ÞÖGNIN er ærandi úr Ekkifréttastofu RÚV

Enn minnist RÚV ekki einu aukateknu orði á það ;háalvar­lega mál að í nágrannalandi okkar eru 23.000 jíhadistar (fylgismenn heilags stríðs islam­ista) skráðir af lög­regl­unni! 

Um það er fjallað jafnt í brezka stjórn­kerfinu sem í fjöl­miðlum heims, m.a. hinu trausta heims­blaði The Times, eins og Mbl.is segir líka frá (tengill hér neðar), og einnig á gríðarlegum fjölda annarra fréttasíðna (auk samfélagsmiðla), en EKKI í RÚV!

En af hverju er þetta svona viðkvæmt mál uppi í Efstaleiti?

Eða hafa þau enga smugu fyrir þetta stórmál í ekkifréttatímum sínum, af því að þau þurfa að halda áfram sínum endalaust innihaldslitlu framhaldssögum af Trump og Rússamálum hans?

Undirritaður mun hafa skrifað um þetta fyrstur eða einna fyrstur hérlendis, með næturfréttina glóðvolga frá The Times, hér: Bretland hýsir 23.000 jíhadista (fylgismenn heilags stríðs). Huge scale of terror threat revealed (The Times)

Jón Valur Jensson.


mbl.is 23 þúsund íslamistar í Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hyggst Sigmundur Davíð breyta einhverju verulegu í grundvallar­atriðum, eða vill hann andlitslyftingu þess gamla?

Eðlilegt er að spurt sé, m.a. með hliðsjón af góðri hvatningu Guðm. Jónasar Krist­jáns­­sonar á Moggabloggi hans:

Hvað boðar Sigmundur og Framfara­félagið?

   Fróðlegt verður að vita hvað pólitísk skilaboð
Sigmundur Davíð hefur að bjóða í Rúg­brauðs­gerð­inni
nú á laugar­dags­morgun.

  Verður þetta enn einn kjafta­klúbburinn með miðju-
moðs-ívafi, opinn í alla enda, já svokölluð samræðu-
stjórnmál, sem hingað til hafa engu skilað nema enn 
meiri pólitískum glundroða, eða verður eitthvað bita-
stæðara í boði? Já t.d. í einhverjum pólitískum takti
við það sem hefur verið að gerast og gerjast í stjórn-
málum beggja vegna Atlantsála síðustu misseri?

  Verður hinum pólitíska rétttrúnaði á Íslandi með
RÚV-liðinu í forsæti settur stóll fyrir dyrnar? Og
hvað með þjóðhyggjuviðhorfin sem nú fara sigurför um
Evrópu í dag? Já hvað með Evrópumálin, s.s. Schengen-
ruglið, EES, sem þarfnast mikillar endurskoðunar, auk 
hinna stórgölluðu útlendingalaga, og stjórnleysið í
hælisleitenda-og flóttamannamálum? Að ógleymdri íslams-
væðingu Evrópu og fyrirhugaðri moskubyggingu á Íslandi?

   Verður skautað fram hjá öllum slíkum pólitískum
stórmálum? Hitamálum! [...]

Já, þannig má spyrja með Guðm. Jónasi, en ætli svörin komi fram? Þorir Sigmundur fremur en aðrir í Sjöflokknum á þingi að taka á þessum grund­vallarmálum, sem varða framtíð landsins og barna okkar svo miklu?

Það er ekki undarlegt, að þessi gagnrýnandi nefni RÚV í sinni upptalningu, en jafnvel Fréttablaðið sér fáránleikann í því, hvernig Rúv er "stríðalið" af ríkinu og einkareksturssinnuðum (!) stjórnvöldum á sama tíma og aðrir fjölmiðlar eru að deyja út vegna fjárskorts, sbr. þennan skelegga leiðara Kristínar Þorsteinsdóttur aðalritstjóra í blaðinu í dag: Ohf. er bastarður.

Svo skal að endingu minnt hér á merkilega frétt sem birtist hér árdegis, líklega fyrst hér, af öllum fjölmiðlum íslenzkum (en RÚV þagði um málið í hádeginu!):

Bretland hýsir 23.000 jíhadista (fylgismenn heilags stríðs). Huge scale of terror threat revealed (The Times)

Jón Valur Jensson.


mbl.is Breytt stjórnmál kalla á viðbrögð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretland hýsir 23.000 jíhadista (fylgismenn heilags stríðs). Huge scale of terror threat revealed (The Times)

"Leyniþjónustumenn hafa borið kennsl á 23.000 jihad-öfga­menn sem búa í Bret­landi sem mögu­legir hryðju­verka-árásar­menn, kom í ljós í gær. Umfang þessarar hættu, sem lögregla og öryggis­þjónustur standa frammi fyrir, var upplýst með Whitehall-heim­ildum eftir að gagnrýnt var að mörg tækifæri til að stöðva Man­chester-sprengju­manninn höfðu farið forgörðum." Nánar um þetta í þeirri frétt brezka stórblaðsins The Times í dag, 27. maí, sem hér var vitnað í.

Þrjú þúsund þessara 23.000 eru talin mjög hættuleg og sæta nú rannsókn eða eru hleruð í 500 mismunandi verkefnum lögreglu og leyniþjónustuaðila. Hin 20 þúsundin hafa áður verið til rannsóknar og eru skilgreind sem "residual threat" (sú hætta, sem enn kann að vera fyrir hendi eftir að "áætlun A" hefur komið til framkvæmda).

Báðir virku hryðjuverkamenn­irnir í Bretlandi á þessu ári: Khalid Masoud, dráps­mað­ur­inn í Westminster, rétt við brezka þinghúsið, og Salman Abedi, Man­chester-sprengju­maðurinn, voru á lista lögreglunnar.

Hér í viðauka er Wikipediu-fróðleikur um hina ólíku dreifingu múslima í Evrópu. Ísland er þar eitt landanna með múslimafjölda sem nær ekki 1% landsmanna. En á því getur orðið tiltölulega hröð breyting, ef núverandi yfirvöld og önnur áþekk fá áfram að stýra hér ferðinni, með afleitum útlendingalögum, slælegri vörn landamæranna og linkind við hælisleitendur frá fyrst og fremst múslima­ríkjum (sjá landa-listann hér fyrir neðan).

Jón Valur Jensson.


Útrýmingarherferð islamista gegn koptum í Egyptalandi

Beinar, grimmilegar árásir hafa verið gerðar á kristna kopta á síðustu mán­uðum, 26 sall­aðir niður í gær með skothríð 10 ómenna á tvær rútur og flutn­ingabíl á ferð í Mið-Egypta­landi, en 25 særðir. Um 100 koptar alls hafa verið drepnir sl. hálft ár, meiri hlutinn í kirkjum, og er þessi óhugnaður til vitnis um hatrið sem þrífst í hugarheimum ISIS og margra í Múslimska bræðralaginu. Stjórnvöld landsins berjast gegn þessu og leita nú t.d. ódæðismannanna tíu frá fjöldamorðinu í gær, þar sem m.a. börn voru skotin til bana. Koptar teljast vera 10% Egypta, sem alls eru 92 milljónir talsins.

Hryðjuverkin hafa skaðvænleg áhrif á efnahag Egyptalands, þar sem komum ferðamanna fækkar. En meðlimir Múslimska bræðralagsins voru á þriðju milljón, þegar starfsemi þess var bönnuð, en margir úr því starfa með "Ríki islams" og láta tilganginn helga sín verstu verk. Ekki halda grófustu partar Kóransins aftur af þessum ofstækismönnum.

JVJ.


mbl.is 26 drepnir í árás í Egyptalandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samstaða og samhugur með fórnarlömbunum í Manchester

Laura Mc­Intyre, 15 ára stúlka frá Suð­ur­eyj­um úti fyr­ir Skot­andi, berst nú fyr­ir lífi sínu eft­ir hryðju­verk­ið mikla í Man­chest­er, en bezta vin­kona hennar, Eilidh Mac­Leod, 14 ára, lézt í árás­inni. Samstaða Breta er mikil með öllum fórnar­lömbunum og fjölskyldum þeirra

Stofnuð hef­ur verið söfn­un­ar­síða fyr­ir fjöl­skyld­ur Mc­Intyre og Mac­Leod, en þegar hafa safn­ast rúm 30.000 pund eða tæp­ar 4 millj­ón­ir króna. (Mbl.is)

Laura Mc­Intyre er sú hávaxnari á myndinni hér fyrir neðan, en með henni er Eilidh, vinkonan sem lézt, báðar hér á leið á tónleikana; svo sorglegt í raun.

Mikill fjöldi ungmenna lét lífið eða slasaðist í sprengingunni. Fyrsta sólar­hringinn var talað um 59 særða, en sú tala fór yfir 100, þegar sumir minna slasaðir, sem höfðu í ofboði nýtt sér far til að komast heim af staðnum, fóru að sækja spítala eða slysavarðstofur daginn eftir. Sumir hinna særðu eru í svo krítísku ástandi, að þeim er vart hugað líf. Laura er ein af þeim.

Biðjum fyrir Lauru Mc­Intyre og öðrum fórnarlömbum þessa skelfilega grimma hryðjuverks og að okkur megi gefast, að annað eins og þetta megi aldrei koma fyrir aftur. Og verum viss um, að áhrif bænarinnar geta verið mikil og marg­vísleg, það er ekki okkar að segja til um það.

Missing teenager Laura MacIntyre has been found in a Manchester hospital

Sjá nánar fréttartengil Mbl.is hér neðar, þar er talað við foreldra Lauru. Sjá einnig fleiri fréttir af þessum vinkonum og öðrum hér.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Berst fyrir lífi sínu eftir árásina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

22 mannslífum hefði mátt bjarga og yfir 100 manns frá meiðslum!

Vitaskuld kom í ljós að fjöldamorðinginn var islamisti, hét Salman Abedi, 22 ára, fæddur í Manchester, sonur líbýskra innflytjenda. Í stað þess að setja hann í stranga gæzlu gaufaði brezka lögreglan við að fylgjast of slælega með honum! Árangurinn er 22 drepnir og yfir 100 særðir og þúsundir manna í harmi og losti; en stuðningsmenn ISIS ráða vart við sig af kæti vegna dauða ungmennanna:  http://www.dv.is/frettir/2017/5/23/studningsmenn-isis-fagna-dauda-ungmennanna-islamska-rikid-lysir-yfir-abyrgd-mordunum/  

Fjölskylda mannleysu þessarar er reyndar nýsnúin aft­ur til Líb­ýu.

Það er svo sannarlega ekkert að því að setja ströng lög um að bæði yfirlýstir stuðnings­menn ISIS og al-Qaída, al-Shahab og annarra þvílíkra morðsamtaka skuli látnir sæta yfir­heyrslum, gæzlu­varðhaldi og fangelsisvist eftir atvikum og hafðir með eftirlitsband um ökklann. Hugmyndafræði þeirra er þjóð­hættuleg, og á skal að ósi stemma.

Þá ber að endurskoða frá grunni innflytjendastefnu Evrópuríkja, til samræmis við þann eindregna meiri­hluta­vilja Evrópuþjóða, að stöðva beri straum múslima inn í Evrópu!

Þótt Saudi-Arabía sé aðeins eitt múslimaríki af mörgum, þá er hitt staðreynd, að þaðan kemur gífurlegt styrktarfé til að reisa og reka moskur á Vestur­lönd­um, jafnvel hér á Íslandi, og frá uppruna­landinu eru sendir ímamar til að fram­fylgja strangri túlkun wahhabíta (salafista) á Kóraninum. Þar grassera víða fyrirlitningar-predikanir klerkanna gegn okkur Vesturlanda­mönnum, og jafnvel í Danmörku hafa menn uppgötvað hvernig moskurnar eru misnotaðar til haturs­boðskapar gegn kristnum og Gyðingum. Allt slíkt ber að stöðva án tafar.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Árásarmaðurinn var 22 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tónleikum Ariönu Grande í Englandi lýkur í blóðbaði - mikið mannfall - "fólk grát­andi alls staðar"

Skelfing ríkti á tónleikastað í Manchester, 22 látnir, 59 slasaðir. Öfga­menn víla ekki fyrir sér að sprengja upp fólk þar sem búast má við miklum fjölda barna, niður í 5-7 ára, en eink­um stúlk­ur eru fjöl­menn­ar í aðdá­enda­hópi söng­kon­unnar Ariönu Grande, og er vitað um stelpur sem særð­ust í and­liti á staðnum.

Þetta er enn eitt hryðjuverkið í Evrópu á síðustu miss­er­um. Það er EKKI gert nóg til að fyrir­byggja hryðjuverk, þótt nú þegar eyði stjórnvöld í Evrópu miklum manna­fla og fjár­munum í hryðju­verka­varnir. 

Sama dag og þjóðaröryggisráð okkar Íslendinga hefur starfsemi sína, gerist þetta í okkar nágranna­landi, með ómældum þjáningum svo margra. Því verður ekki unað, ef vinstri flokkarnir ætla sér að hefta fjárveit­ingar til þessa absolút mikilvæga málaflokks, t.d. út frá sömu aumlegu hug­myndunum og ríktu í hugum margra þeirra á kalda­stríðs­árunum: að hernaðarviðbúnaður og varnir hér á landi væru þarfleysa og einberar "stríðsæsingar", mótaðar af hatri á einhverjum mótaðilum sem gerðir væru að "Grýlu" að ósekju!

Nei, við ætlum ekki að láta neinn segja okkur Íslendingum, að hér verði ekki að bregðast við yfirvofandi hryðju­verka­hættu samtímans. Og hryðjuverk eru ekki bara framin með innfluttum sprengiefnum. Hafa ber ennfremur fullt eftirlit með hugsan­legum and­þjóð­félags­legum áróðri í moskum múslima hér á landi, eins og nú er farið að tíðkast allvíða á meginlandinu að gefnum tilefnum. Mjög líkleg eiturbyrlunar-atlaga að fræðimanninum Robert Spencer, sem hér flutti vel sóttan fyrirlestur fyrir skemmstu, og umræðan út frá þeirri atlögu gefur heldur enga ástæðu til bjartsýni um andlegt ásigkomulag verjenda islamista.

Nýjar fréttir um tvöleytið á CNBC:

PS. Úr frásögn íslenzku móðurinnar Lindu Hafþórsdóttur af vettvangi (Visir.is): "Í því sem við snúum við kemur sprengingin. Ég hef aldrei á ævinni heyrt svona háan hvell. Mig sundlaði og hausinn á mér var að springa. Það kom reykur og það eina sem ég hugsaði um var að grípa í höndina á henni [dótturinni 11 ára] og ég sver að ég setti Íslandsmet í spretthlaupi þarna... Ég dró dóttur mína yfir stigahandrið og ég leit aldrei til baka. Ég bara hljóp af augum þangað til ég fann einhvern ógeðslegan pöbb og lét hringja á leigubíl." Linda segir að þegar þær hafi beðið eftir leigubílnum hafi aðrir tónleikagestir hlaupið fram hjá þeim og sagt þeim að þeir hefðu séð blóðuga tónleikagesti og heyrt byssuskot... "Dóttir mín grét og grét og sagðist ekki vilja fara aftur heim til Edinborgar heldur heim til Íslands."... Linda segir að líðanin núna sé hræðileg. Hún geti ekki hætt að skjálfa... "Sú stutta róaðist loksins þegar við komum heim. Hún spurði mig hvort við gætum beðið saman, sem hún gerir aldrei. Svo gafst hún bara upp og lognaðist út í fanginu á mér, enda algjörlega búin á því."

Jón Valur Jensson.


mbl.is „Þetta var svakaleg sprenging“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lilja Dögg gerir rétt í því að hlífa ekki brauðfótastjórn hagsmunaaflanna

„Verk­efnið er að koma þess­ari rík­i­s­tjórn frá og sam­ein­ast í því svo þjóðin geti ein­beitt sér að al­vöru­stjórn­mál­um og þurfi ekki að horfa upp á hvert klúðrið á fæt­ur öðru,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir réttilega á fundi miðstjórnar Framsóknarflokksins.

Sig­urði Inga Jó­hanns­syni, formanni flokksins, blandast heldur ekki hugur um, að "svo virðist sem einn flokk­ur, um­fram aðra, stjórni land­inu upp á sitt ein­dæmi," því að "viðheng­in tvö", Björt framtíð og Viðreisn, hafi ekki afl til að standa í lapp­irn­ar. "Viðreisn er úti­bú frá Sjálf­stæðis­flokkn­um, Björt framtíð virðist svo vera orðin úti­bú frá Viðreisn," segir Sig­urður.

Benti hann á að í ell­efu manna rík­is­stjórn sitji sex Sjálf­stæðis­menn og að ekki fyr­ir svo löngu síðan voru 9 af þeim, sem eru ráðherr­ar nú, í Sjálf­stæðis­flokkn­um. „Rík­is­stjórn­in sem nú sit­ur hef­ur því væna hægri slagsíðu,“ sagði Sig­urður skv. frétt Mbl.is.

Þetta Framsóknarþing lofar góðu. Flokkurinn verður ekki lengur misnotaður til að styðja afleitar ríkisstjórnir á brauðfótum -- og heldur ekki þær, sem reyna að vinna sér upp atkvæða­leysið og óvin­sældirnar með því að reyna að gera sig voldugar í krafti fjárráða með því að sópa til sín almannaeignum með einka­væðingu í stíl við fyrri feril núlifandi Engeyinga, ekki sízt í fjölskyldu forsætis­ráðherrans sjálfs.

Og það mun heldur ekki halda þessari ríkisstjórn á floti, að hún er að gerast mesta skattpín­ingar­stjórn sögunnar, svíkst um að efna loforð um skattalækk­anir, en bætir bara í með nýja skatta. Kemst enginn með tærnar þar sem hún hefur hælana í þeim efnum, nema við teljum þar með hinn staðfasta ásetning vinstri-meiri­hlutans í borgarstjórn Reykjavíkur, sem vill leggja þung­bærar klyfjar á alla fasteigna­eigendur -- og raunar með ófyrir­leit­inni, sennilega ólög­mætri skatt­heimtu: "innviðagjaldi" -- í þágu óhag­kvæm­asta samgöngu­verkefnis á norður­hveli jarðar: "Borgarlínunnar"!

Það vantar sannarlega nýtt afl inn í stjórnmálin, bæði á borgar- og landsmála­vettvangi. Íslenska þjóðfylkingin er reiðubúin til þess eftir næstu kosningar, hvort sem þær verða á sviði sveitarstjórna eða jafnvel í landsmálunum strax á þessu ári -- og að taka þátt í stjórnarmyndun með flokkum, sem hægt er að vinna með, en ekki ríkisstjórn sem fylgir leiðarstjörnu sérhagsmuna fámennrar auðstéttar.  

Jón Valur Jensson.


mbl.is Mun aldrei styðja ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitrað fyrir Robert Spencer á Íslandi

Af frásögn hans og af trúverðugleika að dæma, sem fundarmenn kynntust um daginn, og af rannsókninni á spítala er ljóst, að það er engin ástæða til að bera brigður á þann alvarlega atburð, að hér á landi var reynt að eitra fyrir þessum fræga rithöfundi (12 bóka höfundi m.m.).

Ofstækið gegn þessum manni fekk að birtast hér strax í aðdraganda fyrir­lesturs­ferðar hans, og það er ekki að undra, að

Spencer fer ... hörðum orðum um um­fjöll­un fjöl­miðla og annarra um heim­sókn hans til lands­ins. Fjöl­miðlar hafi verið upp­full­ir af frétt­um um að vond­ur maður væri á leiðinni til lands­ins og rætt við þá nokkra tugi ein­stak­linga sem mót­mælt hafi komu hans. Hins veg­ar hafi ekki verið leitað eft­ir viðbrögðum hans sjálfs.

Ein sjón­varps­stöð hafi tekið viðtal við hann í tengsl­um við fund­inn en fréttamaður­inn hafi verið upp­tek­inn af meintri ábyrgð hans á morðum norska fjölda­morðingj­ans And­ers Brei­vik en Brei­vik hef­ur vísað í skrif Spencers. Spencer seg­ist ekki frek­ar geta borið ábyrgð á gerðum Brei­viks en Bítl­arn­ir á gerðum banda­ríska fjölda­morðingj­ans Char­les Man­son. (Mbl.is)

Og honum leynist ekki, hvernig ástandið er hér í fjölmiðlaheiminum, þar sem við sjálf vitum, hve uppivöðslusamir og "héraðsríkir" vinstri menn hafa verið, sér í lagi í ríkisfjölmiðunum, og vísvitandi margbrotið þar hlutleysisreglur og kröfur um hlutlægni í frásögnum, sem þeim er ætlað að hlíta, og gert þetta bæði í orði og með niðurþöggun fréttnæmra hluta.

Í beinu framhaldi af ofangreindri tilvitnun segir Robert Spencer í viðtali við blaðamann Mbl.is og bendir hér á kýlið:

Hins veg­ar væri ljóst af þessu að ís­lenskir fjöl­miðlar og stjórn­mála­menn vildu ekki að al­menn­ing­ur ræddi íslam­svæðingu og íslam­isma. Þeir sem berðust gegn því teldu sig án efa vera að gera göf­uga hluti en hefðu með fram­göngu sinni gert fólk eins og hann að skot­mörk­um. Fyr­ir vikið kæmi það hon­um ekki á óvart að reynt hefði verið að eitra fyr­ir sér.

Dæmigert var, að ekki einn einasti áberandi stjórnmálamaður sótti fundinn góða í Grand-hóteli í liðinni viku. Samt hefði þessi afburðagreindi ræðumaður getað frætt þá um svo margt sem þeir ekki vissu!

Það verður ekki látið nægja að segja frá þessu í fjölmiðlum, heldur unnið að rannsókn á þessari alvarlegu árás eins og full ástæða er til.

Til eru upptökur á veitingastaðnum, þar sem samskipti Spencers og mannanna tveggja áttu sér stað, og á spítalanum liggja fyrir þau gögn sem benda til að honum hafi verið byrlað eitur. Og alveg er ljóst, að þetta er ekki komið til í neinu skjóthugsuðu óðagoti, heldur er um glæp að yfirlögðu ráði að ræða, enda ber venjulegt fólk ekki á sér eitur dagsdaglega! Og greinilega hefur Robert Spencer því verið veitt eftirför af fundinum eða með öðrum hætti njósnað um ferðir hans.

Grím­ur Gríms­son, yf­ir­lög­regluþjónn hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu, seg­ist aðspurður í sam­tali við mbl.is geta staðfest að slíkt mál hafi komið inn á borð lög­regl­unn­ar. Rann­sókn á mál­inu sé á frum­stigi og verið að afla gagna um það. (Mbl.is)

Mál þetta er allt okkur til áminningar um, að átök islamista og fylgismanna þeirra við vestræna aðila hafa nú þegar náð hingað til Íslands. (Áður er vitað um a.m.k. tvö dæmi um komu manna hingað með tengsl við hryðju­verka­sam­tök.) Þetta er vænt­an­lega rann­sóknar­mál líka fyrir okkar þjóðarörygg­isráð og þá deild lögreglunnar sem sér um varnir gegn hryðjuverkum.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Telur að eitrað hafi verið fyrir sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er fiskveiðistjórnunarkerfið komið að fótum fram?

Guðmudur í framboði til formanns  Eftir formann Íslensku þjóð­fylk­ingar­innar.

    Nú er sú staða komin upp, að sumir stjórn­mála­menn vilja slá sig til ridd­ara með því að þykj­ast hafa áhyggjur af afkomu fisk­vinnslu­fólks og að fisk­veiði­stjórnunar­kerfið sem unnið er eftir sé barn síns tíma. Það þurfi breytinga við ef H.B. Grandi fari ekki að vilja eins sveitar­félags. Ekki kemur fram að viðkom­andi fyrirtæki er að skapa vinnu annars­staðar, ekki einungis í Reykjavík, heldur einnig á Vopnafirði. Hér er bara um fagurgala og upphrópanir stjórn­mála­manna og ráðherra þessa málaflokks að ræða. Þau munu ekki ætla sér að breyta neinu.

    Íslenska þjóðfylkingin hefur það á stefnuskrá sinni að endurskoða fiskveiði­stjórnunar­kerfið frá grunni með það að markmiði að auka frelsi til veiða. Fyrsta skref í þessa átt er að stórauka strandveiðar sem yrðu frjálsar að því marki að menn þyrftu að hafa tilskilin réttindi til slíkra starfa. Haldi einhver að Íslenska þjóðfylkingin vilji rústa núverandi fyrirtækjum í fiskiðnaði er það reginfirra. Ef rétt er gefið geti allir unað vel við sinn hag. Bætt skilyrði sveitarfélaga til að fá aflaheimildir heim í hérað er nauðsyn svo fyrirtæki í fiskvinnslu geti sett sig niður á þeim stöðum þar sem hagkvæmast er að gera út. Þetta myndi styrkja sjávarpláss víða um landið.  

    Það ætti að stefna að því að allur afli fari á markað. Svo að fyrirtæki geti aðlagast því fyrirkomulagi þarf að setja lög um það nú þegar, þannig að fyrirtæki geti ekki selt sjálfum sér afla á undirverði. Það kæmi sjómönnum og litlum og meðalstórum fiskvinnslum best. Þetta má gera með prósentum af aflaheimildum.  

    Til að aflaheimildir bolfisks gangi eðlilega í endurnýjun lífdaga er raun­hæft að þær afskrifist um 5% á hverju ári og komi til úthlutunar að nýju þar sem allir geti boðið í þær á frjálsum markaði. Hér þarf að setja lög um dreifingu miðað við útgerðarform fiskiskipa og stærð þeirra. Banna skuli togveiðar innan 50 mílna landhelgi, til verndar fiskistofnunum. Neta­veiðar yrðu háðar þeim skilyrðum að menn gætu ekki lagt fleiri net en þeir gætu komið með að landi eftir hverja veiðiferð. Þar með væru bönnuð netalögn í sjó á milli veiðiferða.  Þetta ákvæði myndi fækka drauganetum og stuðla að því að aflinn yrði verðmætari og betur farinn við löndun.  

    Íslenska þjóðfylkingin skilur vel vonbrigði, sárindi og áhyggjur þeirra starfsmanna sem missa vinnuna. Ekki einungis þess fiskvinnslufólks sem vinnur hjá viðkomandi fyrirtæki, heldur einnig þjónustuaðila sem hafa sitt lifibrauð af þessari starfsemi.  Það þarf að gera átak í að styrkja þau byggðarlög sem fara, og hafa farið, illa út úr slíkum ráðstöfunum. Oft koma önnur störf í staðinn, en oft verða viðkomandi sveitarfélög  ekki svipur hjá sjón eftir slíkar hamfarir. Því er það skylda viðkomandi stjórn­valda á hverjum tíma að gera sitt besta í að setja lagaramma um grunn­stoðir samfélagsins og auðlindir þess, þannig að fólk geti sest að á þeim stöðum sem hafa upp á eitthvað að bjóða og þurfi ekki að óttast það að hentistefna fyrirtækja geti lagt líf þess í rúst með geðþótta­ákvörð­unum. Hér er ekki verið að dæma einstaka fyrirtæki heldur eru þetta  allt of mörg tilfelli til að við það verði unað. 

    Íslenska þjóðfylkingin er eini flokkurinn sem er tilbúinn að fara í málið af fullri einurð og með fastmótaða stefnu sem getur náðst sátt um. Því er það undir landsmönnum komið hvort þeir vilja í raun einhverjar breytingar eða ekki.

Guðmundur Þorleifsson.

    


mbl.is Gjaldtaka aðeins áhugamál Viðreisnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband