Hrollvekjandi niðurstöður norskra dómsmála – Þrjú af hverjum fjórum grófum ofbeldisbrotum eru framin af innflytjendum - DV

 
 
Fréttamenn norsku TV2 sjónvarpsstöðvarinnar fóru nýlega yfir alla dóma, er varða alvarleg ofbeldis­brot/líkams­árásir, sem féllu í Osló frá því í árs­byrjun 2018 fram til mánudags í þessari viku. 140 manns hlutu dóm fyrir slík brot á tímabilinu. 

Niðurstöðurnar eru sláandi en samkvæmt þeim voru 98 hinna dæmdu inn­flytjendur eða um tveir þriðju hinna sakfelldu. [Raunar hvorki 3/4 né 2/3, heldur 70%, jvj.]

Um er að ræða mál þar sem hnífsstungur, högg og misþyrmingar koma við sögu. Í sumum málanna hlutu fórnarlömbin alvarlega áverka, sem munu jafnvel fylgja þeim allt lífið, og önnur voru í lífshættu. Í þriðjungi málanna voru hnífar, glerbrot eða flöskur notaðar. Meirihluti hinna dæmdu eru karlmenn.

Það er því ljóst að í þessum málaflokki er hlutfall innflytjenda mun hærra en það er í samsetningu Oslóarbúa. Samkvæmt tölum frá norsku hagstofunni eru 33 prósent íbúa Osló innflytjendur. Undir skilgreininguna innflytjandi falla þeir sem hafa flutt til Noregs eða eru fæddir í Noregi en eiga foreldra sem fæddust erlendis.

Ragnhild Bjørnebekk, sem vinnur að rannsóknum á ofbeldisbrotum, sagðist í samtali við TV2 ekki vera hissa á þessu háa hlutfalli innflytjenda. Hún sagðist telja að ein af ástæðunum sé að margir innflytjendanna koma úr samfélögum þar sem ofbeldi er algengara en í Noregi. Þetta sé einnig oft viðkvæmt fólk sem hafi upplifað miklar hörmungar."

Og nú er það bara spurning hvort góða fólkið fer að viðurkenna staðreyndir! --JVJ.

 
 
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband