Skjalafals og förgun vegabréfa á ekki að veita neinum aðgang að Íslandi

Samt hefur fimm manna fjöl­skylda komið hing­að með þeim hætti, enn eitt til­fellið, og sótt um hæli. Í nýjum stjórn­ar­sáttmála er gert ráð fyrir að gera vel við umsækj­endur um hæli. Þetta er ein ástæðna þess að Ís­lenska þjóð­fylk­ingin hafnar stuðningi við stefnu þessara stjórn­ar­flokka.

Með því að koma vinnureglum okkar í innflytjenda­málum á hreint, spyrst það fljótt út, að hér sé ekki hægt að hafa yfirvöld og þjóð að fíflum.

Og já, stefna stjórnarflokkanna í málum flóttamanna og hælis­leitenda er dæmi um spillingu í stjórnmálum. Hér hafa Vinstri græn fengið að koma ár sinni svo fyrir borð, að stefnt er á inn­komu þúsunda múslima til landsins á næstu fjórum árum. Sá er EKKI vilji landsmanna hér. Í því efni erum við í fullu sam­lyndi við yfirgnæfandi vilja fólks í helztu löndum Evrópu. Þeir, sem vita það ekki, eru úti að aka í einu helzta umræðuefni samtímans; á meðan er þeim ekki treystandi til skynsamlegra ákvarðana fyrir okkar hönd.

JVJ.


mbl.is Kostaði fjölskylduna fimm milljónir að koma til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Haukur Sigurjónsson

Ánægður með ykkur! Það þarf núna meir enn nokkurn tíman að virkilega sýna að við viljum þetta ekki. Það þarf núna meir en nokkurn tíman að benda á þetta, ræða þetta og læra hvað er í gangi um alla vestræna veröld. Þið munuð vera oddurinn á spjótinu sem mun vekja athygli á þessu þegar enginn annar gerir. Það á ekki að gera okkur að löglegum þrælum. Sem þurfa vinna til að fæða og klæða flóttamenn.

Mjög góð grein. Mjög ánægður með ykkur. Takk fyrir ykkur.

Einar Haukur Sigurjónsson, 1.12.2017 kl. 21:40

2 identicon

Ísland ætti ekki að taka múslima hér. Það verður aðeins vandamál - og þetta vandamál breytir Íslandi að eilífu.

Það er sagt að seinni og þriðja kynslóðin er verra en fyrsta og vill reyna að koma upphafs land hingað. Muslimar fá minnst 4 börn hver - og eftir nokkra kynslóð mun fjöldi þeirra aukast veldishraða

Þetta kynslóð verður dóttur míns kynslóð og hennar börn. 

Það vill ég EKKI. Þetta má EKKI ske.

Merry (IP-tala skráð) 1.12.2017 kl. 22:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband