Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
Föstudagur, 18.5.2018
Þeir mega líta sér nær
Hvenær ætlar Arababandalagið að fara fram á alþjóðlega rannsókn á meintum glæpum flughers Saudi-Arabíu með loftárásum á saklausa, fátæka alþýðu Jemens? Vilji Arababandalagið gera sig gjaldgengt sem álitsgjafa, ef ekki dómbært á siðferði stjórnvalda, gæti það byrjað á þessu grundvallaratriði.
Svo mætti sama bandalag gera þá afstöðu kýrskýra, að héðan í frá verði kristnum heimilt að reisa kirkjur í öllum arabalöndum, en kveða annars upp úr um það álit sitt, að meðan Saudi-Arabía bannar slíkt og gerir það refsivert að eiga Biblíu og jafnvel dauðasök að falla frá islamstrú til kristni, þá ætti sama Saudi-Arabía að hætta að styðja múslimskt trúboð á Vesturlöndum og hlaða undir moskur þar.
JVJ.
Arababandalagið krefst rannsóknar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 02:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 10.5.2018
"Miklar hetjur erum við, Hrólfur minn!"
gætu þeir Sómalar í al-Shabab-hryðjuverkasamtökunum sagt sem grýta varnarlausa konu grafna í sand upp að hálsi.
Þessi samtök þeirra eru undarlega lítt kunn hér á landi, en hafa framið óheyrileg hryðjuverk, m.a. í Kenýa, og drepið fólk í þúsunda tali.
Mikið er af Sómölum í Skandinavíu, og þangað getur auðveldlega borizt illþýði úr þessum fjöldamorðingjahópi. Allur er varinn góður og full þörf á að gæta vel landamæra Íslands, því að ómenni sem þessi tilheyra og starfa með mestu óvinum Vesturlanda, eins og al-Qaída og ISIS-þjóðamorðingjunum.
En ekki verður á móti mælt að þetta eru afurðir strangasta islamisma, ekki venjulegra hægri- eða vinstriöfga eða mílitarisma.
Sjá hér svolítið um al-Shabab:
https://www.blog.is/forsida/leit/?author_id=8899&query=al-Shabab
JVJ.
Grýtt til dauða fyrir að eiga 11 eiginmenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 9.4.2018
Viktor Orban vinnur enn kosningar, verður forsætisráðherra Ungverja í 3. sinn í röð
Fidesz, flokkur forsætisráðherrans og þjóðernissinnans Viktor Orban, er með um helming atkvæða og mikinn meirihluta þingsæta í kosningunum í Ungverjalandi. Hann verður nú forsætisráðherra þriðja kjörtímabilið í röð.
Flokkur Orbans var með rúmlega 49% atkvæða þegar 64% atkvæða höfðu verið talin. Kjörsókn var tæp 69%, en um 7,9 milljón Ungverja eru á kjörskrá. (Mbl.is)
Nach Schätzungen von Wahlforschern wird Fidesz auf 133 Mandate im 199-sitzigen Parlament kommen und erreicht damit eine Zweidrittelmehrheit. "Wir haben gewonnen, Ungarn hat einen großen Sieg errungen", rief Orbán seinen jubelnden Anhängern zu.
Damit kann Orbán zum dritten Mal allein regieren. Orbán regiert seit 2010, es wäre seine vierte Amtszeit. Vor vier Jahren hatte Fidesz mit 43 Prozent der Stimmen 133 Mandate und damit eine verfassungsändernde Zweidrittelmehrheit gewonnen. (Die Zeit)
Hann hefur því stóraukið fylgi sitt meðal þjóðarinnar og í ungverska þinginu. Það ætti að senda ráðamönnum í Brussel ótvíræð skilaboð um að þeirra stefna í innflytjendamálum er óvinsæl og stenzt ekki til lengdar.
Fidesz-flokkurinn hefur orðið æ íhaldssamari, þjóðernissinnaðri og einarðari í afstöðu sinni gegn innflytjendum, flóttafólki og afskiptum Evrópusambandsins af innri málefnum Ungverjalands undanfarin ár.
Kjörstaðir opnuðu klukkan sex í morgun í mætti Orban sjálfur snemma á kjörstað í Budapest. Þetta er land sem hefur alltaf staðið sig, þannig að við getum treyst fólkinu og ég mun sætta mig við ákvörðun þeirra, sagði Orban. (Mbl.is)
Þessum niðurstöðum munu allir þeir, sem vilja ekki frekari landvinninga islams í Evrópu, fagna.
Í annarri grein í Die Zeit, frá síðastliðnu sumri, kemur fram, að Viktor Orban er "der cleverste Nationalist innerhalb der [Europäischen] Union" og leikur sér að því að komast þangað sem hann vill.
JVJ.
Flokkur Orban með meirihluta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 15:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 4.1.2018
Röng ákvörðun utanríkisráðherra
Ætli fari ekki að fara um kumpána eins og Guðlaug Þór og hans fylgjendur, þegar Donald Trump er strax farinn að láta verkin tala gagnvart Sameinuðu þjóðunum. Það ruglar kannski menn í ríminu að stjórnmálamenn eins og Trump skuli framfylgja því sem hann sagði fyrir kosningar. Að Guðlaugur Þór skuli hreykja sér af því að fylkja sér á bak við lönd eins og Venusúela, Qatar, Saudi-Arabíu, Sýrland, svo dæmi séu tekin. Það virðist engan endi ætla að taka hversu vitlausa utanríkisráðherra við höfum, þeir eru greinilega ekki starfi sínu vaxnir. Guðlaugur Þór hefði kannski átt að kynna sér söguna áður en hann réð því að ganga gegn réttmætri ákvörðun Ísraelsríkis að gera Jerúsalem að höfuðborg sinni.
Nú þegar hafa Bandaríkin hafist handa gagnvart Sameinuðu þjóðunum, og þetta er einungis byrjunin, því á eftir fylgir niðurskurður frá Bandaríkjunum til friðargæslu, matvælatofnana, svo lengi mætti telja, sem hafa verið á vegum Sameinuðu þjóðanna. Sameinuðu þjóðirnar verða aldrei svipur hjá sjón, þökk sé arfavitlausum leiðtogum þjóða sem hafa verið betlikerlingar á Bandaríkjunum.
Íslenska þjóðfylkingin taldi og telur að fulltrúar á vegum Íslands verði að hugsa aðeins lengra en um skammtíma vinsældir meðal navívista. Þeirra afstaða kemur til með að ráða hvar Ísland og íslenska þjóðin stendur um ókomin ár.
Í þessari atkvæðagreiðslu átti fulltrúi Íslands að greiða atkvæði með að Jerúsalem yrði höfuðborg Ísraelsríkis, og hefðu þeir ekki treyst sér til þess, þá alla veganna að sitja hjá.
Ef rétt væri, ætti Guðlaugur Þór að segja af sér embætti vegna embættisafglapa.
Guðmundur Karl Þorleifsson, formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar.
Skerða framlög til Sþ um 258 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 7.12.2017
Upplýsandi leiðari Mbl. um innflytjendamál
Blaðið skýtur léttu skoti á stjórnarsáttmálann í þessu efni og telur þörf á að stjórnvöld haldi "þétt utan um þennan málaflokk, eigi ekki að fara illa. Mikil hætta er á að gestrisni sé misnotuð, eins og sást t.d. í frétt mbl.is í fyrradag þar sem sagði frá því að fjórir af hverjum fimm flóttamönnum í Svíþjóð sem sögðust vera yngri en 18 ára reyndust ekki vera það. Þetta voru þúsundir einstaklinga sem þannig reyndu að villa á sér heimildir. Við mál af þessu tagi getur vissulega verið erfitt að eiga, en það breytir því ekki að ríki Evrópu, þar með talið Ísland, eiga ekki um annað að velja en að fást við þetta af raunsæi og festu."
Tilvitnun lýkur í skýran og skarpan leiðara.
JVJ.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 16:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 1.12.2017
Skjalafals og förgun vegabréfa á ekki að veita neinum aðgang að Íslandi
Samt hefur fimm manna fjölskylda komið hingað með þeim hætti, enn eitt tilfellið, og sótt um hæli. Í nýjum stjórnarsáttmála er gert ráð fyrir að gera vel við umsækjendur um hæli. Þetta er ein ástæðna þess að Íslenska þjóðfylkingin hafnar stuðningi við stefnu þessara stjórnarflokka.
Með því að koma vinnureglum okkar í innflytjendamálum á hreint, spyrst það fljótt út, að hér sé ekki hægt að hafa yfirvöld og þjóð að fíflum.
Og já, stefna stjórnarflokkanna í málum flóttamanna og hælisleitenda er dæmi um spillingu í stjórnmálum. Hér hafa Vinstri græn fengið að koma ár sinni svo fyrir borð, að stefnt er á innkomu þúsunda múslima til landsins á næstu fjórum árum. Sá er EKKI vilji landsmanna hér. Í því efni erum við í fullu samlyndi við yfirgnæfandi vilja fólks í helztu löndum Evrópu. Þeir, sem vita það ekki, eru úti að aka í einu helzta umræðuefni samtímans; á meðan er þeim ekki treystandi til skynsamlegra ákvarðana fyrir okkar hönd.
JVJ.
Kostaði fjölskylduna fimm milljónir að koma til Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 16.7.2017
Veðurspáin í Svíþjóð!
Á Twitter er gert grín að múslimameðvirkni frænda okkar, Svía:
@PrisonPlanet | ||
The weather forecast in Sweden vs the weather forecast in Iraq. pic.twitter.com/t870JhVRSU |
Menn bregðast líka nokkuð á sömu lund við "tíðindunum" ... Mörgum lízt mun betur á Írak! Og einn segir t.d. enga þörf fyrir veðurspá fyrir nóttina í Svíþjóð, "because it´s not safe to go out"!
JVJ.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 11.7.2017
Viðnám Vesturlanda: Ánægjulegur dómsúrskurður Mannréttindadómstóls Evrópu
Eyjan segir frá því, að bann Belga á búrkum sé löglegt að mati Mannréttindadómstóls Evrópu. Þetta gefur færi á því á einu sviði að snúa pendúlnum aðeins í hina áttina, frá islamsvæðingu Evrópu, sem linkind Frakklandsforseta býður hins vegar heim eins og margt í stefnu vinstri flokka á Norðurlöndunum og víðar. En allt, sem miðar að því að Evrópuþjóðir láti ekki hafa sig að fíflum, heldur spyrni fæti gegn flóði hælisleitenda og standi með sínum eigin samfélagsreglum í stað undirgefni við islam og jafnvel sjaríalög, öll slík viðleitni er af hinu góða.
Í Belgíu höfðu verið sett lög árið 2011 "sem banna búrkur og önnur klæði sem hylja andlit á almannafæri. Í dag komst svo Mannréttindadómstóllinn að þeirri niðurstöðu að bannið bryti ekki í bága við rétt fólks til einkalífs og rétt fólks til trúarskoðana.
Segir í niðurstöðu dómsins, sem greint er frá á vef Independent, að ríkisstjórnin hafi með lögunum verið að bregðast við hefð sem stangaðist á við belgískt samfélag:
Þetta er hefð sem álitin er ósamrýmanleg við belgískt samfélag, við félagsleg samskipti og grundvöll mannlegra samskipta, sem eru ómissandi þáttur í því að lifa í samfélagi og tryggir hlutverk lýðræðislegs samfélags." (Eyjan.is)
Þetta má vera okkur til góðrar fyrirmyndar, eða hver vill þetta ástand hér:
Frá Íran berast þær fréttir, að konur reyni þar í sívaxandi mæli að komast hjá því að bera slæður. Þeim er heimilt að sleppa því í einkarými, og vilja margar láta það ná til bíls síns líka, þar sem þær bera þá slæðuna fremur á öxlum sér en yfir höfðinu. En karlrembulegir "siðgæðisverðir" þar reyna daglega að grípa inn í með sektum, gera jafnvel bifreiðir slíkra kvenna tímabundið upptækar, en tekst samt ekki að berja niður frelsisanda kvennanna.
Meðan stjórnvöld hér á Íslandi láta það óátalið, að hér vaxi fyrst og fremst múslimasöfnuðir styrktir ótæpilega af Saudi-aröbum, þá er líklegt að slæðu- og jafnvel búrku-notkun fari vaxandi meðal múslimskra kvenna í landinu. Virðist það ennfremur fatastíll margra þeirra kvenna sem hingað eru komnar frá múslimskum löndum Balkanskaga. Eru menn jafnvel farnir að rekast á fullklæddar konur í gufuböðum sundlauganna!
Þessi mál þarf að ræða án æsings og af yfirvegun og móta stefnu sem virðir okkar hefðir, án þess að ryðjast inn á svið einkalífsins, og þar er þá dómsúrskurður Mannréttindadómstóls Evrópu góður til viðmiðs og til leiðsagnar um það, hvað okkur leyfist með ströngum reglum um þessi mál.
Vart þarf að minna á, að í mörgum tilfellum hafa búrkuklæddar konur verið látnar fara með sjálfsmorðsbelti inn á meðal meintra óvina islamista og valdið ómælanlegum hörmungum fyrir fjölda fólks. Við eigum fulla heimtingu á því, að aðrir í samfélaginu komi til dyranna með þeim hætti sem sýnir, hverjir þeir eru, fremur en hitt að leyna því hvern mann þeir hafi að geyma.
Þjóðverjar lærðu sína erfiðu lexíu í þessu efni um helgina þegar grímuklæddir, vinstrisinnaðir ofbeldismenn gengu hundruðum saman berserksgang gegn lögreglu Hamborgar og gegn eigum borgarbúa. Nú hafa kristilegir demókratar þar frumkvæði að því að herða allar reglur um opinber mótmæli (m.a. með tölvuskráningu öfgamanna og útilokun þeirra frá því að vaða um á milli ríkja í þessum skarðræðistilgangi), enda voru 476 særðir lögreglumenn endapunkturinn á, að andvaralítið "umburðarlyndi" fái lengur að gilda í slíkum tilfellum.
Jón Valur Jensson.
Virða ekki slæðulögin í Íran | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 16:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 7.7.2017
Frönsk linkind sem engu mun skila nema enn frekari óstjórn
Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur beðið innanríkisráðherra sinn, Gerard Collomb, "að flýta afgreiðslu hælisumsókna þannig að yfirvöld geti svarað því á innan við hálfu ári hverjir fái hæli og hverjir verði sendir úr landi."
Þetta er allsendis fráleit "lausn". Á meðan heldur hælisleitendum áfram að fjölga og öryggi Vesturlanda að minnka, fyrir utan hvernig velferðarkerfið er að bresta undan þunganum.
Norðmönnum tekst að koma ólöglegum hælisleitendum úr landi á tveimur sólarhringum. Einn fárra vakandi sjálfstæðismanna, Björn Bjarnason, fyrrv. menntamála- og dómsmálaráðherra, hefur haldið uppi gagnrýni á framkvæmd þessara mála hér á landi og knúð á um að bætt verði úr án tafar. Það eigi ekki að vera okkur ofviða að afgreiða á einni viku þessi mál, sem Norðmönnum nægja 2-3 sólarhringar til að leysa.
En Macron lætur sér nægja hálft ár! Og minnihlutastjórnin íslenzka ræður ekki við þetta á skemmri tíma en allt að einu ári!
En þessi er stefna Íslensku þjóðfylkingarinnar: ÍÞ vill herta innflytjendalöggjöf og innleiða 48 tíma regluna í málefnum hælisleitenda. Það er ekkert vit í öðru en að setja þá fjármuni, sem til þarf, í lausn þessa vandamáls. Eftir að það hefur verið gert af krafti á einum til tveimur mánuðum, verður eftirleikurinn auðveldur, og afgreiðslan þarf ekki að taka meira en tvo sólarhringa. Vilji er allt sem þarf!
Á Útvarpi Sögu er dr. Ólafur Ísleifsson hagfræðingur í ágætu viðtali, þegar þessi orð eru rituð, og hvetur þar til þess, að yfirvöld hér láti senda menn til Noregs til að kynna sér, hvernig Norðmenn leysi þessi verkefni. Það er góð tillaga.
Jón Valur Jensson.
Ráku þúsundir hælisleitenda á brott | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 17:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 29.6.2017
Ítalir hóta að loka hafinu fyrir hælisleitendum
Ósjálfbær upplausn ríkir víðar en í Venezúela. Ítalir, sem fá flesta flóttamennina frá Líbýu (73.000 það sem af er ári, 14% aukning frá í fyrra), fá ónógan stuðning frá öðrum ESB-ríkjum. En þetta fólk á faraldsfæti er frá Afríku, Arabíuskaga, Egyptalandi, Sýrlandi og jafnvel Bangladesh. "Margir flýja stríð, fátækt og ofsóknir, og lokanir á leiðum gegnum Balkanskagann hafa aukið streymi til landsins" (Mbl.is), en augljóst er, að hér er einnig um efnahagsflóttamenn að ræða, sbr. ýmsa hælisleitendur hér!
Ítalska strandgæslan er stórtæk í björgunaraðgerðum á hafsvæðinu, en mörg skipanna sigla undir öðrum Evrópufánum. Heimildarmaður fréttastofu Reuters sagði að hugmyndir væru uppi um að hindra erlend skip sem væru á vegum annarra en ítalskra stjórnvalda. Það er hins vegar enn óljóst hvort slíkar aðgerðir séu ólöglegar eða ekki. (Mbl.is)
Hlutirnir gerast ekki í tómarúmi, heldur mótast af aðstæðum á Ítalíu sjálfri. Þjóðin er farin að hallast frá hinni opnu stefnu í innflytjenda- og flóttamannamálum, og þá er ekki lengur grundvöllur fyrir ráðandi flokka til að loka augunum fyrir því.
"Hótanir ítalskra stjórnvalda koma í kjölfar fylgistaps [sósíaldemókratíska] Demókrataflokksins í sveitarstjórnarkosningunum á Ítalíu í síðustu viku þar sem flokkurinn tapaði fylginu til Forza Italia og Norðurbandalagsins sem byggja báðir boðskap sinn á hertari aðgerðum í innflytjenda- og flóttamannamálum" (Mbl.is).
Það kemur að því, að þjóðir segja STOPP við ósjálfbærri ofurbjartsýnisstefnu. Hinar ESB-þjóðirnar eru heldur ekki, í ljósi endurvakinna hryðjuverka, ginnkeyptar fyrir því að auka enn fjölda múslima í álfunni, a.m.k. ekki í þeirra löndum! Þvinganir, sem Brussel-valdið með sínum refsivendi reynir til að jafna þunga þessara hælisleitenda og flóttamanna á allar sínar meðlimaþjóðir, m.a. þær sem eru austan gamla járntjaldsins og hafa tekið við fáum slíkum, hleypa bara illu blóði í þær þjóðir. Sjálf heildarstefnan er því í upplausn og réttasta ráðið að senda bátafólkið (sem borgar farið dýrum dómum) aftur til baka næstu misserin, eins og gert hefur verið í Ástralíu og dugað til að stöðva strauminn þangað af bátafólki.
Langfarsælast er að hjálpa þessu fólki í sínum eigin löndum, þar sem unnt er. Í lágu verðlagi þar nýtast hjálparsjóðir margfalt betur þar en hér í álfu.
Jón Valur Jensson.
Ítalía hótar að loka höfnunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 05:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)