Sunnudagur, 3.12.2017
Bandaríkin ekki lengur með í SÞ-sáttmála um flótta- og farandfólk; samrýmist hann nokkuð frekar fullveldi Íslands?
Bandaríkjastjórn hefur tilkynnt Sameinuðu þjóðunum að hún dragi sig út úr sáttmála um réttindi flóttamanna og farandfólks, samþykktum 2016. Nikki Haley, sendiherrann við SÞ, segir sáttmálann grafa undan fullveldi Bandaríkjanna.
- Sáttmálinn á að tryggja réttindi flóttafólks, hjálpa því að koma sér fyrir á nýjum stað og veita því aðgang að menntun og störfum. Ætlunin var gera samning um fólksflutninga á næsta ári, að því er segir í frétt CNN. (Visir.is)
Haley segir að Bandaríkjastjórn ætli að ákveða sýna eigin stefnu um innflytjendur, enda samrýmist ákvæði sáttmálans ekki stefnu landsins í innflytjendamálum.
- Ákvörðun okkar um innflytjendastefnu verður alltaf að vera tekin af Bandaríkjamönnum og aðeins Bandaríkjamönnum. Við munum ákveða hvernig við stjórnum best landamærum okkar og hver fær að koma inn í landið okkar, segir hún.
Þessu hefur Miroslav Lajcak, forseti allsherjarþings SÞ, mótmælt, hann harmar ákvörðun Bandaríkjastjórnar og segir að ekkert eitt ríki geti stjórnað alþjóðlegum fólksflutningum. (Visir.is)
Með þá túlkun Vinstri grænna (leiðandi flokks í ríkisstjórn) á meintum skyldum okkar vegna flóttamannasáttmála SÞ, að hér þurfi að taka við a.m.k. 2.000 kvótaflóttamönnum á næstu fjórum árum og a.m.k. þrefalt fleiri hælisleitendum -- og allt réttlætt með þessum sáttmála, sem ýmsar aðrar þjóðir telja sig þó alls ekkert bundnar af -- þá liggur beint við að álykta, að í þessu efni ættum við að fylgja fordæmi Bandaríkjastjórnar. Það er alls óviðunandi, að erlent valdaapparat eins og SÞ taki svo ágengar og afdrifaríkar ákvarðanir um okkar innanríkismál, nokkuð sem hefði sláandi áhrif til tugþúsunda-fjölgunar múslima hér á landi á næstu árum og áratugum (sbr. mjög vel unna fréttargrein um þau mál í Evrópu í Morgunblaðinu í gær).
Þessi ríkisstjórn, sem er nýsetzt hér að völdum, ætti sem fyrst að taka þetta mál til afgreiðslu og segja sig frá öllum skyldum við þennan ofurróttæka SÞ-sáttmála. Geri hún EKKERT í málinu, er hún sjálfkrafa að skilgreina sig sem róttæklingastjórn á þessu sviði, haldna glýju glópabjartsýni og fyrirhyggjuleysi um varðveizlu einingar og samheldni íslenzku þjóðarinnar, sem og öryggi hennar gagnvart hryðjuverkaöflum, sem ættu þeim mun auðveldari aðgang að landinu eftir því sem fjölgað yrði hér um þúsundir ofan á þúsundir innflytjenda frá múslimskum ríkjum heims.
Við ætlum ekki að vera komin með 36,6% hlutfall múslima af íbúafjölda landsins eftir 33 ár eins og búizt er við um Svíþjóð!
Jón Valur Jensson.
Draga sig út úr sáttmála um flóttamenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Innflytjendamál | Aukaflokkar: Löggæsla, Stjórnmál og samfélag, Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 15:48 | Facebook
Athugasemdir
Ég var einmitt að hugsa sama í morgun þegar ég sá þessa frétt á MSN en við eigum að draga okkur út úr þessum sáttmála enda út í hött að sameinuðu þjóðirnar eigi að efla sundrung meðal þjóða.
Valdimar Samúelsson, 3.12.2017 kl. 15:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.