Fimmtudagur, 5.7.2018
Austurríkismenn ekki værukærir í málefnum flóttamanna og hælisleitenda
Ríkisstjórn Austurríkis hefur varað við því að hún muni jafnvel grípa til aðgerða til þess að verja landamærin við Ítalíu og Slóveníu (mbl.is). Þetta kemur í kjölfar þess að þýzka ríkisstjórnin hyggst leggja hömlur á komu flóttafólks til landsins.
Í samkomulagi um þetta milli Angelu Merkel, kanzlara Þýzkalands, og Horst Seehofer innanríkisráðherra "kemur meðal annars fram að eftirlit á landamærum Austurríkis verði hert og komið í veg fyrir að hælisleitendur sem hafa sótt um hæli í öðrum ríkjum Evrópusambandsins fái að koma til Þýskalands (mbl.is).
Og hér eru viðbrögð Austurríkismanna:
Austurrísk yfirvöld segja að þau verði viðbúin því að grípa til svipaðra aðgerða til þess að koma í veg fyrir að hælisleitendur geti komið til landsins um landamæri ríkisins í suðri. Með samþykkt þýsku ríkisstjórnarinnar sé enn einu sinni sýnt fram á mikilvægi sameiginlegra varna ríkja Evrópusambandsins.
Kanslari Austurríkis, Sebastian Kurz, mun í dag kynna fyrir Evrópuþinginu í Strassborg helstu áherslumál Austurríkis sem fer með forsæti í ESB næstu sex mánuðina. Er fastlega gert ráð fyrir að þar verði málefni hælisleitenda og flóttafólks ofarlega á baugi (mbl.is).
Hinni fyrstu miklu flóðbylgju flóttamanna og hælisleitenda til Evrópu frá löndum við sunnan- og austanvert Miðjarðarhaf fer nú væntanlega að linna að verulegu leyti, en mörg Evrópulönd (þó ekki Pólland, Tékkland, Slóvakía, Ungverjaland) eiga enn eftir að vinna úr sínum miklu viðfangsefnum sem af flóðbylgjunni hafa hlotizt. Vel má vera að hluti lausnarinnar verði sá, að flóttamenn geti snúið aftur til upprunalands síns, hafi friður komizt þar á. En hvað sem gerist í þeim efnum, er ljóst, að svigrúm Vestur-Evrópulanda verður nú meira, ekki minna, til að hjálpa heimilislausu og langþjökuðu fólki á stríðshrjáðum svæðum með fjárhags- og efnislegri neyðarhjálp í löndum þeirra eða í flóttamannabúðum í nálægum löndum.
Jón Valur Jensson.
Ætla að verja landamæri Austurríkis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Innflytjendamál | Aukaflokkar: Evrópumál, Islam, múslimar, Mið-Austurlönd, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:39 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.