Færsluflokkur: Evrópumál
Föstudagur, 29.6.2018
ESB settur stóllinn fyrir dyrnar af þörfum princípmönnum!
Það borgar sig fljótt fyrir Evrópuþjóðir þegar stjórnvöld í löndum þeirra sýna að þau hafi bein í nefinu gegn ofríki Evrópusambandsins, m.a. í málum flóttamanna og hælisleitenda. Nú hafa Ítalir velt þungu hlassi ESB og haft sín áhrif með tvennum hætti á ákvarðanir á leiðtogafundi ESB í gærkvöldi og fram á nótt. Þetta var hálfgerður neyðarfundur, enda liggur ríkisstjórn Þýzkalands jafnvel við falli vegna þessara mála, Merkel talar sjálf um það flóttamannamálið geti ráðið úrslitum um framtíð bandalagsins! og innanríkisráðherra hennar, formaður kristilega systurflokksins í Bayern, hótar að loka landamærunum algerlega fyrir flóttamönnum, ef ekki næst önnur skapleg niðurstaða.
Aðildarríkjum ESB verður frjálst að opna lokaðar miðstöðvar fyrir flóttamenn. Í þeim eiga þeir að bíða þar til unnið hefur verið úr hælisumsóknum þeirra. Þessi nýja nálgun þykir minna á þær aðferðir sem beitt hefur verið í Bandaríkjunum að undanförnu (mbl.is).
Og þetta var ákveðið á leiðtogafundinum í nótt! Ennfremur var "í nótt bætt sérstakri yfirlýsingu við samkomulagið um að skip sem bjargi flóttafólki úr sjávarháska á Miðjarðarhafi verði að fylgja alþjóðalögum. Þetta [er] sigur fyrir forsætisráðherra Ítalíu sem hefur neitað að leyfa slíkum skipum að koma að höfnum í landinu" (mbl.is, byggt á orðum Adams Fleming, fréttamanns BBC í Brussel.
Þessum jákvæðu ummerkjum um gagnsemi andófs ýmissa ESB-ríkja (einkum, hingað til, í Mið-Evrópu, að meðtöldu Póllandi) ber að fagna. En Ítalía er þriðja stærsta efnahagskerfi Evrópusambandsins. Það verður spennandi að fylgjast með framvindu þessara mála og hver úrslitin verða í Þýzkalandi, jafnvel nú um helgina.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Heimila lokaðar miðstöðvar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 28.6.2018
Óhófleg fjölgun og hryðjuverk múslima í Evrópu stuðla að sundurlyndi, árekstrum og herskárri stefnu andstæðinga
Lítt þekktur öfgahópur, Action des Forces Operationnelles, hvetur Frakka til að berjast gegn múslimum. 10 manns, 32-69 ára, voru handtekin í aðgerðum lögreglu, grunuð um undirbúning árásar á múslima og dregin fyrir dómara í gærkvöldi,
ákærð fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverk, samkvæmt heimildum AFP-fréttastofunnar. Nokkrir úr hópnum voru einnig ákærðir fyrir brot á vopnalögum og að hafa haft sprengjubúnað í fórum sínum.
Rifflar, skammbyssur og heimatilbúnar handsprengjur voru meðal þess sem lögreglan lagði hald á í húsleitum í París, á eyjunni Korsíku og víðar (mbl.is).
Við slíku má búast af þeim öfgamönnum sem harðastir eru gegn útþenslu múslimskra áhrifa í Frakklandi, en þar eru sennilega yfir 6 milljónir manna af þeim trúflokki.
Það stuðlar ekki að samheldni meðal Evrópuþjóða að taka við í allt of miklum mæli innflytjendum frá Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku, enda eru mörg önnur svæði heims í meiri þörf fyrir aðstoð ríkra Evrópuþjóða. Og hryðjuverk öfgamúslima í Evrópu munu líklega, samkvæmt alkunnu pendúlslögmáli, ekki einungis gera þjóðirnar meira vakandi gagnvart mistökum sinna eigin stjórnmálamanna og fylgjandi flokkum, sem boða hér varúð og skynsamlega hófsemdarstefnu, heldur einnig ýta undir andstæð öfgaöfl, eins og sýnt hefur sig þarna í Frakklandi. Og þá var illa af stað farið hjá evrópskum stjórnmálamönnum, ef þeir voru með skammsýnum aðgerðum sínum að stuðla að því, að menn fari að láta vopn og sprengjur verða sín ofbeldisúrræði í stað þess að leggjast á sveif með upplýstri umræðu. En svo einþykkir eru margir vinstri menn og "frjálslyndir" í sinni öfgafullu innflytjendastefnu, að það er varla hægt að koma fyrir þá vitinu lengur. Harðar staðreyndir, eins og fallandi gengi vinstri flokka í kosningum ýmissa landa og uppgangur t.d. Svíþjóðardemókratanna, sem orðið gætu næststærsti flokkur þess lands í haust (viðurkennt í Rúv í hádeginu), gætu hins vegar orðið sú lexía sem þessir skoðanafreku vinstri menn þurfa á að halda.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Undirbjuggu árás gegn múslimum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 12.6.2018
Gegn stjórnarskrá!
Ef alþingi samþykkir persónuverndarfrumvarpið (ESB-lög), er það brot á stjórnarskránni. Forseta vorum ber að hafna því og setja það í þjóðaratkvæðagreiðslu. Söfnun undirskrifta til forseta Íslands þarf að fara fram þegar í stað til að koma í veg fyrir slíkan ófögnuð.
Með því að afsala stjórnvaldi og æðsta dómsvaldi yfir til annars stjórnvalds, dómstóls eða ríkis er framið brot á stjórnarskránni. Þetta þyrftu alþingismenn að vita áður en þeir samþykkja lög sem veita slíkt vald.
Guðmundur Þorleifsson, formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 17.5.2018
Erlend fyrirtæki eiga ekki að eignast hér heilu firðina og auðmenn ekki hálfu hreppana!
Stórtæk ásælni erlendra auðmanna og fyrirtækja í jarðeignir hér og sjávarútvegsfyrirtæki á ekki að líðast. Stjórnmálamenn Fjórflokksins hafa verið sofandi í þessum málum. Auðugasti Bretinn á hér miklar jarðeignir. Norsk fiskeldisfyrirtæki teygja hingað arma sína, með áformum sem gætu stefnt laxastofnum hér í hættu, og enn berast fregnir af því (síðast í þessari viku) að sjóeldislaxar hafi sloppið hér í margar ár. Þessu til viðbótar er svo hættan á því, að þessi norsku fyrirtæki eignist hér heilu firðina!
Stjórnarskráin hefur ákvæði okkur til varnar í þessum málum, í 72. grein, en stjórnvöld þurfa þá líka að vera fús til að beita þeim. Íslenska þjóðfylkingin er andvíg þeim EES-samningi, sem heimilar ESB-borgurum víðtækar fjárfestingar hér. Og hvorki kínverska ríkið (með lepp að vopni) né aðrir útlendingar eiga að hafa heimild til að kaupa hér upp dýrustu og víðfeðmustu jarðeignir, eins og Bretinn komst upp með á Grímsstöðum og í Vopnafirði og annar (þýzkur auðmaður) í Mýrdal.
Eins ber að tryggja, að íslenzk sjávarútvegsfyrirtæki komist aldrei í eigu erlendra stórfyrirtækja.
Enn frekari rök gegn EES-samningnum hafa verið að koma fram síðustu mánuðina og fram á þennan dag! (sjá neðar). Glæsileg hefur barátta Bjarna Jónssonar rafmagnsverkfræðings gegn ACER-málinu verið, í greinum hans í Morgunblaðinu og á Moggabloggi hans, sem og þeirra félaganna í samtökunum Frjálst land. Málið gengur út á að hafna ásælni Evrópusambandsins (með EES-samninginn að vopni) í yfirráð yfir orkunýtingu íslenzkra fallvatna og annarra orkulinda til að eiga færi á að sena rafmagn héðan um sæstreng til Skotlands, en afleiðingin yrði stórhækkun raforkuverðs til íslenzks almennings og fyrirtækja, jafnvel allt að tvöföldun verðssins. Þessu hafna í raun 80% þjóðarinnar skv. skoðanakönnun (sem Bjarni o.fl. hafa gert grein fyrir), en eins og norskir stjórnmálamenn brugðust í málinu, þá gæti það sama gerzt hér, því að ýmsir hér, bæði embættis- og stjórnmálamenn, virðast hræddir við að andmæla valdastéttinni í Brussel og stórveldunum sem standa að Evrópusambandinu.
Nýjasta fréttin er svo sú, að frumvarpið sem liggur fyrir Alþingi um löggjöf um persónuvernd, frumvarp sem felur í sér innleiðingu á Evrópulöggjöf í þeim málaflokki, gæti orðið íslenzkum sveitarfélögum og stofnunum skeinuhætt í meira lagi! Heimilt yrði skv. ákvæðum frumvarpsins "að leggja á gífurlega háar stjórnvaldssektir", og "beiting þeirra myndi sliga mörg sveitarfélög," eins og fram kemur í forsíðufrétt Morgunblaðsins í dag (sjá nánar þar í lengri grein Ómars Friðrikssonar blm. á bls. 44). Samkvæmt frumvarpinu "getur Persónuvernd lagt á stjórnvaldssektir sem nema allt að 2,4 milljörðum króna eða 4% af veltu, hvort heldur er hærra"! Álagning ofursekta af þessu tagi, t.d. á sveitarfélög, sem "fara með mikið af viðkvæmum persónuupplýsingum," á sér engin fordæmi gagnvart opinberum aðilum, segir í sömu frétt. Dæmi er þar tekið af Reykjavíkurborg, þar sem heildarveltan er 177 milljarðar króna, "og 4% af þeirri upphæð losar sjö milljarða" í stjórnvaldssekt!!!
Þetta er eitt af fleiri dæmum um að við sem smáþjóð eigum ekkert erindi í þetta Evrópusamband né að vera háð því um neitt af löggjöf okkar. Annað augljóst dæmi er hið nýja innistæðutryggingakerfi ESB, sem gæti orðið Íslendingum mjög þungbært, ef til þess kæmi að bankar yrðu hér gjaldþrota eins og í bankakreppunni 2008. Og samkvæmt umræðu um hugsanlegt ofris markaðarins, er eins gott að taka ekki slíka áhættu á þungbærum álögum vegna óþarfrar ESB-löggjafar. Við eigum að sníða okkur stakk eftir vexti, ekki reisa okkur hurðarás um öxl með lagaákvæðum sem henta kunna stórveldi, en ekki smáríki.
Jón Valur Jensson.
Evrópumál | Breytt 18.5.2018 kl. 01:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 13.4.2018
Fölsunum af ýmsu tagi beitt til að koma hælisleitendum og meintu flóttafólki til Íslands o.fl. landa; ISIS hefur hagnazt á fölsunum
Sjö falsanir skilríkja komast nú upp í Flugstöð Leifs Eiríkss. í mánuði hverjum, 21 í jan.-marz, aldrei verið fleiri þann árstíma, og tvær í viðbót 1.-12. apríl. Albanir eiga helzt í hlut.
Fölsuð gifting er einnig hér í kortunum, sem og tilbúin vegabréf, sem jafnvel hryðjuverkahópar framleiða sér til hagnaðar (ISIS, Ríki islams, t.d., skv. nýlegri frétt), án efa ekki til að bæta atvinnuástand í löndum sínum, heldur til að fjármagna eigin glæpastarfsemi (m.a. níðingshátt gagnvart kristnum konum og jasídum) og undirbúning næstu hryðjuverka, með tilstyrk eigin liðsmanna sem til dæmis er lætt inn í Evrópu á fölsuðum skilríkjum.
Sjá um það fyrstgreinda hér: frétt mbl.is: Metfjöldi gripinn með fölsk skilríki (92 slík mál komust upp í flugstöðinni í fyrra), en hér er önnur frétt frá í gærkvöldi: Skipulögð glæpasamtök koma að giftingum Útvega fölsuð skjöl og flytja fólk á áfangastað. Þetta gerist jafnvel í nágrannalandi okkar Danm0rku:
En eins og í mörgu öðru þá koma skipulögð glæpasamtök við sögu í þessum geira. Þau sjá um að útvega fólki fölsuð skjöl og jafnvel koma því til Danmerkur þar sem hjónavígslan fer síðan fram. Þetta gera glæpasamtökin ekki af manngæsku einni saman því peningar eru drifkrafturinn eins og í mörgu öðru. Verðandi hjón greiða fyrir þjónustuna en það að ganga í hjónaband í Danmörku getur auðveldað fólki að fá dvalarleyfi í öðru aðildarríki ESB. (Kristján Kristjánsson blm. í DV, nánar þar.)
Við Íslendingar höfum fullan rétt á að standa gegn þessari ásókn falsara og lögbrjóta, hvað sem nefbeinslausum pólitíkusum finnst, þeim sem samþykktu í vitvana óráði útlendingafrumvarp samið undir afleitri verkstjórn Óttars Proppé (eins fallistans við síðustu kosningar).
Ekki eru þau skárri "skeggjuðu börnin" sem hingað laumast skilríkjalaus og vilja leggjast hér upp á kerfið, eru í reynd stórvarasamir menn á stríðsmanna-aldri í Sýrlandi, en teknir vettlingatökum af áhrifafólki í innflytjendakerfinu, og dusilmenni mæla jafnvel gegn því að þeir séu látnir undirgangast aldursgreiningu með tannsýni eða öðru móti.
Eins og einn frambjóðandi Íslensku þjóðfylkingarinnar til borgarstjórnar, Árni Thoroddsen kerfisfræðingur, orðar það: "Það verður að gæta þess, að þeir sem koma hingað séu a.m.k. löglegir."
Arfaslappri útlendingalöggjöf Alþingis er helzt um það að kenna, hve straumur hælisleitenda hingað hefur verið stríður á síðustu misserum. Fréttin af linkind ráðamanna hér spurðist lengst suður í álfur og jók þann straum verulega um tíma, einkum frá Albaníu, Makedóníu og Kosowo, sem öll eru múslimalönd að meirihluta. Stjórnvöld hér hafa verið að búa sér til vandamál og sjálfselskur her lögfræðinga makað krókinn á þessu, með tugmilljónatekjum sem lenda á ríkissjóði og borgarsjóði. Svo standa marbendlar vinstri flokkanna glottandi hjá, bæði þingmenn og álitsgjafar, og finnst aldrei nóg komið!
Þá er affarasælla að fara að ráði Viktors Orban, hins sigursæla forsætisráðherra Ungverjalands, sem trúr miðevrópskri reynslusögu af ágangi múslima lokar einfaldlega dyrunum á allan ágang frá þeim og öðrum sem vilja setjast upp á velferðarþjónustu landsmanna, og er það landinu hagkvæmast bæði í bráð og lengd. Eins er um Pólland, að þar er svo hressilega staðið að verki í þessum landvörnum, að gert er ráð fyrir, að þar fjölgi múslimum aðeins úr 0,1% landsmanna í 0,2% árið 2050. Á sama tíma er áætlað, að múslimum í Þýzkalandi fjölgi úr um fimm milljónum, þ.e. á sjöunda prósent íbúa, í um 20% árið 2050, en í Danmörku upp í 16% og í Svíþjóð í 30,6%, sjá nánar pistilinn: Múslimar verða um 20% íbúa Þýzkalands eftir aðeins 32 ár, 18% íbúa Frakklands, 17% íbúa Bretlands og Noregs og 30,6% íbúa Svíþjóðar! og tilvísun þar á ýtarlegri grein.
Angela Merkel og Stefan Lövfgren geta reynt að réttlæta eigin gjörðir í löndum sínum með léttvægu snakki og jafnvel reynt með ofríki að troða sömu stefnu upp á gömul austantjaldslönd í gegnum sitt Evrópusamband, en alþýða þessara landa vill ekkert með þetta hafa, vill ekki láta kúga sig, eins og sýndi sig bezt í kosningunum í Ungverjalandi, sem þó er reynt að afflytja bæði í Rúv, leiðara Morgunblaðsins og í klisjukenndri grein óþekktrar blaðakonu í nýútkomnu blaði vinstrimennskunnar, Mannlífi. En eins og þessar gömlu austantjaldþjóðir hafa þegar áttað sig á, þá mun dómur sögunnar sízt verða vilhallur þessum islamsvinum ábyrgarlausra vinstri og hægri flokka Vestur-Evrópu.
Íslenska þjóðfylkingin hefur fagnað sigri Viktors Orban í kosningunum, eins og hér má sjá á Facebók flokksins.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Metfjöldi gripinn með fölsk skilríki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 9.4.2018
Viktor Orban vinnur enn kosningar, verður forsætisráðherra Ungverja í 3. sinn í röð
Fidesz, flokkur forsætisráðherrans og þjóðernissinnans Viktor Orban, er með um helming atkvæða og mikinn meirihluta þingsæta í kosningunum í Ungverjalandi. Hann verður nú forsætisráðherra þriðja kjörtímabilið í röð.
Flokkur Orbans var með rúmlega 49% atkvæða þegar 64% atkvæða höfðu verið talin. Kjörsókn var tæp 69%, en um 7,9 milljón Ungverja eru á kjörskrá. (Mbl.is)
Nach Schätzungen von Wahlforschern wird Fidesz auf 133 Mandate im 199-sitzigen Parlament kommen und erreicht damit eine Zweidrittelmehrheit. "Wir haben gewonnen, Ungarn hat einen großen Sieg errungen", rief Orbán seinen jubelnden Anhängern zu.
Damit kann Orbán zum dritten Mal allein regieren. Orbán regiert seit 2010, es wäre seine vierte Amtszeit. Vor vier Jahren hatte Fidesz mit 43 Prozent der Stimmen 133 Mandate und damit eine verfassungsändernde Zweidrittelmehrheit gewonnen. (Die Zeit)
Hann hefur því stóraukið fylgi sitt meðal þjóðarinnar og í ungverska þinginu. Það ætti að senda ráðamönnum í Brussel ótvíræð skilaboð um að þeirra stefna í innflytjendamálum er óvinsæl og stenzt ekki til lengdar.
Fidesz-flokkurinn hefur orðið æ íhaldssamari, þjóðernissinnaðri og einarðari í afstöðu sinni gegn innflytjendum, flóttafólki og afskiptum Evrópusambandsins af innri málefnum Ungverjalands undanfarin ár.
Kjörstaðir opnuðu klukkan sex í morgun í mætti Orban sjálfur snemma á kjörstað í Budapest. Þetta er land sem hefur alltaf staðið sig, þannig að við getum treyst fólkinu og ég mun sætta mig við ákvörðun þeirra, sagði Orban. (Mbl.is)
Þessum niðurstöðum munu allir þeir, sem vilja ekki frekari landvinninga islams í Evrópu, fagna.
Í annarri grein í Die Zeit, frá síðastliðnu sumri, kemur fram, að Viktor Orban er "der cleverste Nationalist innerhalb der [Europäischen] Union" og leikur sér að því að komast þangað sem hann vill.
JVJ.
![]() |
Flokkur Orban með meirihluta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 27.10.2017
Afhjúpaðir ráðherrar
Tveir frambjóðenda hafa, hvor með sínum hætti, verið afhjúpaðir í kosningabaráttunni, annar fyrir margfaldar lygar um vaxta- og verðlagsmál, hinn fyrir svæsna andstöðu við stefnu Þjóðkirkjunnar um lífsvernd ófæddra þrátt fyrir að flokkur hans hafi iðulega látið sem kristinn væri í áherzlum sínum!
Þorsteinn Víglundsson skrökvaði því dögum saman opinberlega, að vaxtamunur væri þvílíkur milli Íslands annars vegar og Danmerkur og Svíþjóðar hins vegar, að fjölskylda með 20 milljóna áhvílandi íbúðarlán væri að borga hér 160.000 krónum meira mánaðarlega í vexti á Íslandi en í hinum löndunum!! Einfaldur útreikningur sýndi risa-feil í þeirri fullyrðingu: 5% vextir plús bæði verðbætur og vextir af verðtryggðu 20 milljóna íslenzku Íbúðalánasjóðsláni nema samtals 89.900 krónum. (Frá því dragast svo líklegar vaxtabætur.) En t.d. í Svíþjóð ætti menn alls ekki kost á langtímaláni með 0% vöxtum, heldur um 1,7%, þó með ákvæði um endurskoðun ef verðbólga eykst, en ella á láni með föstum vöxtum upp á 2,7%.
Í morgun féll inn um bréfalúguna áróðurspési frá Þorsteini og félögum hans í "Viðreisn". Þar er hann skyndilega búinn að skera niður helminginn af 160.000 króna ofurlygi sinni! "Heimili með 20 milljóna króna fasteignalán gæti sparað allt að 80.000 kr. á mánuði með lægri vöxtum." En einnig það er lygi, eins og komið er fram hér ofar!
Svo má minnast þess, að meðan flokksmaður Þorsteins, Benedikt Jóhannesson, hefur stýrt fjármálaráðuneytinu, hefur hann ekkert gert til að fá Seðlabankann til að lækka stýrivexti og ekkert stuggað við okurvaxtasinnanum Má Guðmundssyni. Hvort tökum við mark á orðum manna eða verkum? Samt leyfa þeir sér að segja á áróðursskiltum: "Lægri vextir eru stærsta velferðarmálið"! --Þar neyta þeir þess vitaskuld, að þeir eru búnir að hita upp fyrir tiltrú manna á þau orð með ofangreindum ofurlygum um vaxtamuninn hér og í Svíþjóð. En með þessu eru þeir raunar einnig að freista þess að ýta undir vantrú manna á krónuna og á lýðveldið og mýkja menn gagnvart Evrópusambandinu (þótt vextir séu ekki ákveðnir þar!), því að hinu þora þeir ekki: að boða beinlínis inntöku Íslands í það stórveldi, vitandi sem er, að í meira en átta ár samfleytt hefur verulegur meirihluti Íslendinga verið andvígur því í öllum skoðanakönnunum!
Í sama pésa skrökvar Þorsteinn svo þessu:
"Útgjöld vegna matarkaupa hjá fjögurra manna fjölskyldu eru um 80.000 kr. hærri á Íslandi en hjá nágrannaþjóðum okkar. Ástæðan er mun hærra verð á landbúnaðarvörum hérlendis."
Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Bændasamtaka Íslands, gæti nú aldeilis tekið Þorstein í karphúsið fyrir þessi fráleitu ummæli. Sjálfur bendir undirritaður á, að matarkarfan kostar ekki nema um 14% af meðalútgjöldum fjölskyldna, og þar er stór hluti fyrir innflutt matvæli. Þorsteinn kæmist seint upp í 80.000 króna verðmun mánaðarlega á landbúnaðarvörum hér og í Skandinavíu!
Guðlaugur Þór Þórðarson, sem er efstur á D-lista í Rvík-norður, misnotar ríkisfé til að stuðla að fósturvígum í massavís í 3. heiminum, gefur skattfé okkar til alræmdra fósturdeyðinga-samtaka, International Planned Parenthood, sem stofnuð voru af rasista, Margaret Sanger, sem skrifaðist á við þýzka nazistaforingja fyrir seinni heimsstyrjöld.
Donald Trump Bandaríkjaforseti tók sem betur fer 100 milljóna dollara árlegan alríkisstyrk af þessum mikilvirku fósturvígssamtökum, en viðbragð Guðlaugs Þórs var að fordæma þá ákvörðun forsetans og að lofa milljónastyrk úr ríkissjóði Íslands til sömu samtaka! Til þess hafði hann EKKERT UMBOÐ frá kjósendum sínum við kosningarnar 2016 og hefur ekki þorað að leita eftir slíku umboði fyrir þessar kosningar heldur!
En afstaða hans mótstríðir berlega opinberri stefnu íslenzku Þjóðkirkjunnar.
Á Kirkjuþingi íslenzku Þjóðkirkjunnar 1987 var þetta samþykkt einróma:
- "Rétturinn til lífs er frumatriði allra mannréttinda. Þá kröfu verður að gera til ríkisvaldsins, að það verndi mannlegt líf og efli meðal almennings vitundina um mannhelgi.
- Löggjöf, sem í raun gerir hið ófædda líf réttlaust, brýtur gegn því grundvallarsjónarmiði kristindómsins, að sérhver einstaklingur eigi rétt til lífs, allt frá upphafi og þangað til dauðinn ber að dyrum með eðlilegum eða óviðráðanlegum hætti.
- Kirkjuþing skírskotar til frumvarpa um breytingu á lögum nr. 25 frá 22. maí 1975 og lögum nr. 67/1971 með áorðnum breytingum, sem flutt hafa verið, og frumvarps sem boðað er.
- Vill Kirkjuþing skora á Alþingi að breyta umræddum lögum í þá veru, að friðhelgi mannlegs lífs sé viðurkennd."
Í skjölum sama Kirkjuþings árið 1987, þ.e. í greinargerð með ofangreindri samþykkt, segir sömuleiðis orðrétt:
- "Kirkjuþing telur því brýna nauðsyn bera til, að lög kveði á um friðhelgi mannlegs lífs, tryggi rétt þess jafnt fyrir sem eftir fæðingu."
Og ekki nóg með það, heldur einnig þetta:
- "Legvatnsrannsóknir og kannanir á ástandi fósturs má ekki framkvæma í öðru augnamiði en því að verða að liði, lækna, sé þess þörf og það mögulegt. Hitt má aldrei vaka fyrir að svipta barnið lífi, virðist eitthvað að."
Prestastefna Íslands, sem lauk í Langholtskirkju 24. júní 1988, tók undir þessa ályktun kirkjuþings 1987 varðandi lög um fóstureyðingar.
Guðlaugur Þór Þórðarson hefur hins vegar gengið gegn þessum samþykktum kirkjunnar bæði í orði og verki, talað eins og konur hefðu einhliða rétt til að láta eyða burði sínum og látið vera að mótmæla því, að þingmenn, fulltrúar alls Sjöflokksins á þingi, hafa talað loflega um þá stefnu, að lengja megi drápstímann á ófæddum börnum úr 12 upp í 22 vikur, þ.e. alla fyrstu fimm mánuði meðgöngu!!!
Hér má hins vegar minna á stefnu Íslensku þjóðfylkingarinnar um þessi mál:
Ófædd börn eiga rétt til lífsins. Flokkurinn tekur einarða afstöðu gegn nýframkomnum hugmyndum um róttækar breytingar á fóstureyðingalöggjöfinni og mun taka á þessum málum með það að markmiði að draga sem mest úr fóstureyðingum.
Að lokum má benda kjósendum í Rvík-norður (kjördæmi Guðlaugs Þórs) á, að lífsverndarsinni, dr. Ólafur Ísleifsson, er efsti maður þar á lista Flokks fólksins. Hann er einnig, eins og sá flokkur, andvígur inntöku Íslands í Evrópusambandið, og ennfremur vilja þau (Inga Sæland og allur flokkur hennar), að hér verði tekin upp norska 48 tíma afgreiðslureglan á málum hælisleitenda. Sú hefur einmitt verið stefna Íslensku þjóðfylkingarinnar allt frá fyrsta landsfundi hennar sumarið 2016.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 28.10.2017 kl. 03:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 4.10.2017
Stóð VG með þjóðinni í vinstri stjórninni? Ef ekki, stóð VG a.m.k. með verkalýðnum? NEI, HVORUGT!
Með Icesave, sem Steingr.J. og félagar böðluðust í fyrir Breta og ESB, og með svikum hans & Co. með ESB-umsókn voru framin landráð gegn þjóðarhagsmunum, "Skjaldborgin" svikin og full þátttaka VG í Árna Páls-lögum! Á svo að kjósa þennan svikaraflokk öðrum flokkum fremur?! Kjósa menn út á andlitslyftingu frá Steingrími til Katrínar? En hún tók fullan þátt í öllum þessum svikum flokksins við íslenzka þjóð og almenning!, í Icesave-I, II og III og ESB-málinu, eins og Alþingistíðindi eru órækur vitnisburður um (hvernig hún greiddi atkvæði), allar eru þær upplýsingar fyrirliggjandi á netinu!
Um 9.000 fjölskyldur voru sviptar heimilum sínum og að miklu leyti hraktar úr landi. Vinstri græn hreyfðu ekki legg né lið til varnar þeim! Þessi flokkur er heppinn að margir burtfluttir til Skandinavíu eru nú skráðir þar með lögheimili og geta ekki kosið í þessum kosningum! Einnig skáru þau Steingrímur J. niður laun eldri borgara. En þau Katrín & Co. þiggja hins vegar 43% launahækkun til sjálfra sín!
En eru Vinstri græn samt orðin ábyrgari "síðan þá"? Eru þau til dæmis með ábyrga innflytjendastefnu? Ekki er of seint að skoða það! Opinber stefna VG:
"Við eigum að taka á móti umtalsvert fleiri flóttamönnum, að lágmarki 500 á ári Jafna þarf aðstæður hælisleitenda og svokallaðra kvótaflóttamanna og tryggja fullnægjandi framkvæmd nýrra útlendingalaga með fjármagni og mannafla."
Nú verða hælisleitendur langt yfir 1000 á árinu; VG vill jafna rétt þeirra á við kvótaflóttamenn og landsmenn sjálfa; það gæti leikandi merkt 1500 manna fjölgun með þessu móti árlega og ekki færri en 6.000 slíkir innflytjendur (að miklu leyti múslimskir) á því komandi kjörtímabili sem þau vilja fá að vera leiðandi í ríkisstjórn!
Er þetta það sem þjóðin vill?!
Sjá einnig hér: Steingrímur J. Sigfússon sveikst aftan að þjóðinni með kosningaloforði sínu í Sjónvarpi kvöldið fyrir kjördag 2009 (myndband afhjúpar hann!)
Vinstri maður kvartar yfir Katrínu Jakobsdóttur sem forsetaframbjóðanda
Jón Valur Jensson.
![]() |
VG langstærsti flokkurinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 23.9.2017
Ábyrgðarlaus innflytjendastefna Vinstri grænna
VG hefur það sem yfirlýsta stefnu að við Íslendingar "eigum að taka á móti umtalsvert fleiri flóttamönnum, að lágmarki 500 á ári. Jafna þarf aðstæður hælisleitenda og svokallaðra kvótaflóttamanna og tryggja fullnægjandi framkvæmd nýrra útlendingalaga með fjármagni og mannafla," segir í stefnuskrá flokkksins.
Er þetta nú skynsamleg stefna? Hælisleitendur tvöfölduðust rúmlega í fjölda (í nær 800) fyrstu átta mánuði þessa árs, miðað við sama tíma í fyrra. Vinstri græn vilja gleypa við þessu fólki, að miklu leyti múslimum, og bæta við 500 kvótaflóttamönnum að auki, einnig að miklu leyti múslimum!
Hvernig komst það inn í marx-lenínískar kokkabækur Steingríms J. Sigfússonar að hingað mættu flytjast um 1000-1500 múslimar á hverju ári? Eða er það góðmennið með fallega brosið hún Katrún Jakobsdóttir sem fekk að ráða þessu á síðasta landsfundi flokksins?
Hvernig ætla Vinstri græn að fjármagna þessi ósköp? Hvað ætla þau að dæla mörgum tugum milljarða króna í þetta árlega? Og af hverju geta þau ekkert lært af norrænum frændum okkar um að fara beri varlega í alla fjölgun múslima úr þessu?
Og hyggur Katrín Jakobsdóttir að það muni auka kvenréttindi og öryggi ungra stúlkna (bæði gagnvart kynferðislegri áreitni og sársaukafullri umskurn meybarna) hér á landi að fá hingað flóðbylgju múslima? Verður það einnig til að tryggja öryggi samkynhneigðra? Og hvernig getur hún ábyrgzt, að hér verði hinn öfgakenndi salafismi (og wahhabítismi) ekki ráðandi stefna í moskunum tveimur? En þær eru nú að fá samþykkta tvo bænaturna, 11 og 30 metra háa, til að kalla saman múslima til bæna, karlmenn reyndar sér og konur í bakrými.
Hvað er það sem heillar VG svona við þetta allt saman? Finnst þeim kannski spennandi, að eftir því sem heittrúuðum múslimum fjölgar hér, verður auðveldara fyrir öfgaislamista að leynast meðal þeirra, þess vegna ISIS- eða al-Qaída-liða, sem reiðubúnir eru til að hlýða fyrirskipunum um að ráðast á "hina vantrúuðu", þ.e. kristna menn, og láta tilganginn helga meðalið í því efni? -- engu síður en Lenín gerði fyrir einni öld!
Jón Valur Jensson.
![]() |
VG stærsti flokkurinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 6.5.2018 kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 25.8.2017
Viljum við svona sýndarmennsku-stjórnmálamenn?
Frönsku forsetarnir Macron, Hollande og Sarkosy eiga það sameiginlegt að hafa sólundað af ríkisfé í það að láta sminka sig og farða! Rakari Hollandes fekk 12,6 millj.kr. árlega úr ríkissjóði. Kona hans var á háum ríkislaunum, Macron vildi einnig ráða sína í forsetahöllina. Hann er fyrir vikið hrapaður niður í það að vera óvinsælli en Trump Bandaríkjaforseti, sá sem manna mest er rægður nú um stundir í fréttastofum heims.
Sarkozy eyddi 8.000 evrum, einni milljón króna, á mánuði í förðun þegar hann gegndi embætti forseta! Þvílík pjattrófa!
Um þetta hafði verið fjallað í Vanity Fair, og er það einmitt við hæfi!
En hreykjumst ekki upp gagnvart Frökkum; gætum fremur að okkar eigin yfirstétt, eins og seðlabankastjóranum og ýmsum ráðherrum sem þiggja óverðskulduð laun og fríðindi á kostnað skattgreiðenda. Það sama á við um borgarfulltrúa og varaborgarfulltrúa, þrátt fyrir takmörkuð fundahöld og vinnu. Þetta þarf allt að endurskoða, þegar þar að kemur.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Háar fjárhæðir í förðun forsetans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 26.8.2017 kl. 10:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)