Mánudagur, 13.11.2017
Verður Sigríði Á. Andersen ætlað að útfæra innflytjendastefnu Vinstri grænna?
Fá a.m.k. 2.000 kvótaflóttamenn og 5.000 hælisleitendur (að meirihluta múslimskir) búseturétt hér næstu 4 ár að vild Katrínar & Co. eða takast hrossakaup um þau mál við B & D?
Verður þessi áformaða ríkisstjórn "framsækin" í þessum málum með því að fá hingað sem mest af fólki frá vanþróuðustu löndum Evrópu, Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku?
Eða verður, við gerð málefnasamnings flokkanna, leitað upplýsinga um reynslu norrænna þjóða af þessum málum, sú spurning t.d. borin upp, af hverju Danir (18 sinnum fleiri en við) færðu árlega heildartölu kvótaflóttamanna úr 1500 á ári niður í 0 (núll)?
Og hvernig myndi Sigríði Andersen ganga, ef hún heldur óbreyttu ráðherrastarfi sínu, að útfæra innflytjendastefnu Vinstri grænna?
Jón Valur Jensson.
Ber ekki traust til Sjálfstæðisflokksins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Innflytjendamál | Breytt 14.11.2017 kl. 00:00 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.