Áhyggjur Suðurnesjamanna vegna hælis­leitenda eru ástæðan fyrir stöðugu sam­bandi við Útlend­inga­stofn­un vegna málsins

Frétt í Mbl. og á Mbl.is staðfestir það sem ritað var hér í gær um rán hælis­leit­enda á reiðhjólum í Reykjanesbæ. For­maður bæj­ar­ráðs segir ólgu hafa magn­azt upp á sam­fé­lags­miðlum vegna málsins. Lög­regl­unni berast all­marg­ar kvart­an­ir varðandi hæl­is­leit­end­ur á Ásbrú, staðfest­ir lög­reglu­stjór­inn á Suður­nesj­um, Ólaf­ur Helgi Kjart­ans­son.

Sú ákvörðun Útlend­inga­stofn­un­ar að fara upp á Ásbrú [með fjölgun hælis­leit­enda þar] er ennfremur, að sögn Friðjóns Ein­ars­son­ar, for­manns bæj­ar­ráðs Reykja­nes­bæj­ar, "gegn okk­ar ósk­um. Við höf­um eng­in af­skipti af þess­um hópi, annað en það að við erum í stöðugu sam­bandi við Útlend­inga­stofn­un vegna þess að við höf­um áhyggj­ur af þessu,“ seg­ir Friðjón.

Hann segir mik­la umræðu hafa verið á Face­book-síðu sem nefn­ist „Reykja­nes­bær – Ger­um góðan bæ betri“ 

en þar hafa íbú­ar verið að tjá sig um þjófnað og hegðan sem ekki sam­rým­ist því sem Íslend­ing­ar eru van­ir. „Þessi umræða hef­ur ekki farið fram­hjá bæn­um. Við erum hins veg­ar ekki að fá mikið af bein­um kvört­un­um til okk­ar held­ur finn­um við fyr­ir þess­ari ólgu sem magn­ast upp á sam­fé­lags­miðlum,“ seg­ir Friðjón. (Mbl.is)

Íslenska þjóðfylkingin hefur lausnina á þessu máli: að hælisleitendum frá löndum, þar sem ekki er stríðsástand, verði tafarlaust vísað úr landi, innan tveggja sólarhringa. Þetta geta Norðmenn, og þetta getum við. Vandinn er sá einn, að við erum með nefbeinslausa menn í stöðum ráðamanna!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Kvarta undan þjófnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 http://www.friatider.se/sex-vergrepp-skapar-k-nssegregerade-asylboenden

Loksins blasir sannleikurinn við, sennilega óvart.
Hælisleitendur í Svíþjóð, af báðum kynjum, hafa hingað til verið undir sama þaki sem hefur gert það að verkum að stúlkur hafa lítið þorað að hreifa sig innanhús og bera alltaf slæður, en nú er búið að koma þeim fyrir í öðru húsi og þær frjálsar frá ofstæki "drengjanna".
Nú getur við farið fram í almenning og haft gaman en þannig var það ekki áður. Þá hópuðumst við saman í einu herbergi. Ofstækið er svo mikið í Íslam að konur hafa munnkefli alla ævi og þora akki fyrir sitt litla líf að segja sannleikann um kúgunina.
Þá vitum við hvaða mann þetta lið hefur að geima.
Í Svíþjóð eru Sómalíumenn mesta vandamálið varðand hjólastuld. Þeir segja "Það var enginn að nota það og ég fékk það lánað".

valdimar jóhannsson (IP-tala skráð) 20.7.2017 kl. 13:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband