Donald Trump er raunsærri en borgarstjóri Lundúna

Það er vitaskuld laukrétt tístað hjá Trump Banda­ríkja­for­seta, að það er engan veg­inn í lagi, þegar "í það minnsta sjö létu lífið og 48 slös­uðust í hryðju­verka­árás", að borg­ar­stjóri Lund­úna segi að það sé "eng­in ástæða til að vera ótta­sleg­inn""! 

Sadiq Khan, hinn músl­imski borgar­stjóri, hefur áður verið gagn­rýndur fyrir ummæli sín vegna öfga­stefnu meðal múslima, en þessi svör fekk hann frá Trump sem þóttu viðbrögð Khans við árás­un­um í London í gær­kvöldi ekki nógu eindregin. 

„Við verðum að hætta að reyna að sýna póli­tíska rétt­hugs­un og verðum að vernda fólkið okk­ar. Ann­ars versn­ar þetta bara,“

skrifaði Trump á Twitter, og virðist það bæði rétt mat og sann­gjarnt.

Eitt sem Manchester-hryðju­verkið hafði í för með sér virðist vera að við­bragðs­flýt­ir brezku lögreglunnar hafi aukizt. Frá því að árásin hófst í gær þar til morð­ingjarnir voru felldir, liðu ekki nema átta mínútur.

Annar lærdómur getur sannarlega orðið fyrir­byggj­andi gegn fleiri hryðju­verk­um: að menn láti af allri glópa­bjartsýni og von um að þessu fari senn að ljúka. Það gerir það ekki án þess að menn efli forvarnir að miklum mun, en þar gæti þetta verið efst á blaði:

  • að efla netnjósnir með múslimum innanlands og í tölvu­samskiptum þeirra við fólk í múslimskum ríkjum og með skrifum þeirra á alþjóðlega vefi;
  • að koma fyrir hlustunar­búnaði í öllum moskum, ef þær eiga að fá starfsleyfi áfram;
  • að sett verði tímabundið bann á ferðir eða a.m.k. innflutning múslima til Evrópu, þar til múslimskir hryðju­verkamenn hafa látið af dráps­athæfi sínu þar um ákveðinn tíma, 1-2 ár eða svo. Haldi þeir síðan áfram fjölda­morðum á nýjan leik, má aftur skella á öðru slíku tímabundnu innflutn­ings­banni frá múslima­ríkjum.

Þetta gæti reyndar orðið varanlegt bann áratugum saman, en við því er ekkert að segja, heldur hrein nauðsyn og örugglega til að draga úr þessum árásum, þótt hitt beri að viðurkenna, að önnur og þriðja kynslóð frá innflytjendum er oft mun róttækari en sú fyrsta. En þar verður þá þeim mun meira undir því komið að fylgja þeim kynslóðum vel eftir í uppeldinu: í gegnum skóla­kerfið og félags­lega þátttöku og með aðlögun að vestrænum hugunar­hætti, sem múslimar verða að tileinka sér, vilji þeir öðlast fullan þegnrétt í landi Breta­drottningar. Komi full andstaða við slíkt í ljós meðal þeirra eða grunur um þátt­töku í and­brezkri starfsemi, á að binda svo um hnútana, að vísa megi þeim til baka til síns upprunalands. Slíkar valdheimildir hafa frönsk stjórnvöld, og Bretum er engin vorkunn að því að taka upp sömu vinnubrögð. Ættu stjórnvöld hér á landi sömuleiðis að tryggja sig með sérstökum skilmála-ákvæðum, sem fylgja beri allri mótttöku nýrra ríkisborgara, að þeim sjálfum og jafnvel börnum þeirra megi vísa úr landi fyrir skrif eða athafnir sem fela í sér stuðning við erlendar hryðjuverka­hreyfingar.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Trump gagnrýnir borgarstjóra Lundúna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Merry

Já Jón Valur

Sadiq Khan er eins og Barak Obama - báðir múslimar. Þeir tala eins og þeir tala fyrir alla. Sadiq Khan sagði eftir hryðjuverkum Westminster Bridge þar sem fjöldi fólks var drepinn - "hryðjuverkaárásir eru hluti af því að búa í stórum borg". Hann stóð upp fyrir múslima hryðjuverkamanna - eins og það var eðlilegt.

Barak Obama gerði það sama við Íran þegar hann leyfði þeim að fara í kjarnorku - og við vitum hvað Íran langar að gera við kjarnorkuvopn,

Merry, 4.6.2017 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband