Þriðjudagur, 22.5.2018
Aðeins af (ó)þrifum í borginni og vanrækslu Dags B.
Sorphirða er ekki söm og áður. Hér áður fyrr var sorp hirt a.m.k. einu sinni í viku, en núna er það hirt á 10 daga fresti, hálfs mánaðar eða síðar, eftir því sem verkast vill.
Þrátt fyrir þetta hefur sorphirðugjald hækkað umfram verðlag.
Götusópun er aðeins einu sinni á ári, en var nokkrum sinnum á ári á árum áður þegar verkþátturinn var í höndum borgarstarfsmanna og sópað betur í hvert skipti áður en verktakar voru fengnir í verkið og gera verkið mun verr í hvert skipti. Kostnaður við útboðsgögn er hár hjá borginni vegna þessa. Þarna sannast að tæknifræðingar og verkfræðingar eru orðnir milliliðir í ferlinu við þessi útboðsgögn og framkvæmd götusópunar á götum borgarinnar. Segið svo að stór hluti háskólaborgara séu ekki beinar afætur á þjóðfélaginu.
Umhirða í borginni er mun verri en áður og byrjaði þessi sóðaskapur þegar Jón Gnarr, pönkari með meiru, komst til valda í borginni fyrir um átta árum. Illgresi og njólar út um allt. Gras er slegið örsjaldan yfir sumarið.
Dagur Bergþóruson, nývaknaður, er alveg ráðþrota, á víst ekki sláttuvél til að slá grasið:
Fyrri myndin er fengin af heimasíðu Sverris Stormskers, tónlistarmanns. Seinni myndina tók undirritaður sjálfur af óslegnu grasi í borginni. Þetta er í beygjunni þar sem farið er úr Hólahverfi niður í Höfðabakkann fyrst í vestur og svo í norð-austur.
Guðjón Helgason.
Meginflokkur: Borgarmál | Aukaflokkar: Spilling í stjórnmálum, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 05:04 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.