Aðeins af (ó)þrifum í borginni og vanrækslu Dags B.

Sorphirða er ekki söm og áður. Hér áður fyrr var sorp hirt a.m.k. einu sinni í viku, en núna er það hirt á 10 daga fresti, hálfs mán­aðar eða síðar, eftir því sem verkast vill. 
Þrátt fyrir þetta hefur sorp­hirðu­gjald hækkað umfram verð­lag.
 
Götu­sópun er aðeins einu sinni á ári, en var nokkrum sinnum á ári á árum áður þegar verk­þátturinn var í höndum borgar­starfs­manna og sópað betur í hvert skipti áður en verk­takar voru fengnir í verkið og gera verkið mun verr í hvert skipti. Kostnaður við útboðs­gögn er hár hjá borginni vegna þessa. Þarna sannast að tækni­fræðingar og verk­fræð­ingar eru orðnir milliliðir í ferlinu við þessi útboðsgögn og framkvæmd götusópunar á götum borgar­innar. Segið svo að stór hluti háskóla­borgara séu ekki beinar afætur á þjóðfélaginu.
 
Umhirða í borginni er mun verri en áður og byrjaði þessi sóða­skapur þegar Jón Gnarr, pönkari með meiru, komst til valda í borginni fyrir um átta árum. Illgresi og njólar út um allt. Gras er slegið örsjaldan yfir sumarið.

 

Dagur Bergþóruson, nývaknaður, er alveg ráðþrota, á víst ekki sláttuvél til að slá grasið:

  

Fyrri myndin er fengin af heimasíðu Sverris Stormskers, tónlistarmanns. Seinni myndina tók undirritaður sjálfur af óslegnu grasi í borginni. Þetta er í beygjunni þar sem farið er úr Hólahverfi niður í Höfðabakkann fyrst í vestur og svo í norð-austur.

Guðjón Helgason.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband