Bloggfærslur mánaðarins, júní 2017
Fimmtudagur, 29.6.2017
Ítalir hóta að loka hafinu fyrir hælisleitendum
Ósjálfbær upplausn ríkir víðar en í Venezúela. Ítalir, sem fá flesta flóttamennina frá Líbýu (73.000 það sem af er ári, 14% aukning frá í fyrra), fá ónógan stuðning frá öðrum ESB-ríkjum. En þetta fólk á faraldsfæti er frá Afríku, Arabíuskaga, Egyptalandi, Sýrlandi og jafnvel Bangladesh. "Margir flýja stríð, fátækt og ofsóknir, og lokanir á leiðum gegnum Balkanskagann hafa aukið streymi til landsins" (Mbl.is), en augljóst er, að hér er einnig um efnahagsflóttamenn að ræða, sbr. ýmsa hælisleitendur hér!
Ítalska strandgæslan er stórtæk í björgunaraðgerðum á hafsvæðinu, en mörg skipanna sigla undir öðrum Evrópufánum. Heimildarmaður fréttastofu Reuters sagði að hugmyndir væru uppi um að hindra erlend skip sem væru á vegum annarra en ítalskra stjórnvalda. Það er hins vegar enn óljóst hvort slíkar aðgerðir séu ólöglegar eða ekki. (Mbl.is)
Hlutirnir gerast ekki í tómarúmi, heldur mótast af aðstæðum á Ítalíu sjálfri. Þjóðin er farin að hallast frá hinni opnu stefnu í innflytjenda- og flóttamannamálum, og þá er ekki lengur grundvöllur fyrir ráðandi flokka til að loka augunum fyrir því.
"Hótanir ítalskra stjórnvalda koma í kjölfar fylgistaps [sósíaldemókratíska] Demókrataflokksins í sveitarstjórnarkosningunum á Ítalíu í síðustu viku þar sem flokkurinn tapaði fylginu til Forza Italia og Norðurbandalagsins sem byggja báðir boðskap sinn á hertari aðgerðum í innflytjenda- og flóttamannamálum" (Mbl.is).
Það kemur að því, að þjóðir segja STOPP við ósjálfbærri ofurbjartsýnisstefnu. Hinar ESB-þjóðirnar eru heldur ekki, í ljósi endurvakinna hryðjuverka, ginnkeyptar fyrir því að auka enn fjölda múslima í álfunni, a.m.k. ekki í þeirra löndum! Þvinganir, sem Brussel-valdið með sínum refsivendi reynir til að jafna þunga þessara hælisleitenda og flóttamanna á allar sínar meðlimaþjóðir, m.a. þær sem eru austan gamla járntjaldsins og hafa tekið við fáum slíkum, hleypa bara illu blóði í þær þjóðir. Sjálf heildarstefnan er því í upplausn og réttasta ráðið að senda bátafólkið (sem borgar farið dýrum dómum) aftur til baka næstu misserin, eins og gert hefur verið í Ástralíu og dugað til að stöðva strauminn þangað af bátafólki.
Langfarsælast er að hjálpa þessu fólki í sínum eigin löndum, þar sem unnt er. Í lágu verðlagi þar nýtast hjálparsjóðir margfalt betur þar en hér í álfu.
Jón Valur Jensson.
Ítalía hótar að loka höfnunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Innflytjendamál | Breytt s.d. kl. 05:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 27.6.2017
Af Ramadan-föstumánuði múslima
Sælir, félagar á síðu XE.is og víðar. Skrif mín nú eru vegna Ramadan, föstumánaðar múslima, sem hefur nú staðið yfir í mánuð, og Guð einn veit hversu mörg morð og limlestingar munu bætast við; þegar ég skrifa þetta eru þrír dagar eftir.
Þessi hefðbundni aftöku- og átmánuður á að enda 25. júní. Ástæða þessara skrifa er sú að þeir sem hafa haldið að þetta væri einhversskonar trúarhátíð, mega vakna upp við hvernig þessi lygatrú friðarins hagar sér.
Þessi föstumánuður algerrar blekkingar stendur yfir í 30 daga frá sólarupprás til sólarlags. Þeir vakna upp fyrir sólarupprás og hreinlega troða sig út af matvælum, leggjast svo aftur til svefns. Vakna aftur að kveldi og ítroðslan heldur áfram en nú með veisluhöldum í nokkra klukkutíma, og síðan er þetta endurtekið í 30 sólarhringa. Gaman að búa í sömu blokk, enda margar uppákomur vandamála viðloðandi, og hafa þeir hrakið fólk af heimilum sínum vegna þessa og eignir hafa fallið í verði. Sagt er að þeir verði bæði veikir af þessu og klikkaðir vegna árásargirni.
Það sem er þó alvarlegast með þessa trú friðarins eru drápsferðirnar sem þeir fara í á þessari föstu, þeir sjálfir kalla þetta nú í ár Ramadan Bombathon 2017. Trú friðarins er þetta og ráðamenn þjóðanna mæra ófögnuðinn sem og jaðarhóparnir, uppreisnarseggirnir, anarkistar og aðrir sem eru ekki með vit í kollinum.
Að þessu sögðu er skynsamlegt að geta þess að ráðamenn þjóðanna keppast við að senda múslimum hamingjuóskir í tilefni Ramadan, og segir það okkur hvers konar vanþekking er á sveimi í veröldinni hvað varðar islam. Og jafnvel meðvirkni óttans sumsstaðar, þeir eru búnir að koma ár sinni vel fyrir borð víða innan stjórnkefis, félaga og skóla, þeir hafa nægjanlegt af olíuauð sem kemur þeim vel. Vil ég segja að þeir kunna að setja inn pening í hinar ýmsu aðstæður og draga þannig úr vilja þeirra sem njóta góðs af til að taka heiðarlega á aðstæðum. Hagnaður þeirra er annarra sársauki, eins og í mörgu.
Í ár störtuðu þeir ramadan-átsukkinu með glæsilegum afköstum hryðjuverka frá þeirra sjónarhorni. Á degi þrjú voru árásir orðnar 12, drepnir 118. Fyrsta drápið átti sér stað er 10 grímuklæddir jihadistar réðust á rútu í Mynja-héraði í Egyptalandi 26. maí, þeir gátu ekki setið á sér að bíða og byrjuðu samdægurs (ramadan byrjaði föstudag 26. maí að kveldi) og sölluðu niður alla sem þeir náðu, börn, konur og menn, 28 manns fyrir utan særða. Þetta voru allt kristnir Egyptar á leið til kirkju. (ISIS-samtökin hafa lýst sig ábyrg fyrir fullt af dauðaárásum á kristnar kirkjur í Egyptalandi.)
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, upplýsingar um samantekt dugnaðar þeirra á föstunni segja allt sem þarf.* En að síðustu ætla ég að setja hér inn orð Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem vill bæta samskipti við stjórnvöld í Kaíró og segir að Ameríka standi með el-Sissi forseta og egypsku þjóðinni. "Hin mikilsvirtu og sögulegu kristnu samfélög í Mið-Austurlöndum verður að verja og vernda," sagði Trump.
* Í Ramadan 2014 voru framdar 272 hryðjuverkaárásir í nafni islams og 37 sjálfsmorðssprengingar, drepnir 2429, særðir 2028.
Í Ramadan 2015 voru framdar 314 hryðjuverkaárásir í nafni islams og 63 sjálfsmorðssprengingar, drepnir 2988, særðir 3696.
Í Ramadan 2016 voru framdar 238 hryðjuverkaárásir í nafni islams, drepnir 1850.
Sigurlaug Oddný Björnsdóttir, Íslensku þjóðfylkingunni.
Islam, múslimar, Mið-Austurlönd | Breytt s.d. kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 25.6.2017
Ályktun landsfundar Íslensku þjóðfylkingarinnar 2. apríl um ætlun ríkisstjórnarinnar að rýmka löggjöf um fóstureyðingar
Ófædd börn eiga rétt til lífsins. Flokkurinn tekur einarða afstöðu gegn nýframkomnum hugmyndum um róttækar breytingar á fóstureyðingalöggjöfinni og mun taka á þessum málum með það að markmiði að draga sem mest úr fóstureyðingum."
Af vefsíðu flokksins, x-e.is.
Laugardagur, 24.6.2017
Um öryggis-, utanríkis- og viðskiptamál
Meginmarkmið utanríkisstefnu Íslands á auðvitað að vera að standa vörð um fullveldi og frjálsræði þjóðarinnar, öryggi og velsæld hennar með því að tryggja sem best varnir landsins samhliða innra öryggi, frjáls viðskipti og góða samvinnu við erlend ríki og stofnanir byggðar á lögum og jafnræði.
Öryggi landsins og borgaranna og frjálsræði til viðskipta
Veran í NATO, varnarsamningurinn við Bandaríkin og aðild landsins að fríverslunarsamningnum EFTA eru hornsteinar sem hlúa ber að og styrkja á allan hátt. Alþjóðleg viðskipti eru Íslandi ómissandi, en vegna mannfæðar og skorts á eigin varnarliði og búnaði er okkur næsta ómögulegt að verja sjálf eigin hendur gegn ýmissi alvarlegri vá svo vel sé. Öll umræða um að setja hér á stofn þjóðvarðlið eins og aðrar þjóðir telja nauðsynlegt eða auka verulega viðbúnað lögreglu mætir alltaf skilningsleysi og öfgaviðbrögðum vinstri aflanna eins og nýleg sem gömul dæmi sanna.
Andstaða vinstrisins við öryggissamvinnu vestrænna lýðræðisríkja er söm við sig og í stað þess að tryggja daglega eigur og öryggi okkar borgaranna hér innanlands sem best, þá er furðuviðkvæðið að við eigum einungis að ræða málin við glæpamenn og aðrar ógnir, helst með hjálp sálfræðinga. Það er mjög til efs að það gefist mörg tækifæri til slíks, að innbrot og þjófnaður séu tilkynnt fyrirfram eða þá að yfirvofandi voðaverk séu sérstaklega auglýst. Er það ekki frekar slíkur málflutningur sem þarfnast andlegrar þjónustu?
Henta EES og Schengen hagsmunum okkar?
Ísland gerðist aðili að EFTA og síðar að EES vegna viðskiptahagsmuna við Evrópuríkin, eins og þeir voru rétt eða rangt metnir á sínum tíma. Auðvitað þarf Ísland gott aðgengi að mörkuðum ESB-landanna sem annarra, en þróunin er slík að það er orðið spurning um hvort EES sé eina leiðin til þess og samningurinn passi okkur lengur í núverandi mynd eða jafnvel yfirhöfuð? Vandamál ESB, sum sjálfsköpuð, eru flest önnur en okkar, en lög þeirra og reglugerðir sem nauðsynlega passa okkur ekki eru samt svona eins og venjulega send okkur á færibandi í gegn um EES og fer lítið fyrir jafnræði í þeim samskiptum. Alþingismenn samþykkja svo tilskipanirnar að jafnaði án þess að kynna sér í hverju þær felast.
Schengen-samstarfið er önnur mjög alvarleg spurning ef ekki tekst að við náum sjálf algjörum yfirráðum landamæra okkar og verðum ennþá óspurð að hleypa hverjum sem er inn í landið án þess að vita um bakgrunn fólksins eða hæfni þess og þekkingu sem sterfskraftar. Tímabundin landvistar- og atvinnuleyfi þar sem tryggt er að viðkomandi greiði skatta og skyldur eru eitt, en þegar farandfólk leggst öðrum fremur á velferðarkerfið við ærinn kostnað þá er ljóst að voðinn er vís.
Það er sífellt bitist um krónurnar á fjárlögum, en þegar kemur að þessum málaflokki eru ómældir peningar alltaf strax til, en enginn virðist hafa yfirsýn hvað þetta kostar skattgreiðendur beint eða óbeint. Þá erum við allt í einu sögð svo rík þjóð, eitthvað sem margur landinn hefur samt farið á mis við.
Það sama á við um innflutning fólks af ólíkum og varasömum menningarheimum, en reynslan í Evrópu af slíku sýnir stöðug vandamál og hinar alvarlegustu hættur sem flestir vilja auðvitað forðast, en vinstri elítan kærir sig samt kollótta um og jafnvel afneitar. Framámenn múslima á Íslandi hafa þegar margoft lýst opinberlega yfir að þeir vilji Sharia-lög, enda óaðskiljanlegur hluti trúarinnar, en hafa ekki komist upp með það enn vegna þess að þeir eru sem betur fer ennþá ekki nógu margir til þess að þvinga slíkt fram, hvað sem síðar kann að verða, ef fer sem horfir.
Það má alveg velta því fyrir sér hvort stuðningur vinstri manna við þetta allt og flýtimeðferðir við veitingu íslensks ríkisborgararéttar sé vegna þess að þeir gera ráð fyrir því að njóta atkvæða slíkra? Slík er ábyrgðartilfinning svokallaðra félagshyggjuafla og hollusta þeirra við landsmenn. Það fólk sem að hefur áhyggjur af þessum málum og vill fara fram með varúð er svo umsvifalaust uppnefnt rasistar, en vera kann að það verði að virðingarheiti á endanum. Að vera öndvert við íslenska vinstrið er nokkuð öruggur mælikvarði á að vera á réttri leið.
Endurskoðun
Það er brýnt fara í nýja samningagerð um endurskoðun á Schengen og EES og að hún taki mið af praktískum meginhagsmunum Íslands gagnvart ESB, þ.e. viðskiptum og svo vísinda- og menningarmálasamvinnu, en að forðast pólitísk málefni og afskipti og rjúfa þarf allt fullveldisafsal og tryggja landamæri landsins. Með þessu opnaðist einnig vonandi fyrir möguleikana á því að skrúfa ofan af þegar klónaðri löggjöf, sem við viljum e.t.v. ekki hafa, og setja þaðan í frá alltaf og ætíð okkar eigin, og setja ætti um það ákvæði í stjórnarskrá lýðveldisins.
Frjálsir tvíhliða viðskiptasamningar við sem flest lönd, m.a. við NAFTA-ríkin, hlýtur að vera stefnan og um leið styrking varnar- og öryggismála á tímum vaxandi viðsjár í heiminum. Á sama tíma er samdráttur og sparnaður í ríkisrekstri á mörgum öðrum sviðum afar brýnn jafnt sem að stórminnka íþyngjandi og kostnaðarsöm opinber afskipti. Gera þarf endalaus óþarfa gæluverkefni vinstrisins útlæg.
Kjartan Örn Kjartansson.
Höfundur er öryrki og eldri borgari. Hann hefur áhyggjur af mörgu því sem þegar er og í stefnir í landi okkar.
Kafbátur og herskip í Hvalfirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 25.6.2017 kl. 05:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 23.6.2017
Nú skal reynt að blekkja landann til að mjólkurkýr Engeyjarættarinnar þrífist sem best, eins og púkinn á fjósbitanum
Íslenska þjóðfylkingin hafnar alfarið arfavitlausum tillögum sem komu eru fram frá efnahags- og fjármálaráðuneytinu.
Í fyrsta lagi er hvergi minnst á ríkið, ríkissjóð og framgang Alþingis sem og ríkisstjórna þegar kemur að kennitöluflakki. Ætli það séu ekki meiri fjármunir sem þessir gæðingar stinga undan með aðstoð fjármálakerfisins? Tökum til dæmis fyrirtækin sem breytt var um kennitölu á í hruninu og fengu afskrifaða milljarða. Bankana sem fengu nýjar kennitölur og var gefið veiðileyfi í boði alþingismanna á hinn almenna borgara. 900 fjölskyldur misstu heimili sín, eða ef við reiknum með að í hverri fjölskyldu séu fjórir fjölskyldumeðlimir, þá erum við að tala um 3600 einstaklinga, auk áþjánar á tengda vini og ættingja. Milljarða tilfærslur á Keflavíkurflugvelli og svo mætti lengi telja. Hversu margir verktakar, verslanir, sem og fólk sem stundaði almennan rekstur, þurftu að axla ábyrgð vegna misvitra embættismanna?
Þarna tala þessir menn digurbarkalega um verktakabransann. Ekki var hætt að skipta við stóru verktakafyrirtækin, t.d. Ístak, ÍAV eða aðra stórtæka byggingarverktaka þó svo að þeir fengju nýjar kennitölur. En skýrt var tekið fram í útboðsgögnum að menn þyrftu að hafa hreinar kennitölur í að minnsta kosti 2 til 3 ár og eiginfjárstöðu jákvæða. Þessi atriði voru aðeins látin gilda um lítil og meðalstór fyrirtæki.
Að koma í veg fyrir að menn noti peninga í stað korta er galin hugmynd og einungis ætluð til að fita Engeyjarpúkana sem og önnur kortafyrirtæki. Hér ætti frekar að banna að taka við greiðslum sem eru innan við 1000 kr. vegna umsýslugjaldsins þó við séum ekki að mæla með slíku. Hvernig almenningur hagar sínum fjármálum á hvorki að vera miðstýrt af hinu opinbera né á það að hafa nokkrar letjandi tillögur til að stýra slíku.
Íslenska þjóðfylkingin telur að fjármálaráðuneytið ætti frekar að taka til heima hjá sér og styrkja lítil og meðalstór fyrirtæki með því að bjóða verkefni sem einungis eru ætluð þeim. Banna ætti stóru fyrirtækjunum að bjóða í slíkar framkvæmdir vegna þess að þau hafa notið óeðlilegrar aðstoðar annaðhvort frá hinu opinbera eða bankaelítunni. Þá á hið opinbera að hætta að bjóða út verkefni sem eru tilsniðin fyrir einhver sérstök fyrirtæki eða afhenda þeim þau án útboðs. Þetta á við um fleira en byggingargeirann. Ég vísa í hann sérstaklega því fjármálaráðuneytið sá ástæðu til að nefna þá starfsemi. Þetta yrði til þess að leggja grunn að nýrri og öflugri millistétt í landinu sem mun skila þjóðarbúinu margföldum tekjum til baka. Í góðu samfélagi er það millistéttin sem er grunnur þess.
F.h. flokksstjórnar Íslensku þjóðfylkingarinnar,
Guðmundur Karl Þorleifsson formaður.
Meira yrði prentað af verðminni seðlum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 22.6.2017
Gegn SALEK og TISA
Íslenska þjóðfylkingin mun berjast gegn SALEK-samkomulaginu, sem mun taka verkfallsrétt af verkafólki, eins og formaður verkalýðshreyfingarinnar á Akranesi hefur margoft bent á. Einnig munum við berjast af alefli gegn TISA-samkomulaginu, sem mun færa ákvörðunarrétt undir alræðisvald stórfyrirtækja og auðhringa. Þessu tvennu ætla alþingismenn að lauma inn í skjóli nætur eins og útlendingalöggjöfinni. Við segjum nei! Svona ákvarðanir eiga að takast af þjóðinni, en ekki misvitrum alþingismönnum.
Láttu ekki aðra segja þér fyrir verkum, taktu sjálfstæða afstöðu. Staðreyndir tala sínu máli.
Þetta er úr viðauka á dreifiblaði með stefnuskrá ÍÞ frá í haust.
Kjaramál | Breytt 23.6.2017 kl. 01:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 21.6.2017
Flugvöllurinn í Vatnsmýrinni treystist í sessi
Það er gleðiefni mörgum, að samgönguráðherrann stefnir að nýrri flugstöð í Vatnsmýri á næsta ári. Yfirgnæfandi meirihluti íbúa bæði dreifbýlis og þéttbýlis vill halda flugvellinum í Reykjavík. Hvassahraun útilokast bæði vegna veðurskilyrða* og af því að þar eru vatnsverndarsvæði Suðurnesjamanna. Eins er Hólmsheiðin enginn raunhæfur kostur.
Íslenska þjóðfylkingin styður eindregið flugvöllinn í Vatnsmýrinni. ÍÞ vill að núverandi staðsetning innanlandsflugvallar verði til frambúðar, segir í stefnuskrá flokksins.
Reykjavíkurflugvöllur úr lofti
"Ekki náðist í Dag B. Eggertsson, borgarstjóra, vegna málsins." - Skyndilega varð þeim málglaða orða vant! En hörð andstaða vinstri flokkanna í borgarstjórn gegn Reykjavíkurflugvelli tengist m.a. lóðastefnu þeirra og "þéttingu byggðar" og "Borgarlínunni" sem þeir vilja koma í gagnið, dýrkeyptri og vonlausri framkvæmd. Bjarni Jónsson verkfræðingur rökstyður það afar vel, að hugmyndafræðin að baki hennar er reist á sandi og "óskhyggju sem mun rýra lífskjör og lífsgæði" (sjá greinar hans HÉR og hér), en Íslenska þjóðfylkingin er einmitt andvíg Borgarlínunni, sem útilokað er, að muni borga sig.
* Sjá grein undirritaðs (sem vísar á afar fræðandi greinaskrif Þorkels Ásgeirs Jóhannssonar flugmanns): Hvassahraun er mun verri kostur en Rögnunefndin vill vera láta; ísing og snjókoma algengari en í Rvík.
Jón Valur Jensson.
Ný flugstöð rís í Vatnsmýrinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 17:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 20.6.2017
Ábyrgðarlaust framferði Pírata gæti valdið stíflun Neyðarlínunnar, jafnvel dauðsföllum!
Varaþingmaður Pírata í SV-kjördæmi, Andri Þór Sturluson, gerir sig ekki aðeins frægan að endemum, heldur stofnar lífi fólks í hættu með því einstæða athæfi sínu að "hvet[ja] fólk til að teppa símalínur Neyðarlínunnar í mótmælum gegn vopnaburði lögreglunnar. Hvatninguna sendir hann út á opinberum vettvangi á Facebook, bæði í hópnum Pírataspjallinu og á hans persónulegu síðu." (Mbl.is)
Flestir þeirra sem tjá sig um málið gagnrýna hugmyndina þar sem uppátækið gæti bitnað á þeim sem síst skyldi. (Sst.)
Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar 112, skýrir betur aðstæður þar. Hann
segir Neyðarlínuna bera fullt traust til almennings að misnota neyðarnúmerið 112 ekki. Neyðarlínan treystir því að almenningur sýni mikilvægi þjónustunnar skilning og valdi ekki viljandi truflun á henni, hér eftir sem hingað til, segir hann í samtali við mbl.is.
Hann segir sveiflur í fjölda innhringjenda til Neyðarlínu vera miklar og stundum séu álagstoppar sem Neyðarlínan á fullt í fangi með að anna.
Ef þessar innhringingar sem verið er að gera tillögu um bætast við þegar það er mikið álag getur það valdið því að einhverjir nái ekki strax inn og valdið verulegum skaða. Iðulega skiptir hver mínúta máli í viðbragði þannig að aðgerð sem felur í sér að teppa símalínur Neyðarlínu getur valdið alvarlegu heilsutjóni eða dauða. (Mbl.is)
Makalaust má það heita af varaþingmanni að ganga svo langt í pólitísku offorsi gegn öryggisráðstöfunum lögreglu, að hann er reiðubúinn að trufla sjúkraflutninga og jafnvel útköll vegna slysa eða heilsuáfalla til þess að HANN geti komið sínu þrælpólitíska séráhugamáli á framfæri.
Réttast væri að lögreglan láti ná í hann til yfirheyrslu (þó ekki hjá haturslöggunni, undirritaður hefur þá reynslu af henni, að hún sé vanhæf, enda pólitískt skipuð silkihúfa á lögreglustöðinni), því að hann nýtur ekki þinghelgi.
Píratar verða að lýsa hneykslan sinni á framferði unga mannsins, vilji þeir ekki deila með honum allri ábyrgð á þessu hættulega athæfi hans.
Jón Valur Jensson.
Varaþingmaður vill teppa neyðarlínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 15:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 18.6.2017
Lögreglan með sínar upplýsinganámur veit betur en óupplýstir flokksleiðtogar Vinstri grænna
"Á Íslandi eru vopn, aðgengileg almenningi, sem nýta má til að framkvæma hryðjuverk og aðrar stórfelldar árásir. Rúmlega 72.000 skotvopn eru löglega skráð. Þá hafa hættuleg heimatilbúin vopn, sprengjur og sprengiefni ýmist fundist eða verið komið í hendur lögreglu.
Árið 2016 frömdu hryðjuverkamenn tvívegis fjöldamorð í Evrópu án þess að hefðbundnum vopnum væri beitt.* Ógnin getur fyrirvaralaust tekið breytingum og gengið þvert á fyrirliggjandi greiningar hvað varðar mynstur, aðferðir og skotmörk."
* Þetta sama gerðist í Bretlandi á þessu ári (aths.jvj.)
Svo segir í Mati ríkislögreglustjóra á hættu af hryðjuverkum, gefnu út af GREININGARDEILD RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA 30. janúar 2017, bls. 5.
Ennfremur segir þar meðal annars (ibid.):
Íslandi og öðrum vestrænum ríkjum stafar ógn af getu hryðjuverkasamtaka til að koma á framfæri áróðursboðskap á internetinu og samfélagsmiðlum í því skyni að hvetja til hryðjuverka. Vitað er um raunveruleg tilvik þess að fólk hafi heillast af málflutningi liðsmanna hryðjuverkasamtaka, oftar en ekki um internetið og hafi í kjölfarið framið ódæðisverk þó svo að viðkomandi hafi ekki tekið þátt í bardögum vígasveita Ríkis íslam eða annarra hryðjuverkasamtaka. Samdóma álit vestrænna öryggisstofnana er að þessi hætta sé mikil og viðvarandi.
Þetta mættu storkarnir í Vinstri grænum hafa í huga, næst þegar þeir draga hausinn upp úr sandinum!
En í frétt hér á Mbl.is sést, að þrátt fyrir að brugðið hafi verið fæti fyrir að lögregla yrði vopnuð við samkomuhald í gær, á þjóðhátíðardaginn, þá gerði lögreglan þeim mun meira til að tryggja öryggi manna með öðrum hætti, einkum með því að hvetja sveitarfélög til að sjá um þverun gatna í formi stórra flutningabíla, og á það við um samkomustaði bæði í borginni, í Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ og víðar. Slíkar fyrirbyggjandi aðgerðir hefðu t.d. getað tryggt, að mannfallið í Nice (81 manns) af völdum eins hryðjuverkamanns á flutningabíl hefði orðið margfalt minna.
En blindingjar einir í málefnum heimsins afneita möguleikanum á hryðjuverki á Íslandi.
Jón Valur Jensson.
Vorum með mjög sýnilega löggæslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Varnar- og öryggismál | Breytt s.d. kl. 19:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 17.6.2017
Eðlilegur viðbúnaður vegna hryðjuverkahættu
Hryðjuverk í Evrópu hafa aukizt verulega á síðustu misserum, nánast alfarið af völdum öfgamúslima. Einmitt í þessari viku er mörgum að verða ljóst, að það er ekki sjálfgefið, að vel upplýstum, ábyrgum, jarðtengdum lögregluyfirvöldum okkar sé treyst fyrir áhættumati hér á landi vegna hugsanlegra hryðjuverka og fyrir ákvörðunum um vopnaburð lögreglu við meiri háttar samkomur, þar sem á getur þurft að halda. Vantraustið á lögregluna kemur frá vinstri mönnum.
Ýmis önnur úrræði en byssuvernd hefur lögreglan vissulega að auki, svo sem lokun gatna með veghindrunum, og geta menn þar haft í huga, hve mörgum mannslífum hefði með slíkri forsjá mátt bjarga í frönsku borginni Nice (þar sem 81 drepinn með notkun flutningabíls sem keyrður var á fullri ferð eftir langri breiðgötu í gegnum mikinn mannfjölda) og í Lundúnum fyrir nokkrum dögum. En dæmi um vel heppnaða götulokun hér á landi var einmitt við sjómannadags-hátíðahöldin á Grandagarði sl. sunnudag, þar sem lögregla þurfti því ekki að vera sýnileg á staðnum.
Ennfremur er allt eftirlit lögreglu með netsamskiptum aðila, sem liggja undir grun, afskaplega mikilvægt.
Forvirkar aðgerðir lögreglu, þ.e. heimildir til þeirra, voru lengi umþráttunarefni í Alþingi, og tillögur um þær urðu vinstri flokkunum efni í margar uppákomur og þingtafir, sem við umhugsun eru þeim einungis til skammar.
Enn á ný eru svo Vinstri græn sérstaklega farin að beita sér gegn vopnvæðingu lögreglu við vissar fjöldasamkomur, einmitt nú, svo stuttu eftir mannskæðu hryðjuverkin í Bretlandi!
Aðalritstjóri Fréttablaðsins sýnir sig í leiðara í dag að vera úti að aka í þessu máli. Hún talar um að á dögum IRA, ETA-samtakanna, Rauðu herdeildanna, Baader-Meinhof, PLO o.fl. hryðjuverkahópa á seinni hluta 20. aldar hafi verið mun meira um hryðjuverk en nú (sem stenzt þó alls ekki, ef 9/11 er innifalinn, lestafjöldamorðin mannskæðu í Madríd 11/3 2004 og Lundúnum 7/7 2005, fjöldamorðin í París og Nice á liðnu ári auk hryðjuverkanna þriggja í Bretlandi á þessu ári og annarra í löndum gamla sovétveldisins); og ritstjórinn er bersýnilega að vísa til þess, að ekki hafi verið krafizt neins öryggisviðbúnaðar hér á landi við fjöldasamkomur á dögum hinnar fyrri hryðjuverkaöldu á 20. öld.
En þær aðstæður voru gersamlega ólíkar því, sem nú er: mikið til staðbundin átök þá, bundin að mestu við Spán eða Norður-Írland og einangruð tilfelli á meginlandinu, en náðu að sjálfsögðu ekki til Íslands. En nú er við harðsvíraða islamistíska heimsvalda- og hatursstefnu að glíma, sem stefnt er gegn saklausum almenningi í kristnum löndum Evrópu, og samvizkulaust er tilgangurinn látinn helga meðalið, þótt börn eigi mjög víða í hlut, eins og sézt hefur í Manchester, París, Nice og jafnvel í meiri háttar hryðjuverkum islamista í rússneska ríkjasambandinu.
Hér á landi hafa aðstæður líka breytzt, landið afar opið fyrir útlöndum, gríðarlegt aðstreymi ferðamanna og mikill fjöldi hælisleitenda staddur í landinu, meirihluti þeirra frá múslimalöndum. En á 7.-8. áratugnum voru hér aðeins fáeinir múslimar.
Aftonbladet sænska var í gær, 16. júní, með viðtal við yfirmann öryggislögreglunnar (Säpo) sem upplýsir að ÞÚSUNDIR róttækra islamista séu nú í Svíþjóð; má vísa til fréttar um þetta á Eyjunni í gær. Og þessir menn hafa auðvelt ferðafrelsi til Íslands!
Í takt við eindreginn stuðning Fréttablaðsins við hinn lélega málstað vinstri friðardúfanna Katrínar Jakobsdóttur og Lífar Magnúsdóttur birtir blaðið nú í þriðja sinn glannalega skopmynd á leiðarasíðunni, sem í 3. sinn lýgur að almenningi, að lögreglan íslenzka verði þungvopnuð vélbyssum við öryggisgæzlu á hátíðahöldunum. Það rétta er, að hún er vopnuð skammbyssum, en meiri vopn tiltæk á sama svæði.
Hver er ábyrgðartilfinning leiðandi VG-manna gagnvart börnum sínum? Vilja þeir ekki, að lögregla geti með skjótvirkum hætti kveðið niður árásaraðila með þeim vopnum sem duga? Vilja þessar VG-konur Katrín og Líf, að hryðjuverkamanni sé frekar gefið frítt spil til að níðast heldur lengur á sem allra flestum sakleysingjum? Eða eiga áfallateymi þeirra að verja okkur? En þau reisa engin börn upp frá dauðum!
Stöndum með okkar eigin landi og þjóð, með eins traustum landvörnum og nauðsyn ber til á þessum varasömu tímum.
Gleðilega þjóðhátíð.
Jón Valur Jensson.
Hátíð í rigningunni á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)