Færsluflokkur: Islam, múslimar, Mið-Austurlönd

Brestir komnir í tiltrú sænskra krata á islam sem eðlileg trúarbrögð

Í Kalmar-léni sprakk blaðran hjá sveitar­stjórnar­manni (sjá S-politiker: Islam vill ta över världen), hvað er Svíþjóð eiginlega að gera? spyr hann. 

”Ryktas om att det har givits tillstånd att bygga moské i Karls­krona, smidigt! Bara ge bort vårt land gratis till islam!” - þ.e.a.s.: Því heyrist fleygt, að leyfi hafi verið veitt til að byggja mosku í Karlskrona, í undan­látssemi! Gefum bara burt frá okkur landið ókeypis til islams!"

”Islam vill ta över världen, och vi ska hjälpa dom ta över vårt land eller vad sysslar Sverige med? Galet! Nu räcker det!” [Síðasta setningin gæti merkt: Nú er verið að rétta þeim það!]

En greinilega hefur hann fengið tiltal síðan og breytti þessari Facebókar-færslu.

Det ursprungliga inlägget har nu redigerats och vissa stycken har tagits bort.

SVT Nyheter Småland ringer upp politikern under fredagen.

– Du skrev att islam vill ta över världen, hur menade du då?

– Det är bara något jag hört en gång i tiden, säger politikern.

– Du skrev att vi håller på att hjälpa dem att ta över vårt land. Vad tänkte du på då?

– Titta på det jag har skrivit idag, så blir det inte mer missförstånd. Det är ingen idé att jag försöker förklara mer, det blir bara fler missförstånd, säger politikern.

”Jag skrev i stundens hetta, dumt”

På sin facebooksida har han nu alltså lagt ut ett nytt inlägg:

”Jag var uppretad och skrev i stundens hetta, dumt,” skriver politikern nu.

Han skriver att han tycker att alla människor har samma rättigheter och skyldigheter och att han är för invandring.

”Där vi tar emot en mängd som vi klarar av att integrera på ett bra sätt.”, skriver han.

Og flokksystir hans tekur á málinu:

När SVT Nyheter Småland når Lena Segerberg, som är ordförande för socialdemokraterna i Kalmar län, för en kommentar, säger hon bland annat så här.

– Är man ersättare i kommunfullmäktige har man ett uppdrag och före­träder vårt parti. Då måste man också tänka på hur man uttrycker sig. Annars riskerar man att skada både sig själv och partiet.

Já, menn þurfa að beita sig sjálfsritskoðun, svo að ekki falli nú minnsti efa­semda­skuggi á stefnu sósíal­demókrata og ekkert dragi úr aðstöðu þeirra til að keyra áfram sinn pólitíska rétttrúnað, þótt hann sé farinn að stefna framtíð Svíþjóðar út í fen óvissunnar og virkilegt hættuspil.

En sá fyrstnefndi skrifar nýja færslu, þar sem hann segir: ”Ég er á móti öllum trúarbrögðum, og islam er trúarbrögð sem hræða mig.”

SVT Nyheter Småland frågar vad det är som skrämmer med islam?

– Jag kan inte ta fram några enskilda saker som jag tänker på. Jag har faktiskt aldrig läst Koranen. Det ska jag nog göra, det vore nyttigt, säger politikern.

Dæmi úr sænskri pólitík! Ekki á háu plani í þekkingu þessir Svíar í krata­flokkn­um, en þeir geta ekki endalaust setið á honum stóra sínum gagnvart því sem þeir verða að horfa upp á að sé að gerast í landinu, sem einu sinni var þeirra, en er nú að verða hvers manns vettvangur fyrir stórfelldar þjóðfélags­breytingar sem ógna bæði samstöðu þjóðarinnar (sbr. að hinir róttæku Sví­þjóð­ar­demó­krat­ar eru nú orðnir næststærsti flokkurinn) og gera landið að tilrauna­svæði þar sem áhangendur annarlegra trúarbragða fá tækifæri til skaðlegra áhrifa á mótun bæði ungdómsins og réttinda­stöðu kvenna, fyrir utan hættuna sem fólgin er í 2.000 manna hópi herskárra islamista í landinu! (og höfum þá í huga hryðjuverkið í Stokkhólmi 7. apríl sl., þar sem fimm létust og 15 særðust).

Þarna ofar var talað um líkur á því að moska verði byggð í Karlskrona. En nýjustu fréttir af moskumálum hér í Reykjavík eru þær, að borgarstjórn hafi gefið leyfi til byggingar turns (mínarettu, bæna­turns) við Skógar­hlíðar­moskuna og til stækkunar hússins. Væntanlega mun einhver félagi Íslensku þjóð­fylk­ingarinnar fjalla um þá fráleitu ákvörðun fljótlega hér á síðunni. 

Á með­an er sannarlega vert að lesa nýritaða viðvörun ágætrar háskólakonu um bænaturnana, sem endurbirt er HÉR!

JVJ tók saman.


Viðnám Vesturlanda: Ánægjulegur dóms­úrskurður Mannréttinda­dómstóls Evrópu

Eyjan segir frá því, að bann Belga á búrkum sé löglegt að mati Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Þetta gefur færi á því á einu sviði að snúa pend­úlnum aðeins í hina áttina, frá islams­væð­ingu Evrópu, sem lin­kind Frakk­lands­forseta býður hins vegar heim eins og margt í stefnu vinstri flokka á Norður­löndunum og víðar. En allt, sem miðar að því að Evrópu­þjóðir láti ekki hafa sig að fíflum, heldur spyrni fæti gegn flóði hælisleitenda og standi með sínum eigin samfé­lags­reglum í stað undirgefni við islam og jafnvel sjaríalög, öll slík viðleitni er af hinu góða.

Í Belgíu höfðu verið sett lög árið 2011 "sem banna búrkur og önnur klæði sem hylja andlit á almannafæri. Í dag komst svo Mann­réttinda­dómstóllinn að þeirri niður­stöðu að bannið bryti ekki í bága við rétt fólks til einkalífs og rétt fólks til trúarskoðana.

Segir í niðurstöðu dómsins, sem greint er frá á vef Independent, að ríkisstjórnin hafi með lögunum verið að bregðast við hefð sem stangaðist á við belgískt samfélag:

Þetta er hefð sem álitin er ósamrýman­leg við belgískt samfélag, við félagsleg samskipti og grundvöll mannlegra samskipta, sem eru ómissandi þáttur í því að lifa í samfélagi og tryggir hlutverk lýðræðislegs samfélags." (Eyjan.is)

Þetta má vera okkur til góðrar fyrirmyndar, eða hver vill þetta ástand hér:

Frá Íran berast þær fréttir, að konur reyni þar í sívaxandi mæli að komast hjá því að bera slæður. Þeim er heimilt að sleppa því í einkarými, og vilja margar láta það ná til bíls síns líka, þar sem þær bera þá slæðuna fremur á öxlum sér en yfir höfðinu. En karl­rembulegir "siðgæðis­verðir" þar reyna daglega að grípa inn í með sektum, gera jafn­vel bif­reiðir slíkra kvenna tíma­bundið upp­tækar, en tekst samt ekki að berja niður frelsisanda kvennanna.

Meðan stjórnvöld hér á Íslandi láta það óátalið, að hér vaxi fyrst og fremst múslima­söfnuðir styrktir ótæpilega af Saudi-aröbum, þá er líklegt að slæðu- og jafnvel búrku-notkun fari vaxandi meðal múslimskra kvenna í landinu. Virðist það ennfremur fatastíll margra þeirra kvenna sem hingað eru komnar frá múslimskum löndum Balkan­skaga. Eru menn jafnvel farnir að rekast á fullklæddar konur í gufuböðum sundlauganna!

Þessi mál þarf að ræða án æsings og af yfirvegun og móta stefnu sem virðir okkar hefðir, án þess að ryðjast inn á svið einkalífsins, og þar er þá dóms­úrskurður Mann­réttinda­dómstóls Evrópu góður til viðmiðs og til leiðsagnar um það, hvað okkur leyfist með ströngum reglum um þessi mál.

Vart þarf að minna á, að í mörgum tilfellum hafa búrku­klæddar konur verið látnar fara með sjálfs­morðs­belti inn á meðal meintra óvina islamista og valdið ómælan­legum hörmungum fyrir fjölda fólks. Við eigum fulla heimtingu á því, að aðrir í samfélaginu komi til dyranna með þeim hætti sem sýnir, hverjir þeir eru, fremur en hitt að leyna því hvern mann þeir hafi að geyma.

Þjóðverjar lærðu sína erfiðu lexíu í þessu efni um helgina þegar grímuklæddir, vinstrisinn­aðir ofbeldismenn gengu hundruðum saman berserksgang gegn lögreglu Hamborgar og gegn eigum borgarbúa. Nú hafa kristilegir demókratar þar frumkvæði að því að herða allar reglur um opinber mótmæli (m.a. með tölvuskráningu öfgamanna og útilokun þeirra frá því að vaða um á milli ríkja í þessum skarðræðis­tilgangi), enda voru 476 særðir lögreglumenn endapunkt­ur­inn á, að andvaralítið "umburðar­lyndi" fái lengur að gilda í slíkum tilfellum.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Virða ekki slæðulögin í Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frönsk linkind sem engu mun skila nema enn frekari óstjórn

Emm­anu­el Macron Frakk­lands­for­seti hef­ur beðið innan­ríkis­ráðherra sinn, Ger­ard Collomb, "að flýta af­greiðslu hæl­is­um­sókna þannig að yf­ir­völd geti svarað því á inn­an við hálfu ári hverj­ir fái hæli og hverj­ir verði send­ir úr landi."

Þetta er allsendis fráleit "lausn". Á meðan heldur hælis­leit­endum áfram að fjölga og öryggi Vestur­landa að minnka, fyrir utan hvernig velferðar­kerfið er að bresta undan þunganum.

Norðmönnum tekst að koma ólöglegum hælis­leitendum úr landi á tveimur sólarhringum. Einn fárra vakandi sjálfstæðis­manna, Björn Bjarnason, fyrrv. menntamála- og dómsmála­ráðherra, hefur haldið uppi gagnrýni á framkvæmd þessara mála hér á landi og knúð á um að bætt verði úr án tafar. Það eigi ekki að vera okkur ofviða að afgreiða á einni viku þessi mál, sem Norðmönnum nægja 2-3 sólarhringar til að leysa.

En Macron lætur sér nægja hálft ár! Og minnihlutastjórnin íslenzka ræður ekki við þetta á skemmri tíma en allt að einu ári!

En þessi er stefna Íslensku þjóðfylkingarinnar: ÍÞ vill herta innflytjenda­löggjöf og innleiða 48 tíma regluna í málefnum hælisleitenda. Það er ekkert vit í öðru en að setja þá fjármuni, sem til þarf, í lausn þessa vandamáls. Eftir að það hefur verið gert af krafti á einum til tveimur mánuðum, verður eftir­leikurinn auðveldur, og afgreiðslan þarf ekki að taka meira en tvo sólar­hringa. Vilji er allt sem þarf!

Á Útvarpi Sögu er dr. Ólafur Ísleifsson hagfræðingur í ágætu viðtali, þegar þessi orð eru rituð, og hvetur þar til þess, að yfirvöld hér láti senda menn til Noregs til að kynna sér, hvernig Norðmenn leysi þessi verkefni. Það er góð tillaga.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Ráku þúsundir hælisleitenda á brott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evrópulönd hvert á eftir öðru eru stig af stigi að loka á hælisleitendur

Ekki hét Góða fólkið® þessu fyrir ári!

Aust­ur­rísk stjórnvöld vilja fá aðstoð hers­ins til að hægja á straumi hælis­leit­enda frá Ítalíu. 85.000 hafa komið sjó­leiðis til Ítal­íu 2017, Frakkar neita Ítölum (sem ráða ekki við þennan fjölda) um að taka við meira fólki, því að það hafi þver­öfug áhrif sunnan Mið­jarðar­hafs: auki bara strauminn yfir hafið!

Þetta kemur skýrt fram í frétt hér í gær: Ítal­ir geta ekki tekið ein­ir við hæl­is­leit­end­um, þar sem segir m.a.:

Ítölsk stjórn­völd hafa reynt að þrýsta á önn­ur Evr­ópu­ríki að opna hafn­ir sín­ar fyr­ir björg­un­ar­skip­um og deila þannig byrðinni. Stjórn­völd í Frakk­landi hafa hafnað slíkri beiðni og sagt slík­ar aðgerðir hafa öf­ug­virk­andi áhrif. Slíkt gæti hvatt fleiri hæl­is­leit­end­ur til að halda yfir hafið, að því er AFP hef­ur eft­ir ein­um aðstoðar­manni Ger­ards Collomb, inn­an­rík­is­ráðherra Frakk­lands. (Mbl.is)

Vincent Cochetel, sér­stak­ur sendi­full­trúi flóttamannahjálpar SÞ í Miðjarðar­hafs­ríkj­un­um, "hvatti til end­ur­skoðunar á áætl­un Evr­ópu­sam­bands­ins í mál­efn­um hæl­is­leit­enda frá 2015, þar sem til stóð að flytja 160.000 hæl­is­leit­end­ur frá Ítal­íu og Grikklandi til annarra ríkja ESB. Ein­ung­is er búið að flytja 20.000 af þeim 160.000 hæl­is­leit­end­um sem til stóð að flytja og ríki á borð við Ung­verja­land, Pól­land og Tékk­land hafa neitað að taka þátt í áætl­un­inni." (Mbl.is) -- Ekki geng­ur sú áætlun eftir með þessu vinnulagi!

Hér má sjá á mynd gott sýnishorn af hælisleitendum með skipum til Ítalíu, en vart nema lítill hluti þeirra mun koma frá hinu stríðshrjáða, fjarlæga Suður-Súdan, enda er fátækt þar mikil, en fargjaldið rándýrt yfir hafið.

Björgunarskipið Aquarius, sem rekið er af S.O.S. samtökunum og Læknum ...

Það skyldi þó ekki fara svo, að Íslenska þjóðfylkingin og systur­flokkar hennar á megin­landinu hafi reynzt sannspáir um þau vandræði, sem leiðtogar Þýzka­lands, Svíþjóðar o.fl. landa, en fyrst og fremst Evrópu­sambandsins voru að kalla yfir lönd sín og þjóðir með hinni nánast galopnu eða allt of losaralegu stefnu í innflytjenda­málum?

Í reynd eru jafnvel sýrlenzkir flóttamenn farnir að snúa í stórum stíl til baka til heimalandsins, talað er um 400.000 slíka, en á meðan heldur straumurinn áfram norður á bóginn frá löndum sem búa EKKI við stríð!

Jón Valur Jensson.


mbl.is Herinn verði sendur á landamæri Ítalíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öfga­full­ir islam­ist­ar í Svíþjóð hafa nær tí­faldazt í fjölda á sjö árum!

Tvö þúsund eru þeir taldir að sögn yf­ir­manns sænsku ör­ygg­is­lög­regl­unn­ar (Säpo), And­ers Thorn­berg. 

Að sögn Thorn­bergs eru um 3.000 öfga­full­ir of­beld­is­menn í Svíþjóð en af þeim eru 2 þúsund íslam­ist­ar. Aðrir eru öfga hægri menn eða öfga vinstri­menn. 

Árið 2010 kom fram í skýrslu Säpo að um tvö hundruð öfga­full­ir íslam­ist­ar byggju í land­inu. (Mbl.is)

Þessa aukn­ing­u rekur Säpo að mestu til áróðurs­ma­skínu Rík­is islams.

Þrátt fyr­ir að fá­ir þeirra hafi vilja og getu til þess að gera árás­ir verður að fylgj­ast með þeim, seg­ir Thorn­berg en hann ræddi þetta við fjöl­miðla í morg­un. 

Hann seg­ir að það sé mik­il­vægt að all­ir Sví­ar taki ábyrgð til að binda enda á þessa þróun. „Áður en við verðum fyr­ir árás eða of­beld­is­verki,“ seg­ir Thorn­berg í viðtali við TT frétta­stof­una.

Þykir mönnum þá undarlegt, að lögreglan íslenzka er fartin að hafa gát á þessum málum? Eiga þessi öfgamenn ekki auðvelt aðgengi að íslenzku þjóðinni með því að "hoppa yfir pollinn"?" Lítum bara á það sem þessir menn í Svíþjóð hafa "afrekað" nú þegar:

Úzbeki gerði árás í Stokk­hólmi 7. apríl með því að keyra inn í hóp af fólki og lét­ust fimm í árás­inni og 15 særðust. 

Um þrjú hundruð Sví­ar hafa farið til Sýr­lands og Íraks til þess að berj­ast með Ríki íslams. Um 140 þeirra hafa snúið heim aft­ur, en um 50 lát­ist er­lend­is.

Einn þeirra sem tók þátt í hryðju­verka­árás­un­um í Brus­sel í fyrra er Svíi, Osama Krayem, en hann hef­ur ekki enn verið dæmd­ur fyr­ir aðild að árás­un­um. (Mbl.is)

Og hér er að finna viðtal við Thorn­berg á vef Dagens Nyheter.

Eigum við ekki að enda þetta á sígildri speki: Allur er varinn góður -- og: 

 

Gáttir allar

áðr gangi fram,

um skoðast skyli,

um skyggnast skyli,

því að óvíst er að vita,

hvar óvinir

sitja á fleti fyrir.            (Hávamál, 1. erindi.)

 

Jón Valur Jensson.


mbl.is Þrjú þúsund öfgafullir ofbeldismenn í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flúðu Sýrland til Noregs - nauðga svo 13 ára stúlku þar - en látnir sleppa!

TV2 í Noregi er með þá frétt að þrír sýrlenskir bræður, 20, 21 og 25 ára, hafi verið sýknaðir af nauðgun á 13 ára gömlu stúlkubarni, af því að þeir sögðust ekki hafa vitað hversu gömul hún væri. 

Það er víst allt á suðupunkti í Noregi núna, og skyldi engan undra.  http://www.tv2.no/a/9213118/

Sigurlaug Oddný Björnsdóttir.


Ítalir hóta að loka hafinu fyrir hælisleitendum

Ósjálfbær upplausn ríkir víðar en í Venez­úela. Ítalir, sem fá flesta flótta­menn­ina frá Líbýu (73.000 það sem af er ári, 14% aukn­ing frá í fyrra), fá ónógan stuðn­ing frá öðrum ESB-ríkjum. En þetta fólk á far­alds­fæti er frá Afr­íku, Ar­ab­íu­skaga, Egyptalandi, Sýr­landi og jafnvel Bangla­desh. "Marg­ir flýja stríð, fá­tækt og of­sókn­ir, og lok­an­ir á leiðum gegn­um Balk­anskag­ann hafa aukið streymi til lands­ins" (Mbl.is), en augljóst er, að hér er einnig um efnahags­flóttamenn að ræða, sbr. ýmsa hælisleitendur hér!

Ítalska strand­gæsl­an er stór­tæk í björg­un­araðgerðum á hafsvæðinu, en mörg skip­anna sigla und­ir öðrum Evr­ópuf­án­um. Heim­ild­armaður frétta­stofu Reu­ters sagði að hug­mynd­ir væru uppi um að hindra er­lend skip sem væru á veg­um annarra en ít­alskra stjórn­valda. Það er hins veg­ar enn óljóst hvort slík­ar aðgerðir séu ólög­leg­ar eða ekki. (Mbl.is)

Hlutirnir gerast ekki í tómarúmi, heldur mótast af aðstæðum á Ítalíu sjálfri. Þjóðin er farin að hallast frá hinni opnu stefnu í inn­flytj­enda- og flótta­manna­mál­um, og þá er ekki lengur grundvöllur fyrir ráðandi flokka til að loka augunum fyrir því.

"Hót­an­ir ít­alskra stjórn­valda koma í kjöl­far fylg­istaps [sósíal­demó­kratíska] Demó­krata­flokks­ins í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­un­um á Ítal­íu í síðustu viku þar sem flokk­ur­inn tapaði fylg­inu til Forza Italia og Norður­bandalagsins sem byggja báðir boðskap sinn á hert­ari aðgerðum í inn­flytj­enda- og flótta­manna­mál­um" (Mbl.is).

Það kemur að því, að þjóðir segja STOPP við ósjálfbærri ofur­bjartsýnis­stefnu. Hinar ESB-þjóðirnar eru heldur ekki, í ljósi endur­vakinna hryðjuverka, ginn­keypt­ar fyrir því að auka enn fjölda múslima í álfunni, a.m.k. ekki í þeirra löndum! Þvinganir, sem Brussel-valdið með sínum refsivendi reynir til að jafna þunga þessara hælis­leitenda og flótta­manna á allar sínar meðlima­þjóðir, m.a. þær sem eru austan gamla járntjaldsins og hafa tekið við fáum slíkum, hleypa bara illu blóði í þær þjóðir. Sjálf heildarstefnan er því í upplausn og réttasta ráðið að senda báta­fólkið (sem borgar farið dýrum dómum) aftur til baka næstu misserin, eins og gert hefur verið í Ástralíu og dugað til að stöðva strauminn þangað af bátafólki.

Langfarsælast er að hjálpa þessu fólki í sínum eigin löndum, þar sem unnt er. Í lágu verðlagi þar nýtast hjálparsjóðir margfalt betur þar en hér í álfu.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Ítalía hótar að loka höfnunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af Ramadan-föstumánuði múslima

Sælir, félagar á síðu XE.is og víðar. Skrif mín nú eru vegna Ramadan, föstu­mánaðar múslima, sem hefur nú staðið yfir í mánuð, og Guð einn veit hversu mörg morð og limlestingar munu bætast við; þegar ég skrifa þetta eru þrír dagar eftir.

Þessi hefðbundni aftöku- og átmánuður á að enda 25. júní. Ástæða þessara skrifa er sú að þeir sem hafa haldið að þetta væri einhversskonar trúarhátíð, mega vakna upp við hvernig þessi lygatrú friðarins hagar sér.

Þessi „föstumánuður“ algerrar blekkingar stendur yfir í 30 daga frá sólarupprás til sólarlags. Þeir vakna upp fyrir sólarupprás og hreinlega troða sig út af matvælum, leggjast svo aftur til svefns. Vakna aftur að kveldi og ítroðslan heldur áfram en nú með veisluhöldum í nokkra klukkutíma, og síðan er þetta endurtekið í 30 sólarhringa. Gaman að búa í sömu blokk, enda margar uppá­komur vandamála viðloðandi, og hafa þeir hrakið fólk af heimilum sínum vegna þessa og eignir hafa fallið í verði. Sagt er að þeir verði bæði veikir af þessu og klikkaðir vegna árásargirni.

Það sem er þó alvarlegast með þessa trú friðarins eru drápsferðirnar sem þeir fara í á þessari föstu, þeir sjálfir kalla þetta nú í ár Ramadan Bombathon 2017. Trú friðarins er þetta og ráðamenn þjóðanna mæra ófögnuðinn sem og jaðar­hóparnir, uppreisnar­seggirnir, anarkistar og aðrir sem eru ekki með vit í kollinum.

Að þessu sögðu er skynsamlegt að geta þess að ráðamenn þjóðanna keppast við að senda múslimum hamingjuóskir í tilefni Ramadan, og segir það okkur hvers konar vanþekking er á sveimi í veröldinni hvað varðar islam. Og jafnvel meðvirkni óttans sumsstaðar, þeir eru búnir að koma ár sinni vel fyrir borð víða innan stjórnkefis, félaga og skóla, þeir hafa nægjanlegt af olíuauð sem kemur þeim vel. Vil ég segja að þeir kunna að setja inn pening í hinar ýmsu aðstæður og draga þannig úr vilja þeirra sem njóta góðs af til að taka heiðar­lega á aðstæðum. Hagnaður þeirra er annarra sársauki, eins og í mörgu.

Í ár störtuðu þeir ramadan-átsukkinu með glæsilegum afköstum hryðjuverka frá þeirra sjónarhorni. Á degi þrjú voru árásir orðnar 12, drepnir 118. Fyrsta drápið átti sér stað er 10 grímuklæddir jihadistar réðust á rútu í Mynja-héraði í Egypta­landi 26. maí, þeir gátu ekki setið á sér að bíða og byrjuðu samdægurs (rama­dan byrjaði föstudag 26. maí að kveldi) og sölluðu niður alla sem þeir náðu, börn, konur og menn, 28 manns fyrir utan særða. Þetta voru allt kristnir Egyptar á leið til kirkju. (ISIS-samtökin hafa lýst sig ábyrg fyrir fullt af dauða­árásum á kristnar kirkjur í Egyptalandi.)

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, upplýsingar um samantekt dugnaðar þeirra á föstunni segja allt sem þarf.* En að síðustu ætla ég að setja hér inn orð Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem vill bæta samskipti við stjórnvöld í Kaíró og segir að Ameríka standi með el-Sissi forseta og egypsku þjóðinni. "Hin mik­ils­virtu og sögulegu kristnu samfélög í Mið-Austur­löndum verður að verja og vernda," sagði Trump.

* Í Ramadan 2014 voru framdar 272 hryðjuverkaárásir í nafni islams og 37 sjálfsmorðssprengingar, drepnir 2429, særðir 2028.

Í Ramadan 2015 voru framdar 314 hryðjuverkaárásir í nafni islams og 63 sjálfsmorðssprengingar, drepnir 2988, særðir 3696.

Í Ramadan 2016 voru framdar 238 hryðjuverkaárásir í nafni islams, drepnir 1850.

Sigurlaug Oddný Björnsdóttir, Íslensku þjóðfylkingunni.


Eðlilegur viðbúnaður vegna hryðjuverkahættu

Hryðjuverk í Evrópu hafa aukizt verulega á síðustu misserum, nánast alfarið af völdum öfga­múslima. Einmitt í þessari viku er mörgum að verða ljóst, að það er ekki sjálfgefið, að vel upplýstum, ábyrgum, jarð­tengdum lögreglu­yfir­völdum okkar sé treyst fyrir áhættu­mati hér á landi vegna hugsanlegra hryðjuverka og fyrir ákvörðunum um vopnaburð lögreglu við meiri háttar samkomur, þar sem á getur þurft að halda. Vantraustið á lögregluna kemur frá vinstri mönnum.

Ýmis önnur úrræði en byssuvernd hefur lögreglan vissulega að auki, svo sem lokun gatna með veghindrunum, og geta menn þar haft í huga, hve mörgum mannslífum hefði með slíkri forsjá mátt bjarga í frönsku borginni Nice (þar sem 81 drepinn með notkun flutningabíls sem keyrður var á fullri ferð eftir langri breiðgötu í gegnum mikinn mannfjölda) og í Lundúnum fyrir nokkrum dögum. En dæmi um vel heppnaða götulokun hér á landi var einmitt við sjómannadags-hátíðahöldin á Grandagarði sl. sunnudag, þar sem lögregla þurfti því ekki að vera sýnileg á staðnum.

Ennfremur er allt eftirlit lögreglu með netsamskiptum aðila, sem liggja undir grun, afskaplega mikilvægt.

Forvirkar aðgerðir lögreglu, þ.e. heimildir til þeirra, voru lengi umþráttunar­efni í Alþingi, og tillögur um þær urðu vinstri flokkunum efni í margar uppákomur og þingtafir, sem við umhugsun eru þeim einungis til skammar.

Enn á ný eru svo Vinstri græn sérstaklega farin að beita sér gegn vopnvæðingu lögreglu við vissar fjöldasamkomur, einmitt nú, svo stuttu eftir mannskæðu hryðjuverkin í Bretlandi!

Aðalritstjóri Fréttablaðsins sýnir sig í leiðara í dag að vera úti að aka í þessu máli. Hún talar um að á dögum IRA, ETA-samtakanna, Rauðu herdeildanna, Baader-Meinhof, PLO o.fl. hryðjuverkahópa á seinni hluta 20. aldar hafi verið mun meira um hryðjuverk en nú (sem stenzt þó alls ekki, ef 9/11 er innifalinn, lestafjöldamorðin mannskæðu í Madríd 11/3 2004 og Lundúnum 7/7 2005, fjöldamorðin í París og Nice á liðnu ári auk hryðjuverkanna þriggja í Bretlandi á þessu ári og annarra í löndum gamla sovétveldisins); og ritstjórinn er ber­sýni­lega að vísa til þess, að ekki hafi verið krafizt neins öryggis­viðbúnaðar hér á landi við fjölda­samkomur á dögum hinnar fyrri hryðju­verka­öldu á 20. öld.

En þær aðstæður voru gersamlega ólíkar því, sem nú er: mikið til staðbundin átök þá, bundin að mestu við Spán eða Norður-Írland og einangruð tilfelli á meginlandinu, en náðu að sjálfsögðu ekki til Íslands. En nú er við harðsvíraða islam­istíska heimsvalda- og haturs­stefnu að glíma, sem stefnt er gegn sak­laus­um almenningi í kristnum löndum Evrópu, og samvizkulaust er tilgangurinn látinn helga meðalið, þótt börn eigi mjög víða í hlut, eins og sézt hefur í Manchester, París, Nice og jafnvel í meiri háttar hryðjuverkum islamista í rússneska ríkjasambandinu.

Hér á landi hafa aðstæður líka breytzt, landið afar opið fyrir útlöndum, gríðar­legt aðstreymi ferðamanna og mikill fjöldi hælisleitenda staddur í landinu, meiri­hluti þeirra frá múslimalöndum. En á 7.-8. áratugnum voru hér aðeins fáeinir múslimar.

Aftonbladet sænska var í gær, 16. júní, með viðtal við yfirmann öryggis­lög­reglunnar (Säpo) sem upplýsir að ÞÚSUNDIR róttækra islamista séu nú í Svíþjóð; má vísa til fréttar um þetta á Eyjunni í gær. Og þessir menn hafa auðvelt ferðafrelsi til Íslands!

Í takt við eindreginn stuðning Fréttablaðsins við hinn lélega málstað vinstri friðar­dúfanna Katrínar Jakobs­dóttur og Lífar Magnús­dóttur birtir blaðið nú í þriðja sinn glannalega skopmynd á leiðarasíðunni, sem í 3. sinn lýgur að almenningi, að lögreglan íslenzka verði þungvopnuð vélbyssum við öryggis­gæzlu á hátíða­höldunum. Það rétta er, að hún er vopnuð skammbyssum, en meiri vopn tiltæk á sama svæði.

Hver er ábyrgðartilfinn­ing leiðandi VG-manna gagnvart börnum sínum? Vilja þeir ekki, að lögregla geti með skjótvirkum hætti kveðið niður árásaraðila með þeim vopnum sem duga? Vilja þessar VG-konur Katrín og Líf, að hryðjuverka­manni sé frekar gefið frítt spil til að níðast heldur lengur á sem allra flestum sakleysingjum? Eða eiga áfallateymi þeirra að verja okkur? En þau reisa engin börn upp frá dauðum!

Stöndum með okkar eigin landi og þjóð, með eins traustum landvörnum og nauðsyn ber til á þessum varasömu tímum.

Gleðilega þjóðhátíð.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Hátíð í rigningunni á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gripið verður til æ betri varnarkerfa gegn óvinum þjóðfélagsins

Ánægjuleg er sú tækniframför sem þýzka lögreglan er nú að koma í gagnið: and­lits­grein­ing á lest­ar­stöðvum "í því skyni að hjálpa lög­reglu að finna hryðju­verka­menn."

Thom­as de Maizi­ere inn­an­rík­is­ráðherra sagði að tækn­in verði prófuð á sjálf­boðaliðum á Su­ed­kr­euz-stöðinni í Berlín og að gef­ist til­raun­in vel verði hún inn­leidd á fleiri lest­ar­stöðvum. 

„Við höf­um nú þegar mynd­bands­eft­ir­lit á lest­ar­stöðvum. En við höf­um ekki getað sett mynd af hryðju­verka­manni í kerfi sem læt­ur okk­ur vita þegar hann kem­ur í mynd,“ sagði Maizi­ere í viðtali við dag­blaðið Tagespieg­el. „Reyn­ist tækn­in áreiðan­leg ætti hún líka að vera notuð til að finna ann­ars kon­ar glæpa­menn.“ (Mbl.is)

Þannig reynist sókn alþjóðlegra glæpamanna gegn almenningi verða til þess með eins konar pendúls-áhrifum, að gripið verði til æ betri varnarkerfa.

Sam­kvæmt frétta­skýr­ingu Tagespieg­el er ekki lík­legt að nýja kerfið verði fyr­ir laga­legri mót­stöðu vegna þess að það yrði aðeins notað til að finna þá sem liggja und­ir grun. Þannig bryti það ekki á rétt­ind­um þeirra sem koma rann­sókn­inni ekki við. 

Hér á Íslandi þurfum við að gæta þess, að meint persónuvernd verði ekki látin ganga fyrir öryggi almennings.

Nýjasta stóra hryðjuverkið í Þýska­landi var mann­skæð árás á jóla­markaði í Berlín árið 2016 þegar maður frá Tún­is keyrði flutn­inga­bíl á mann­fjölda og drap tólf manns.

JVJ.


mbl.is Greina andlit á lestarstöðvum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband