Fimmtudagur, 21.6.2018
Ómar Ragnarsson þarf að svara þessu um sinn umboðslausa samflokksmann Dag B. Eggertsson
Af hverju hefur flugmaðurinn Ómar Ragnarsson ekki komið með neina gagnrýni á Dag B. Eggertsson, eftir að það vitnaðist, að hann stefnir á að leggja niður Reykjavíkurflugvöll, jafnvel á kjörtímabilinu? Fekk hann umboð til þess frá kjósendum? Bað hann um það umboð? Missti hans flokkur ekki 6% fylgis kjósenda í kosningunum? Fengu gömlu samstarfsflokkarnir úr síðasta borgarstjórnarmeirihluta ekki 38,19% atkvæða í kosningunum 26. maí? Og jafnvel með atkvæðum "Viðreisnar", hafa þeir nema 46,35% atkvæða kjósenda? Er það í alvöru umboð frá kjósendum til svo róttækrar og alvarlegrar árásar á Reykjavíkurflugvöll að leggja hann niður?
Og hvað segir flugmaðurinn Ómar um það? Hann er nú ekki kunnur sem neinn öfgamaður hingað til.
Jón Valur Jensson.
Meginflokkur: Samgöngur | Aukaflokkar: Borgarmál, Spilling í stjórnmálum, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:49 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.