Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2017
Föstudagur, 11.8.2017
Kolbeinn Proppé alþm. vill áfram velta milljörðum í hælisleitendur, veitir fátækum Íslendingum í tjöldum í Laugardal enga úrlausn!
Langt er síðan tveir vinstri flokkar misstu allt samband við almennt verkafólk og fátæka alþýðu. Þeir glutruðu niður sakleysinu og hreinleikanum í sinni Jóhönnustjórn þar sem allsherjarráðherrann Steingrímur J. fór hamförum gegn skattgreiðendum í Icesave-lagasetningaræði sínu. Sá er nú sessunautur og ráðunautur Kolbeins Proppé í þingflokki VG!
Kolbeinn vill áfram velta milljörðum (6-10 á árinu?) úr vösum skattgreiðenda í tilhæfulausa hælisleitendur frá múslimaríkjum Balkanskaga, en gerir ekkert fyrir heimilislausar íslenzkar konur sem hírast kaldar í tjöldum í Laugardal !
Misjafnar undirtektir undir grein Kolbeins á Eyjunni ættu að sýna honum, að hann má fara hægar í sakirnar í sinni fjölmenningarástríðu. Og hvaða ávinningur er okkur að þessum bótaþegum frá Albaníu og Makedóníu?
Maður einn hafði samband við undirritaðan og kvaðst eiga vin sem hingað hefði flutt fyrir mörgum árum frá umræddu svæði í álfunni; sá hefur verið hér í fullri vinnu, en kvaðst einmitt hafa verið að koma sér í burt þaðan sem lítill vinnuandi hefði verið. "Hvað eru Íslendingar að hugsa, að bjóða svo þessu fólki hingað, sem gæti bara orðið ykkur að sama vandamáli?"
Eitt er víst, að það er ekki gert af því að okkur beri nein skylda til þess. Hröð hugarfarsspilling vinstri flokkanna og meðvirkni hægri flokkanna er meginástæða þess, að hér er allt opnað upp á gátt og það á sama tíma og skandinavísku þjóðirnar eru hver á fætur annarri að koma þessum óhóflegu aðgengismálum tilhæfulausra hælisleitenda í skaplegra form. Samráð tveggja kven-ráðherra, danskrar og norskrar, um að læra af Norðmönnum (frétt í Sjónvarpi fyrir fáeinum dögum) er til marks um það.
Kannski við ættum að senda gervalla ríkisstjórnina í námskeið til Óslóar!
Jón Valur Jensson.
Innflytjendamál | Breytt s.d. kl. 19:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 9.8.2017
Nauðgunargengi innfluttra níddist skipulega á brezkum stúlkum 13-25 ára
Það, sem er sleppt að nefna í Mbl.is-frétt af þessum stórtæku, langvarandi nauðgunum 18 karla og 1 konu á stúlkum um árabil, er, að þetta er innflytjendahópur umfram allt, frá múslimskum löndum fyrst og fremst, en nánar tiltekið frá þessum löndum: Bangladesh, Pakistan, Indlandi, Írak, Íran, Tyrklandi.
Myndirnar og NÖFNIN með þeim (hér neðar) benda í þessa áttina:
First row: Nashir Uddin, Taherul Alam, Mohammed Hassan Ali, Mohammed Azram, Monjur Choudhury, Saiful Islam. Second row: Abdulhamid Minoyee, Jahanger Zaman, Mohibur Rahman, Prabhat Nelli, Nadeem Aslam, Eisa Mousavi. Third row: Habibur Rahim, Badrul Hussain, Carolann Gallon, Abdul Sabe, Redwan Siddquee, Yassar Hussain. Photograph: Northumbria Police/PA
Bezt er að segja hlutina eins og þeir eru. Þessi nauðganahópur er ekki sá eini á Bretlandi, hann kemur í kjölfarið á öðrum, sem minntu á hann um margt, þ.e. glæpagengjum í Rotherham og Rochdale, "which featured gangs of British Asian men abusing white girls" (Guardian), en fyrst og fremst var þar um Pakistana að ræða, frá því múslimska landi (rétt eins og helztu gerendur í áramótaatburðunum á torginu við Kölnardómkirkju um árið).
Kannski að "góða fólkið" íslenzka trúi þessu, af því að þessa ýtarlegri frétt er að finna í eftirlætisblaðinu The Guardian. En væntanlega þykir Guardian ástæða til að standa vörð um sakleysi viðkvæmra brezkra unglingsstúlkna í stað þess að horfa upp á það þegjandi og hljóðalaust, að þær séu fylltar og dópaðar til þess að unnt sé að níðast á þeim af þessu líka glæpahyski, sem aldrei hefði átt að stíga fæti á brezka jörð. Sumar þeirra voru hnepptar í kynlífsánauð.*
* Undirfyrirsögn Guardian-fréttarinnar er: Four trials find 17 men and one woman guilty of nearly 100 offences including rape and human trafficking of vulnerable women and girls.
Jón Valur Jensson.
Níddust á hópi ungra stúlkna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bretland | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 8.8.2017
Guðfinna í Framsóknarflokki vill gera hann að enn einni málpípu "Góða fólksins" og múslimavina
Stóra fréttin í dag er raunar sú, að hún vill ryðja Sveinbjörgu Birnu úr 1. sæti Framsóknar og flugvallarvina, treystir því ekki að ná inn sem viðhengi eða vill ekki móðga Góða fólkið, segir í staðinn við flokksfólk: Ef þið viljið mig, verður það að vera á kostnað Sveinbjargar, bezt að kasta henni út! Ekki gott "systralag" né þakklæti í þeim boðskap og merkilegt hvernig bæði hún, ungir framsóknarmenn og Sigurður Ingi formaður sjálfur hafa látið Logana tvo (Bergmann og Einarsson Samfylkingarformann), Fréttablaðs- og Rúv-liðið mata sig á sínum túlkunum á umræðu Sveinbjargar um nauðsyn sérkennslu fyrir börn hælisleitenda og flóttafólks.
Já, það er ódrengilegt af þeim að veitast þannig að flokkssystur sinni og rangtúlka orð hennar, í heimskulegri auðsveipni við litla bóga í þessum skóla- og innflytjendamálum.
Sjónarmið Sveinbjargar fær mjög víða hljómgrunn í samfélaginu, meðal annars í umræðum um greinar Loganna tveggja, sem eru nú ekki skörpustu hnífarnir í skúffunni í þessum efnum. Annar þeirra er jafnvel svo ruglaður, að hann heldur að ófædda 11 og hálfrar viku veran í móðurlífi konu sé "ekki fóstur, heldur frumuklasi"!! Ætti slík vanþekking að sæta almennum aðhlátri, ef ekki beinlínis fordæmingu, úr því að þetta sagði hann, formaður stjórnmálaflokks, á sjálfu Alþingi Íslendinga fyrir fáeinum mánuðum, 27. marz 2017 og var að nota þetta til að réttlæta frekari manndráp hinna ófæddu! (Um stefnu Íslensku þjóðfylkingarinnar í þeim málum má lesa í þessari grein.)
Það er eða ætti að vera alkunna, að skóli Þorgerðar Katrínar "án aðgreiningar" er illa heppnuð tilraun, sem þó hefur sem betur fer ekki komið í veg fyrir, að einhverfir og fleiri sérhópar geti fengið sérkennslu við sitt hæfi. Og þekkt eru dæmin um það erlendis líka, að innflytjendabörn fái fyrst sérkennslu í skólum í stað þess að vera látin dúsa í krakkahópi þar sem þau skilja ekki mælt mál og geta ekki fylgzt að gagni með kennslu fyrr en eftir marga mánuði. Það er einmitt tillitssemi við börn að fá kennslu á sínu eigin máli framan af a.m.k. og um leið innleiðslu í tungumál nýja landsins í sértímum, sem eru helgaðir þeim. Að ætla sér að gera tillögur Sveinbjargar um slíkt að árásarefni á hana er þeim til hneisu og hreinnar skammar sem að því standa. Hitt er svo reyndar staðreynd og nýtur mikils fylgis, að við getum vel afgreitt hælisumsóknir eins og Norðmenn gera, á tveimur sólarhringum, ekki einu eða tveimur misserum, eins og hér viðgengst í slóðaskap vanhæfra yfirvalda.
Það gæti ennfremur orðið "sokkinn kostnaður" fyrir Framsóknarflokkinn ef hann missir hér af þessari hreinskilnu konu, sem tekið hefur á málum af röggsemi, og býður upp á aðra í staðinn, sem gerzt hefur meðvirk með aðhrópendum þeirra sem setja fram málstað heilbrigðrar skynsemi og gagnrýna á sanngjarnan hátt magnaðan og vítaverðan aulahátt borgarstjórnar í mosku- og innflytjendamálum.
Jón Valur Jensson.
Allt eða ekkert hjá Guðfinnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 7.8.2017
Hælisleitendur eiga enga heimtingu á að njóta hér stjórnarskrártryggðra réttinda fyrir ríkisborgara þessa lands
Formaður Samfylkingar vill að "við öxlum sjálfsagða [sic] ábyrgð: Að rétta þeim hjálparhönd, sem hingað leita, úr ömurlegum aðstæðum og af sárri neyð" og á þá við hælisleitendur frá öruggum löndum! Þeim fer sífjölgandi, verða líklega yfir 2000 á árinu.
En þeir eiga enga "sjálfsagða" heimtingu á að njóta hér ákvæðis 76. greinar stjórnarskrárinnar um félagsleg réttindi til aðstoðar af ýmsu tagi vegna sjúkdóma, örorku, elli og atvinnuleysis, sem og til menntunar o.fl.
Þarna bera hins vegar ríki og sveitarfélög þunga ábyrgð gagnvart okkar eigin ríkisborgurum, sem flestir stjórnmálaflokkar hafa þó vanvirt, eða hvað varð t.d. af "skjaldborg" vinstri stjórnar Jóhönnu eða um öll loforð flokkanna fyrir síðustu kosningar að bæta endanlega kjör aldraðra og öryrkja?
Góðmennskuyfirlýsingar Loga Einarssonar í þágu tilefnislausra hælisleitenda blekkja því fáa, eins og reyndar má glögglega sjá á þeim fjölmörgu andmælum sem Fréttablaðs-pistill hans sætir á vefslóð hans á Visir.is!
Jón Valur Jensson.
Sbr. einnig greinina Ábyrgð stjórnvalda er fyrst og fremst gagnvart íslenskum ríkisborgurum, ekki erlendum, - eftir Birgi Loftsson sagnfræðing.
Innflytjendamál | Breytt s.d. kl. 16:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 4.8.2017
Ábyrgð stjórnvalda er fyrst og fremst gagnvart íslenskum ríkisborgurum, ekki erlendum, - eftir Birgi Loftsson sagnfræðing
Ég heyri fólk rífast endalaust um þjóðfélagsástandið í dag sem snýr að húsnæðismálum og hælisleitendum. Kíkjum á málið.
Árið 2013, samkvæmt svari Útlendingastofnunar, kostaði hver hælisleitandi kr. 54.600 á viku sem gerir 220.000 kr. á mánuði. Hver er kostnaðurinn í dag? Viðbúið er að hver hælisleitandi fái ýmislegt ókeypis á meðan. Líklega þarf hann ekki að borga fyrir húsnæðið sem hann býr í en það getur verið af ýmsum toga. Til dæmis hótelherbergi, herbergi á Víðinesi eða Fitjum, íbúðir og jafnvel einbýlishús.
Til samanburðar fær atvinnulaus maður 180.000 kr og guð má vita hvað öryrkjar og aldraðir fá en ég býst við að þeir fái að meðaltali um 200 þúsund krónur á mánuði.
Á öðrum stað segir að hver flóttamaður (sem væntanlega er ekki lengur hælisleitandi heldur flóttamaður sem er borgað er fyrir), fái 4-6 milljónir á ári, fær íslenskukennslu, ókeypis húsnæði og margvíslega aðra þjónustu.
Hælisleitendur stefna í að vera um 2000 í ár (þar af 98% með tilhæfulausa ástæðu fyrir hælisleit). Ef meðalkostnaðurinn á hvern einstakling er 5.000.000 kr., þá er heildarkostnaðurinn: 10.000.000.000 kr. en fyrir þá sem kunna ekki inn á svona stóra tölu, þá eru þetta 10 milljarðar kr. Held samt að kostnaður sé nærri 6 milljarðar samkvæmt tölu sem ég sá um daginn.
Sumir segja að ekki megi blanda saman þessari umræðu, það er fátæku fólki í húsnæðisleit og öðrum hópum sem hafa orðið undir í íslensku þjóðfélagi, við hælisleitendur og það sé ekki sanngjarnt. En er það svo?
Á meðan stjórnvöld láta bara örlitla kökusneið af þjóðarkökunni í þennan málaflokk, þá er það nokkuð einfalt dæmi að þeir verða að berjast innbyrðis um örsneiðina og þá er auðljóst að það ber að tala um þessa hluti í sömu andrá.
Um 900 milljónir manna ganga til svefns hungraðir á hverjum degi í heiminum. Eigum við ekki að hjálpa þeim öllum? Svarið er að við getum það ekki.
Svo má benda á þá staðreynd að íslensk stjórnvöld gera hvað sem er til að tryggja að enginn hælisleitandi fari á götuna. Enginn fer á götuna, punktur! Besta dæmið um það er þegar húsnæði Lögregluskóla Íslands var nýtt til að taka við metásókn hælisleitenda hingað til lands. Þá riðu fjölmiðlar röftum í hneykslun sinni yfir slæmri meðferð á aumingja fólkinu að láta það hírast tímabundið í annars ágætu húsnæði. Sveitarfélögin (líka út á landi) gera þetta ekki fyrir Íslendinga í nauð og verður fólk að fara hreppaflutningum eins og í gamla daga, vegna þess að kerfið þykist ekki bera ábyrgð. Skammarlegt var hvernig tugir þúsunda Íslendinga misstu húsnæði sitt í hruninu og lítið var gert til að bjarga því.
Ábyrgð stjórnvalda er fyrst og fremst gagnvart íslenskum ríkisborgurum, sem fæðst hafa hér á landi, borgað sína skatta og skyldur, en ekki einhverja sem segjast vera eitthvað sem enginn getur sannað að svo sé. Á meðan fólk býr í tjöldum og er svangt, hefur ekki efni á leiguíbúð né læknisþjónustu (þekki persónulega mörg dæmi um slíkt), þá er ábyrgðin fyrst og fremst stjórnvalda sem verða að forgangsraða.
Birgir Loftsson á sæti í flokksstjórn Íslensku þjóðfylkingarinnar.
Innflytjendamál | Breytt s.d. kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 3.8.2017
Tillögur Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur í skólamálum barna hælisleitenda eru skynsamlegar
Það er merkilegt að ekki megi setja fram skynsama skoðun á fyrirkomulagi skólagöngu barna sem koma með fólki sem er að sækja um alþjóðlega vernd, eins og fína orðið er yfir hælisleitendur, sem og flóttafólk. Er ekki tími til kominn hjá elítufólkinu að skoða málin dálítið betur? Það eina, sem Sveinbjörg í Framsókn og flugvallarvinum er að setja fram, er að koma á kennslu fyrir þessi börn meðan þau eru í biðstöðu, þannig að þeim gangi betur að aðlagast hinu almenna skólakerfi og röskun verði sem minnst á kennslu í hinu almenna skólakerfi.
Vill almenningur sem á börn á skólastigi að kennsla verði annars flokks vegna þess eins að meginþorri tíma kennara fari í að sinna börnum sem koma frá öðrum menningarheimi og þurfa þess vegna meiri leiðsögn og athygli? Nei! Ég held að foreldrar skilji það að það sé ekki ásættanlegt að fórna menntun eigin barna, vegna þess að öll orka kennara fari í að styðja við örfáa einstaklinga.
Tillaga Sveinbjargar er umræðunnar virði, hér er ekki um neina rasistahugsun að ræða, börn sem kæmu úr slíku umhverfi yfir í almenna kerfið, ef landvistaleyfi fengist, yrðu mjög sennilega síður fyrir aðkasti, einelti eða annarri höfnun, væri búið að undirbúa þau til að geta tekist á við það, sem byði þeirra, og ef umrædd börn fengju ekki landvistarleyfi er ekki verið að útsetja þau fyrir höfnun.
Að stjórnmálamenn skuli fylkja liði við að rakka Sveinbjörgu niður fyrir það eitt að setja fram þessa skynsömu skoðun er þeim sem það skrifa til háborinnar skammar og sýnir eingöngu skammsýni.
Guðmundur Þorleifsson.
Innflytjendamál | Breytt s.d. kl. 03:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)