Sunnudagur, 23.12.2018
Víst tengjast hryðjuverk múslimatrú ...
þótt einhverjir í Rabat í Marokkó lýsi þessu yfir: "hryðjuverk tengjast ekki trú eða þjóðerni."
Samanburður við kristni gerir þetta augljóst. Skólaárásir í Bandaríkjunum eða öfgamannsins Timothys McVeigh (Oklahoma-fjöldamorðingjans) eða nazistans Breiviks komu ekki til af kristnum hvötum eða tilgangi né voru sprottin úr kristnum trúarsamtökum.
Einu hryðjuverk kristinna manna virðast bundin við varnaraðgerðir gegn skæðum hryðjuverkaárásum múslimasamtaka (al-Shabab og Boko Haram), einkum í Súdan og Nígeríu. Helzta undantekning frá þessu er Júgóslavía á 10. áratug liðinnar aldar, þar áður Norður-Írland. En í fyrra tilfellinu var einkum um valdabaráttu ólíkra og þó áður tengdra þjóðerna í upplausnarástandi Júgóslavíu að ræða, með tilheyrandi þjóðernisofstæki og þjóðernishreinsunum (ethnic cleansing), í því síðarnefnda hagsmunaárekstra og ríg milli ráðríkra, olnbogafrekra mótmælenda annars vegar og hins vegar sjálfstæðissinnaðra, verr settra kaþólikka.
Að ódæðisverkum Breiviks frátöldum eru hryðjuverk í Evrópu á þessari öld að langmestu leyti verk múslimskra öfgamanna. Mannskæðust hafa þau verið í Rússlandi, Frakklandi, Bretlandi og á Spáni, ef talað er um okkar álfu, en margfalt algengari hafa þau þó verið í Mið-Austurlöndum og allt austur til Indlands og SA-Asíu, sem og Afríku allvíða (Kenýa, Nígeríu, Súdan, Túnis, Egyptalands, Sómalíu o.fl. landa). Iðulega tengjast þau beinum áhrifum frá heittrúarstarfi í moskum og trúarskólum og snúast mjög oft um ofstæki súnní-múslima og sjíta-múslima hvorra í annarra garð, en í Afganistan, Írak og Sýrlandi koma fleiri við sögu og kristnir menn, Kúrdar og jasídar ein helztu fórnarlömbin, í þúsunda tali. Gleymum svo ekki hryðjuverkasamtökum Palestínu-araba, sem iðkuðu flugrán, fjöldamorð og árásir á óbreytta borgara lengi vel, voru þar nánast brautryðjendur á þessu sviði, unz Ísrael fór að draga úr þessu með sínum varnar- og mótaðgerðum.
Jón Valur Jensson.
Minnast kvennanna sem voru myrtar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Islam, múslimar, Mið-Austurlönd | Aukaflokkar: Innflytjendamál, Stjórnmál og samfélag, Öfgastefnur, fasismi og hryðjuverk | Breytt 11.3.2019 kl. 17:55 | Facebook
Athugasemdir
Elsku Jón Valur.
Svona í tilefni jólanna, þá máttu ekki láta svona.
Þú veist að öfgar lýsa engu nema þeim sem boða þá.
Hver sem réttlætingin er.
Og ef við viljum betri heim, þá finnum við til samstöðu og finnum samnefnara mennsku og mannúðar.
Og siðar.
Jesú er það stór að hann þarf hvorki upphafningu, eða lítillækkun annarra. Hans orð standa, hans trú stendur.
Og hann bað menn að boða, ekki að brjóta.
Þess vegna á hann erindi í dag, og í speki hans er fólgin Von lífsins.
Gleðileg jól.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 23.12.2018 kl. 23:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.