Röng ákvörðun utanríkisráðherra

Ætli fari ekki að fara um kump­ána eins og Guð­laug Þór og hans fylgj­endur, þegar Donald Trump er strax farinn að láta verkin tala gagnvart Sam­ein­uðu þjóð­unum. Það ruglar kannski menn í ríminu að stjórn­mála­menn eins og Trump skuli fram­fylgja því sem hann sagði fyrir kosningar. Að Guðlaugur Þór skuli hreykja sér af því að fylkja sér á bak við lönd eins og Venusúela, Qatar, Saudi-Arabíu, Sýrland, svo dæmi séu tekin. Það virðist engan endi ætla að taka hversu vitlausa utanríkisráðherra við höfum, þeir eru greinilega ekki starfi sínu vaxnir. Guðlaugur Þór hefði kannski átt að kynna sér söguna áður en hann réð því að ganga gegn réttmætri ákvörðun Ísraelsríkis að gera Jerúsalem að höfuðborg sinni.

Nú þegar hafa Bandaríkin hafist handa gagnvart Sameinuðu þjóðunum, og þetta er einungis byrjunin, því á eftir fylgir niðurskurður frá Bandaríkjunum til friðargæslu, matvælatofnana, svo lengi mætti telja, sem hafa verið á vegum Sameinuðu þjóðanna. Sameinuðu þjóðirnar verða aldrei svipur hjá sjón, þökk sé arfavitlausum leiðtogum þjóða sem hafa verið betlikerlingar á Bandaríkjunum. 

Íslenska þjóðfylkingin taldi og telur að fulltrúar á vegum Íslands verði að hugsa aðeins lengra en um skammtíma vinsældir meðal navívista. Þeirra afstaða kemur til með að ráða hvar Ísland og íslenska þjóðin stendur um ókomin ár.

Í þessari atkvæðagreiðslu átti fulltrúi Íslands að greiða atkvæði með að Jerúsalem yrði höfuðborg Ísraelsríkis, og hefðu þeir ekki treyst sér til þess, þá alla veganna að sitja hjá. 
Ef rétt væri, ætti Guðlaugur Þór að segja af sér embætti vegna embættisafglapa.

Guðmundur Karl Þorleifsson, formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar. 


mbl.is Skerða framlög til Sþ um 258 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband