Þriðjudagur, 16.4.2019
Guðlaugur Þór Þórðarson afhjúpaður vegna blekkinga gagnvart þjóðinni og þingflokki Sjálfstæðiflokks og vegna hagsmunatengsla
Vesalings vængbrotni Guðlaugur Þór! Grátt er hann leikinn af snilldarleiðara Staksteina í dag, maðurinn berháttaður vegna gervifyrirvara sinna, sem og Þorsteinn Pálsson vegna glæfralegs hugsunarháttar síns.
Nánast allsherjar-þjóðarfylgi er komið í ljós með þjóðaratkvæðagreiðslu um orkupakkamálið, sama hvað þau streitast öll við, Þórdís Kolbrún, Guðlaugur Þór, Þorgerður Katrín og hlaupastrákur hennar Þorsteinn Víglundsson, sem öll segja þjóðaratkvæðagreiðslu af og frá!
Þá virðist Guðlaugur ramm-hagsmunatengdur við vatnsorkuríkar jarðir, eða hver er ekki hagsmunatengdur eiginkonu sinni?! Eða nær það bara til Sigmundar Davíðs, ekki til sjálfstæðismanna (sem einu sinni hétu því nafni, en þurfa að fara að skipta um nafn, með sína óþjóðhollu forystu).
Skoðið þetta allt og fleira í nærgöngulli samantekt undirritaðs: ORKUPAKKAMÁLIÐ - engar blekkingar, hagsmunatengdi GÞÞ, um "fyrirvara", takk! - og fari í þjóðaratkvæðagreiðslu!
Jón Valur Jensson.
Ber vitni um málefnafátækt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Orkumál, virkjanir, stóriðja | Aukaflokkar: Spilling í stjórnmálum, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 16:03 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.