Fimmtudagur, 24.5.2018
Um trúfrelsi, moskur, harðlínu-islam og kynþáttahyggju
Spurt er, hvort Íslenska þjóðfylkingin virði ekki trúfrelsi.
Allir hafa trúfrelsi á Íslandi og mega hafa sín bænahús. Moskur eru allt annað og meira. Þar er hið pólitíska islam í fullri virkni og ætlazt til að sjaríalögum sé beitt.
Að auki var rangt og ekki samkvæmt lögum landsins og reglugerðum um trúfélög, að Félagi múslima á Íslandi var gefin lóð á bezta stað, gjaldalaust, milli Suðurlandsbrautar og Miklubrautar, en kristnu trúfélagi, sem starfað hefur hér að mannúðarmálum frá lokum 19. aldar, Hjálpræðishernum, var NEITAÐ um slíka fría lóð og eftirgjöf gatnagerðargjalda, sem múslimarnir fengu þó! Þeir, á 4. hundrað manns, hafa ekkert fjármagn í að reisa mosku af þeirri stærð sem reiknað er með, og vitað er, að Saudi-Arabar, sem leyfa ekki að reistar séu kirkjur í landi sínu, eru áfjáðir í að gefa hingað hundruð milljóna króna (og þegar byrjaðir) til moskubygginga hér. En þar mundi einmitt sá böggull fylgja skammrifi, að þeir ætlast til að fá að koma sínum afturhaldssömu kennimönnum (ímömum) að í viðkomandi moskum --- þetta er mynztrið hjá þeim í Evrópu!
Við viljum engan harðlínu-salafisma hér! Þetta er okkar stefna í ÍÞ, en við erum þó engir rasistar og höfum ekki talað um að útiloka hér fólk af neinum kynþætti, þótt fara þurfi varlega í innflytjendamálum, nokkuð sem ekki var gert við setningu Útlendingalaganna 2016. Hér þarf líka sannarlega að huga vel að framtíðinni og komast hjá neikvæðum áhrifum af hugsanlega of hröðum innflytjendastraumi á menningu okkar, samfélagshætti og -gildi; dæmin frá Skandinavíu eru ekki til eftirbreytni, og þar stefnir enn í mun meiri fjölgun múslima en annarra, þótt skorður sé verið að reisa við móttöku nýrra flóttamanna. Í Svíþjóð er búizt við að múslimar verði orðnir nær 31% landsmanna eftir 32 ár.
Við í ÍÞ erum andvíg þeirri harðlínu-trúarboðun sem andstæð kann að vera samfélagsgildum okkar sem þjóðar, frelsi okkar og jöfnum rétti manna, hvað þá þegar moskur eru notaðar til að aðgreina múslima sem mest frá "vantrúuðum", þ.m.t. kristnum, og þeir vanvirtir. Staðreynd er, að í Danmörku, Þýzkalandi og Bretlandi hefur með földum hljóðnema tekizt að koma upp um hatursboðskap kennimanna í moskum gegn kristnum eða vestrænum gildum. Moskum, studdum af harðlínumönnum í Saudi-Arabíu, verður engan veginn líkt við kristnar kirkjur né við friðsamlegt starf annarra trúfélaga.
Þótt sumir fáfróðir kunni að ímynda sér, að við í ÍÞ gefum okkur, að allir múslimar séu hryðjuverkamenn, þá er það alls ekki svo, þótt sumir þeirra séu það óneitanlega, eins og sannazt hefur með hörmulegum hætti víða um lönd á þessari öld. Eðlilega hafa lögreglu- og leyniþjónustu-yfirvöld í viðkomandi löndum þurft að leggja í miklar forvarnir og eftirlit vegna þessara hörmunga, jafnvel með þátttöku herja þeirra í yfirgengilegustu dæmum af fjöldamorðum öfgaislamista, eins og við höfum séð í Frakklandi, á Spáni og Bretlandi.
En Íslenska þjóðfylkingin fordæmir bæði kynþáttahyggju og útlendingahatur, og meiri hluti fjölskyldna flokksstjórnarmanna í Þjóðfylkingunni, þar á meðal undirritaðs, er með erlent blóð í bland og allir meðteknir jafnt.
Jón Valur Jensson. Höfundur skipar 4. sæti á framboðslista Íslensku þjóðfylkingarinnar til borgarstjórnar í kosningunum nk. laugardag.
Ákærður fyrir hatursorðræðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Islam, múslimar, Mið-Austurlönd | Breytt s.d. kl. 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)