Þriðjudagur, 25.10.2016
Bretar stefna á stórfellda stækkun Heathrow-flugvallar í Vestur-Lundúnum, meðan vantrúaðir vinstrimenn á Íslandi þrengja að miðstöð okkar innanlandsflugs!
Ekki er ónýtt að 1000 manns starfi á Reykjavíkurflugvelli, en um 77.000 ný störf myndast við lagningu 3. flugbrautar við Heathrow. Flugvélum yfir London mun fjölga um nær 50% og 200.000 í viðbót búa við hávaða þaðan. Sjötta flugstöðin bætist og við. Kosta mun verkið allt um 17,6 milljarða punda, þ.e. 2500 milljarða íslenskra króna, og þorpið Harmondsworth í nágrenni Heathrow verður rifið.
Þarna skortir ekki á stórhug og róttækar breytingar, enda mikið um þetta deilt og t.d. bæði Boris Johnson utanríkisráðherra og múslimski borgarstjórinn í London andvígir þessum áformum.
En hér heima láta menn það sumir ægja sér, að flugvöllur sé yfirhöfuð í höfuðborginni, eins og það sé ekki alvanalegt í borgum heims, og aðrir ætlast fyrst og fremst til að fá þarna lóðir (sem verða raunar dýrkeyptar), þótt gnægð lóða sé til á borgarlandinu!
Snorri Óskarsson, sem vera átti oddamaður framboðs Þjóðfylkingarinnar í NA-kjördæmi, var með athyglisverðar hugmyndir um Reykjavíkurflugvöll og fleira, er undirritaður hitti hann í lok ferðar um kjördæmið, þar sem reynt var að leggja hans mönnum á Austurlandi lið við söfnun undirskrifta vegna framboðsins (of seint, því miður, við hefðum þurft allt að hálfri viku til viðbótar til að ná þessu; en það fer bara í reynslubankann).
Við Snorri erum báðir eindregið fylgjandi því, að Reykjavíkurflugvöllur fái að vera þar sem hann er, og báðir vissum við, að lengja mætti neyðarbrautina með nýjum hætti þrátt fyrir hryðjuverkið sem Valsmenn og meirihluti borgarstjórnar eru að vinna á NA-hluta þeirrar flugbrautar; en með því verki er verið að stórskaða flugöryggi í landinu og umfram allt að tefla lífi sjúklinga í hættu á komandi árum. En í stefnuskrá Íslensku þjóðfylkingarinnar segir: ÍÞ vill að staðsetning núverandi innanlandsflugvallar verði til frambúðar.
Tillaga Snorra um nauðsynlega, tiltölulega auðvelda lenginu neyðarbrautarinnar út í sjó er bæði raunhæf og innan viðráðanlegra kostnaðarmarka. Ekki þyrfti að ryðja burt nema einu litlu húsi við SV-enda núverandi brautar (rétt við það svæði þar sem undirritaður átti heima fimm fyrstu æviár sín á Shellvegi), en þar má svo lengja brautina að vild út í Skerjafjörð. Yrði það mjög lítið mál samanborið við hugmyndirnar stórtæku sem menn voru með um að leggja glænýjan flugvöll (og byggja flugstöð sömuleiðis) á Lönguskerjum úti í firðinum.
Allt þetta er hægt, ef vilji er fyrir hendi. En treysta menn borgarstjóranum Degi til annars en að þvælast fyrir því sem orðið getur landsmönnum og borgarbúum til gagnkvæmra nytja?
Jón Valur Jensson.
Samþykktu stækkun á Heathrow | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Samgöngur | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Utanríkismál/alþjóðamál, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:48 | Facebook
Athugasemdir
Rosalega er bretar vitlausir, að byggja eina flugbraut fyrir 2500 milljarða. Þeir hefðu átt að fá ráðleggingar hjá Rögnunefndinni okkar sem komst að þeirri niðurstöðu að vel mætti byggja flugvöll fyrir okkur, væntanlega með ÞREM fæugbrautum, í Hvassahrauni fyrir 21 milljarð eða innan við 1% af því sem þessi eina braut á að kosta. Ruglaðir menn þarna í Englandi.
Svo má minna á það að landsvæði Reykjavíkurflugvallar er aðeins rúmlega 1%, já eitt prósent af BYGGINGARSVÆÐI Reykjavíkur. Sjaldan hefur verið talað meira um svona lítill blett og mega margir skammast sín að vilja rústa honum, eign þjóðarinnar en ekki Reykvíkinga eingöngu.
Örn Johnson´43 (IP-tala skráð) 25.10.2016 kl. 21:13
Lásu menn ekki fréttina? Þar neðst stendur:
"
Borgarstjóri London, Sadiq Khan, hefur ásakað ríkisstjórnina um að „valta yfir skoðanir Lundúnabúa“ þar sem hann hafi verið kosinn til embættis sem augljós andstæðingur nýrrar flugbrautar við Heathrow. „Ný flugbraut muna hafa hrikalegar afleiðingar fyrir loftgæði í London. Loftmengun í kringum flugvöllinn er nú þegar meiri en lögbundnar kröfur um NO2 segja til um,“ segir Khan. „Fleira fólk verður vart við flugvélagahávað frá Heathrow en flugvöllunum í París, Frankfurt, Amsterdam og Madrid til samans. Ný flugbraut þýðir að 200 þúsund til viðbótar verða varir við hávaðann.“
Einhverjir telja að ákvörðun ríkisstjórnarinnar falli um sjálfa sig. Ekki verði af byggingu nýrrar flugbrautar við Heathrow, þrátt fyrir opinberan stuðning ráðherra. Telja þeir að stjórnvöldum muni reynast erfitt að komast yfir mótstöðu almennings og sveitastjórna vegna kostnaðar, hávaða, loftmengunar og almennrar óánægju."
Magnús Helgi Björgvinsson, 25.10.2016 kl. 23:48
Já, já, gott og vel, Magnús, þetta sá ég, en það breytir engu um hitt, að stórt er hugsað í Lundúnum, ekki eins og í músarholunum í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem menn eru með allan hugann við reiðhjól og gangandi fólk, þótt við hjólreiðamenn höfum alltaf komizt allra okkar ferða og þurfum ekkert á þessum asnalega dýru, malbikuðu stígum að halda, einungis á helztu stofnleiðum inn í borgina og með stærstu götum.
En gott er innlegg þitt, Örn Johnson, eins og oftar.
Jón Valur Jensson, 26.10.2016 kl. 00:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.