Fimmtudagur, 30.11.2017
Ný ríkisstjórn bregzt þjóðinni strax í fyrsta orði (stjórnarsáttmálanum)
Hún tekur við í dag. Þrátt fyrir nokkur framfaramál hennar eru önnur mun stærri í afleitasta fari: stórfjölgun flóttamanna og hælisleitenda, rugl um loftslagsmál, sala Landsbankans: sameinuð "lausn" VG og Valhallar úr því að VG rakst á vegg með að fá að hækka skatta um 70-80 milljarða. Sjálfstæðismenn slá þar tvær flugur í einu höggi: geta unnið að einka(vina)væðingu þessarar verðmætu mjólkurkýr landsmanna og losna við margt af þeim skattaálögum sem þeir óttuðust. En aðferðinni verður helzt líkt við að pissa í skóinn sinn: ágóðanum stendur til að eyða að miklu leyti í útgjaldahítina.
Í stjórnarsáttmálanum segir um flóttamannamál:
Tekið verður á móti fleiri flóttamönnum og þverpólitísk nefnd sett á fót um framkvæmd útlendingalaga
Aldrei hafa fleiri verið á flótta vegna stríðsátaka, ofsókna og umhverfisvár. [Uppskrift VG að því að nálgast málin.] Ísland mun leggja sitt af mörkum til lausnar á flóttamannavandanum og taka á móti fleiri flóttamönnum [eins og VG boðaði í flokkssamþykkt fyrir kosningar, en auglýsti þó lítt!]. Mannúðarsjónarmið og alþjóðlegar skuldbindingar [dæmigerð réttlæting VG-manna, en stenzt ekki, sbr. praxísinn nú í Skandinavíu og víða í ESB] verða lögð til grundvallar og áhersla á góða og skilvirka meðhöndlun umsókna um alþjóðlega vernd [þ.e. hælisleitenda!]. Auk þess verður tryggð samfella í þjónustu og aðstoð við þá sem fá slíka vernd. [Stórfelldur útgjaldaauki þar og mikil fjölgun slíkra!] Þverpólitískri þingmannanefnd verður falið að meta framkvæmd útlendingalaga og eftir atvikum endurskoða þau. [Innskot í hornklofum: JVJ.]
Þetta er galin stefna, margfaldur innflutningur flóttamanna og hælisleitenda til Íslands miðað við hin Norðurlöndin. Öfgastefnu Vinstri grænna í þessu máli hefur verið haldið stíft fram og Sjálfstæðisflokkurinn látið þar valta yfir sig. Margföldun múslima á landinu á þessu eina kjörtímabili til 2021 er þannig áformuð af glæfralegri heimsku.
Þá verður kolefnagjald hækkað um 50% og kallað "grænn skattur" (enn ein ranghugmyndin) og stefnt að uppstokkun laga um kynhneigðamál (eitt dellu- og gælumál vinstri manna).
Frítekjumark verður aðeins 100.000 krónur, eins og það var fyrir mörgum árum, áður enn það var lækkað í 25.000 krónur. En 100.000 duga skammt og ríkisstjórnin hér ekki hliðholl öldruðum, sem margir hverjir geta unnið allt að fulla vinnu í þónokkur ár eftir að þeir komast á lífeyrisaldur. Strax hefur gætt mikillar óánægju með þetta atriði stjórnarsáttmálans.
Jón Valur Jensson.
Svona skiptast ráðuneytin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Innflytjendamál, Islam, múslimar, Mið-Austurlönd, Spilling í stjórnmálum | Breytt s.d. kl. 13:09 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.