Sunnudagur, 4.6.2017
Nýtt blóðbað í Lundúnum. ISIS fagnar. Trump gefur gild ráð: lokið á innflutning múslima!
Óhugnaðurinn er ekki lítill: fyrst ekið yfir fólk á sendibíl, síðan ruðzt út með langar sveðjur og menn stungnir hver af öðrum og m.a. tvítug stúlka. Þeir voru þrír saman þessir hrottar, þetta er enginn einfari, þetta eru víslega múslimar af svæsnustu gerð, sem offramboð er af nú um stundir. London er öll í uppnámi, almenningur, lögregla og stjórnvöld.
Það er verið að breyta friðsælu Englandi í vígvelli einn af öðrum. Annarleg mannhaturs-hugmyndafræði öfga-islamista býr að baki. Fagrir staðir með aldalangar minningar, eins og Vauxhall, verða skyndilega atburðasvið ógnar og skelfingar.
Hér er sonnetta Johns Keats (1795-1821), tileinkuð konu sem hann sá bregða fyrir í Vauxhall fimm árum fyrr:
XLIII. sonnetta
Til konu sem skáldið sá nokkur andartök í Vauxhall
Í fimm ár útfall sjávar séð ég hef
og sendna fjöru án afláts breyta sér,
frá því þín fegurð óf mig í sinn vef,
mitt auga, er dróstu hanzka af fingrum þér.
Og enn, ef himna lít ég næturljós,
er ljómi þinna augna sefi minn;
mig gleður ei hin unga villirós,
mín andans fró er rjóður vangi þinn;
mig gleður ei hið bjarta lífsins blóm,
en blítt mitt eyra hlustar eftir því
hvað vakti þrá, við vara þinna óm,
þá vaknar löngun mín til þín á ný.
Þú varpar skugga á heimsins yndi allt.
Án þín er lífið hryggðarfullt og kalt!
Jón Valur Jensson þýddi.
Fegurðin ríkir ekki lengur, nú er jafnvel vegið að saklausri, ungri konu með haturssveðju í nafni islams!
Og nú talar helzti meintur friðarspillir allra vinstrisamkvæma heimsins inn í þessa brezku atburði, Donald Trump Bandaríkjaforseti: Eina ráðið er að loka á innflutning allra múslima til Vesturlanda!
Hvað finnst lesendum um það?
JVJ.
Urðu vitni að stunguárás | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bretland | Aukaflokkar: Islam, múslimar, Mið-Austurlönd, Stjórnmál og samfélag, Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 15:20 | Facebook
Athugasemdir
RÚV.is segir svo frá:
Þetta vitum við:
(jvj)
Íslenska þjóðfylkingin, 4.6.2017 kl. 01:33
Úr morgunfréttum RÚV:
Íslenska þjóðfylkingin, 4.6.2017 kl. 09:36
... fella þá alla ...
á þetta að vera.
Viðbrögð lögreglu virðast snörp og árangursrík.
PS. Þrátt fyrir að fyrstu fréttir um Vauxhall sem eitt svið árásanna hafi reynzt rangar, leyfi ég ljóði Keats að standa, sem vitnisburði um lífið.
JVJ.
Íslenska þjóðfylkingin, 4.6.2017 kl. 09:46
Og vitaskuld skil ég þá friðsömu múslima vel -- eins og hr. Khan, borgarstjóra Lundúna -- sem eru sárir og hneykslaðir, að slíkar árásir gerist í nafni islams.
Engu að síður vil ég ítreka hér fyrri tillögu mína, að sett verði tímabundið bann á ferðir eða a.m.k. innflutning múslima til Evrópu, þar til múslimskir hryðjuverkamenn hafa látið af drápsathæfi sínu þar um ákveðinn tíma, 1-2 ár eða svo.
Jón Valur Jensson, 4.6.2017 kl. 10:14
Haldi þeir síðan áfram fjöldamorðum á nýjan leik, má aftur skella á slíku innflutningsbanni frá múslimaríkjum. --JVJ.
Íslenska þjóðfylkingin, 4.6.2017 kl. 10:18
Jón Valur
Einn var heyrt að hrópa út "þetta er fyrir Allah" .
Erfitt fyrir vinstrisinnar að segja að það hefur ekkert að gera með íslam.
https://www.thereligionofpeace.com/attacks/attacks.aspx?Yr=Last30
Merry (IP-tala skráð) 4.6.2017 kl. 12:49
Jón Valur - ég hef lest öðruvisi um Sadiq Khan - Mayor of London.
Googla þessu: London mayor supports terrorists
Merry (IP-tala skráð) 4.6.2017 kl. 13:08
Frábær árangur hjá Lögreglu í London hérna, sjá flott myndband:
https://www.facebook.com/palestinenationalunity/videos/681242508726835/
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 5.6.2017 kl. 23:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.