Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
Þriðjudagur, 17.12.2019
ESB herðir að tjáningarfrelsi um fjöldainnflutning fólks!
Á næsta ári, sem senn hefst, mega ESB-íbúar búast við "fangelsisrefsingu eða nauðungarvistun á geðveikrahæli" vegna gagnrýni á fjöldainnflutning flóttafólks! Í alvöru, þetta mun "verulega takmarka málfrelsi innan ESB," en það mun víst vera að skapi frú Merkel ! Nánar um uppljóstrun um þetta mál, úr innsta hring Brussel-manna, í þessari frétt.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 21.11.2019
Yrði kosið nú í Svíþjóð, myndi hin óábyrga kratastjórn Löfvens falla og Svíþjóðardemókratar taka við stjórnarforystu!
Stórkostlegt er að sjá umskiptin til hins betra í viðhorfum sænsks almennings. Svíþjóðardemókratar hafa náð forystunni (28,5%) og gætu, ef kosið yrði, myndað ríkisstjórn með þeim tveimur flokkum (Móderötum og Kristdemókrötum) sem viðurkenna að sjónarmið Svíþjóðardemókrata í innflytjendamálum eru réttmæt.
Sósíaldemókratar hafa misst trúverðugleika í þvílíkum mæli meðal þjóðarinnar, að þeir eru komnir niður í Sjálfstæðisflokksfylgi, 22,5%, eru nú með næstmesta fylgið, en Móderatar þriðju, með 16,9%, og Kristdemókratar í 6. sæti, þó vel yfir 4% lágmarkið, með sín 6,8%!
Tökum ofan fyrir Svíum að láta ekki blekkjast lengur af sínum vanhæfa forsætisráðherra, kratanum Stefan Löfven!
Lesið um þetta hina athyglisverðu, vel skrifuðu frétt Gústafs Adolfs Skúlasonar, fréttaritara Útvarps Sögu í Svíþjóð, hér á Moggabloggi hans: Svíþjóðardemókratar styrkja stöðu sína sem stærsti stjórnmálaflokkur Svíþjóðar
Eins og Gústaf skrifar frá Svíþjóð:
Það ólgar í samfélaginu hérna um allt land og spjótin standa öll á sósíaldemókrötum. Vonandi heldur þetta áfram, því að nýr meirihluti er til staðar og vaxandi viji almennings fyrir myndun stjórnar með Svíþjóðardemókrötum, Móderötum og Kristdemókrötum.
Og því má bæta við, að vonandi eru að skapast aðstæður til þess nú að sameina þau stjórnmálaöfl hér á Íslandi, sem taka einarða afstöðu gegn óábyrgri stefnu í innflytjendamálum, áþekka þeirri sem Löfven hefur verið talsmaður fyrir. Það er fullkomlega örvænt um, að Sjálfstæðisflokkurinn sjái að sér í þeim efnum -- jafnvel Sigríður Á. Andersen er nú farin að mæla með "Open border"-stefnu hér!
Jón Valur Jensson.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 12.11.2019
Valhallarforystan, í bandi hjá vinstri öfgamönnum, vill enn bæta við 85 "flóttamönnum"!
Sjálfstæðisflokkurinn hefur smitazt af vinstrisýkinni í "stjórnarsamstarfi" með VG.
Í höfuðstöðvum SÞ hafa vinstri menn yfirtekið og pólitícerað stofnanir eins og Flóttamannastofnun, sbr. líka Marrakesh-samninginn, sem var ESB þókknanlegur og stjórnvöld hér voru svo léttvæg og skammsýn að samþykkja.
Sýrlendingum í flóttamannabúðum í Líbanon á fremur að hjálpa til heimflutnings og betra lífs þar en að dreifa þeim um allar jarðir.
Í Kenýa er ekki stríð, og við höfum ekkert að gera með "hinsegin flóttafólk" þaðan -- jafnvel nú þegar dæmi um áreitni sagðs homma þaðan við konu(r) hér! Það fólk er ekki í neinni lífshættu í Kenýa og vandi þess ekki okkar.
Það er ekkert allsherjar-borgarastríð lengur í Afganistan og Írak.
Bjarni Ben. hefur ekki aðeins kosið að lúta vilja Vinstri grænna í þessum málum --- ragur og dauðhræddur líka við "góða fólkið" í Samfylkingu --- heldur er jafnvel Sigríður Á. Andersen farin að tala um "að borgarar allra ríkja ættu að eiga sama rétt og ríkisborgarar EES, þ.e. að hafa frjálsa för til að sækja vinnu á Íslandi. Þetta þýðir í raun opin landamæri", eins og Jón lögmaður Magnússon bendir á í nýrri grein á Moggabloggi, og væri þá sigur No Borders-útsendara hér!
Nú er þörf á sameinuðu afli gegn þessum taumlausa innflutningi fólks, sem Ísland hefur ekki efni á að framfleyta, meðan við gerum illa við okkar eigið fátækasta fólk, sjúka og lífeyrisþega, og svo er gert ráð fyrir verulegum halla hér á næstu fjárlögum!
Já, nú er á öðru þörf en útvötnuðum, óþjóðlegum Sjálfstæðisflokki!
Fréttin um þessa nýju, furðulegu samþykkt ríkisstjórnarinnar um að "taka á móti 85 einstaklingum í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna" er einnig rædd hér á Eyjunni.
Jón Valur Jensson, á sæti í flokksstjórn ÍÞ.
Tekið verður á móti 85 flóttamönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 19.3.2019
Samherjar, takið eftir: Vorum að vinna sigur á Austurvelli :)
Það eru farsæl málalok, að þrýstingur margra olli því, að hneykslanleg mótmælaaðgerð No Borders-liða, hælisleitenda o.fl. róttæklinga heyrir nú sögunni til, tjaldið stóra farið og þeirra hafurtask sem setti ljótan svip á Austurvöll.*
https://www.facebook.com/groups/447238292142338/
Sjá líka fréttir hér: visir.is/g/2019190318796/sja-fram-a-brottvisanir-i-stad-samradsfunda og hér (með vælugangs-sniði No Borders-talsmanna í fyrirsögn Moggans): mbl.is/frettir/innlent/2019/03/18/motmaelin_farin_ad_bitna_a_heilsunni/
Já, það er víst betra að halda sig í hlýjunni á Ásbrú!
JVJ.
* Sbr. hér: jonvalurjensson.blog.is/blog/jonvalurjensson/entry/2232165/#comment3713196
Mótmælin farin að bitna á heilsunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 08:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 19.1.2019
Norðurlöndin eru fjarri því að vera hryðjuverkafrí
Hnífstunguárás á konu í verzlun í miðborg Óslóar í gær er nú rannsökuð sem hryðjuverkaárás. Rússneskur ríkisborgari var handtekinn fyrir verknaðinn.
- Sagðist vilja ráða marga af dögum
- Við yfirheyrslur reyndist framburður árásarmannsins þess eðlis að öryggislögreglan PST yfirtók rannsókn málsins í dag. Benedicte Bjørnland, forstöðumaður PST, segir manninn hafa komið til Noregs frá Svíþjóð í gærmorgun og hafi hann lýst því yfir hjá PST að ásetningur hans hefði staðið til þess að koma mörgum manneskjum fyrir kattarnef í hryðjuverkaárás.
- Hún segir of snemmt að tengja manninn við ákveðin hryðjuverkasamtök en segir framburð hans hafa orðið til þess að lögregla rannsaki málið sem hryðjuverk.
- Árásarmaðurinn gerði einnig tilraun til að stinga starfsmann á búðarkassa í Kiwi en hafði ekki erindi sem erfiði.
- PST gaf það út í áhættumati sínu í fyrra að mesta ógnin sem steðjaði að Noregi nú væru mögulegar árásir einstaklinga og hópa undir áhrifum íslamskrar öfgahugmyndafræði. (Mbl.is, leturbr.jvj)
Það er ekki að furða, með allan þennan þjóðahrærigraut í Skandinavíu. En í næsta landi, Svíþjóð, hefur arabíska nú tekið við af finnsku sem það tungumál sem næstflestir tala.
JVJ.
Hnífstunga í Ósló talin hryðjuverk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 06:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 9.12.2018
Yfirlýsing Íslensku þjóðfylkingarinnar vegna fólksflutningasáttmála SÞ
Íslenska þjóðfylkingin hafnar þeim SÞ-fólksflutningasáttmála sem ýmis ríki staðfesta 10. des. í Marokkó. Stjórnvöld vanræktu að láta þýða og kynna sáttmálann, þótt legið hafi hann fyrir í tvö ár!
Sáttmálinn hefur það markmið að tryggja stöðuga fólksflutninga landa á milli og miðar að því að fjölga íbúum Evrópu um a.m.k. tugi milljóna á hverjum áratug. Samþykkt sáttmálans er ekki sögð lagalega bindandi, yrði þó pólitískt bindandi eins og Mannréttindasáttmáli SÞ 1948. En þessi sáttmáli skerðir fullveldi landa sem samþykkja hann, m.a. um landamæravörslu, og yrði stórskaðlegur þjóðríkinu, þjóðtungunni þegar aðfluttum fjölgar, menningu og velferðarkerfi sem mundi sligast undan álagi. ÍÞ skorar á ríkisstjórnina að skrifa ekki undir og tekur undir kröfur margra um þjóðaratkvæðagreiðslu um hann.
Mörg ákvæði hans íþyngja þjóðríkinu og þrengja ótrúlega að tjáningarfrelsi einstaklinga og fjölmiðla, en gefa aðkomufólki forréttindi, m.a. til ólöglegs innflutnings án þess að upplýsa um þjóðerni, og fullan rétt til "fjölskyldusameiningar", þar með margföldun innflytjenda. Þá er kveðið á um að í allri kosningabaráttu beri að styðja við innflutning fólks. Ennfremur er staða islamssiðar og sjaríareglna tryggð!
Þetta er ekki sáttmáli sem miðast við velferð og öryggi Íslendinga eða réttmæta þjóðarhagsmuni, einungis hag og meintan rétt aðfluttra. Aðförin að tjáningarfrelsinu er hverjum valdamanni til ófrægðar sem samþykkir þennan kröfuharða sáttmála.
Stjórn Íslensku þjóðfylkingarinnar.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 20:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 7.12.2018
Engan fullveldisskerðandi og þjóðskemmandi SÞ-fólksflutningapakka hingað!
Á vef Útvarps Sögu -- utvarpsaga.is -- er nú spurt: "Á Ísland að skrifa undir Marokkóyfirlýsinguna?" Tökum þátt og mótmælum með því áformum fullveldis-svíkjandi pólitíkusa, því að með undirskrift SÞ-fólksflutninga-sáttmálans (sem margar þjóðir hafna*) myndu þeir opna hér allar gáttir á innflyjendaflóð úr Asíu og Afríku á næstu árum!
Þjóðtungan, velferðarkerfið og þjóðríkið eru hér í beinni, yfirvofandi hættu, verði þetta lið ekki stöðvað.
Arnþrúður á Útvarpi Sögu var að greina frá því (samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu), að utanríkisráðherra hafi ákveðið að senda ráðuneytisstjóra til Marokkó vegna undirskriftafundarins (hallelújasamkomu fjölmenningarhyggjunnar) í Marokkó 10. þessa mánaðar!!!
Sjálfstæðismenn, standið undir nafni og mótmælið við þingmenn ykkar og Valhöll með skæðadrífu netbréfa og hringinga. Það sama ættu allir árvakrir kjósendur að gera gagnvart þingmönnum sínum. HÉR er hægt að komast í netföng þeirra og símanúmer!
Og málið er enn alvarlegra en hér er komið fram, fyrir sjálft málfrelsi landsmanna!
Nánar verður fjallað um þetta mál hér e.h. á laugardag.
* Meðal ríkja, sem hafna þessum Sameinuðu þjóða-fólksflutninga-sáttmála, eru Ástralía, Austurríki, Bandaríkin, Búlgaría, Eistland, Ísrael, Króatía, Pólland, Slóvakía, Sviss, Tékkland, Ungverjaland. Önnur ríki, t.d. Danmörk og Noregur, munu ekki skrifa undir nema með alvarlegum fyrirvörum til að tryggja rétt sinn. Ítalía mun trúlega fresta ákvörðun um málið, enda er það víðast hvar lítt eða ekki rætt meðal þjóða, t.d. meðal Þjóðverja. Í Þýzkalandi, eins og víðar, m.a. hér á Íslandi, hafa stjórnmálamenn, fjölmiðlar og flestir álitsgjafar haldið uppi markvissri þöggun um málið!
Jón Valur Jensson (á sæti í flokksstjórn ÍÞ).
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 8.12.2018 kl. 16:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 9.9.2018
Vinna Svíþjóðardemókratar stórsigur í kosningunum í dag?
Víst er talið, að flokkurinn stórauki fylgi sitt, en í kosningunum 2014 fengu SD 12,9% atkvæða og 49 þingsæti af 349. Nú gætu þeir fengið um 19 eða jafnvel yfir 20% atkvæða, en það fer m.a. eftir því, hvaða áhrif það hefur, að flokkurinn ákvað að sniðganga SVT, þ.e. sænska ríkissjónvarpið, á lokadegi kosningabaráttunnar, eftir áberandi hlutleysisbrot fréttamanna þar. Við í Íslensku þjóðfylkingunni þekkjum sambærilega hlutdrægni sjónvarpsmanna hér á Íslandi kvöldið fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar.
Við í ÍÞ óskum Svíþjóðardemókrötum góðs gengis í þessum kosningum, um leið og við viljum hrósa flokksforystunni fyrir að hreinsa út nazistísk öfl sem höfðu komið sér fyrir í flokknum, en voru þó í raun aldrei fjölmenn.
Jón Valur Jensson.
Spilað upp í hendur Svíþjóðardemókrata | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 03:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 28.8.2018
Það sem svo margir vissu ekki um Hillary Clinton
Það eru margir sem virðast gleyma því að val bandarískra kjósenda við síðustu forsetakosningar þar í landi stóð á milli Donalds Trump og Hillary Clinton. Trump vann með því að vera kosinn af the deplorables eða hinum hörmulegu/ömurlegu samkvæmt Hillary Clinton, en það kallaði hún alþýðufólkið. Það er vel hægt að nálgast svar við spurningunni um hvernig komið væri málum ef Hillary hefði unnið, með því að lesa sér til um hana og um munnsöfnuð hennar og gjörðir.
Á bak við Hillary stóð peningavaldið, bankar og stórfyrirtæki og svo vinstri/ liberal elítan, en allt það lið styður alþjóðavæðinguna og opin landamæri á kostnað hins vinnandi manns, sem elítan lítur niður á.
Það fólk sem getur ekki á sér setið í Trump bashing eða endalausri tilbúinni gagnrýni sinni á Donald Trump Bandaríkjaforseta vill hins vegar alls ekki að minnst sé á orðsporið um óheiðarleikann sem yfirstéttarkonan Hillary Clinton hefur alla tíð borið með sér, enda oft kölluð Crooked Hillary eða hin spillta. Það sem því liði hefur á hinn bóginn tekist að gera er að bera út sögur um og mála myndir af Trump, sem fæstar eru að sýna sig að standist skoðun þegar nánar er að gáð með yfirvegun.
Án þess að fara nánar út í Trump sjálfan hér, þá sýnir sig glöggt að áróður hatursins eru ær og kýr hinnar ný-marxisku vinstri hámenningar og Sorosismans um eyðingu þjóðríkisins og þjóðlegrar og kristinnar borgaralegrar menningar sem hefur gefið bestu lífskosti allra tíma. Eins og því miður svo víða, þá sýna sömu "crooked" eigindir sig glöggt hér heima, ekki hvað síst með aðstoð skipulagðrar innrætingar pólitískra fjölmiðla eins og Rúv o.fl. Mér finnst það allt jafn ógeðfellt og það er vissulega hættulegt.
Kjartan Örn Kjartansson.
Sakar Google um að hagræða niðurstöðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 8.8.2018
Saudi-Arabar bregðast hart við gagnrýni Kanada með mynd sem minnir á árásina á Tvíburaturnana!
Víða gætir viðkvæmni um islam. Boris Johnson hafði ekki fyrr hafnað búrkubanni í stíl Dana en hann lét orð falla sem móðga múslimavini, jafnvel Theresu May, sem krefst afsökunarbeiðni, sem Boris hafnar!
Saudi-Arabar brugðust hart og illa við áskorun Kanadastjórnar um að baráttumenn fyrir mannréttindum yrðu leystir úr haldi:
Ríkisstjórnin í Riyad tilkynnti, að sendiherra Kanada yrði rekinn heim;
ennfremur að hætt yrði við nýjan viðskipta- og fjárfestinga-samning við Kanada,
og saudi-arabíska sjúklinga lætur stjórnin í Riyad taka út af spítölum í Kanada til að senda þá til annarra landa!
Nokkrum klukkustundum síðar tísti stofnun, hlynnt saudi-arabískum stjórnvöldum, færslu þar sem sýnd var mynd af Air Canada-flugvél sem stefndi beint á hæstu byggingu Toronto, CN-turninn (heimild: ný frétt í The Guardian: Saudi group posts photo of plane about to hit Toronto´s CN tower amid spat with Canada). Þessi stofnun (organization) hefur síðan beðizt afsökunar á færslunni.
Hér er mynd af háhýsunum miklu í Toronto:
Theresa May forsætisráðherra tók undir áskoranir á hr. Johnson að biðjast afsökunar og sagði að athugasemdir hans hefðu "clearly caused offence" (greinilega misboðið mönnum). Hann hefði notað ranga orðræðu um lykil-málefni, "women´s ability to wear the burka, if they choose to do so; that should be a matter for a woman to choose" (heimild). (Ekki er danska þingið á sama máli, og þær raddir heyrast líka í Bretlandi sem krefjast búrkubanns, sbr. þessa grein í The Telegraph, birta kl. 22 þennan þriðjudag, 7. ágúst: Allison Pearson: Dont ban Boris ban the burka!)
En í beinu framhaldi af mótmælum frú May:
But a source close to Mr Johnson said he "won´t be apologising", adding it was "ridiculous" to attack his views.
"We must not fall into the trap of shutting down the debate on difficult issues," the source added.
"We have to call it out. If we fail to speak up for liberal values then we are simply yielding ground to reactionaries and extremists."
Johnson ´won´t apologise´ for burka comments
The former foreign secretary stands by his remarks despite the Tory chairman telling him to apologise. (BBC.co.uk, heimildin um þetta mál, einnig https://www.telegraph.co.uk/politics/2018/08/07/boris-johnson-told-apologise-tory-party-chairman-brandon-lewis/)
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 04:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)