarheimi og þurfa þess vegna meiri leiðsögn og athygli? Nei! Ég held að foreldrar skilji það að það sé ekki ásættanlegt að fórna menntun eigin barna, vegna þess að öll orka kennara fari í að styðja við örfáa einstaklinga.

Tillaga Sveinbjargar er umræðunnar virði, hér er ekki um neina rasistahugsun að ræða, börn sem kæmu úr slíku umhverfi yfir í almenna kerfið, ef landvistaleyfi fengist, yrðu mjög sennilega síður fyrir aðkasti, einelti eða annarri höfnun, væri búið að undirbúa þau til að geta tekist á við það, sem byði þeirra, og ef umrædd börn fengju ekki landvistarleyfi er ekki verið að útsetja þau fyrir höfnun.

Að stjórnmálamenn skuli fylkja liði við að rakka Sveinbjörgu niður fyrir það eitt að setja fram þessa skynsömu skoðun er þeim sem það skrifa til háborinnar skammar og sýnir eingöngu skammsýni.

Guðmundur Þorleifsson.


Víkingasveitin kölluð út vegna hnífabardaga hælisleitenda á Ásbrú

Víkurfréttir og DV segja frá:

Víkingasveitin var kölluð út til að aðstoða lögregluna á Suðurnesjum rétt fyrir miðnætti 29. júlí.

Á vef Víkur­frétta er greint frá því að átök hafi átt sér stað á gistiheimili á Ásbrú. Gistiheimilið er á vegum Útlendingastofnunar.

Í frétt Víkurfrétta kemur fram að vopn hafi verið notuð og voru þeir sem tóku þátt í átökunum vopnaðir hnífum. Þá var óskað eftir sjúkrabifreið á staðinn.

Þessu taka menn ekki vel á Facebók og DV-vefnum, margir taka sterkt til orða. 

En er það ekki orðið dæmigert um ástandið, að þörf sé á íslenzkum víkingum til að stöðva uppivöðslusama suðræna flakkara sem sýna með þessum hætti þakklætið fyrir að vera haldið hér uppi í munaðarlífi á kostnað skattgreiðenda?

Jónas Þór Jóhannsson spyr: "Er þessi ríkisstjórn ófær um að taka á þessu vandamáli?"

Guðlaugur Ævar Hilmarsson svarar: "Þorir ekki að rugga bátnum. Er með 1 yfir á Alþingi. Ef hann stoppar þennan ósóma, fara Óttarr Proppé og Svört framtíð í fýlu." Tekur einnig fram, að aldrei hafi hann kosið Svarta framtíð, og bendir á þennan fréttartengil:  http://www.mbl.is/frettir/kosning/2016/09/17/vilja_ad_islendingar_verdi_800_thusund/

Arnar Styr Börnsson ritar: "Væri ekki betra að nefna gistiheimilið Valhöll?"

Halldór Karelsson: "Ótrúleg stjórnartök hjá þessari vanhæfu ríkisstjórn."

Jón Valur Jensson.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband