Fimmtudagur, 20.7.2017
Áhyggjur Suðurnesjamanna vegna hælisleitenda eru ástæðan fyrir stöðugu sambandi við Útlendingastofnun vegna málsins
Frétt í Mbl. og á Mbl.is staðfestir það sem ritað var hér í gær um rán hælisleitenda á reiðhjólum í Reykjanesbæ. Formaður bæjarráðs segir ólgu hafa magnazt upp á samfélagsmiðlum vegna málsins. Lögreglunni berast allmargar kvartanir varðandi hælisleitendur á Ásbrú, staðfestir lögreglustjórinn á Suðurnesjum, Ólafur Helgi Kjartansson.
Sú ákvörðun Útlendingastofnunar að fara upp á Ásbrú [með fjölgun hælisleitenda þar] er ennfremur, að sögn Friðjóns Einarssonar, formanns bæjarráðs Reykjanesbæjar, "gegn okkar óskum. Við höfum engin afskipti af þessum hópi, annað en það að við erum í stöðugu sambandi við Útlendingastofnun vegna þess að við höfum áhyggjur af þessu, segir Friðjón.
Hann segir mikla umræðu hafa verið á Facebook-síðu sem nefnist Reykjanesbær Gerum góðan bæ betri
en þar hafa íbúar verið að tjá sig um þjófnað og hegðan sem ekki samrýmist því sem Íslendingar eru vanir. Þessi umræða hefur ekki farið framhjá bænum. Við erum hins vegar ekki að fá mikið af beinum kvörtunum til okkar heldur finnum við fyrir þessari ólgu sem magnast upp á samfélagsmiðlum, segir Friðjón. (Mbl.is)
Íslenska þjóðfylkingin hefur lausnina á þessu máli: að hælisleitendum frá löndum, þar sem ekki er stríðsástand, verði tafarlaust vísað úr landi, innan tveggja sólarhringa. Þetta geta Norðmenn, og þetta getum við. Vandinn er sá einn, að við erum með nefbeinslausa menn í stöðum ráðamanna!
Jón Valur Jensson.
Kvarta undan þjófnaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Innflytjendamál | Aukaflokkar: Löggæsla, Stjórnmál og samfélag, Sveitarstjórnarkosningar | Breytt s.d. kl. 11:25 | Facebook
Athugasemdir
http://www.friatider.se/sex-vergrepp-skapar-k-nssegregerade-asylboenden
Loksins blasir sannleikurinn við, sennilega óvart.
Hælisleitendur í Svíþjóð, af báðum kynjum, hafa hingað til verið undir sama þaki sem hefur gert það að verkum að stúlkur hafa lítið þorað að hreifa sig innanhús og bera alltaf slæður, en nú er búið að koma þeim fyrir í öðru húsi og þær frjálsar frá ofstæki "drengjanna".
Nú getur við farið fram í almenning og haft gaman en þannig var það ekki áður. Þá hópuðumst við saman í einu herbergi. Ofstækið er svo mikið í Íslam að konur hafa munnkefli alla ævi og þora akki fyrir sitt litla líf að segja sannleikann um kúgunina.
Þá vitum við hvaða mann þetta lið hefur að geima.
Í Svíþjóð eru Sómalíumenn mesta vandamálið varðand hjólastuld. Þeir segja "Það var enginn að nota það og ég fékk það lánað".
valdimar jóhannsson (IP-tala skráð) 20.7.2017 kl. 13:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.