Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2018
Þriðjudagur, 28.8.2018
Það sem svo margir vissu ekki um Hillary Clinton
Það eru margir sem virðast gleyma því að val bandarískra kjósenda við síðustu forsetakosningar þar í landi stóð á milli Donalds Trump og Hillary Clinton. Trump vann með því að vera kosinn af the deplorables eða hinum hörmulegu/ömurlegu samkvæmt Hillary Clinton, en það kallaði hún alþýðufólkið. Það er vel hægt að nálgast svar við spurningunni um hvernig komið væri málum ef Hillary hefði unnið, með því að lesa sér til um hana og um munnsöfnuð hennar og gjörðir.
Á bak við Hillary stóð peningavaldið, bankar og stórfyrirtæki og svo vinstri/ liberal elítan, en allt það lið styður alþjóðavæðinguna og opin landamæri á kostnað hins vinnandi manns, sem elítan lítur niður á.
Það fólk sem getur ekki á sér setið í Trump bashing eða endalausri tilbúinni gagnrýni sinni á Donald Trump Bandaríkjaforseta vill hins vegar alls ekki að minnst sé á orðsporið um óheiðarleikann sem yfirstéttarkonan Hillary Clinton hefur alla tíð borið með sér, enda oft kölluð Crooked Hillary eða hin spillta. Það sem því liði hefur á hinn bóginn tekist að gera er að bera út sögur um og mála myndir af Trump, sem fæstar eru að sýna sig að standist skoðun þegar nánar er að gáð með yfirvegun.
Án þess að fara nánar út í Trump sjálfan hér, þá sýnir sig glöggt að áróður hatursins eru ær og kýr hinnar ný-marxisku vinstri hámenningar og Sorosismans um eyðingu þjóðríkisins og þjóðlegrar og kristinnar borgaralegrar menningar sem hefur gefið bestu lífskosti allra tíma. Eins og því miður svo víða, þá sýna sömu "crooked" eigindir sig glöggt hér heima, ekki hvað síst með aðstoð skipulagðrar innrætingar pólitískra fjölmiðla eins og Rúv o.fl. Mér finnst það allt jafn ógeðfellt og það er vissulega hættulegt.
Kjartan Örn Kjartansson.
![](https://external-lhr3-1.xx.fbcdn.net/safe_image.php?d=AQA8LSpqMF3z6oEK&w=147&h=147&url=https%3A%2F%2Fi.ytimg.com%2Fvi%2Fu7NqDVOQjYw%2Fmaxresdefault.jpg&cfs=1&upscale=1&fallback=news_d_placeholder_publisher_square&sx=225&sy=0&sw=720&sh=720&_nc_hash=AQA-7SDn2NkSb33L)
![]() |
Sakar Google um að hagræða niðurstöðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bandaríki Ameríku | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 20.8.2018
Sannleikurinn er sagna bestur -- úr merkilegri ræðu Viktors Orbán
"Það er í dag bannað í Evrópu að segja sannleikann. Það er bannað að segja að Evrópa sé undir ógnum fólksflutninga. Það er bannað að að segja að milljónir manna sé tilbúnar til þess að færa sig til okkar. Það er bannað að segja að þjóðflutningar (mass migration) koma með glæpi og hryðjuverk til landa okkar. Það er bannað að segja að þessi fjöldi sem kemur frá framandi menningarheimum stofnar lífsháttum okkar í hættu, menningu okkar, gildum okkar og kristnum siðvenjum ..."
"Það er bannað að segja að Brussel sé að rífa í sig og gleypa fleiri og fleiri sneiðar af sjálfstæði okkar og að í Brussel sé fjöldinn allur að skipuleggja komu bandaríkja Evrópu."
Sjá nánar hér á x-e.is: Sannleikurinn er sagna bestur: Úrdráttur úr stórmerkilegri ræðu Viktors Orbán forsætisráðherra Ungverjalands sem flutt var 2016.
H.H.
Innflytjendamál | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 18.8.2018
Reykjavíkurbréf afhjúpar klúðrið í stjórnun Reykjavíkurborgar
"Hann [Dagur B.Egg.] er bara svona. Tveimur vikum fyrir síðustu kosningar og eftir átta ár við völd tók hann óvænt að lofa því að "setja Miklubraut í stokk" og voru verktakar þá í óða önn að láta handraða grjóti í net beggja vegna við hana og áttu enn ófrágengið verkið Klambratúnsmegin! Þeir vissu ekki hvort þeir ættu að trúa á stokk eða steina."
Þetta er bara eitt dæmi úr þessu Reykjavíkurbréfi í dag, þar sem rakin eru sorglega hláleg atriði um ofstjórn og stjórnleysi í Ráðhúsinu í Reykjavík. Er þar ekki sízt komið inn á lóða- og byggingarmál í borginni, fimm unnin kærumál á hendur henni, leikskólamál o.fl.
Reykjavíkurbréfin eru með því albezta sem sést í blaðamennsku á Íslandi, oft launfyndin og kitla marga hláturvöðva. Ekki eru þau birt á netinu nema áskrifendum Morgunblaðsins, sem geta vitaskuld lesið þau í blaðinu sjálfu. Gamansemin þarna og frábær stílbrögðin eru því gjarnan hulin sjónum meirihluta Íslendinga.
En Halldór Jónsson verkfræðingur hefur á stundum tekið sér bessaleyfi til að endurbirta heilu og hálfu Reykjavíkurbréfin, og það gerði hann einmitt á bloggi sínu í dag, á 232. afmælisdegi Reykjavíkur sem kaupstaðar, og má lesa það hér (en lokaorðin í 4-5 klausum mun HJ eiga sjálfur, sem og inngangsorðin):
Borgarmálin
Jón Valur Jensson.
Borgarmál | Breytt s.d. kl. 14:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 13.8.2018
Múslimum fjölgar hratt í Evrópu, meðan kristnum fækkar
[Ef ástandið var orðið svona 2007, hvernig er það nú? Já, hér sést, að hlutirnir eru í raun fljótir að gerast!]
Fjöldi múslima í Hollandi:
- 1909: 54
- 1960: 1399
- 1990: 450.000
- 2004: 944.000
Fjöldi múslima í Evrópu árið 2007: 54.000.000.
Þetta er skv. pistli Skúla Skúlasonar: FITNAH TEXTI MYNDARINNAR ÍSLENSKAÐUR, 3. ÞÁTTUR.
Á sama tíma og þessi gríðarlega aukning hefur átt sér stað á fjölda Múhameðstrúarmanna á síðustu áratugum, hefur ekki aðeins trúuðum kristnum mönnum fækkað, heldur stefna sumar þjóðirnar sjálfar hraðbyri að eigin útþurrkun. Þegar barnafjöldi á hverja konu á barneignaaldri er kominn niður í 1,3, eins og reyndin er í Rússlandi, Þýzkalandi, Tékklandi, á Spáni og Ítalíu, þá fækkar börnum barneignakynslóðarinnar tífalt á hverjum fimm kynslóðum (um 120-150 árum) og hundraðfalt á tíu kynslóða tímabili. Þessi fólksfækkun nefndra landa og fleiri á sér stað þrátt fyrir mun meiri fjölgun ýmissa innflytjenda, þannig að demógrafískt séð eru þar að eiga sér stað jafnvel enn meira afgerandi breytingar: hinn evrópski kynstofn kristinna manna á hægri útleið, meðan aðrir gerast erfingjar landsins.
Og hvernig lízt mönnum nú ná?
Sorglegast alls í sambandi við þessa fólksfækkun er hversu stór hluti hennar á sér stað vegna fósturdeyðinga og (jafnvel hér á landi) ófrjósemisaðgerða í stórum stíl. Sá bóndi, sem þannig hagaði sér við bústofninn, yrði seint sagður stefna að því að verða fjárríkur maður.
Þessi grein er hér endurbirt af Moggabloggi undirritaðs 5. apríl 2008 (Múslimum fjölgar hratt í Evrópu, meðan kristnum fækkar). Þar voru alls 72 athugasemdir í fjörugri umræðu á eftir greininni! --JVJ.
Islam, múslimar, Mið-Austurlönd | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 11.8.2018
Tilraunir islamista til fjöldamorða í Evrópu eru hvergi nærri hættar
26 ára Lewis Ludlow stefndi að því að myrða nær hundrað manns með því að leigja sendiferðabíl og keyra honum á fólk á Oxford-stræti. Brezku lögreglunni tókst með netnjósnum og snarræði að koma upp um kauða í tæka tíð. Á Visir.is var fjallað um þetta í gær, en Mbl.is þegir enn.
Hann hefur játað á sig glæpinn, "sömuleiðis að hafa gefið Íslamska ríkinu peninga. Ludlow tók upp íslamstrú fyrir nokkrum árum og lýsti yfir hollustu við ISIS.
Ludlow var fyrst handtekinn árið 2015 og fannst myndefni frá Íslamska ríkinu á tölvum hans. Hann var hins vegar ekki ákærður, samkvæmt Sky News.
Í febrúar á þessu ári komu yfirvöld í veg fyrir að hann ferðaðist til Filippseyja og var vegabréf hans fellt úr gildi. Í kjölfarið skipulagði hann áðurnefnda árás" (Visir.is),
sjá nánar í spennandi frásögn í sömu frétt af því hvernig hann náði samvinnu við fleiri islamista og skipulagði árás sína út í æsar, en lögreglunni brezku tókst að lauma sér inn á samskipti þeirra og snúa loks á hann í tæka tíð. Hann er nú í varðhaldi og bíður dóms, sem kveðinn verður upp 2. nóvember nk.
Víða um Vesturlönd fer slík starfsemi hryðjuverka-sinna fram og erfitt við að eiga; þetta krefst mikilla forvarna á vegum lögreglu og leyniþjósnustu í hverju landi, ekki sízt þar sem mikill fjöldi múslima býr og auðvelt er fyrir skaðræðismenn að leynast innan um þá.
Gríðarlegur fjöldi hælisleitenda sækir til Evrópu, frá Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum og lengra að; ná þeir nú einna helzt landi á Spáni, og hrósa margir slíkir happi að komast til fyrirheitna landsins, þótt þar ríki framandi menning, en ýmsir í hópnum eru víðs fjarri því að sýna þakklæti sitt í verki, eins og sjá má á myndbandi sem vísað er á neðst í þessari færslu; verst væri þó, ef hryðjuverkadólgum tækist að laumast með slíkum hópum.
INVANDRINGEN HAR BLIVIT INVADERINGEN
Den spanska solkusten har förvandlats till den nya porten till Europa efter att Italien och Malta stängt gränsen mot Medelhavet.
Spaniens nya sosseregering tillåter verksamheten fastän lokala myndigheter ber om hjälp.
...Sjá meiraStjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 8.8.2018
Saudi-Arabar bregðast hart við gagnrýni Kanada með mynd sem minnir á árásina á Tvíburaturnana!
Víða gætir viðkvæmni um islam. Boris Johnson hafði ekki fyrr hafnað búrkubanni í stíl Dana en hann lét orð falla sem móðga múslimavini, jafnvel Theresu May, sem krefst afsökunarbeiðni, sem Boris hafnar!
Saudi-Arabar brugðust hart og illa við áskorun Kanadastjórnar um að baráttumenn fyrir mannréttindum yrðu leystir úr haldi:
Ríkisstjórnin í Riyad tilkynnti, að sendiherra Kanada yrði rekinn heim;
ennfremur að hætt yrði við nýjan viðskipta- og fjárfestinga-samning við Kanada,
og saudi-arabíska sjúklinga lætur stjórnin í Riyad taka út af spítölum í Kanada til að senda þá til annarra landa!
Nokkrum klukkustundum síðar tísti stofnun, hlynnt saudi-arabískum stjórnvöldum, færslu þar sem sýnd var mynd af Air Canada-flugvél sem stefndi beint á hæstu byggingu Toronto, CN-turninn (heimild: ný frétt í The Guardian: Saudi group posts photo of plane about to hit Toronto´s CN tower amid spat with Canada). Þessi stofnun (organization) hefur síðan beðizt afsökunar á færslunni.
Hér er mynd af háhýsunum miklu í Toronto:
![Torontos CN tower. The altered image showed an Air Canada plane aimed at Torontos skyline.](https://i.guim.co.uk/img/media/4e498ad2435ad4da290991585a4991cd933b0cb4/0_151_5760_3456/master/5760.jpg?w=300&q=55&auto=format&usm=12&fit=max&s=3f36afa057ec8e47bb23b6e33f52779c)
Theresa May forsætisráðherra tók undir áskoranir á hr. Johnson að biðjast afsökunar og sagði að athugasemdir hans hefðu "clearly caused offence" (greinilega misboðið mönnum). Hann hefði notað ranga orðræðu um lykil-málefni, "women´s ability to wear the burka, if they choose to do so; that should be a matter for a woman to choose" (heimild). (Ekki er danska þingið á sama máli, og þær raddir heyrast líka í Bretlandi sem krefjast búrkubanns, sbr. þessa grein í The Telegraph, birta kl. 22 þennan þriðjudag, 7. ágúst: Allison Pearson: Dont ban Boris ban the burka!)
En í beinu framhaldi af mótmælum frú May:
But a source close to Mr Johnson said he "won´t be apologising", adding it was "ridiculous" to attack his views.
"We must not fall into the trap of shutting down the debate on difficult issues," the source added.
"We have to call it out. If we fail to speak up for liberal values then we are simply yielding ground to reactionaries and extremists."
![Boris Johnson](http://ichef.bbci.co.uk/wwhp/{width}/cpsprodpb/13976/production/_102864208_gettyimages-1001219758.jpg)
Johnson ´won´t apologise´ for burka comments
The former foreign secretary stands by his remarks despite the Tory chairman telling him to apologise. (BBC.co.uk, heimildin um þetta mál, einnig https://www.telegraph.co.uk/politics/2018/08/07/boris-johnson-told-apologise-tory-party-chairman-brandon-lewis/)
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 04:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 3.8.2018
Geta íslenzkir vinstri menn og "frjálslyndir" hugsað sér að læra af reynslu Svía?
Fylgi Svíþjóðardemókrata stóreykst, nálgast jafnvel 30% (kosið verður í sept.)! M.a.s. jafnaðarmenn vilja nú fækka flóttamönnum sem koma til Svíþjóðar um helming! Partur af bakgrunni málsins:
"Arabíska númer tvö í Svíþjóð.
Arabíska er nú orðin næstalgengasta móðurmálið í Svíþjóð. Finnska, sem hingað til hefur verið næstalgengasta tungumálið, er þar með komin í þriðja sæti.
Líklegt þykir að arabíska sé móðurmál yfir 200 þúsund einstaklinga í Svíþjóð en straumur flóttamanna kom til Svíþjóðar árið 2015. Fjöldi þeirra er talinn hluti af skýringunni."
Þetta var frétt í sjálfu Fréttablaðinu 4. júní sl. Í umræðum á Visir.is upplýsti Hermann Stakkadal Sölvason:
"Ekki hefur verið gerð trúarkönnun í Svíþjóð síðan 1930.
Amerikanska forskningscentret Pew h[efur] komist að þeiri niðurstöðu að árið 2016 væru 8,1% af Svíum múslimar og árið 2050 hafi þeim fjölgað [í] 30%, það er að segja ef Svíar hætta að taka á móti svona mörgum múslimum sem þeir hafa gert síðustu árin.
Múslimar í Svíþjóð eru komnir inn í ríkisstjórn og dómskerfi."
Það mun taka langan tíma fyrir Svíþjóð að jafna sig á innflytjendabylgju síðustu ára. Almennur rómur er gerður að því þar, að allt of geyst hafi verið farið í málin, eins og sést af breyttri stefnu flestra flokka víðast hvar í Skandinavíu.
"Sænskir jafnaðarmenn hafa kynnt nýja stefnu í innflytjendamálum sem miðar að því að draga mjög úr fjölda flóttamanna sem kemur til Svíþjóðar. [...]
Ráðherra innflytjendamála í Svíþjóð, Helene Fritzon sem situr á sænska þinginu fyrir jafnaðarmenn, sagði á blaðamannafundi þar sem nýja stefnan var kynnt að við eðlilegar aðstæður kæmu 14-15 þúsund hælisleitendur til Svíþjóðar en á síðasta ári hafi þeir verið 27 þúsund. Hún lagði þó áherslu á að hún vildi ekki gefa upp ákveðna tölu varðandi það hvað ætti að að vera markmið stjórnvalda þegar kæmi að fjölda hælisleitenda.
Já þýðir já og nei þýðir nei
Meðal annars vilja sænskir jafnaðarmenn að tímabundnar strangari reglur um málefni hælisleitenda sem settar voru árið 2016 verði festar varanlega í sessi þar til Evrópusambandið hafi samþykkt nýjar reglur í þeim efnum. Ennfremur til að mynda að eftirlit með skilríkjum þeirra sem koma til Svíþjóðar verði hert og settar verði skorður við frelsi þeirra sem fengið hafa hæli til þess að velja hvar í landinu þeir setjist að.
Stefnan gerir sömuleiðis meðal annars ráð fyrir því að þeir sem neitað hafi verið um hæli í Svíþjóð þurfi að bíða í tvöfalt lengri tíma en nú er áður en þeir geti sótt um hæli á nýjan leik og að þeim hælisleitendum sem neita að yfirgefa landið af fúsum og frjálsum vilja eftir að umsókn þeirra hefur verið hafnað verði bannað að koma þangað aftur.
Haft er eftir Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar og leiðtoga Jafnaðarmannaflokksins, í sænskum fjölmiðlum að aðalatriðið væri það að hælisleitendur yfirgæfu landið ef umsókn þeirra væri hafnað. Grundvallaratriðið verður að vera að já þýðir já og nei þýðir nei. Ef þú átt engan rétt á að vera í Svíþjóð þá geturðu ekki notið sænskrar velferðar.
Fram kemur í frétt Bloomberg að sænskir jafnaðarmenn færu með þessu í fótspor jafnaðarmanna í Danmörku sem kynnt hafi herta innflytjendastefnu og væru með það til skoðunar að starfa með Danska þjóðarflokknum, sem lengi hefur talað fyrir harðri innflytjendastefnu, að loknum þingkosningum þar í landi á næsta ári." (mbl.is)
Ætla íslenzkir stjórnmálamenn að læra eitthvað af þessu? Þykir þeim róttækustu enn hentugast að sæta færi á að varpa auri á þá norrænu stjórnmálamenn sem reyna að breyta ástandinu til batnaðar?
Telur Helga Vala sig nú mann með mönnum meðal norrænna stjórnmálamanna? Og þykir Guðmundi Andra Thorssyni gott að berja höfði við stein?
Jón Valur Jensson.
Innflytjendamál | Breytt 4.8.2018 kl. 00:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)