Sunnudagur, 12.2.2017
Orðræða um sjómannaverkfallið sem er hvorki við hæfi né ábyrg
Það er rangt hjá Þorgerði Katrínu, ráðfrú sjávarútvegsmála, að lagasetning til að stoppa verkfallið sé "óheppileg" og "einfaldlega að pissa í skóinn okkar." Þvert á móti er það augljós skylda ríkisvaldsins að grípa inn í, í 1. lagi þúsunda verklausra manna vegna, þegar ekki hefur náðst nein sátt í viðræðum deiluaðila, og í 2. lagi vegna ugglaust betri málstaðar sjómanna, sem útgerðarmenn þvinga til að borga fyrir allan sinn dýra vinnufatnað, þótt endingartíminn sé skammur, einnig vegna dagpeninga sjómanna, sem þeir borga skatt af, ólíkt dagpeningum alþingismanna! - og ennfremur vegna þess að Alþingi og ríkisstjórn tók sjómannaafsláttinn af þessari stétt manna sem við lengstu fjarvistir býr frá fjölskyldum sínum, leggur manna mest til samfélagsins í formi skatta, án þess að geta notað samgöngur og aðra samfélagsþjónustu í sama mæli og aðrir skattgreiðendur, og býr ennfremur við skemmri starfsævi að meðaltali en aðrar stéttir vegna vinnuálags og slysahættu.
Ríkisstjórn SA-manna, SI-manna, FA-manna og útgerðarmanna er bersýnilega ekki "kjörin" til þess að standa með málstað sjómanna, þótt margir hafi þeir eflaust glapizt á að styðja einhverja þeirra þriggja flokka sem að henni standa.
Þorgerður biðlaði þá til deiluaðila að fara inn í vikuna með það í huga að semja og binda enda á verkfallið. Ég hvet menn til að hverfa frá þeim hugsunarhætti að ríkið komi að deilunni með sértækum aðgerðum. (Mbl.is)
Þetta ábyrgðarlausa blaður hennar gefur sjómönnum ENGA VON, bara puttann!
Þvert á móti stefnu Sjálfstæðisflokks, "Viðreisnar" og viðhengis þeirra stendur Íslenska þjóðfylkingin með sjómönnum í þesari deilu og hefur margítrekað sett fram kröfuna um 5-6% sjómannaafslátt. Ásamt kröfu okkar um að útgerðin borgi vinnugalla sjómanna, myndi þetta nægja til að höggva á þennan verkfallshnút, sem veldur sjómönnum og fiskvinnslufólki milljarða skaða í töpuðum launum, sviptir sjávarútveginn og landið gífurlegum gjaldeyristekjum og ríkissjóð ómældum skatttekjum. Ríkið á allan hag af því, að hjól og skrúfur þessarar atvinnugreinar fari að snúast sem fyrst og skipin að stefna úr höfn á miðin.
Að Þorgerður Katrín, sem stökk aftur inn í pólitík úr hálauna-starfi fyrir atvinnurekendur, sýnir þessu engan skilning, er ekki gæfulegt fyrir traust á henni meðal kjósenda, sem geta spurt sig, til hvers hún hafi aftur farið inn á vettvang stjórnmála. Henni nægir ekki til að vinna upp tiltrú á sér að flytja skrifstofu ráðuneytis síns nokkra daga til Ísafjarðar! Menn láta ekki blekkjast af slíkri yfirborðsmennsku.
Vilhjálmur Vilhjálmsson í HB-Granda var í löngu opnuviðtali í Viðskipta-Mogganum nú í vikunni og er þar sérstaklega að verja það, að útgerðin fái um 30% í sinn hlut utan skiptaprósentu, af því að þetta þurfi til að dekka kostnað útgerðarinnar. En þá ættu útgerðarmenn að sýna sóma sinn í því að borga fyrir vinnufata- og hnífakostnað sjómanna. Ríkið getur svo komið til móts við deiluaðila með því að afnema skattheimtu af dagpeningum og endurvekja sjómannaafsláttinn, sem þeir eiga svo sannarlega skilinn. Það er auðvelt að réttlæta það með því að benda t.d. á, að norska ríkið greiðir miklar fúlgur í styrki til útgerðarfyrirtækja þar í landi.
En ætla þessir hægriflokkar sér að verða frægir að endemum: að spilla fyrir trausti á Íslandi og langtíma-markaðsuppbyggingu erlendis með því að rýna bara í naflann á sér og fara með sínar frjálshyggju-þulur?!
Leysið verkfallið strax, það er auðvelt, ef og þegar viljinn er til staðar!
Séu stjórnvöld stöð og þver í málinu eins og Þorgerður Katrín, verður að auka þrýsting á þau og opinskáa gagnrýni sem flestra. Við munum ekki láta okkar eftir liggja í því efni, félagar í Íslensku þjóðfylkingunni.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Eins og að pissa í skóinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjávarútvegur | Breytt 13.2.2017 kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 11.2.2017
Marine Le Pen: AFEITRAÐI frönsku Þjóðfylkinguna, hafnar öfgum og kynþáttahatri
Jafnvel Fréttablaðið viðurkennir, að flokksleiðtoginn Marine Le Pen hefur "afeitrað flokkinn og óspart rekið úr honum liðsmenn sem hafa sýnt af sér gallharðan þjóðernishroka eða boðað grímulaust kynþáttahatur eða Gyðingahatur."
Hófstillt stefna Marine Le Pen nær betur til frönsku þjóðarinnar en æsingaræður föður hennar, sem lét af forystu flokksins árið 2011, þá kominn yfir áttrætt. Hún er þó hörkutól gagnvart Evrópusambandinu, vill a.m.k. endurheimta þau fullveldisréttindi Frakklands sem afsalað hafði verið til Brussel, þótt vilji hennar sé raunar eindreginn í þá átt að landið segi sig úr ESB. Hún vill að óskagjaldmiðill íslenzkra vinstri manna og ESB-innlimunarsinna verði lagður niður:
"Evran er ekki gjaldmiðill. Hún er pólitískt vopn. Evran er hnífur sem Evrópusambandið stingur í bakið á fólkinu til að neyða það til að fara þangað sem það vill ekki fara."
Nú er Marine aftur komin í forsetaframboð og mun njóta stuðnings a.m.k. fjórða hvers kjósanda. Ýmsir leiðtogar vinstri og hægri flokkanna hafa hrapað í áliti, Hollande forseti reynzt afleitlega, fjármálahneyksli kippt fótunum undan jafnt hægri manninum Fillon sem öðrum.
Þá hafa hryðjuverk múslimskra öfgamanna aukið mjög fylgi Þjóðfylkingarinnar á ný, en í Frakklandi eru 5-6 milljónir múslima, og greinilega hefur ýmsum þeirra ekki tekizt að aðlaga sig frönsku þjóðfélagi og gildum. Áberandi er einnig Gyðingahatrið meðal öfgamúslima, og hafa sum hryðjuverkin beinzt að þeim, saklausum borgurum landsins, og hefur það jafnvel stuðlað að brottflutningi Gyðinga til Ísraels.
Full þörf er á því um alla Evrópu, að ríkisstjórnir þar taki raunsætt mið af því, að yfir 70% þeirra, sem afstöðu taka í skoðanakönnun Chatham House í 10 af helztu Evrópuríkjum, eru hlynnt því að stöðva þar móttöku fleiri múslima.
PS. Opinbert, enskt heiti Íslensku þjóðfylkingarinnar er the National Alliance. Við notum ekki hugtakið National Front, sem hefur hernaðarlegan hljóm (minnir á herfylkingu) og var í sumum Evrópulöndum á stundum tengt nýnazisma. Íslenska þjóðfylkingin fordæmir allan fasisma og kynþáttaandúð.
Jón Valur Jensson.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 12:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 8.2.2017
Er þagnar- og þöggunar-múrinn sænsk-íslenski loksins að rofna?
Mest lesið á Pressunni í dag: Skrif sænsks lögreglumanns vekja mikla athygli: Segir að allur vinnutími hans fari í að rannsaka afbrot innflytjenda.
Þar kemur fram, að "Peter Springare, lögreglumanni í Örebro í Svíþjóð, er alveg sama þótt skrif hans þyki ekki samræmast pólitískri rétthugsun. Á föstudaginn birti hann færslu á Facebooksíðu sinni og hefur færslan vakið mikla athygli og umræður í Svíþjóð. Hún varð þess einnig valdandi að yfirmaður Peters kærði hann. Í færslunni lýsir Peter síðustu viku í vinnunni og lýsir yfir áhyggjum af afbrotum sem innflytjendur fremja." (Pressan.is)
Ég er svo þreyttur á þessu. Það sem ég skrifa hér fyrir neðan samræmist ekki pólitískri rétthugsun. En mér er alveg sama. Það sem ég ætla að kynna fyrir ykkur skattborgurunum er eitthvað sem við opinberir starfsmenn megum ekki segja.
En Peter heitir því að segja ykkur, sem eruð með mig í vinnu sem rannsóknarlögreglumann, hvað ég er að fást við í vinnunni,
Og áfram heldur hann: Eftirlaunaþegar landsins eru komnir að fótum fram, skólarnir eru í rúst, heilbrigðiskerfið er helvíti, lögreglan hefur beðið skipbrot og svo framvegis. Við vitum öll af hverju en enginn þorir eða vill tala um það, og hann rekur svo verkefni vikunnar hjá sér:
Hér kemur það: Í þessari viku hef ég fengist við nauðgun, nauðgun, rán, líkamsárás, líkamsárás og nauðgun, fjárkúgun, þvingun, árás, ofbeldi gegn lögreglunni, hótanir gegn lögreglunni, fíkniefnabrot, fíkniefnabrot, morðtilraun, nauðgun, fjárkúgun og illa meðferð.
Og svo telur hann upp nöfn þeirra grunuðu:
Ali Mohammed, Mahmod, Mohammed, Mohammed Ali, aftur, aftur, aftur Christopher . . . . það er satt. Loksins sænskt nafn í útjaðri fíkniefnabrots, Mohammed Mahmod Ali, aftur og aftur. Ríkin sem tengjast afbrotum þessarar viku: Írak, Írak, Tyrkland, Sýrland, Afganistan, Sómalía, Sómalía, Sýrland aftur, Sómalía, óþekkt, óþekkt ríki, Svíþjóð. Við vitum ekki með helming hinna grunuðu því þeir eru ekki með nein gild skilríki. Sem þýðir venjulega í sjálfu sér að þeir eru að ljúga um þjóðerni sitt og hverjir þeir eru. Við erum bara að tala um Örebro hér. Þessi afbrot fylla dagskrá lögreglunnar alveg að fullu. Svona er þetta hérna og hefur verið undanfarin 10-15 ár.
Hann nefnir, að
eftirlaunaþegar landsins eru komnir að fótum fram, skólarnir eru í rúst, heilbrigðiskerfið er helvíti, lögreglan hefur beðið skipbrot og svo framvegis. Við vitum öll af hverju en enginn þorir eða vill tala um það.
Þessi Facebókar-færsla hans vekur mikla athygli. Um 70.000 manns hafa skráð sig í hóp til stuðnings Peter Springare "sem virðist kannski á táknrænan hátt hafa verið kornið sem fyllti mælinn" (Kristján Kristjánsson í Pressugreininni). En hér skiptir í tvö horn: "sænskir fjölmiðlar þegja að mestu þunnu hljóði um málið, það er að segja hinir rótgrónu sænsku fjölmiðlar," en samfélagsmiðlarnir eru fullir af viðbrögðum við skrifum Peters.
Því hefur verið velt upp hvort Peter geti leyft sér að skrifa svona þar sem hann er lögreglumaður. [...] Í framhaldi af skrifum hans kærði Bo Andersson, lögreglustjóri í Örebro, hann fyrir skrifin. Í samtali við Expressen sagði Bo að málið verði rannsakað og komist til botns í hvort opinber starfsmaður megi tjá sig á þennan hátt. (Sama frétt enn.)
Þöggunarviðleitnin augljóslega! Það er spurning hvort okkar eigin blöð eigi eftir að segja frá málinu eða þagga það niður, í takt við stefnu ljósfælinna sænskra yfirvalda.
Og hér er rúsínan í pylsuendanum:
Í gær voru lögreglumenn á lögreglustöðinni í Örebro við það að drukkna í blómum sem almennir borgarar komu með til að sýna stuðning sinn við Peter.
Blómin fóru illa í yfirstjórn lögreglunnar sem bannaði allar myndbirtingar af blómahafinu og bar því við að um öryggismál væri að ræða. Ekstra Bladet segir að síðdegis í gær hafi verið búið að afhenda rúmlega 60 blómvendi á lögreglustöðinni og þeir hafi enn verið að streyma inn ...
Svo var að berast fregn um, að ríki Evrópusambandsins hafa nú "samþykkt að framlengja tímabundið landamæraeftirlit innan Schengen-svæðisins um þrjá mánuði en upphaflega var gripið til eftirlitsins í nóvember 2015 til þess að bregðast við miklum straumi flóttamanna og hælisleitenda til sambandsins." (Mbl.is)
Þetta þýðir að áfram verður eftirlit á landamærum Austurríkis að Ungverjalandi, Slóveníu og Þýskalandi sem og nokkrum stöðum á milli Norðurlandanna.
"Heimilt er samkvæmt Schengen-sáttmálanum, sem Ísland á meðal annars aðild að, að taka upp landamæraeftirlit innan svæðisins við sérstakar aðstæður" ... en ekki endalaust, eða til að treysta á, því að einungis er "hægt að framlengja eftirlitið að hámarki í tvö ár. Hægt verður fyrir vikið að framlengja landamæraeftirlitið að hámarki fram í nóvember á þessu ári." (Mbl.is, leturbr. hér).
Og hvað tekur svo við?!
Jón Valur Jensson.
![]() |
Áfram eftirlit innan Schengen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Innflytjendamál | Breytt s.d. kl. 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 2.2.2017
Tveir með tengsl við hryðjuverkasamtök óskuðu hér eftir alþjóðlegri vernd. Ísland gegnumstreymisland. Hryðjuverkahætta á Íslandi enn "metin í meðallagi"
skv. greiningardeild ríkislögreglustjóra, þ.e.a.s.: almennt er talið að ekki sé hægt að útiloka hættu á hryðjuverkum vegna ástands innanlands eða í heimsmálum.
Á árunum 2015 og 2016 voru rúmlega 20 hryðjuverk framin í Evrópu en að á sama tíma er ljóst að lögreglu hafi tekist að koma í veg fyrir tugi fyrirhugaðra árása, segir í skýrslunni.
Greiningardeildin hefur upplýsingar um að á sama tíma hafi komið hingað til lands einstaklingar með tengsl við hryðjuverkasamtök og óskað eftir alþjóðlegri vernd.
Í samtali við RÚV staðfestir Ásgeir Karlsson hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra að um tvo einstaklinga sé að ræða sem hafi komið til landsins á árunum 2015 og 2016. Ásgeir sagði að mennirnir væru farnir úr landi en vildi ekki veita upplýsingar um hvenær eða hvernig það hefði verið. (Mbl.is)
Á Norðurlöndum er sagt í skýrslunni að hryðjuverkaógnin sé einkum talin stafa af herskáum íslamistum og að yfirvöld þar hafi vaxandi áhyggjur af ríkisborgurum sem snúa heim eftir að hafa tekið þátt í bardögum og ógnarverkum í Mið-Austurlöndum í nafni hryðjuverkasamtaka. Mest er hættan metin í Danmörku, á 4. þrepi á fimm stiga kvarða; þar telst hryðjuverkaógnin áfram vera alvarleg, en í Svíþjóð er hún á þriðja þrepi (sjá nánar viðtengda Mbl.is-frétt um önnur Norðurlönd, en ástandið versnar fremur en hitt).
Hér eru jákvæðir hlutir, er snúa að okkur:
Greiningardeild telur að ógnarmyndin sé nokkuð frábrugðin á Íslandi þar sem að ekki sé vitað til þess að Íslendingar hafi gengið til liðs við hryðjuverkasamtök. Þá er samsetning hópsins sem sækir um vernd á Íslandi önnur en á hinum Norðurlöndunum.
Þar er flóttafólk frá Mið-Austurlöndum stærsti hópurinn. Á Íslandi eru flestir þeirra sem leita alþjóðlegrar verndar frá löndum þar sem friður ríkir. Í skýrslunni segir þó að hælisleitendum frá átaka- og spennusvæðum hafi fjölgað verulega á Íslandi árið 2016 og að líklegt sé að sú þróun haldi áfram. (Mbl.is, leturbr. jvj; meðal þessara landa eru Írak og Afganistan, aths. jvj).
Gleymum ekki þessu og sérstaklega því sem fylgir þar síðast (feitletr. JVJ):
Á Íslandi og í öðrum vestrænum ríkjum stafar einnig ógn af getu hryðjuverkasamtaka til að koma á framfæri áróðursboðskap á internetinu og samfélagsmiðlum í því skyni að hvetja til hryðjuverka.
Þá er sá möguleiki fyrir hendi að á Íslandi fari fram skipulagning hryðjuverka sem ráðgert er að fremja í öðru ríki, segir í skýrslunni, en greiningardeild hefur einnig upplýsingar um að Ísland hafi verið notað sem gegnumstreymisland manna frá Norður-Ameríku á leið til og frá þátttöku í bardögum í Mið-Austurlöndum í nafni Ríkis íslam."
- Í fyrsta lagi hafa á síðustu tveimur árum verið framin stórfelld hryðjuverk í Evrópu sem kostað hafa hundruð manna lífið auk þess sem fjöldi óbreyttra borgara hefur særst og örkumlast.
- Í öðru lagi hefur staðan á átakasvæðum í Mið-Austurlöndum breyst. [ ] Þetta hefur í för með sér að dregið hefur stórlega úr þeim fjölda manna sem ferðast til Mið-Austurlanda í því skyni að berjast í nafni ISIS. [ ] Tiltækar heimildir benda til að umsnúningur hafi orðið á streymi erlendra vígamanna til Mið-Austurlanda og nú leggi einhverjir þeirra kapp á að komast frá átakasvæðunum og aftur til fyrri heimkynna í Evrópu [ ] með tilheyrandi öryggisógn gagnvart ríkjum Evrópu. (Leturbr.jvj)
- Loks hafa átökin í Sýrlandi/Írak kallað fram fordæmalausan flóttamannastraum til Evrópu. Vestrænar löggæslustofnanir telja almennt að áhætta kunni að vera fólgin í þeim fólksflutningum. Bent er á þann möguleika að íslömsk hryðjuverkasamtök nýti sér veikleika á landamærum [ ]. (Leturbr.jvj)
JVJ tíndi saman úr fréttinni.
![]() |
Tveir með tengsl við hryðjuverkasamtök |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt 8.2.2017 kl. 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 31.1.2017
Hræsnin er algjör
Birgir Loftsson deildi myndbandi frá NumbersUSA.
Hér er Bill Clinton að bölsótast út í ólöglega innflytjendur. Ekki er þetta gervifrétt (fake news). Obama lokaði sjálfur á hættulega innflytjendur árið 2011 í hálft ár.
Frakkar, með Hollande Frakklandsforseta í broddi fylkingar, hóta sjálfir Evrópusambandinu, að ef það gerir ekki svo vel að passa ytri landamæri bandalagsins betur, þá muni hann/þeir senda herinn til að verja landamæri landsins.
Merkel varð sjálf að loka landamærahliði Þýskalands enda var innflutningurinn á hælisleitendum orðinn gjörsamlega stjórnlaus og ógnaði innra öryggi ríkisins...
Evrópusambandið segist í dag taka á móti flóttafólki opnum örmum en í reykfylltum herbergjum semja þeir við Tyrki með mútum (milljarða framlögum) um að þeir loki landamærunum og það er öll mannúðin hjá þeim.
Guðni forseti kyssti sýrlensk börn í dag en sagði um leið að Íslendingar gætu ekki borið ábyrgð á né tekið við öllum flóttamönnum í heiminum (gáfuleg ályktun).
Mexíkóar, sem grenja yfir að geta ekki yfirfyllt Bandaríkin af eiturlyfum og glæpagengjum, hafa sjálfir skellt bakdyrum sínum í lás við landamæri Guatemala með girðingum sem Trump gæti verið stoltur af og beita Suður-Ameríkubúa, sem reyna að fara þar í gegnum, grófum mannréttindabrotum. Það er greinilegt að það er ekki sama hver gerir hlutina.
Stjórnmálaelítan í Evrópu er að fara á límingum vegna þess að þarna sér hún í fyrsta skipti stjórnmálamann sem framkvæmir kosningaloforð sem hún gerir ekki né starfar í þágu kjósenda. Hún segir að hann sé óútreiknanlegur en það er hann ekki. Hann stendur við hvert einasta kosningaloforð sem hann hefur sagst ætla að efna.
Þetta er því einfalt, Mexíkó borgar fyrir múrinn með sköttum, BNA gerir tvíhliða samninga við ríki heims í stað fjölþjóðasamninga og er hagstæðara fyrir alla aðila enda Dow Jones-vísitalan á rífandi uppleið og atvinnulífið býst við efnahagsuppsveiflu. BNA eiga marga bandamenn, eins og Ástrala og fleiri sem fjölmiðlar passa sig á að minnast ekki á; stuðningsyfirlýsingar margra þjóða við stefnu Trumps. Kastið steininum, þér sem eruð syndlaus... allir að passa upp á eigin hagsmuni.

![]() |
Hlýðið eða látið ykkur hverfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bandaríki Ameríku | Breytt s.d. kl. 03:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 30.1.2017
Mál var að linnti aðförinni að Pétri Gunnlaugssyni
Fagna ber úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur að vísa frá dómi málshöfðun gegn Pétri Gunnlaugssyni, hdl. og útvarpsmanni á Útvarpi Sögu, fyrir [meinta] hatursorðræðu og útbreiðslu haturs. Óska má Pétri til hamingju með niðurstöðuna, einnig Jóni Steinari Gunnlaugssyni hrl., verjanda hans.
Fráleitur var allur þessi málatilbúnaður af hálfu ákæruvaldsins og þeirra sem að baki þessu stóðu, en það voru annars vegar "lögreglufulltrúi hatursglæpa", Eyrún Eyþórsdóttir, fv. varaþingmaður Vinstri grænna, og stjórn Samtakanna 78 og lögfræðingur þeirra, hin lítt reynda Björg Valgeirsdóttir.
Vel mælt og víslega hugsuð orð á Ragnhildur Kolka um þetta mál í dag á skorinorðri vefsíðu Páls Vilhjálmssonar:
Nákvæmlega. Lögreglan hefur verið fjársvelt, eins og líka Landhelgisgæzlan (sbr. einnig hér), í mörg undanfarin ár, svo að til skammar og stórskaða hefur verið. Mál er að linni, að eytt sé stórfé úr ríkissjóði í pólitísk gæluverkefni, sem virðast ekki hafa annan tilgang en að hefta eðlilegt tjáningarfrelsi.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Máli Péturs á Útvarpi Sögu vísað frá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 16:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 28.1.2017
Sjálfstæðisflokkur vill deila og drottna
Það hyggst hann gera í Reykjavík með því að hindra að aðrir en Fjórflokkurinn og Píratar komi mönnum að í borgarstjórn; við það gengur honum betur með því að þvert gegn lögum verði borgarfulltrúum ekki fjölgað úr 15 við næstu kosningar.
Sjálfstæðisflokkurinn, öllu heldur ráðandi öfl þar á bæ, hugsa jafnan fyrst um flokkshag fremur en um lýðræðislegan valkost manna. Þetta átti sér ekki aðeins stað í aflandsskýrslumálinu í sept.-okt. sl., heldur einnig í þessu máli. Eftir að bæði borgarfulltrúi og þingmaður Sjálfstæðisflokks hafa kvabbað yfir þessari eðlilegu, með lögum ákveðnu fjölgun borgarfulltrúa, stígur nú fram Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sem ætlar að "leggja fram frumvarp á Alþingi sem felur í sér að skylda Reykjavíkurborgar til að fjölga borgarfulltrúum eftir næstu sveitarstjórnarkosningar verði afnumin." En af hverju á að undanþiggja eitt sveitarfélag öðrum fremur lagaskyldu, hr. ráðherra? Valhallar vegna, svo að hún fái meira tækifæri til að deila og drottna? En þetta er eini flokkurinn sem á færi á því að ná meirihluta borgarfulltrúa í krafti minnihluta atkvæða, með því kerfi sem viðgengizt hefur.
En með fjölgun fulltrúanna í 23 býðst smærri flokkum, jafnvel nýjum og fjárvana, tækifæri til að ná kjöri síns fyrsta borgarfulltrúa í krafti 4 til 4,3% atkvæða. Og það er sannarlega kominn tími til að fleiri raddir og sjónarmið heyrist í borgarstjórn heldur en hingað til. Vinstri menn hafa stjórnað þar afleitlega, fara illa með fé borgarbúa, gatnakerfið, leikskólana, grunnskólana, Reykjavíkurflugvöll og mörg önnur mál, en héldu einmitt kosningafylgi sínu í krafti þess hve lítið var traustið á Sjálfstæðisflokknum eftir Hrunið og er enn.
Og þetta er ekki spurning um að auka útgjöld borgarinnar. Eitt fyrsta verk nýrrar borgarstjórnar þarf að verða að lækka verulega laun borgarfulltrúa.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Afnema sjálfvirka fjölgun fulltrúa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Borgarmál | Breytt s.d. kl. 15:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 26.1.2017
Ríkisstjórnin óvinsæl
Hún mælist nú með 35% fylgi. Sjálfstæðisflokkur hefur enn misst fylgi, er nú 1,5% lægri en í MMR-könnun 10. jan. Aðrir þingflokkar auka svolítið fylgi sitt, nema Viðreisn sem mælist nú með 6,8%.
35% fylgið er mun minni stuðningur en aðrar ríkisstjórnir hafa mælst með við upphaf stjórnarsetu.
Þetta er jafnframt í eina skiptið sem ný ríkisstjórn hefur ekki mælst með stuðning meirihluta kjósenda, samkvæmt MMR.
Við upphaf stjórnarsetu síðustu tveggja ríkisstjórna mældist stuðningur við þær 56% (Samfylkingin og Vinstri grænir) og 60% (Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn).
Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur flokka í könnuninni með 24,6% fylgi. (Mbl.is)
Fylgistap flokks Bjarna Ben. kemur ekki á óvart eftir lélega frammistöðu hans gagnvart kjósendum í aflandseyjamálinu. Hann væri reyndar varla við stjórnvölinn nú, hefðu kjósendur verið upplýstir um feluleikinn strax í október, svo naumlega náði hann þingfylgi sínu.
46,7% kusu núverandi stjórnarflokka, og enn hrapa þeir í trausti.
JVJ.
![]() |
Lítill stuðningur við ríkisstjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skoðanakannanir | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 26.1.2017
Fráleit andstaða Pírata við Brynjar Níelsson sem formann stjórnsýslu- og eftirlitsnefndar
Í Mbl.is-frétt lætur Birgitta Jónsdóttir sem það séu "stórfurðuleg vinnubrögð Sjálfstæðisflokks" að hafa fært formennsku í nefndinni í hendur stjórnarliða. En óstjórntækur er flokkur Pírata og viðbúið að neyðarástand gæti skapazt í m.a. stjórnarskrármálum ef Birgitta fengi leiðandi hlutverk í nefndinni, með áherzlu þessa þingmanns á tillögur hins ólögmæta stjórnlagaráðs, sem skipað var þvert gegn lögum um stjórnlagaþing, eins og undirritaður hefur fjallað um víða, m.a. á Fullveldisvaktinni.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Stórfurðuleg vinnubrögð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 16.1.2017
Það virðist almennt álit, að þöggun ríki um afbrot hælisleitenda
Í viðtengdri frétt sést að Herkastalinn er nú lagður undir 90 hælisleitendur, verða þar "næstu misserin"!
En spurt var á vef Útvarps Sögu 13.-16. jan.: "Telur þú þöggun ríkja um afbrot hælisleitenda?" JÁ sögðu 91,92%, NEI sögðu aðeins 6,34%, en hlutlausir voru 1,74%. Þetta er svo afgerandi munur, að ljóst er, að viðleitni hins volduga RÚV til að þagga niður áreitnimál albönsku karlmannanna við krakka undir lögaldri í Reykjanesbæ hefur gersamlega mistekizt.
Íslenska þjóðfylkingin vill, að mál hælisleitenda verði leyst með brottvísun þeirra innan 48 klukkustunda. Okkur ber ekki skylda til að taka við sjálfvöldu fólki í leit hér að efnahagslegum fríðindum. En þveröfugt miðað við álit almennings hafast yfirvöld hér að, bæði ríkis og borgar!
Tekið skal fram, að með upphafssetningu þessa pistils er ekki á neinn hátt verið að tengja íbúana í fyrrverandi aðsetri Hjálpræðishersins, Herkastalanum, við siðsemisbrot þau sem framin hafa verið í Reykjanesbæ. En fréttnæmt er það sannarlega, að enn eitt gistihúsnæðið hefur verið lagt undir hælisleitendur í stað þess að grisja sem hraðast í fjölda þeirra hér á landi. Ekki er vanþörf á því fé, sem þar sparast, í heilbrigðis- og félagslega kerfinu fyrir landsmenn sjálfa.
Sjá um þetta fleiri greinar um innflytjendamál hér á vefsetrinu.
Jón Valur Jensson.
![]() |
90 manns í Herkastalanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Innflytjendamál | Breytt s.d. kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Það á að leggja niður þessa stöðu haturssnuðrara innan lögreglunnar. Nóg er af málum sem nýtt gætu meiri mannafla.
Enda er staðan pólitísk og ætlað að fylgjast með afar umdeildu pólitísku álitaefni. Orðið á að vera frjálst og aðeins á að hefta það ef um hvatningu til ofbeldis er að ræða."