Eru þetta m.a. niðurstöður rannsóknar sem birt er í fræðiritinu Stjórnmál & stjórnsýsla undir heitinu Grýta þetta pakk: Haturstjáning í íslensku samhengi. Var rannsóknin unnin af Eyrúnu Eyþórsdóttur, lektor við hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri, og Kristínu Loftsdóttur, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands.
Þetta eru sem sé þeirra "niðurstöður", en hver eru sönnunargögnin?
Þessi orðræða er notuð til að stilla minnihlutahópum upp sem ógn gegn íslenskri menningu, hvíta kynstofninum, konum og öryggi samfélagsins. Orðræðan beinist að mestu leyti gegn múslimum. Einstaklingar sem halda úti orðræðu sem þessari hafa í sumum tilfellum beinan aðgang að fjölmiðlum í gegnum eignarhald og stjórnun miðlanna þar sem falsfréttum er meðal annars miðlað, segir í "rannsókninni".
Nú þegar hafa helztu stjórnendur Útvarps Sögu, eigandinn Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri og Pétur Gunnlaugsson lögfræðingur, aðal-þáttagerðarmaður þar, séð þetta meint sem gagnrýni á þá útvarpsstöð og þau hafnað þessu með öllu. Aldrei minnist undirritaður þess að hafa heyrt þau upphefja þar "hvíta kynstofninn" á kostnað annarra, hvað þá miðlað falsfréttum. Erlend fréttamiðlun þeirra er m.a. reglulega frá Svíþjóð, þar sem vel þekktur Íslendingur (m.a. af mörgum Morgunblaðsgreinum og góðri þátttöku hans þar og á bloggvefjum í baráttunni gegn Icesave-samningunum og gegn ólögmætu Össurar-umsókninni um innlimun í Evrópusambandið), Gústaf Adolf Skúlason, hefur verið búsettur nærri Stokkhólmi um áratuga skeið og flutt okkur ýtarlegar fréttir af versnandi ástandi þar í landi í kjölfar mikillar innflytjendabylgju þar, yfir milljón manns.
Eyrún haturslögga hefur látið mynda sig skælbrosandi með kunningja sínum Salmann Tamimi, forstöðumanni múslimasafnaðarins sem hyggst (með sádi-arabísku stuðningsfé?) reisa mikla mosku í Sogamýri, milli Miklubrautar og Suðurlandsbrautar, austan þjónustuhúsanna í Mörkinni, og mun hún blasa við þeim sem koma akandi til Reykjavíkur. En þessi Salmann er einmitt þekktur fyrir sín þríendurteknu ofbeldislegu ummæli hér á landi, að hann sé hlynntur því ákvæði Kóransins sem kveður á um handarhögg þjófa!
Í slíkum félagsskap er Eyrún sú, sem þykist vera að leita uppi hatursorðræðu, en orðið lítt ágengt með það í sínum mörgu árangurslausu tilraunum! Ætti hún ekki að líta sér nær?
Og takið eftir þessu:
"Rannsakendur halda því einnig fram að sömu orðræðu sé að finna innan stjórnmálanna hér á landi, en stjórnmálaflokkarnir Íslenska þjóðfylkingin og Frelsisflokkurinn eru meðal annars stofnaðir sérstaklega gegn innflytjendum, múslimum og fólki sem leitar alþjóðlegrar verndar. Jafnvel þótt fylgi þessara flokka hafi ekki náð miklu flugi hingað til hafa þeir góðan aðgang að fjölmiðlinum Útvarpi Sögu til að dreifa hatursáróðri, segir í rannsókn[inni], en einnig eru fulltrúar Flokks fólksins og Miðflokksins bendlaðir við haturstjáningu í umræddri rannsókn." (Morgunblaðið flytur okkur þessa furðufrétt nú stuttu fyrir jól, 18. des. 2019.)
Hér ber haturslöggan í akademíska dulargervinu og stalla hennar Kristín Loftsdóttir þá gróflega lognu ásökun á flokk minn, Íslensku þjóðfylkinguna, að hún hafi verið stofnuð "sérstaklega gegn innflytjendum, múslimum og fólki sem leitar alþjóðlegrar verndar". Hún segir fréttirnar, þessi Eyrún! Ekki var ég, sem á þó sæti í stjórn ÍÞ og sat stofnfund hennar, mér nokkurn tímann meðvitaður um að þetta hafi verið stofnmarkmið flokksins!! En sömu ásökun bera þær á hendur Frelsisflokksins og gefa svo "fulltrú[um] Flokks fólksins og Miðflokksins" hlutdeild í sama meinta glæp með því að segja þá "bendlaða við haturstjáningu" í meintri rannsókn sinni.
Hér er aftur til að svara, að Þjóðfylkingin hefur fordæmt alla kynþáttahyggju (racisma) og útlendingaandúð (xenophobiu) og tekur enga fjandsamlega afstöðu gegn innflytjendum sérstaklega, enda eru t.d. ýmsir stjórnarmenn flokksins með fjölskyldumeðlimi af öðru þjóðerni og kynþáttum (það á t.d. við um fimm meðal barna minna að meðtöldum tveimur tengdadætrum, en þar að auki var fyrrverandi tengdasonur minn frá Afríku).
Dömurnar tvær í Háskólanum á Akureyri segja Þjóðfylkinguna ennfremur stofnaða "sérstaklega gegn ... múslimum og fólki sem leitar alþjóðlegrar verndar." En það er hvergi minnzt á þá í stofnskrá flokksins, þetta er ekki fundið út með faglegri, akademískri rannsókn, heldur er það heimaafurð þessara tveggja kvenna!
Frelsisflokkurinn getur vitaskuld varið sig sjálfur, sem og Flokkur fólksins og Miðflokkurinn, gegn hinum fáheyrðu, opinberlega tilkostuðu ásökunum þessara tveggja harðlínukvenna, sem blanda saman eigin pólitískri afstöðu og stefnu stjórnmálaflokka í landinu. Eins og Pétur Gunnlaugsson undirstrikaði skýrt í viðræðuþætti sínum fyrir og eftir kl. 10 í morgun, hefur Flokkur fólksins einkum barizt gegn fátækt og illu hlutskipti öryrkja og lífeyrisþega og verður ekki með neinum eðlilegum hætti "bendlaður við haturstjáningu."
Sömuleiðis kemur það eins og þruma úr heiðskíru lofti að sjá Miðflokkinn bendlaðan við "haturstjáningu" -- aftur á móti verður hann sjálfur og fulltrúar hans á þingi og í borgarstjórn oft fyrir óvægilegum skæruhernaði af hálfu sumra fjölmiðlamanna, m.a. með háði og affrægingu, t.d. í víðlesnum pistli á leiðarasíðu Fréttablaðsins. En þær stöllurnar amast ekki við því, að reynt sé að skapa þar uppvaxandi andúð meðal lesenda blaðsins, það sé bara gott og gilt, að ætla mætti!
Og "fréttin" í Mbl. endar svona:
Þá sýnir uppgangur haturshópa á borð við Norðurvígi og Vakur að grundvöllur sé fyrir starfsemi hér.
Þarna mun slengt saman tveimur gerólíkum hópum, sá fyrrnefndi hefur verið sagður norræn nazistasamtök, komin með fámennt útibú hér, en sá síðarnefndi er sjálfsprottinn hér heima og hefur staðið fyrir upplýsingastarfi um ástand innflytjendamála í Norður-Evrópu og víðar, ekki sízt með því að fá hingað frægan fyrirlesara, Robert ..., á afar fjölmennan fund í Grand Hotel hér um árið (allt að fimm hundruð manns sóttu fyrirlestur hans og fróðleikskonu sem flutti þar einnig fyrirlestur), og eru meðal leiðandi manna í Vakri valinkunnur hæstaréttarlögmaður og þingmaður og annar kunnur að áfangasigri sínum í veiðileyfamálum fyrir smáútgerðarmenn á Patreksfirði.
Annaðhvort Vakur eða hópurinn Tjáningarfrelsið mun hafa staðið að því að fá hingað norska rithöfundinn Hege Storhaug, sem hefur vinstri sjónarmið og kvennabaráttu að bakgrunni sínum og var blaðamaður á Klassekampen, sem er eitthvað sem Eyrún, meintur haturssérfræðingur, ætti að kannast við. Það var ekki fyrr en pakistönsk kona, ofsótt af eiginmanni sínum, leitaði hjálpar hennar, sem Hege Storhaug fór að kynna sér af alvöru hið erfiða hlutskipti múslimakvenna í Skandinavíu, þar sem ýmsar þeirra yngri höfðu verið "heiðursmyrtar" af feðrum sínum, bræðrum eða frændum, en eiginkonurnar kúgaðar eins og sú, sem hér var getið. Tókst Hege að bjarga henni undan karlinum norður í land, þar til hann komst á snoðir um íverustað hennar og myrti hana með köldu blóði! Eftir það hefur Hege lagt mikið á sig til að upplýsa um öll þessi mál í ræðu og riti, rætt mikið við múslimasamfélagið og farið ítrekað til Pakistans, jafnan í þágu kvenna.
Í þessari frásögn felst enginn rasismi, ekki frekar en í hinum frábærlega upplýsandi bókum Hege, sem hér á landi hafa komið út í þýðingu Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, blaðamanns og rithöfundar, fyrrverandi þingmanns Frjálslynda flokksins. Þetta eru ritin Dýrmætast er frelsið -- innflytjendastefna og afleiðingar hennar (359 bls., Rvík 2008: Bókafélagið Ugla) og Þjóðaplágan íslam (424 bls., Rv. 2015, útg. Tjáningarfrelsið).
En þeir, sem vilja sjá aðfarir islamista, ættu að horfa á BBC-fréttaþáttinn Horfnu stúlkurnar í Nígeríu, sem var að hefjast í endursýningu Sjónvarpsins þetta miðvikudagskvöld kl. 23.50. Fjallar hann um hryðjuverkasamtökin Boko Haram, mannrán þeirra (á a.m.k. 2.000 stúlkum árin 2014-15, ekki sízt kristnum), nauðganir og þvingun þeirra í hjónaband með múslimum og ótrúleg fjöldamorð á kristnum karlmönnum og drengjum. -- Ég hafði horft á fyrri sýningu þessa þáttar hér, en var aftur miður mín af sorg og samlíðan með þessum unglingsstúlkum og öðrum fórnarlömbum (sem sumar stúlknanna voru jafnvel neyddar eða heilaþvegnar til að skera á háls) við að horfa á þetta aftur. En þetta er ein ljótasta birtingarmynd herskárrar islamstrúar.
Jón Valur Jensson.
Athugasemdir
Fjarri fer því, að þeir, sem varað hafi við uppkomu öfgaislams hér á landi rétt eins og í nágrannalöndum, séu einungis meðlimir Íslensku þjóðfylkingarinnar eða Frelsisflokksins eða í félögunum Vakri og Tjáningarfrelsinu. Það sama á nefnilega einnig við um greiningardeild lögreglunnar* og um sjálfan fyrrverandi forseta okkar, herra Ólaf Ragnar Grímsson, sjá hér:
Presidenten i nytt angrepp mot bidrag från Saudiarabien
* Sbr. hér : https://thjodfylking.blog.is/blog/thjodfylking/entry/2189662/ =
Tveir með tengsl við hryðjuverkasamtök óskuðu hér eftir alþjóðlegri vernd. Ísland gegnumstreymisland. Hryðjuverkahætta á Íslandi enn "metin í meðallagi"
-- ennfremur hér:
Skynsamleg varúð gagnvart möguleikanum á hryðjuverki
og hér:
Lögreglan með sínar upplýsinganámur veit betur en óupplýstir flokksleiðtogar Vinstri grænna
= https://thjodfylking.blog.is/blog/thjodfylking/entry/2197962/ (og vitnað í mat greiningardeildarinnar)
Íslenska þjóðfylkingin, 19.12.2019 kl. 02:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.