Sunnudagur, 20.5.2018
Dagur B. Eggertsson tók afstöðu gegn ótvíræðum þjóðarhag í Icesave-máli og rétti Reykvíkinga til mislægra gatnamóta!
Spurt var í haust á vef Þjóðarheiðurs, samtaka gegn Icesave:
Hver annar en Icesave-samninga-hvatningamaðurinn Dagur B. Eggertsson?! --Nei, heyrið mig nú, kom hann nokkuð nálægt því? Er þetta ekki miklu fremur flugvallar-tortímandinn galvaski? --Jú, að vísu, en lesið hvað hann skrifaði um Icesave-málið:
Dagur B. Eggertsson: Mér finnst algert ábyrgðarleysi af stjórnarandstöðunni að þvælast fyrir Icesave-málinu. Það væri feigðarflan að ætla sér aðra tafsama samningalotu ...!
(og smellið á þetta til að sjá meira).
Þessi sami Dagur B. Eggertsson hefur ekki aðeins tekið afstöðu gegn ótvíræðum lagarétti Íslands í Icesave-málinu, heldur einnig gegn Reykvíkingum með því að snuða þá um að fá mislæg gatnamót þar sem þeirra er þörf til að greiða fyrir umferð, en ríkissjóður hefði borgað 80-85% kostnaðarins eins og við allar stofnbrautir sem tilheyra almenna vegakerfinu.
Sendum þennan mann í frí frá rekstri borgarinnar, en hann hefur í bandalagi við aðra vanhæfa vinstri menn aukið skuldir hennar um rúmlega einn milljarð á hverjum mánuði (alls 50 milljarða!) síðan hann varð borgarstjóri fyrir fjórum árum!
Það er kominn tími til, að þú fallir í kosningum, Dagur B.!
Jón Valur Jensson. Höfundur skipar 4. sæti á lista Íslensku þjóðfylkingarinnar í borgarstjórnarkosningunum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:09 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.