Fimmtudagur, 14.2.2019
Endurmeta þarf lögmæti þess að Dagur B. & Co. sitji áfram að kjötkötlum borgarbúa
Taka ber undir þá kröfu Vigdísar Hauksdóttur, að endurmetið verði lögmæti eður ólögmæti borgarstjórnarkosninganna sl. vor að lokinni góðri skoðun þeirra og rannsókn.
Svo margt hefur raunar farið úrskeiðis í stjórn borgarinnar og komið upp á yfirborðið síðan í vor (braggamálið o.fl. brotamál gervimeirihlutans), að Dagur B. & Co. eiga pólitíska framtíð sína undir því, að þessar kosningar verði ekki endurteknar, sem þó virðist geta verið það eina rétta í málinu, eftir næsta augljós stjórnsýslubrot Ráðhúsmanna í sambandi við hlutdræg skilaboð send vissum hópum kjósenda rétt fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar.
Það er ekki ónýtt að lögfræðingurinn Vigdís hafi glöggt auga með þessum og öðrum brekum borgarstjórnar-gervimeirihlutans.
JVJ.
Skera úr um lögmæti kosninganna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Spilling í stjórnmálum | Aukaflokkar: Borgarmál, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 20:01 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.