Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
Miðvikudagur, 16.8.2017
Sigríður Á. Andersen talar skýrt og tæpitungulaust um mál hælisleitenda í afar upplýsandi viðtali
Jón Valur Jensson.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 02:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 14.8.2017
Þingmanna-þversagnir - krabbameins-göngudeild lokað því að 3 millj.kr. vantar; svo kasta þingmenn 5500 milljónum út um gluggann!
Kolbeini Proppé virðist þykja í lagi að ríkið borgi 20 milljóna gjaldþrot fyrir hann,* en að sumir Íslendingar verði að búa í tjaldi; á sama tíma vill hann láta moka 5500 milljónum í hælisleitendur bara á þessu ári - og meira síðar!
Svo segja þessir bullukollar að það þurfi að loka göngudeild fyrir krabbameinssjúka á Landspítalanum í sumar af því að það vanti 3 milljónir!!!
Það er augljóst hvað þessir óþjóðhollu menn hafa í forgangi: sína "gráu theoríu" (Goethe): pólitíska kreddu innflutta frá evrópskum vinstrimönnum.
* http://www.dv.is/folk/2016/7/1/kolbeinn-proppe-mer-var-radlagt-ad-gefast-upp/
SOB, HH, JVJ
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 05:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 30.7.2017
Víkingasveitin kölluð út vegna hnífabardaga hælisleitenda á Ásbrú
Víkurfréttir og DV segja frá:
Víkingasveitin var kölluð út til að aðstoða lögregluna á Suðurnesjum rétt fyrir miðnætti 29. júlí.
Á vef Víkurfrétta er greint frá því að átök hafi átt sér stað á gistiheimili á Ásbrú. Gistiheimilið er á vegum Útlendingastofnunar.
Í frétt Víkurfrétta kemur fram að vopn hafi verið notuð og voru þeir sem tóku þátt í átökunum vopnaðir hnífum. Þá var óskað eftir sjúkrabifreið á staðinn.
Þessu taka menn ekki vel á Facebók og DV-vefnum, margir taka sterkt til orða.
En er það ekki orðið dæmigert um ástandið, að þörf sé á íslenzkum víkingum til að stöðva uppivöðslusama suðræna flakkara sem sýna með þessum hætti þakklætið fyrir að vera haldið hér uppi í munaðarlífi á kostnað skattgreiðenda?
Jónas Þór Jóhannsson spyr: "Er þessi ríkisstjórn ófær um að taka á þessu vandamáli?"
Guðlaugur Ævar Hilmarsson svarar: "Þorir ekki að rugga bátnum. Er með 1 yfir á Alþingi. Ef hann stoppar þennan ósóma, fara Óttarr Proppé og Svört framtíð í fýlu." Tekur einnig fram, að aldrei hafi hann kosið Svarta framtíð, og bendir á þennan fréttartengil: http://www.mbl.is/frettir/kosning/2016/09/17/vilja_ad_islendingar_verdi_800_thusund/
Arnar Styr Börnsson ritar: "Væri ekki betra að nefna gistiheimilið Valhöll?"
Halldór Karelsson: "Ótrúleg stjórnartök hjá þessari vanhæfu ríkisstjórn."
Jón Valur Jensson.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 19.7.2017
Innflutt siðferði? Hælisleitendur stela ítrekað hjólum Suðurnesjamanna!
Það er nógu slæmt að hálfgerðir mafíósar (frá Eystrasalti?) hafa laumazt í þvottahús og hjólageymslur á höfuðborgarsvæðinu og hirt þar öll dýr og vönduð hjól, jafnvel til gámaútflutnings!
En hælisleitendur á Suðurnesjum hafa ýmsir sýnt, að þeir virða ekki eignarrétt náungans.
Hér er ný frétt á DV.is:
Stolin hjól í Reykjanesbæ finnast hjá flóttamönnum
Síðastliðin misseri hefur hefur það orðið æ algengara að hjólum sé stolið í Reykjanesbæ. Í allmörgum tilvikum finnast hjólin við híbýli hælisleitenda á vegum Útlendingastofnunar á Ásbrú.
Suðurnes.net greinir frá þessu. Þar segir að margir á Suðurnesjum hafi greint frá reiðhjólaþjófnaði á samfélagsmiðlunum undanfarna daga. Fjöldi þeirra segjast hafa sótt hjólin til hælisleitenda.
Um fjörutíu hælisleitendur er í húsnæðinu á Ásbrú en Útlendingastofnun hefur tekið til leigu allt húsnæði Airport-inn gistiheimilisins.
Áður hafa fáeinir hælisleitendur í Reykjanesbæ orðið berir að kynferðislegri áreitni við stúlkur á svæðinu og um það verið skrifað í Víkurfréttum.
Útlendingastofnun hefur nú sagt upp húsnæði sínu fyrir hælisleitendur á Kjalarnesi. Ekki er það óvinsæl ákvörðun meðal Kjalnesinga! En þeim mun ósáttari eru Suðurnesjamenn við, að þeim mönnum verður beint í húsnæðið á Ásbrú!
Sú endanlega lausn þarf að komast á þessi mál, að hælisleitendum frá löndum, þar sem ekki er stríðsástand, verði tafarlaust vísað úr landi, innan tveggja sólarhringa. Þetta geta Norðmenn, þetta getum við, ef við erum ekki með rolur og hugleysingja í stöðum ráðamanna.
Jón Valur Jensson.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 18.7.2017
Fylgjumst með því hvernig Saudi-arabar fara með þessa konu! - o.fl. af ásælni Saudi-araba, jafnvel hér á landi!
Myndband af ungri konu í stuttu pilsi og bol á göngu um sögustað í Saudi-Arabíu vekur nú hneyksli og umræður í þvísa landi. Siðgæðislögreglan yfirheyrði hana vegna ósæmilegs klæðnaðar og að vera ein í fylgd með karlmanni, sem var hvorki skyldur henni né venzlaður, og án þess að hafa meðferðis skriflegt leyfi karlkyns ættingja (oftast föður).
Já, þetta er meiri háttar mál í Saudi-Arabíu, þar sem miskunnarlaus refsing getur verið við slíku athæfi!
Frá þessu segir í frétt á Mbl.is, en einnig hér í frétt á nýjum og athyglisverðum netmiðli, Skinna.is.
Myndböndin hafa birtzt bæði á Snapchat um helgina og síðan á YouTube, og margir deila þeim á samfélagsmiðlum.
Samkvæmt lögum í Sádi-Arabíu verða konur að klæðast svörtum, síðum kuflum og hylja hár sitt á almannafæri. (Mbl.is)
Merkilegt, að við Íslendingar höfum það af Saudi-Arabíu að segja, að það land hefur nú þegar gefið eina milljón dollara (á þeim tíma um 120 millj. króna) til mosku múslima í Skógarhlíð -- nokkuð sem herra Ólafur Ragnar Grímsson hneykslaðist á sem forseti landsins, enda fullkunnugt um trúarástandið í Arabíu -- og að nú er aftur rætt um, að líklega muni þeir einnig láta mikið fé af hendi rakna til hinnar moskunnar, sem til hefur staðið að verði reist á einum mest áberandi stað í bænum, á rándýrri lóð sem vinstri menn í borgarstjórn kusu að GEFA þeim söfnuði, þvert gegn lögum, og að auki gefa þeim eftir greiðslu gatnagerðargjalda o.fl.!!!
Og nú hefur borgarráð kórónað skömm sína með því að samþykkja heimild til að stækka moskuna í Skógarhlíð og reisa við hana háan bænaturn, þaðan sem hægt verður að senda út bænaköll múslima yfir Hlíðahverfið!
Á móti sjá Saudi-arabar svo um, að óheimilt sé að reisa kirkjur í því landi, og hverjum þeim, sem reynir að fara með Biblíu inn í landið, er refsað. Samt sjá þeir ekkert að því, að þeir með sína ofstækisfyllstu útgáfu af islamisma reyni í krafti sinna olíupeninga að stunda trúboð hér á landi og breiða út sínar öfgar með ímömum sem sendir eru hingað frá wahhabítunum saudi-arabísku!
Engin furða, að Íslenska þjóðfylkingin hefur þá stefnu:
- að hafna því að moskur verði reistar á Íslandi,
- að búrkur verði bannaðar,
- að umskurður stúlkna af trúarlegum ástæðum verði bannaður
- og að hafna skólahaldi islamista á Íslandi.
Þvert gegn undanlátssemi stjórnvalda við islamista styður Íslenska þjóðfylkingin í stefnuskrá sinni "kristin gildi og viðhorf, virðir trúfrelsi, en hafnar trúarbrögðum sem eru andstæð stjórnarskrá." Ennfremur hefur flokkurinn lýst þessu yfir á landsfundi sínum 2. apríl sl.:
Ófædd börn eiga rétt til lífsins. Flokkurinn tekur einarða afstöðu gegn nýframkomnum hugmyndum um róttækar breytingar á fóstureyðingalöggjöfinni og mun taka á þessum málum með það að markmiði að draga sem mest úr fóstureyðingum."
Með þessu er t.d. sérstaklega verið að hafna tillögum um að gera fóstureyðingar heimilar ekki aðeins til loka 12. viku meðgöngu, heldur til loka þeirrar 22. og að gera óléttum konum þetta heimilt að þeirra eigin kröfu! Þessar öfgahugmyndir njóta ekki almenns stuðnings í þjóðfélaginu, þótt siðferðisslappur Sjöflokkurinn á Alþingi gleypi við þessu, eins og ætla verður af þingumræðum um málið undir lok marz sl.
En æ fleiri eru líka að átta sig á því, að við sem þjóð þurfum ekki á því að halda, að enn verði dregið úr fæðingum hér (fæðingartíðnin er komin niður í 1,75 börn á hvert par, skv. tölum ársins 2016, sem er allt of lítið til að þjóð geti viðhaldið sér), heldur miklu fremur að standa með lífinu, með ófæddum börnum og með barnafjölskyldum í landinu. Lausnin er EKKI sú að láta innflutta múslima sjá um að fjölga hér landsmönnum!
Jón Valur Jensson, meðlimur flokksstjórnar ÍÞ.
Konan í stutta pilsinu yfirheyrð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 11.7.2017
Viðnám Vesturlanda: Ánægjulegur dómsúrskurður Mannréttindadómstóls Evrópu
Eyjan segir frá því, að bann Belga á búrkum sé löglegt að mati Mannréttindadómstóls Evrópu. Þetta gefur færi á því á einu sviði að snúa pendúlnum aðeins í hina áttina, frá islamsvæðingu Evrópu, sem linkind Frakklandsforseta býður hins vegar heim eins og margt í stefnu vinstri flokka á Norðurlöndunum og víðar. En allt, sem miðar að því að Evrópuþjóðir láti ekki hafa sig að fíflum, heldur spyrni fæti gegn flóði hælisleitenda og standi með sínum eigin samfélagsreglum í stað undirgefni við islam og jafnvel sjaríalög, öll slík viðleitni er af hinu góða.
Í Belgíu höfðu verið sett lög árið 2011 "sem banna búrkur og önnur klæði sem hylja andlit á almannafæri. Í dag komst svo Mannréttindadómstóllinn að þeirri niðurstöðu að bannið bryti ekki í bága við rétt fólks til einkalífs og rétt fólks til trúarskoðana.
Segir í niðurstöðu dómsins, sem greint er frá á vef Independent, að ríkisstjórnin hafi með lögunum verið að bregðast við hefð sem stangaðist á við belgískt samfélag:
Þetta er hefð sem álitin er ósamrýmanleg við belgískt samfélag, við félagsleg samskipti og grundvöll mannlegra samskipta, sem eru ómissandi þáttur í því að lifa í samfélagi og tryggir hlutverk lýðræðislegs samfélags." (Eyjan.is)
Þetta má vera okkur til góðrar fyrirmyndar, eða hver vill þetta ástand hér:
Frá Íran berast þær fréttir, að konur reyni þar í sívaxandi mæli að komast hjá því að bera slæður. Þeim er heimilt að sleppa því í einkarými, og vilja margar láta það ná til bíls síns líka, þar sem þær bera þá slæðuna fremur á öxlum sér en yfir höfðinu. En karlrembulegir "siðgæðisverðir" þar reyna daglega að grípa inn í með sektum, gera jafnvel bifreiðir slíkra kvenna tímabundið upptækar, en tekst samt ekki að berja niður frelsisanda kvennanna.
Meðan stjórnvöld hér á Íslandi láta það óátalið, að hér vaxi fyrst og fremst múslimasöfnuðir styrktir ótæpilega af Saudi-aröbum, þá er líklegt að slæðu- og jafnvel búrku-notkun fari vaxandi meðal múslimskra kvenna í landinu. Virðist það ennfremur fatastíll margra þeirra kvenna sem hingað eru komnar frá múslimskum löndum Balkanskaga. Eru menn jafnvel farnir að rekast á fullklæddar konur í gufuböðum sundlauganna!
Þessi mál þarf að ræða án æsings og af yfirvegun og móta stefnu sem virðir okkar hefðir, án þess að ryðjast inn á svið einkalífsins, og þar er þá dómsúrskurður Mannréttindadómstóls Evrópu góður til viðmiðs og til leiðsagnar um það, hvað okkur leyfist með ströngum reglum um þessi mál.
Vart þarf að minna á, að í mörgum tilfellum hafa búrkuklæddar konur verið látnar fara með sjálfsmorðsbelti inn á meðal meintra óvina islamista og valdið ómælanlegum hörmungum fyrir fjölda fólks. Við eigum fulla heimtingu á því, að aðrir í samfélaginu komi til dyranna með þeim hætti sem sýnir, hverjir þeir eru, fremur en hitt að leyna því hvern mann þeir hafi að geyma.
Þjóðverjar lærðu sína erfiðu lexíu í þessu efni um helgina þegar grímuklæddir, vinstrisinnaðir ofbeldismenn gengu hundruðum saman berserksgang gegn lögreglu Hamborgar og gegn eigum borgarbúa. Nú hafa kristilegir demókratar þar frumkvæði að því að herða allar reglur um opinber mótmæli (m.a. með tölvuskráningu öfgamanna og útilokun þeirra frá því að vaða um á milli ríkja í þessum skarðræðistilgangi), enda voru 476 særðir lögreglumenn endapunkturinn á, að andvaralítið "umburðarlyndi" fái lengur að gilda í slíkum tilfellum.
Jón Valur Jensson.
Virða ekki slæðulögin í Íran | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 16:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 27.6.2017
Af Ramadan-föstumánuði múslima
Sælir, félagar á síðu XE.is og víðar. Skrif mín nú eru vegna Ramadan, föstumánaðar múslima, sem hefur nú staðið yfir í mánuð, og Guð einn veit hversu mörg morð og limlestingar munu bætast við; þegar ég skrifa þetta eru þrír dagar eftir.
Þessi hefðbundni aftöku- og átmánuður á að enda 25. júní. Ástæða þessara skrifa er sú að þeir sem hafa haldið að þetta væri einhversskonar trúarhátíð, mega vakna upp við hvernig þessi lygatrú friðarins hagar sér.
Þessi föstumánuður algerrar blekkingar stendur yfir í 30 daga frá sólarupprás til sólarlags. Þeir vakna upp fyrir sólarupprás og hreinlega troða sig út af matvælum, leggjast svo aftur til svefns. Vakna aftur að kveldi og ítroðslan heldur áfram en nú með veisluhöldum í nokkra klukkutíma, og síðan er þetta endurtekið í 30 sólarhringa. Gaman að búa í sömu blokk, enda margar uppákomur vandamála viðloðandi, og hafa þeir hrakið fólk af heimilum sínum vegna þessa og eignir hafa fallið í verði. Sagt er að þeir verði bæði veikir af þessu og klikkaðir vegna árásargirni.
Það sem er þó alvarlegast með þessa trú friðarins eru drápsferðirnar sem þeir fara í á þessari föstu, þeir sjálfir kalla þetta nú í ár Ramadan Bombathon 2017. Trú friðarins er þetta og ráðamenn þjóðanna mæra ófögnuðinn sem og jaðarhóparnir, uppreisnarseggirnir, anarkistar og aðrir sem eru ekki með vit í kollinum.
Að þessu sögðu er skynsamlegt að geta þess að ráðamenn þjóðanna keppast við að senda múslimum hamingjuóskir í tilefni Ramadan, og segir það okkur hvers konar vanþekking er á sveimi í veröldinni hvað varðar islam. Og jafnvel meðvirkni óttans sumsstaðar, þeir eru búnir að koma ár sinni vel fyrir borð víða innan stjórnkefis, félaga og skóla, þeir hafa nægjanlegt af olíuauð sem kemur þeim vel. Vil ég segja að þeir kunna að setja inn pening í hinar ýmsu aðstæður og draga þannig úr vilja þeirra sem njóta góðs af til að taka heiðarlega á aðstæðum. Hagnaður þeirra er annarra sársauki, eins og í mörgu.
Í ár störtuðu þeir ramadan-átsukkinu með glæsilegum afköstum hryðjuverka frá þeirra sjónarhorni. Á degi þrjú voru árásir orðnar 12, drepnir 118. Fyrsta drápið átti sér stað er 10 grímuklæddir jihadistar réðust á rútu í Mynja-héraði í Egyptalandi 26. maí, þeir gátu ekki setið á sér að bíða og byrjuðu samdægurs (ramadan byrjaði föstudag 26. maí að kveldi) og sölluðu niður alla sem þeir náðu, börn, konur og menn, 28 manns fyrir utan særða. Þetta voru allt kristnir Egyptar á leið til kirkju. (ISIS-samtökin hafa lýst sig ábyrg fyrir fullt af dauðaárásum á kristnar kirkjur í Egyptalandi.)
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, upplýsingar um samantekt dugnaðar þeirra á föstunni segja allt sem þarf.* En að síðustu ætla ég að setja hér inn orð Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem vill bæta samskipti við stjórnvöld í Kaíró og segir að Ameríka standi með el-Sissi forseta og egypsku þjóðinni. "Hin mikilsvirtu og sögulegu kristnu samfélög í Mið-Austurlöndum verður að verja og vernda," sagði Trump.
* Í Ramadan 2014 voru framdar 272 hryðjuverkaárásir í nafni islams og 37 sjálfsmorðssprengingar, drepnir 2429, særðir 2028.
Í Ramadan 2015 voru framdar 314 hryðjuverkaárásir í nafni islams og 63 sjálfsmorðssprengingar, drepnir 2988, særðir 3696.
Í Ramadan 2016 voru framdar 238 hryðjuverkaárásir í nafni islams, drepnir 1850.
Sigurlaug Oddný Björnsdóttir, Íslensku þjóðfylkingunni.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 25.6.2017
Ályktun landsfundar Íslensku þjóðfylkingarinnar 2. apríl um ætlun ríkisstjórnarinnar að rýmka löggjöf um fóstureyðingar
Ófædd börn eiga rétt til lífsins. Flokkurinn tekur einarða afstöðu gegn nýframkomnum hugmyndum um róttækar breytingar á fóstureyðingalöggjöfinni og mun taka á þessum málum með það að markmiði að draga sem mest úr fóstureyðingum."
Af vefsíðu flokksins, x-e.is.
Mánudagur, 29.5.2017
Islamstrú
Islamstrú (stjórnmálaáróður) verður banabiti íslenskrar menningar verði ekki spyrnt við fæti til að varna slíku. Áróður stjórnmálamanna sem nú sitja á þingi um að við eigum að taka á móti fjöldanum öllum af islamistum er landráð af verstu gerð. Þetta fólk er ekki ábyrgt en mun ekki axla þá ábyrgð sem slíkur aulaskapur veldur.
Hér er ekki átt við einhvern þjóðflokk eða útlit viðkomandi innflytjenda. Annars værum við að standa í móti öllum aröbum, Kínverjum, Indverjum og svo lengi mætti telja, heldur erum við ekki að níða niður hvort hörundslitur viðkomandi sé svartur, brúnn, gulleitur eða bara hvítur. Nei, Íslenska þjóðfylkingin er að tala um pólitíska, hugmynda- og trúarbragða-hreyfingu sem ekki er minnihlutahópur, en elur á hatri í garð annarra með það að markmiði að ná undir sig alheimsyfirráðum.
Það sem er merkilegt er að það skuli vera til fólk, ekki einstaklingar heldur heilu hjarðirnar, sem telja alþingismenn, fréttamenn, kennara, vinstrisinnaða pólitíkusa, og svo lengi mætti telja, sem hampa slíkri hreyfingu. Hreyfingu sem hefur það að meginmarkmiði að útrýma þeim, sem ekki eru sama sinnis og þeir.
En þetta er nú ekki bara það, að þessi hópur sé, að manni virðist, heilaskemmdur. Einnig eru femínistar og samkynhneigðir fylgjendur þeirra sem aðhyllast slíkt skemmdarverk á íslenskri menningu og er undarlegt, því þessi trúarbrögð leggja þá sérstaklega út fyrir að vera réttdræpa, hvar sem í þá næst. Er það virkilega svo að Íslendingar vilji koma menningunni aftur til steinaldar, þar sem feðra/karlaveldið er allsráðandi og kúgun kvenna er réttlætt, barnaníð er talið sjálfsagt og heiðursmorð upphafin sem mikil dyggðarinnar verk.
Ég trúi því ekki að við séum komin svo langt að við teljum það réttlætanlegt og sjálfsagt, samkvæmt túlkun RÚV-liða með Stefán Ólafsson stórkrata sem trúverðugan talsmann og skýranda, að það sé réttlætanlegt að framin séu morð á óbreyttum borgurum eða nokkrum öðrum í nafni trúar eða hégómagirni einhverra afla sem kalla sig islamstrúar (tilvísun til hryðjuverka í Evrópu og víðar). Hvernig ætlar þetta fólk að túlka hryðjuverk á Íslandi ef ekki verður spyrnt við fæti, til að sporna við þeirri þróun sem þetta stjórnlausa sjálfmiðaða lið vill innleiða inn í landið?
Talsmenn þessa hóps sem ver þessar gjörðir hrópar hátt á hátíðar- og tyllidögum um menningu landsins, málið sem gerir okkur sérstök, hversu gott sé að búa hér, en á meðan tala þau niður allt það sem að framan segir. Þeim er skítsama um menninguna sem við erum að selja útlendingum en verður ekki lengi ef fram heldur sem horfir. Íslendingar koma ekki til með að geta lesið sagnabækur okkar því tungumálið verður heillum horfið og enginn verður þjóðhátíðardagur þjóðarinnar í fjömenningarsamfélaginu hvað svo sem það mun kallast. Hver á sá dagur að vera þegar fjöldi þeirra sem eru t.d. frá arabaríkjunum, Asíuríkjunum eða Indlandi verður orðinn 800 þúsund eins og Píratar, NO BORDERS-liðar og vinstrielítan vill?
Nei, nú segjum við stopp! Það er kominn tími til að Íslendingar taki ábyrgð á eigin landamærum og takmarki þann fjölda, sem hér vill setjast að. Velji þá sem í einlægni vilja gerast sannir þegnar landsins og gera lög, reglur og menningu þess að sínum. Þá er ekki verið að tala um að viðkomandi segi skilið við sínar rætur, en geri sér grein fyrir því að hann er gestur í okkar landi en við ekki í hans.
Til að þetta náist er það nauðsynlegt að segja sig úr Schengen og gera tvíhliða samning við Europol og ríkislögreglu í öðrum löndum. T.d. Scotland Yard, norsku, dönsku og sænsku ríkislögregluna um samstarf á milli landa. Öllum þeim sem koma til landsins skilríkjalausir sé umsvifalaust snúið við til þess lands sem þeir komu frá og þeir eiga ekki að vera á ábyrgð Íslendinga (Dyflinnar-samkomulagið). Ekki á að búa til kerfisbákn hér á landi eins og nú tíðkast hjá Útlendingastofnun, Rauða krossinum og fleiri afætum sem hafa beinan hagnað af sem flestum flóttamönnum og hælisleitendum, er hingað leita.
Við eigum aftur á móti að nota það fé, sem í þennan málaflokk fer, til að aðstoða þá sem eru í raunverulegri neyð, það á að gera í þeirra nærumhverfi. Þetta myndi hjálpa til við að losa um íbúðir inn á íbúðamarkaðinn. Ástæða þess að hér sé staldrað við er ekki mannvonska heldur sú staðreynd að Íslendingar hafa ekki efni á þessari vitleysu. Þetta mun leggja velferðarkerfið í rúst. Nú er svo komið að reiknað er með að 12 til 18 milljarðar fari í þennan málaflokk, beint og óbeint, þetta árið. Einhvers staðar verður að taka þessa peninga. Það kann að vera að það líti út fyrir að eitthvert fjármagn sé til að leysa bráðasta vandann nú um stundir en Íslendingar verða ekki alltaf í góðæri og hvað þá?
Það er ákall Íslensku þjóðfylkingarinnar til þeirra sem unna sínu landi, menningu og afkomendum sínum, að þeir standi saman og mótmæli þessu háttalagi ríkisstjórnarinnnar. Það er hægt að gera í komandi sveitarstjórnarkosningum og svo ekki síst í næstu alþingiskosningum; vonandi verður þeirra ekki langt að bíða.
Kæru vinir, flokksfélagar og aðrir landsmenn. Það er og verður megin-markmið að stöðva byggingu mosku í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Til þess þarf Íslenska þjóðfylkingin þinn stuðning á komandi vori. Við þurfum öflugt fólk sem er tilbúið að standa í lappirnar og berjast með okkur svo við missum ekki landið í hendur öfgasamtaka islamista. Það hættulegasta er að þeir nái og fái að byggja sér mosku sem er í raun ráðhús þeirra og uppeldisstöð fyrir ungviði til heilaþvottar. Þar ráða þeir ráðum sínum bæði til góðs og ekki síst til hins illa sem þeim er innrætt frá barnæsku í gegnum svokölluð trúarbrögð. Látið okkur heyra í ykkur sem tilbúin eruð í að berjast með landinu ykkar.
Guðmundur Karl Þorleifsson,
formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar.
Þrettándi maðurinn handtekinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 01:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 23.5.2017
22 mannslífum hefði mátt bjarga og yfir 100 manns frá meiðslum!
Vitaskuld kom í ljós að fjöldamorðinginn var islamisti, hét Salman Abedi, 22 ára, fæddur í Manchester, sonur líbýskra innflytjenda. Í stað þess að setja hann í stranga gæzlu gaufaði brezka lögreglan við að fylgjast of slælega með honum! Árangurinn er 22 drepnir og yfir 100 særðir og þúsundir manna í harmi og losti; en stuðningsmenn ISIS ráða vart við sig af kæti vegna dauða ungmennanna: http://www.dv.is/frettir/2017/5/23/studningsmenn-isis-fagna-dauda-ungmennanna-islamska-rikid-lysir-yfir-abyrgd-mordunum/
Fjölskylda mannleysu þessarar er reyndar nýsnúin aftur til Líbýu.
Það er svo sannarlega ekkert að því að setja ströng lög um að bæði yfirlýstir stuðningsmenn ISIS og al-Qaída, al-Shahab og annarra þvílíkra morðsamtaka skuli látnir sæta yfirheyrslum, gæzluvarðhaldi og fangelsisvist eftir atvikum og hafðir með eftirlitsband um ökklann. Hugmyndafræði þeirra er þjóðhættuleg, og á skal að ósi stemma.
Þá ber að endurskoða frá grunni innflytjendastefnu Evrópuríkja, til samræmis við þann eindregna meirihlutavilja Evrópuþjóða, að stöðva beri straum múslima inn í Evrópu!
Þótt Saudi-Arabía sé aðeins eitt múslimaríki af mörgum, þá er hitt staðreynd, að þaðan kemur gífurlegt styrktarfé til að reisa og reka moskur á Vesturlöndum, jafnvel hér á Íslandi, og frá upprunalandinu eru sendir ímamar til að framfylgja strangri túlkun wahhabíta (salafista) á Kóraninum. Þar grassera víða fyrirlitningar-predikanir klerkanna gegn okkur Vesturlandamönnum, og jafnvel í Danmörku hafa menn uppgötvað hvernig moskurnar eru misnotaðar til hatursboðskapar gegn kristnum og Gyðingum. Allt slíkt ber að stöðva án tafar.
Jón Valur Jensson.
Árásarmaðurinn var 22 ára | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)