Föstudagur, 11.5.2018
Flóttamannastefnu vinstri flokka hafnað í skoðanakönnun
Þótt vinstri flokkar* vilji bæta við a.m.k. 2.000 flóttamönnum til 2021, segir þjóðin ýmist NÓG KOMIÐ! (44,9%) eða OF MARGIR KOMNIR! (25,7%) skv. nýrri skoðanakönnun MMR. Aukning er mælanleg í þessari andstöðu frá fyrri könnun fyrir rúmu ári: Þeim, sem telja of marga flóttamenn fá hæli, fjölgar um 2%, og þeim, sem telja of fáa flóttamenn fá hæli, fækkar um 2% (mbl.is).
* Það er yfirlýst stefna Vinstri grænna að við Íslendingar "eigum að taka á móti umtalsvert fleiri flóttamönnum, að lágmarki 500 á ári. Jafna þarf aðstæður hælisleitenda og svokallaðra kvótaflóttamanna," segja þeir líka í stefnuskrá sinni. Þetta þýðir að lágmarki 2.000 nýja flóttamenn árin 2017-2021, á sama tíma og Danir hafa stöðvað slíkan straum, komnir niður í núll-kvóta um óákveðinn tíma. Og þeim hælisleitendum, sem hingað eru komnir, m.a. múslimunum frá Balkanskaga, vilja VG veita sömu aðstæður og kvótaflóttamönnum. Píratar vilja enn fleiri flóttamenn hingað en VG.
"Samfylkingin vill byggja upp fjölmenningarsamfélag á Íslandi. Við viljum að Ísland beri meiri ábyrgð og taki á móti fleiri flóttamönnum og vandi betur móttöku á fólki sem sækir um alþjóðlega vernd hér á landi." (Úr stjórnmálaályktun flokksins, samþykktri á landsfundi 2018.)
Ljóst er af öllu, að vinstri flokkarnir eru ekki í takti við vilja meirihluta landsmanna í þessu efni, heldur vilja allir miklu meiri straum flóttamanna og hælisleitenda hingað heldur en vilji almennings stendur til. Einungis 29,4% landsmanna telja of lítinn fjölda flóttamanna fá hælisveitingu hér á landi. Fréttamiðillinn mbl.is slær þessu samt upp í fyrirsögn: "Um þriðjungur telur of fáa fá hæli". Er þó munurinn á 33,3% og 29,4% næstum fjögur prósent! Nákvæmara hefði verið að orða þetta þannig: "Innan við þrír af hverjum tíu telja of fáa fá hæli"!
En skyldu þessir vinstri menn nokkurn tímann læra? Það er góð lexía fyrir þá til næsta dags, að í þessu máli er Íslenska þjóðfylkingin miklu nær þjóðarvilja um flóttamannamál heldur en þeirra eigin úreltu vinstri flokkar!
Jón Valur Jensson tók saman. Hann skipar 4. sæti á framboðslista ÍÞ í Reykjavík í vor.
Um þriðjungur telur of fáa fá hæli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Innflytjendamál | Aukaflokkar: Húsnæðis-, leigjenda- og íbúðaskuldamál, Islam, múslimar, Mið-Austurlönd, Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.5.2018 kl. 08:52 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.