Þriðjudagur, 29.8.2017
Er jafnvel Merkel farin að átta sig á mistökum sínum?
Það er undarlega öfugsnúið að segjast vera ofsóttur eða búa við óbærilegt stríðsástand í ættarlandi sínu, sækja því um og fá hæli hjá þýzkum eða sænskum góðmennum, en kjósa svo helzt að fara í sumarfrí til gamla, vonda landsins!
Angela Merkel er alveg hissa á þessu, en við umhugsun áttar hún sig á því, að "það gangi ekki upp að fara í leyfi til landsins þar sem viðkomandi segðist vera ofsóttur. Það gæti orðið til þess að hælisumsóknin yrði endurskoðuð" (Mbl.is).
Þó það nú væri! En hugsanlega eru þessir hælisleitendur ekki allir að spóka sig í fríinu, heldur sumir hverjir að hitta gamla baráttufélaga og fá jafnvel hjá þeim leiðsögn og fyrirskipanir um baráttuna í nýja landinu. Það sama gerðu nokkrir helztu íslenzku kommúnistarnir, að sækja sér línuna til Moskvu, og hví skyldu fylgismenn hryðjuverkasamtaka ekki gera það sama? Gæfumunurinn á þessu tvennu er þó sá, að barátta kommúnistanna hér á landi var ekki komin á sama ofbeldisstig og hjá ISIS-samtökunum sem hreykja sér af því þegar þau valda sem mannskæðustum hryðjuverkaárásum.
En prestsdóttirin úr Austur-Þýzkalandi er kannski byrjuð að skilja það í smáskömmtum, þrátt fyrir önnur og stærilátari orð hennar í fyrradag, að iðulega hefði hún mátt hugsa sig tvisvar um, áður en hún tók stórtækar ákvarðanir um að opna land sitt fyrir milljón flóttamönnum nánast á einu bretti. En það er einnig í fréttum, að tugir þúsunda Sýrlendinga eru nú á heimleið, einkum frá Tyrklandi, en "yfir 40 þúsund Sýrlendingar hafa farið yfir landamærin síðan það varð leyfilegt 15. ágúst, en um fjögur þúsund fara þangað yfir á hverjum degi."
Og þá er spurning hvað gerist í Þýzkalandi. Þar fara fram þingkosningar á næstunni og búizt við að rótttæku samtökin AfD auki þá fylgi sitt. Allt getur hins vegar gerzt með Kristilega demókrata, sem voru í lægð um áramótin í skoðanakönnunum, en hafa nokkuð bætt við fylgi síðan, en greinilega hefur Merkel talað út og suður um málin síðan og er kannski fyrst og fremst að hugsa um að halda sjálfri sér og flokknum á floti, en það er mikil og vanþakklát púlsvinna.
Jón Valur Jensson.
Fari ekki í frí til heimalandsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Innflytjendamál | Aukaflokkar: Islam, múslimar, Mið-Austurlönd, Stjórnmál og samfélag, Öfgastefnur, fasismi og hryðjuverk | Breytt s.d. kl. 02:20 | Facebook
Athugasemdir
Já , það á að taka strax þeirra rétt til að vera í landinu - og ekki leyft aftur inn.
Merry, 29.8.2017 kl. 10:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.