Færsluflokkur: Islam, múslimar, Mið-Austurlönd
Laugardagur, 27.5.2017
Bretland hýsir 23.000 jíhadista (fylgismenn heilags stríðs). Huge scale of terror threat revealed (The Times)
"Leyniþjónustumenn hafa borið kennsl á 23.000 jihad-öfgamenn sem búa í Bretlandi sem mögulegir hryðjuverka-árásarmenn, kom í ljós í gær. Umfang þessarar hættu, sem lögregla og öryggisþjónustur standa frammi fyrir, var upplýst með Whitehall-heimildum eftir að gagnrýnt var að mörg tækifæri til að stöðva Manchester-sprengjumanninn höfðu farið forgörðum." Nánar um þetta í þeirri frétt brezka stórblaðsins The Times í dag, 27. maí, sem hér var vitnað í.
Þrjú þúsund þessara 23.000 eru talin mjög hættuleg og sæta nú rannsókn eða eru hleruð í 500 mismunandi verkefnum lögreglu og leyniþjónustuaðila. Hin 20 þúsundin hafa áður verið til rannsóknar og eru skilgreind sem "residual threat" (sú hætta, sem enn kann að vera fyrir hendi eftir að "áætlun A" hefur komið til framkvæmda).
Báðir virku hryðjuverkamennirnir í Bretlandi á þessu ári: Khalid Masoud, drápsmaðurinn í Westminster, rétt við brezka þinghúsið, og Salman Abedi, Manchester-sprengjumaðurinn, voru á lista lögreglunnar.
Hér í viðauka er Wikipediu-fróðleikur um hina ólíku dreifingu múslima í Evrópu. Ísland er þar eitt landanna með múslimafjölda sem nær ekki 1% landsmanna. En á því getur orðið tiltölulega hröð breyting, ef núverandi yfirvöld og önnur áþekk fá áfram að stýra hér ferðinni, með afleitum útlendingalögum, slælegri vörn landamæranna og linkind við hælisleitendur frá fyrst og fremst múslimaríkjum (sjá landa-listann hér fyrir neðan).
Jón Valur Jensson.

< 1% | |
12% | |
24% | |
45% | |
510% | |
1020% | |
2030% | Cyprus |
3040% | Macedonia |
5060% | BosniaHerzegovina |
6065% | Albania |
7075% | Kazakhstan |
9095% | Kosovo |
95100% |
Islam, múslimar, Mið-Austurlönd | Breytt s.d. kl. 14:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 27.5.2017
Útrýmingarherferð islamista gegn koptum í Egyptalandi
Beinar, grimmilegar árásir hafa verið gerðar á kristna kopta á síðustu mánuðum, 26 sallaðir niður í gær með skothríð 10 ómenna á tvær rútur og flutningabíl á ferð í Mið-Egyptalandi, en 25 særðir. Um 100 koptar alls hafa verið drepnir sl. hálft ár, meiri hlutinn í kirkjum, og er þessi óhugnaður til vitnis um hatrið sem þrífst í hugarheimum ISIS og margra í Múslimska bræðralaginu. Stjórnvöld landsins berjast gegn þessu og leita nú t.d. ódæðismannanna tíu frá fjöldamorðinu í gær, þar sem m.a. börn voru skotin til bana. Koptar teljast vera 10% Egypta, sem alls eru 92 milljónir talsins.
Hryðjuverkin hafa skaðvænleg áhrif á efnahag Egyptalands, þar sem komum ferðamanna fækkar. En meðlimir Múslimska bræðralagsins voru á þriðju milljón, þegar starfsemi þess var bönnuð, en margir úr því starfa með "Ríki islams" og láta tilganginn helga sín verstu verk. Ekki halda grófustu partar Kóransins aftur af þessum ofstækismönnum.
JVJ.
![]() |
26 drepnir í árás í Egyptalandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Islam, múslimar, Mið-Austurlönd | Breytt s.d. kl. 07:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 26.5.2017
Samstaða og samhugur með fórnarlömbunum í Manchester
Laura McIntyre, 15 ára stúlka frá Suðureyjum úti fyrir Skotandi, berst nú fyrir lífi sínu eftir hryðjuverkið mikla í Manchester, en bezta vinkona hennar, Eilidh MacLeod, 14 ára, lézt í árásinni. Samstaða Breta er mikil með öllum fórnarlömbunum og fjölskyldum þeirra
Stofnuð hefur verið söfnunarsíða fyrir fjölskyldur McIntyre og MacLeod, en þegar hafa safnast rúm 30.000 pund eða tæpar 4 milljónir króna. (Mbl.is)
Laura McIntyre er sú hávaxnari á myndinni hér fyrir neðan, en með henni er Eilidh, vinkonan sem lézt, báðar hér á leið á tónleikana; svo sorglegt í raun.
Mikill fjöldi ungmenna lét lífið eða slasaðist í sprengingunni. Fyrsta sólarhringinn var talað um 59 særða, en sú tala fór yfir 100, þegar sumir minna slasaðir, sem höfðu í ofboði nýtt sér far til að komast heim af staðnum, fóru að sækja spítala eða slysavarðstofur daginn eftir. Sumir hinna særðu eru í svo krítísku ástandi, að þeim er vart hugað líf. Laura er ein af þeim.
Biðjum fyrir Lauru McIntyre og öðrum fórnarlömbum þessa skelfilega grimma hryðjuverks og að okkur megi gefast, að annað eins og þetta megi aldrei koma fyrir aftur. Og verum viss um, að áhrif bænarinnar geta verið mikil og margvísleg, það er ekki okkar að segja til um það.
Sjá nánar fréttartengil Mbl.is hér neðar, þar er talað við foreldra Lauru. Sjá einnig fleiri fréttir af þessum vinkonum og öðrum hér.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Berst fyrir lífi sínu eftir árásina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Islam, múslimar, Mið-Austurlönd | Breytt s.d. kl. 00:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 16.5.2017
Eitrað fyrir Robert Spencer á Íslandi
Af frásögn hans og af trúverðugleika að dæma, sem fundarmenn kynntust um daginn, og af rannsókninni á spítala er ljóst, að það er engin ástæða til að bera brigður á þann alvarlega atburð, að hér á landi var reynt að eitra fyrir þessum fræga rithöfundi (12 bóka höfundi m.m.).
Ofstækið gegn þessum manni fekk að birtast hér strax í aðdraganda fyrirlestursferðar hans, og það er ekki að undra, að
Spencer fer ... hörðum orðum um umfjöllun fjölmiðla og annarra um heimsókn hans til landsins. Fjölmiðlar hafi verið uppfullir af fréttum um að vondur maður væri á leiðinni til landsins og rætt við þá nokkra tugi einstaklinga sem mótmælt hafi komu hans. Hins vegar hafi ekki verið leitað eftir viðbrögðum hans sjálfs.
Ein sjónvarpsstöð hafi tekið viðtal við hann í tengslum við fundinn en fréttamaðurinn hafi verið upptekinn af meintri ábyrgð hans á morðum norska fjöldamorðingjans Anders Breivik en Breivik hefur vísað í skrif Spencers. Spencer segist ekki frekar geta borið ábyrgð á gerðum Breiviks en Bítlarnir á gerðum bandaríska fjöldamorðingjans Charles Manson. (Mbl.is)
Og honum leynist ekki, hvernig ástandið er hér í fjölmiðlaheiminum, þar sem við sjálf vitum, hve uppivöðslusamir og "héraðsríkir" vinstri menn hafa verið, sér í lagi í ríkisfjölmiðunum, og vísvitandi margbrotið þar hlutleysisreglur og kröfur um hlutlægni í frásögnum, sem þeim er ætlað að hlíta, og gert þetta bæði í orði og með niðurþöggun fréttnæmra hluta.
Í beinu framhaldi af ofangreindri tilvitnun segir Robert Spencer í viðtali við blaðamann Mbl.is og bendir hér á kýlið:
Hins vegar væri ljóst af þessu að íslenskir fjölmiðlar og stjórnmálamenn vildu ekki að almenningur ræddi íslamsvæðingu og íslamisma. Þeir sem berðust gegn því teldu sig án efa vera að gera göfuga hluti en hefðu með framgöngu sinni gert fólk eins og hann að skotmörkum. Fyrir vikið kæmi það honum ekki á óvart að reynt hefði verið að eitra fyrir sér.
Dæmigert var, að ekki einn einasti áberandi stjórnmálamaður sótti fundinn góða í Grand-hóteli í liðinni viku. Samt hefði þessi afburðagreindi ræðumaður getað frætt þá um svo margt sem þeir ekki vissu!
Það verður ekki látið nægja að segja frá þessu í fjölmiðlum, heldur unnið að rannsókn á þessari alvarlegu árás eins og full ástæða er til.
Til eru upptökur á veitingastaðnum, þar sem samskipti Spencers og mannanna tveggja áttu sér stað, og á spítalanum liggja fyrir þau gögn sem benda til að honum hafi verið byrlað eitur. Og alveg er ljóst, að þetta er ekki komið til í neinu skjóthugsuðu óðagoti, heldur er um glæp að yfirlögðu ráði að ræða, enda ber venjulegt fólk ekki á sér eitur dagsdaglega! Og greinilega hefur Robert Spencer því verið veitt eftirför af fundinum eða með öðrum hætti njósnað um ferðir hans.
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segist aðspurður í samtali við mbl.is geta staðfest að slíkt mál hafi komið inn á borð lögreglunnar. Rannsókn á málinu sé á frumstigi og verið að afla gagna um það. (Mbl.is)
Mál þetta er allt okkur til áminningar um, að átök islamista og fylgismanna þeirra við vestræna aðila hafa nú þegar náð hingað til Íslands. (Áður er vitað um a.m.k. tvö dæmi um komu manna hingað með tengsl við hryðjuverkasamtök.) Þetta er væntanlega rannsóknarmál líka fyrir okkar þjóðaröryggisráð og þá deild lögreglunnar sem sér um varnir gegn hryðjuverkum.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Telur að eitrað hafi verið fyrir sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Islam, múslimar, Mið-Austurlönd | Breytt s.d. kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 11.5.2017
Glæsilegur fundur með Robert Spencer og Christine Williams í Grand-hóteli í kvöld
Snautlega fámennur var "samstöðufundur" Semu Erlu, Gunnars Waage & Co., þótt smalað væri á hann fólki úr Siðmennt og hælisleitendum af Kjalarnesi.
Innan dyra var fullur salur sem tók í sæti 350 manns sem fylgdust spenntir með frábærlega mælskum ræðumönnum kvöldsins (margir stóðu að auki). Einnig gátu fundarmenn borið fram spurningar, og gerðu það a.m.k. 10-12 manns. Meðal annars stóð þar upp úr hve snilldarlega Spencer svaraði þar spurningum ímamsins í Öskjuhlíð og félaga hans.
Það var mikil stemming á þessum fundi, sem Vakur hafði boðað til, félagsskapur sem vill sinna nauðsynlegum upplýsingamálum um islamstrú og aðkomu hennar að vestrænum löndum. Þar var m.a. fjallað hispurslaust um upprunalega stefnu Múhameðs og innihald Kóransins og spurt hvort islam eigi samleið með vestrænum lýðræðisríkjum, hvaða breytingar hófsamir múslimar vilji gera á islam og hvort hliðarsamfélög innflytjenda hafi myndazt í evrópskum löndum. Eru þar sannarlega mörg áhyggjuefni, eins og kom fram í erindum ræðumannanna beggja.
Engum mótmælum var í raun hreyft á fundinum sjálfum, en þeir, sem helzt mölduðu í móinn, voru Helgi Hrafn pírati, ímaminn í Öskjuhlíð og fylgisveinn hans. Var mikið klappað, þegar Spencer svaraði þeim síðastnefndu, en ímaminn fekk í seinna skiptið tvær mínútur til sinna spurninga og reyndi öðru fremur að finna hliðstæðu í Gamla testamentinu með boðum Kóransins um að drepa vantrúaða. En þegar Ísraelsmönnum var sagt að drepa allan óvinaher Amalekíta, fylgdi því ekkert boð um að það sama ættu þeir að gera í öðrum síðari tilvikum. Eins og Spencer benti á, hafði frásögnin af þessu aldrei verið notuð af gyðinglegum eða kristnum útleggjendum Biblíunnar til að réttlæta nein síðari fjöldamorð á andstæðingum Ísraelsmanna eða Gyðinga, og enginn greip til slíkra röksemda á krossferðatímanum, enda voru krossferðirnar ekki farnar í þeim tilgangi að útrýma neinum.
Fyrir hönd Vakurs stýrði Valdimar Jóhannesson þessum fundi og fórst það vel úr hendi. Nánar geta menn lesið um þetta á vefsíðu Vakurs. En hér er full ástæða til að þakka fyrir góðan fund, í senn upplýsandi og inspírerandi.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Sorglegt að fá svona mann til landsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Islam, múslimar, Mið-Austurlönd | Breytt 12.5.2017 kl. 11:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Miðvikudagur, 10.5.2017
Þjóðin mun ekki fylgja nefbeinslausum pólitíkusum eftir í blindni; þrátt fyrir ofríki gamalla flokka getur Þjóðfylkingin því slegið í gegn
Ríkisstjórnina skortir einurð í hælisleitendamálum. Ætli leiðtogar Sjálfstæðisflokksins geri sér grein fyrir því, að vesaldómur þeirra í málinu er vatn á myllu Íslensku þjóðfylkingarinnar?
Þrátt fyrir margfaldlega ranglátt kosninga- og kjördæmakerfi* mun Þjóðfylkingunni því vaxa ásmegin, einnig í kosningum, eftir því sem æ fleiri landsmenn átta sig á aumingjaskap hinna flokkanna í þessu mikilvæga máli.
Og hafa lesendur tekið eftir því, að betl á vegum útlendra barna er nú hafið í Reykjavík? (ekki síðar en frá og með síðustu viku). Það er hægt að hafa samúð með blessuðum börnunum, en líklegast er hitt, að hinir fullorðnu sendi þau út til slíkrar tekjuöflunar.
Stríðsástand ríkir ekki í flestum upprunalöndum hælisleitenda sem hingað koma. Það er skýr stefna Íslensku þjóðfylkingarinnar, að senda eigi hælisleitendur til heimalandsins innan 48 stunda. Þessu gæti Útlendingastofnun vel annað, ef hún fengi til þess nægilegt rekstrarfé, og vitaskuld er það, á heildina litið, margfalt ódýrara en að hafa þetta fólk hér mánuðum saman bíðandi eftir heimsendingu, en sitjandi á meðan jafnvel í hótelherbergjum eða í gamla Hjálpræðishernum eða íbúðum sem sveitarfélög taka á leigu og skapa með því verðbólguhvetjandi þrýsting á leigumarkaðinn. Á sama tíma þrengir þetta fólk að getu velferðarkerfisins til að uppfylla þarfir fátækra og veikra Íslendinga til brýnnar og stjórnarskrárvarinnar hjálpar þeirra. Það ákvæði stjórnarskrárinnar (76. gr.) tekur ekki til erlendra ríkisborgara.
* Sbr. hér: Full nauðsyn á komu 10 manna ÖSE-eftirlitsnefndarinnar hingað (25.4. 2009)
Bjarni Ben. sér ekki ástæðu til að breyta, hvað þá afnema 5%-lágmarkið! (29.4. 2013)
Af ofríki stóru flokkanna og milljarða fjáraustri þeirra úr vösum skattborgara (13.4. 2015)
og: Íslenzk stjórnvöld verðskulda gagnrýni ÖSE rétt eins og tyrknesk (18.4. 2017).
Jón Valur Jensson.
![]() |
196 umsækjendur fluttir úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Islam, múslimar, Mið-Austurlönd | Breytt s.d. kl. 05:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9.5.2017
Útlendingastofnun býst við 1700-2000 hælisleitendum á þessu ári! Stöðvum þann straum!
Þetta er ófremdarástand og verður það meðan Sigríður innanríkisráðherra fylgir ekki eftir vel upplýstri sannfæringu sinni á þessum málum.
1. jan.-30. apríl sl. sóttu 285 manns um hæli hér á landi, voru 179 á sama tíma í fyrra.
Þessi mikli fjöldi umsókna á fyrstu vikum ársins þykir benda til þess að heildarfjöldi hælisumsókna fari verulega fram úr tölum síðasta árs, en þá komu hingað alls 1.132 hælisleitendur.
Kemur þetta fram í skriflegu svari Útlendingastofnunar til Morgunblaðsins, en þar segir einnig að stofnunin geri nú ráð fyrir að heildarfjöldi hælisumsókna á þessu ári verði jafnvel á bilinu 1.700 til 2.000 umsóknir. (Mbl.is)
Íslenska þjóðfylkingin vill, að hælisleitendum, sem koma frá löndum þar sem ekkert stríðsástand ríkir, verði vísað til baka innan tveggja sólarhringa.
En svo mikil var aðsóknin, einkum frá Albaníu og Makedóníu, síðustu mánuði liðins árs: 550 manns, að það var allt of margt til þess að Útlendingastofnun næði að afgreiða mál þeirra með þeim hraði sem til hafði staðið. (Hádegisútv. Rúv).
Fengju vinstri flokkarnir að ráða í þessum efnum, yrði stefnt út í algera ófæru, með miklu álagi á velferðarkerfi okkar, verðbólguhvetjandi áhrifum á leigumarkaði og með ófarsælli fjölgun múslima eins og í nágrannalöndum okkar á liðnum árum, þótt nú sé eitthvað reynt að takmarka þar innstreymið. En á sama tíma eru hér stjórnmálamenn, sem vilja ekkert læra af reynslunni og fylgja fremur pólitískum rétttrúnaði og "leiðsögn" RÚV (ríkisins í ríkinu) sem stendur nær ösmáum öfgahópi, "No Borders!", heldur en íslenzkum þjóðarhagsmunum.
Verður nú á Sigríði Andersen treystandi í þessum málum, eða ætlar hún að lúffa fyrir harðlínu-fjölmenningarsinnum eins og Guðlaugi Þór Þórðasyni og Unni Brá Konráðsdóttur í sínum eigin flokki? -- að ekki sé talað um ábyrgðarlausu óráðsmennina í hinum flokkunum!
Jón Valur Jensson.
![]() |
Býst við um 2.000 hælisleitendum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Islam, múslimar, Mið-Austurlönd | Breytt s.d. kl. 14:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 18.4.2017
Íslenska þjóðfylkingin styður Le Pen sem næsta forseta Frakklands
Hér er leiðtogi Frakka, Marine Le Pen, sem stendur með sinni þjóð, eini valkosturinn sem Frakkar eiga til verndar gegn islamsvæðingu landsins á borð við Tyrkland.
Eftirfarandi sagði hún á kosningafundi:
"Ég mun vernda ykkur. Það fyrsta sem ég geri sem forseti verður að koma á frönskum landamærum á ný."
"Valkostirnir á sunnudag eru einfaldir. Það er valkostur á milli Frakklands sem rís aftur og Frakklands sem sekkur."
Íslenska þjóðfylkingin styður Le Pen sem næsta forseta Frakklands.
Guðmundur Þorleifsson.
![]() |
Le Pen ætlar að stöðva komu innflytjenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Islam, múslimar, Mið-Austurlönd | Breytt s.d. kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 17.4.2017
Erdogan Tyrklandsforseti fær nánast einræðisvöld, gegn fólki þar í stóru borgunum, en með stuðningi sveitafólks og Tyrkja í Evrópu
73,5% Tyrkja í Austurríki, sem greiddu atkvæði um að færa Erdogan þessi miklu völd, sögðu JÁ, 63% í Þýskalandi, rúml. 75% í Belgíu og 71% í Hollandi. Tryggari eru þeir islamista-forsetanum en lýðræðishugsjón Evrópumanna. Það sama er að segja um afstöðu kjósenda á dreifbýlli svæðum Tyrklands, í Mið-Tyrklandi, sunnar og norðar við Svartahaf.
Karlinn rétt mer þetta með rúmu 51% atkvæða, og því getur það hafa ráðið úrslitum, að kosningasvik hafi verið í tafli, eins og yfirvöld eru nú þegar sökuð um og kröfur uppi um að kæra það. En ekki auðvelda þessi úrslit gengi lýðræðisflokka og fjölmiðla að andmæla hinum yfirlýsta islamista Erdogan, en nú þegar hefur hann beitt blöð, útvarps- og sjónvarpsstöðvar miklu harðræði eftir uppreisnartilraunina gegn honum í fyrra.
Að vera með mikinn meirihluta meðal hinna 2,9 milljóna Tyrkja í Evrópu á bandi forsetans í þessu máli, styrkir ekki trú fólks hér í álfu á að gott geti hlotizt af því að standa uppi í hárinu á Erdogan varðandi flótta fólks í gegnum Tyrkland til Evrópu. Fyrir að halda slíkum flótta í skefjum fær tyrkneski ríkissjóðurinn mörg hundruð milljarða árlega frá ríkjum eins og Þýzkalandi, Austurríki og Evrópusambandinu, en Erdogan hefur þegar ítrekað beitt þeim hótunum, að flóttamannabylgju verði hleypt í gegn, ef stjórnmálastétt Evrópuríkja situr ekki og stendur eins og honum þókknast.
Menn geta svo leitt getum að því (m.a. með hliðsjón af því, að erfitt er að þjóna tveimur herrum), hvort tugir milljóna annarra múslima í Evrópu hafi til að bera sambærilega afstöðu gagnvart lýðréttindum og lýðræðisskipulagi búseturíkja sinna eða vilja fylgja islömskum siðvenjum, m.a. sjaríalögum, en fjöldi sjaríadómstóla er nú þegar við lýði í Bretlandi, Þýzkalandi o.fl. Evrópulöndum, með sorglegum afleiðingum. Eitt er víst, að ekki styrkir þetta réttindi kvenna.
Við Íslendingar þekkjum fleiri en eitt dæmi um mikla erfiðleika íslenzkra kvenna, sem gifzt hafa múslimum og annaðhvort misst allt forræði barna sinna* eða verið nálægt því.**
* Sophia Hansen missti þannig af forræði sinna dætra og mestöllum samgangi við þær.
** Sbr. bókina Barist fyrir frelsinu eftir fjölmiðlamógúlinn Björn Inga Hrafnsson (287 bls., Vaka-Helgafell 2002), en efni bókarinnar er lýst þannig á forsíðunni: "Áhrifamikil saga Guðríðar Örnu Ingólfsdóttur og Hebu Shahin og ævintýralegur flótti þeirra frá Egyptalandi."
Jón Valur Jensson.
![]() |
Meirihluti Tyrkja í Evrópu sagði já |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Islam, múslimar, Mið-Austurlönd | Breytt s.d. kl. 13:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 8.4.2017
Árásarmaðurinn í Stokkhólmi var ISIS-maður, vann ódæðið fyrir Ríki islams - Komnir til að vera? - og viðbrögð okkar?
Að sögn Aftonbladets er hann 39 ára, af úzbekistönskum uppruna og fylgismaður hryðjuverkasamtakanna Ríkis islam.
Skv. SVT-sjónvarpsstöðinni fannst taska með sprengjuefnum í flutningabílnum, svo hermi heimildir innan lögreglu og að sprengjusveit hafi verið kölluð til.
Maðurinn mun vera sá í hettutreyjunni sem lögreglan lýsti eftir í gær og er nú undir yfirheyrslum hennar.
Ljóst er að fylgismenn Ríkis islams eru af mörgum þjóðernum og Svíum mikill vandi á höndum að verjast þeim í fjölbreyttri flóru innflytjenda sinna. Þótt Svíar hafi ekki herlið í Mið-Austurlöndum virðist það engu skipta fyrir ISIS, enda nægir þeim að Svíar hafa selt ríkisstjórnum þar hergögn. En málið virðist umfram allt að ráðast á allt sem vesturlenzkt er.
Jafnvel fyrir okkur Íslendinga er hið fjölmenna múslimasamfélag í Skandinavíu, rétt eins og í Belgíu, Frakklandi, Hollandi, Bretlandi og Þýzkalandi, orðið að flóknum vettvangi og viðsjárverðum, þar sem öfga-islam getur þrifizt, ofbeldismenn dulizt og náð áhrifum til ills, já, til að "bera ávöxt" haturs síns í skelfilegum fjöldamorðum!
Og þetta er ekki tíminn til að sitja og aðhafast ekkert og bíða bara næstu frétta! En til hvaða stjórnmálamanna getum við horft í von um að þeir þori að axla þá ábyrgð að treysta hér í sessi öruggt samfélag frelsis og lýðræðis? Lítið til dæmis til þessa formanns stjórnmálaflokks, sem tjáði sig hér í gær.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Telja sig hafa ökumanninn í haldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Islam, múslimar, Mið-Austurlönd | Breytt s.d. kl. 14:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)