Laugardagur, 4.3.2017
Eru 80% Íslendinga þá rasistar?
Athygli og góðar undirtektir fær hvöss ádrepa á DV.is í umræðu um ÍÞ:
María Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðingur í Keflavík, ritar:
Þið viljið náttúrlega að Ísland verði eins og Svíþjóð og fleiri lönd í Evrópu. OK, þá skuluð þið bara fá þann pakka. Það gæti alveg orðið einn úr ykkar fjölskyldu sem lendir í fyrsta ódæðisverkinu. Við skulum bara ræða saman þá, það lækkar í ykkur rostinn og kjafturinn þegar ballið byrjar.
Eini flokkurinn sem þorði að tala gegn hryðjuverkavá og tala af viti um innflytjendamál var ÍÞ. Það gerði Sigmundur Davìð líka, Davíð Oddsson, Ingibjörg Sólrún og Björn Bjarnason. Af hverju kallið þið þau ekki rasista??. Enginn vill þá þróun hér sem er orðin í Evrópu en fólk er hrætt við svona fólk eins og ykkur o.fl. sem rífið kjaft og dæmið það sem þið vitið ekkert um. Fólk sem þorir ekki að tala af ótta við rasistastimpilinn en er ósátt.
Við tölum saman þegar ballið byrjar hér en það er reyndar byrjað í rólegheitum, en kæru landar, það á ekki að segja ykkur sannleikann. Það er búið að taka upp Svíþjóðarleiðina þannig að ef innflytjandi fremur glæp er reynt að þagga hann niður. Þetta kallar maður að elska land sitt og þjóð... er þaggi?? Svona mikla umhyggju bera núverandi stjòrnvöld fyrir ykkur, kæru saklausu og blekktu landar. Enginn flokkur er fullkominn, hvorki ÍÞ né fjórflokkurinn, en eitt er víst að þjóðernisflokk vantar á Íslandi, hvaða nafni sem hann nefnist. Þetta eru ENGIR rasistaflokkar heldur flokkar sem vilja vernda YKKUR öll... blekkt af fjölþjóðavæðingunni sem er búin að drepa Evrópu. Af hverju skyldu annars þjóðernisflokkar vera sterkustu flokkar álfunnar...ha ?? Því að fólk er búið að fá nóg af hryðjuverkum og ótta og ófriði. Það vill löndin sín til baka. Spyrjum að leikslokum, vinir!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.3.2017 kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 2.3.2017
Smám saman vinnst sigur á al-Qaída og ISIS í Sýrlandi, en ófagnaður yrði að því að fá meðlimina sem flóttamenn inn í Evrópu!
Tengdasonur Osama bin Laden, Abu Khayr al-Masri, féll í drónaárás bandamanna í NV-Sýrlandi í vikunni. Samtökin hafa staðfest þetta sjálf og hyggja eflaust á hefndir, en saumað er að þeim og ISIS-mönnum í landinu og allsherjaruppgjör kannski skammt undan. Þá geta Sýrlendingar loks fagnað sumri á ný og haldið í heimahagana, ef þessi samtök bæði verða upprætt.
Hættan er ekki sízt sú, að þrautþjálfaðir baráttumenn þessara samtaka sleppi inn í Evrópu sem "flóttamenn" og haldi áfram sínum ódæðisverkum. Einna verst hafa þeir leikið kristna menn og jasída, en "góða fólkið" á Íslandi hefur EKKI viljað taka við sér, þeim til bjargar. Sjáum til, hvort meðferðin á marg-nauðgaðri jasídastúlkunni Ekhlas Kidir, sem haldið var í kynlífsþrælkun í 152 daga, hrærir við hjarta þeirra, en hún kom fram í Sjónvarpi fyrir nokkrum dögum. Þarna sjá menn skelfilegt kúgunar- og fjöldamorðsvald þessara úrþvætta í "Ríki islams". Ofsatrú þeirra og mannfyrirlitning er þar versti fylginauturinn.
Mjög er skiljanlegt, að Trump hafi vilja stöðva fólksflutninga úr sjö löndum til Bandaríkjanna í þrjá mánuði. Minna en tveir væru eftir nú, ef hann hefði ekki neyðzt til að draga þá tilskipun sína til baka, en setja mun hann aðra, með breyttum ákvæðum, til að sigla fram hjá lagaþjarki í dómstólum, sem tekið gæti ár fremur en mánuði.
Andvaralitlir og værukærir eru ýmsir stjórnmálamenn í Evrópu, þar á meðal á Norðurlöndunum. En menn skyldu ekki gera lítiðúr því, að ríkisstjórn Svíþjóðar tekur í dag ákvörðun um að innleiða herskyldu á nýjan leik. Hún var aflögð 2010, en full ástæða sögð til endurupptöku hennar nú. Jafnvel þótt sú ástæða sé gefin upp að þetta sé "gert af öryggisástæðum í ljósi þróunar alþjóðamála og vegna árásarhneigðar og ógnar frá Rússlandi," að yfirtaka Rússa á Krímskaga og rússnesk árásarhneigð í Úkraínu" komi þarna við sögu, sem og, að "heræfingar færist í aukana í nágrenni Svíþjóðar og njósnir færist í vöxt," þá er ekki laust við, að þarna gæti líka ótta við óróleika úr heimi múslima, því að varnarmálaráðherrann Peter Hultqvist í flokki sósíaldemókrata bendir einnig á að óróleiki ríki í Mið-Austurlöndum og ð gengið hafi verið of langt í að draga úr stríðs- og varnarmætti Svíþjóðar. Og niðurstaða ráðherrans er einföld: "Ef við ætlum að hafa fullskipaðan herafla þjálfaðan til stríðs þá verðum við að bæta herskyldu við kerfið."
Jón Valur Jensson.
![]() |
Drápu tengdason Osama bin Laden |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.3.2017 kl. 05:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 1.3.2017
Að leggja niður Útlendingastofnun er óráð og trúlega tillaga eindreginna fjölmenningarsinna
Viðtal við Kristínu Völundard. forstjóra bendir til þess fyrstnefnda, þótt múlbundin sé að nokkru. Engin brýn þörf er á byltingu hér. Hjal um að "jafna þurfi aðstöðu flóttamanna og hælisleitenda" er út í bláinn, einhver mesta ósvinna sem heyrzt hefur.
Hælisleitendur hingað til lands voru 1132 árið 2016, en 354 árið á undan. Frá Makedóníu komu 467 (sautjánföldun frá 2015) og Albaníu 231 (rúmlega tvöföldun frá 2015).
Til samanburðar voru kvótaflóttamenn trúlega innan við 100 árið 2016. Að meðaltali er mikill kostnaður á bak við hvern þeirra, en það er okkur óskylt mál að taka við neinum hælisleitendum frá ofangreindum löndum, þar sem friður ríkir. Fráleitt er að lengja dvöl þeirra eða veita þeim hlutdeild í kjörum, aðbúnaði og réttindum kvótaflóttamanna. Frasinn "jafna þarf aðstöðu flóttamanna og hælisleitenda" er dæmigerð froða þeirra manna, sem vilja jafna hér allt út og gefa útlendingum jafnan rétt á við þann, sem við Íslendingar njótum samkvæmt stjórnarskránni, sbr. einkum 76. gr. hennar.
Þá virðast fréttamenn lítt skynugir á það að taka með hæfilegum fyrirvara og með gagnrýni þessari frétt af tillögum frá Alþjóðastofnun Háskóla Íslands. Er þetta ekki stofnun undir forystu Samfylkingar-varaþingmannsins gamla, Baldurs Þórhallssonar, Jean Monnet-prófessors í Evrópusambandsfræðum (verðlaunaðs af ESB) og eindregins ESB-innlimunarsinna, þótt sá hinn sami sé iðulega tilkallaður sem "óháður álitsgjafi"?
Af hverju er ekki spurt út í, hverjir unnu þetta álit, sem skyndilega er skellt fram? Og rök þess eru greinilega miklu hæpnari en ríkisfjölmiðillinn gefur í skyn með aðkomu sinni að málinu. Hvers vegna er ekki rætt við gagnfróða menn eins og Björn Bjarnason um málið? Hvers vegna er forstjóri Útlendingastofnunar nánast settur upp að vegg og látin(n) svara fyrir meinta vanrækslu eða handvömm stofnunarinnar? Hvers vegna eru ráðherrar menntamála ekki dregnir til ábyrgðar vegna vanrækslu sinnar við íslenzkukennslu aðkominna útlendinga (flestra af EES-svæðinu)?
Þannig má lengi spyrja. Málið er í raun enn í skötulíki, fjarri því að vera almennilega rætt. Flas er ei til fagnaðar.
Jón Valur Jensson.
Innflytjendamál | Breytt s.d. kl. 03:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 23.2.2017
Formaður og varaform. Svíþjóðardemókrata eru með grein í Wall Street Journal, benda á áhrif af móttöku 275.000 hælisleitenda; Trump ýkti sízt um málin
Trump Is Right: Swedens Embrace of Refugees Isnt Working nefnist hún, eftir Jimmie Åkesson og Matthias Karlsson, öfluga leiðtoga flokksins. Það er ekki aukvisum hent að fá grein eftir sig birta í þessu heimsblaði.
Margir þessara flóttamanna eru án vegabréfa, og afleiðingin er aukin glæpatíðni, segja þeir.
"Mr Trump did not exaggerate Sweden´s current problems, If anything, he understated them. Swden took in about 275,000 asylum-seekers from 2014-26 -- more per capita than any other European country. Eighty per cent of ... (lesið framhaldið HÉR).
Eins og SVT Nyheter segir frá:
De skriver att president Trump inte alls överdrev bilden av Sverige, att snarare var det en underdrift. De skriver även att många kvinnor inte känner sig trygga i sina egna stadsdelar, och att sexbrott har ökat. Dessutom att invandrarmän är mer benägna att våldta än svenska män.
Brottslighet och upplopp ökar
Enligt Åkesson och Karlsson har brottslighet och upplopp ökat, och de skriver att pistolvåld ökat trots Sveriges stränga vapenlagar. Även detta kopplas till migration och flyktingkrisen.
De skriver vidare att den svenska socialistiska regeringen tar emot återvändande IS-soldater med öppna armar.
Greinilega rætt um háalvarlega hluti hér!
Vårt parti, Sverigedemokraterna, vill sätta svenska medborgares säkerhet och välfärd först, skriver SD-topparna en blinkning mot Donald Trumps America first-retorik, segja þeir ennfremur í WSJ-greininni.
Það sama vill Íslenska þjóðfylkingin gera, sbr. nýlega grein Helga Helgasonar formanns hér: Íslendingar annars flokks borgarar í eigin landi?
Í sama sænska miðli kemur fram, að ýmsir Gyðingar flytji nú burt frá Malmö, m.a. vegna antisemitisme, þ.e. Gyðingahaturs.
Í Málmhaugum (svo að notað sé gamla, norræna nafnið) er mikill fjöldi múslima, sagðir á bilinu 50-100.000, af um það bil hálfri milljón múslima í landinu öllu. Ekki tekur mörg ár fyrir þá að fá ríkisborgararétt, og ættu Íslendingar að hafa meðal annars þetta í huga, þegar þeir líta til uppsagnar Schengen-samningsins, því að ef á bjátar í Skandinavíu og atvinnuleysi eykst, er hætt við straumi atvinnulausra þaðan inn á okkar þróttmeiri atvinnumarkað.
Jón Valur Jensson.
Innflytjendamál | Breytt s.d. kl. 15:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 21.2.2017
Uppskrift sænskra pólitíkusa veldur því hve bumbult þeim verður
Það þýðir lítt fyrir Löfven, forsætisráðherra Svía, og Bildt fyrirrennara hans að láta sem þeir viti ekki um slæm áhrif innflytjendastefnu þeirra. Sama dag og þeir börðu sér á brjóst og gerðu lítið úr Trump fyrir "fáfræði" hans, tóku óeirðaseggir að grýta lögreglu (í 100. sinn a.m.k.), kveikja í bílum og sanna nákvæmlega það, sem Trump var að tala um, og það í sjálfri höfuðborginni Stokkhólmi!
Félagslega séð er augljóst að Svíar hafa ekkert kunnað á neina aðlögun, enda flestir innflytjendanna (yfir tvö hundruð þúsund) enn atvinnulausir. Þetta er sama auðvelda uppskriftin og Frakkar höfðu áður upplifað að megnri ófullnægju ungs fólks og annarra, gremju sem býzt út í andfélagslegu hátterni, og ekki er til bóta að menn í leit að samstöðu hverfi inn á við í arfleifð islams þar sem karlremba og fjarstýring kvenna eru meðal fylgifiska trúarinnar og jafnvel skelfilega hluti hefur leitt af harðlínustefnu islamista. Meira að segja frá skandinavísku löndunum öllum hefur Ríki islams í Sýrlandi og Írak fengið efni í bæði stríðsglæpamenn og fallbyssufóður. Nú eru þeir víða að hrekjast undan sókn Sýrlandshers og Írakshers, og það lítur ekki friðvænlega út fyrir evrópsku heimabyggðirnar að fá þá aftur. Og menn þjálfaðir í ofstækisfullri, vopnaðri baráttu munu í hvaða landi sem er finna sér átyllu til ógnarverka.
Eins og öllum upplýstum á að vera kunnugt, var Donald Trump alls ekki að tala um nein "hryðjuverk" í Svíþjóð og heldur ekki "árásir". En hann var að vísa í afar slæm áhrif þess, að Svíar hleyptu inn 165.000 flóttamönnum og hælisleitendum á einu ári og horfa nú upp á fjölgun glæpa í kjölfarið. Jafnvel í Noregi og Danmörku hefur fjölgað glæpum gegn konum, einkum ungum, en líka með sárustum hætti gegn stúlkubörnum, sem fá til sín í heimsókn umskurðarkonur sem skemma þær fyrir lífstíð og valda sárum harmi, eins og séra Arndís Ósk Hauksdóttir, sveitarprestur í Noregi og félagi í Íslensku þjóðfylkingunni, upplýsti vel um í viðtali við Edith Alvarsdóttur í Útvarpi Sögu sl. föstudag, 17. þessa mánaðar.
En allt er Trumpsmálið nýjasta til hneisu fyrir marga fjölmiðla, hér á landi einkum hina rammhlutdrægu fréttastofu RÚV og Morgunblaðið (sbr. blogg undirritaðs og einnig Gústafs Skúlasonar, Gunnars Rögnvaldssonar og Halldórs Jónssonar verkfræðings).
Hér á Ásgrímur Hartmannsson fróðleg, ný fréttamyndbönd, norskt og frá CNN, um það upplausnarástand sem aðsigi er í Svíþjóð, og flott lögreglan er ekkert að fela það: Ég er hinsvegar ekkert undrandi heitir samantekt hans á þeim fróðlegu fréttamyndböndum.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Undrandi á ummælum Trumps |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bandaríki Ameríku | Breytt s.d. kl. 07:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 19.2.2017
Íslendingar annars flokks borgarar í eigin landi?
Íslenska þjóðfylkingin mótmælir harðlega nýlegum samning sem velferðarráðherra og Rauði krossinn undirrituðu nýlega vegna hælisleitenda. Svo virðist sem íslenskir stjórnmálamenn gefi enn eina ferðina eigin löndum sem eiga um sárt að binda og líða skort í þessu þjóðfélagi langt nef. Í flestum ef ekki öllum stærstu bæjarfélögum á Íslandi eru biðlistar eftir húsnæði í félagslega kerfinu, eldra fólk á í erfiðleikum með að leysa út lyf og margir eiga ekki rétt á ókeypis læknisþjónustu.
Það er undarlegt hvað stjórnmálamenn allra flokka á Alþingi virðast fúsir til að láta allt til fólks sem aldrei hefur búið hér, hefur ekki kosningarétt hér og borgar ekki skatta hér. En þeir sem byggðu upp þetta samfélag virðast orðnir annars flokks borgarar í þeirra augum og mega margir hverjir lepja dauðann úr skel.
Íslenska þjóðfylkingin mótmælir því að hér á enn frekar að opna landamærin upp á gátt og flokkurinn heitir því að gera ótímabundið hlé á móttöku flóttamanna og hælisleitenda til landsins og herða lög í þessum málaflokki, meðal annars með því að taka upp svo kallaða 48 tíma reglu sem gefist hefur vel í Noregi.
Flokkurinn bendir á að stjórnmálamenn virðast algjörlega hafa misst tökin á ástandinu í ljósi þess að kostnaður á ári við hælisleitendur sem búa á hótelum, á kostnað skattgreiðenda, er um 800 milljónir á ári og er þá annar kostnaður ótalinn. Á sama tíma segja ráðmenn að ekki sé til fé til þess að endurnýja skanna á Landspítalanum fyrir svipaða upphæð og þeir eru þó tilbúnir til að eyða í hælisleitendur á hótelum. Á sama tíma berast okkur fréttir af því að á biðlista í Reykjavík eftir félagslegu húsnæði séu 900 Íslendingar.
Íslenska þjóðfylkingin krefst þess að sameiginlegu sjóðum okkar allra sé varið til þess að útvega Íslendingum sem þess þurfa húsaskjól og aðra mannúðaraðstoð svo sem læknisþjónustu og þess háttar.
Helgi Helgason.
![]() |
Hér munum við ekki trumpast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Innflytjendamál | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 15.2.2017
Ágeng spurning til Þorgerðar Katrínar: Hve mörgum milljörðum tapar ríkið og samfélagið á sjómannaverkfallinu?
Í Rúv kl.17 segir hún m.a.:
Það er líka algjörlega skýrt af minni hálfu að mér finnst algjörlega ófært fyrir hönd stjórnvalda eða ríkisvaldsins að það séu þriðju aðilar úti í bæ sem skuldbinda ríkið, skattgreiðendur þessa lands, upp á mörg hundruð milljónir króna án þess að tala við það. Þess vegna er gott að menn ræði saman núna, þegar menn vonandi eru að fara að ná saman með samningum. Ríkinu verður ekki stillt upp við vegg í þessari deilu.
En ríkið skuldbatt sjómenn, með lögum á þá, til að taka þátt í kostnaði útgerða, án þess að neitt hafi komið á móti -- ekki að útgerðin borgi dýra vinnugalla þeirra eða fæði fjarri heimahöfn.
Svo kokhraust er Þorgerður, þegar hún heldur þó á fund deiluaðila nú síðdegis, að hún telur þetta tímabær og nauðsynleg orð í sama Rúv-viðtali, sem eru þó einfaldlega eins og olía á eldinn hjá sjómönnum:
Þorgerður Katrín segir að afnám sjómannaafsláttar 2009 hafi verið rétt skref í átt að einföldun skattkerfisins.
Það er nefnilega það! Var greinilega ekki frambjóðandi sjómanna haustið 2016!
Svo er RÚVið mjög lélegt í því að láta það ekki koma skýrt í ljós, að á móti tilboði sjómanna í gær hefur EKKERT komið frá útgerðarmönnum, og Heiðrún Lind, þessi annars bráðgáfaða unga kona, getur ekki með neinu móti falið þá staðreynd með léttvægum orðum sínum, sem hún er þó látin komast upp með vegna "óágengni" fréttamanna gagnvart henni. Gaman var samt að heyra þessa frjálshyggjukonu fara hopandi undan vegna sjómannafsláttarins (sem Íslenska þjóðfylkingin berst fyrir, einn flokka), en svo gat hún heldur ekki gert það af neinni styrkri sannfæringu eða með vilja til að fylgja því eftir. En bara það, að hún hafði orð á þessu, æsti upp útgerðarmanna-vinkonuna Þorgerði Katrínu til hennar herskáau ummæla í dag!
Já, Þorgerður, HVE MÖRGUM HUNDRUÐUM EÐA ÞÚSUNDUM MILLJÓNA höfum við tapað nú þegar, í formi gjaldeyris- og skattataps, vegna þessa verkfalls og vegna ótrúlegrar þrjózku Bjarna Ben. og þinnar í málinu?!
Jón Valur Jensson.
![]() |
Ráðherra fundar með deiluaðilum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjávarútvegur | Breytt s.d. kl. 18:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 14.2.2017
Á leið úr bankanum
- Bankinn segir það borgi sig
- að bíða eftir því
- sem virkilega vantar mig:
- ég verð að komast í frí !
- En vexti sína hefur hann
- himinháa´---upp í ský!
- Á vaxtamuni þá vinna kann ...
- En verð ég að lúta því?
Í grein sinni Kæri Lars ritar Agnar Tómas Möller 8. þ.m. í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál (leturbr. hér):
Ákvörðun vaxta hefur líklega sjaldan verið jafn mikilvæg og nú þegar við siglum inn í jafnvægi sem við vitum í raun ekki hvar liggur vegna breyttrar samsetningar hagkerfisins. Þrátt fyrir mikla gengisstyrkingu á seinasta ári og ótrúlega forðasöfnun Seðlabankans, bendir flest til þess að viðskiptaafgangur muni ekki byrja að dragast saman í bráð þar sem þjónustuafgangur vex hraðar en vöruskiptahallinn og mikill vaxtamunur hefur ýtt undir gríðarlegt fjármagnsinnflæði, líkt og sést í tölum Seðlabankans á þriðja ársfjórðungi seinasta árs. Raunvaxtamunur við Evrópu er í dag um 5% og þarf að minnka en ekki aukast, á sama tíma og við afléttum gjaldeyrishöftum að fullu. Annars er hættan sú að nýtt jafnvægi krónunnar og hagkerfisins verði óstöðugt og brotni vegna ofriss krónunnar sökum of hárra vaxta. Blessunarlega virðist hluti peningastefnunefndar smám saman vera að átta sig á þessari þróun og vonandi mun hún ekki láta úrtölumenn hafa áhrif á sig horft fram á veginn.
Vel mælt. En þekktasti úrtölumaðurinn er vitaskuld Már Guðmundsson Seðlabankastjóri, mesti baráttujaxl fyrir háum vöxtum á Íslandi og þótt víða væri leitað, til stórfellds tjóns fyrir íbúðakaupendur og fjölda manns og fyrirtækja. Væri Íslenska þjóðfylkingin í ríkisstjórn, væri eitt forgangsmála ugglaust það að breyta lögum um Seðlabankann, svo að hægt verði að ráða nýjan seðlabankastjóra.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Afkoman í takt við væntingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt 15.2.2017 kl. 02:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 13.2.2017
Evrópuþjóðir eru á einu máli með Íslensku þjóðfylkingunni um að stöðva straum múslima inn í Evrópu
Í nýbirtri könnun virtrar stofnunar, Chatham House, er sú yfirgnæfandi afstaða 10 af helztu Evrópuþjóðum staðfest að STÖÐVA skuli frekari straum múslima til Evrópu.
Að frátöldum 25%, sem taka ekki afstöðu, eru 73% meðmælt ferðabanni á múslima. Í Austurríki vilja 65% slíkt bann á frekari innflutning þeirra, um 18% andvígir, í Þýzkalandi 53% og 19%, í Frakklandi 61% og 16%, í Bretlandi 47% með banninu, en 23% á móti því, en á Ítalíu eru 52% með, 23% á móti.
"[Þessar niðurstöður] benda til þess að andstaða á meðal almennings við frekari innflutning fólks frá ríkjum þar sem múslimar eru í miklum meirihluta sé engan veginn bundin við kjósendur Trumps í Bandaríkjunum heldur fremur útbreidd, segir í yfirlýsingu frá hugveitunni Chatham House.
Vilji íslenzk yfirvöld taka mið af þjóðum Evrópu, geta þau lært þessa lexíu utan að, en haft hugfast að þessi afstaða Evrópuþjóða er ekki andstaða við móttöku kristinna flóttamanna, sem hafa liðið mestar hörmungar og manntjón, í Sýrlandi og víðar.
![]() |
Vilja ferðabann í anda Trumps |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Innflytjendamál | Breytt s.d. kl. 16:22 | Slóð | Facebook
Mánudagur, 13.2.2017
Ályktun um skaðlegar egningar á Alþingi gegn Bandaríkjunum og um varasöm innflytjendamál
Íslenska þjóðfylkingin lýsir sig andvíga stórvarasamri egningu nokkurra alþingismanna gagnvart Bandaríkjunum sem um sjö áratuga skeið hafa stutt við sjálfstæði Íslands og varið það hernaðarlega á viðsjálum tímum án endurgjalds. Af fjandsemi af okkar hálfu gæti hlotist viðskiptaþvingun vegna hvalveiða og krafa um fúlgur úr ríkissjóði til varna NATO.
Bandaríkin stjórna sínum innflytjendamálum sjálf, út frá hagsmunum þjóðaröryggis. Þúsundir hafa farist í hryðjuverkum öfgaislamista þar s.l. 16 ár. Frakkar, Bretar og Spánverjar hafa hverjir um sig misst hundruð mannslífa í hryðjuverkum islamista á sama tíma. Þýska lögreglan telur að þar í landi séu nú um 550 múslimar tengdir samtökum öfgaislamista og að þeir séu líklegir til hryðjuverka.
Nýstaðfest er af greiningardeild ríkislögreglustjóra að jafnvel hér á landi óskuðu tveir einstaklingar með tengsl við hryðjuverkasamtök eftir hæli (2015-16) og að "Ísland hafi verið notað sem "gegnumstreymisland" manna frá N-Ameríku á leið til og frá þátttöku í bardögum í Mið-Austurlöndum í nafni Ríkis islam." Þá hafi norræn yfirvöld "vaxandi áhyggjur af ríkisborgurum sem snúa heim eftir að hafa tekið þátt í bardögum og ógnarverkum í Mið-Austurlöndum í nafni hryðjuverkasamtaka," en hælisleitendum frá átaka- og spennusvæðum hafi einmitt fjölgað "verulega á Íslandi 2016".
Fjandskapur við Bandaríkin vegna skammtíma-lokunar á fólk frá sjö löndum (aðkoman þeim enn bönnuð næstu 76 dagana) ber því vott um litla fyrirhyggju. Jafnvel Obama lagði komubann á Íraka í hálft ár. Væri betur að íslenskir þingmenn tækju strax af skarið um að stöðva hingað straum hælisleitenda, sem að meirihluta munu vera múslimar.
Ofurkröfur örsmás "No Borders"-hóps um að opnað verði fyrir straum hælisleitenda hafa engin ríki tekið upp í reglur sínar.
Flokkarnir á Alþingi hafa sýnt að þeim er illa treystandi á þessu sviði. Íslenska þjóðfylkingin er eini staðfasti flokkurinn sem vill tryggja landið fyrir fram, eftir að hafa skoðað lærdóminn af reynslu nágrannaþjóða. Úr Schengen án tafar!
Þessi ályktun var samþykkt á fundi flokksstjórnar Íslensku þjóðfylkingarinnar 9. þessa mánaðar og hefur verið send til fjölmiðla.
![]() |
Með nýja tilskipun í skoðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Innflytjendamál | Breytt s.d. kl. 16:44 | Slóð | Facebook