Laugardagur, 14.9.2019
Þjóðfylkingin hugsar sinn gang
Landsfundi Íslensku þjóðfylkingarinnar, sem til stóð að yrði 2. október nk., hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Flokksstjórnarmenn ræða nýjar aðstæður og hugsanleg mannaskipti; þetta er þannig ekki síður en í aðdraganda fyrri landsfunda ástæða til að kalla eftir nýju blóði inn í forystuhóp flokksins.
Flokkurinn er, vel að merkja, ekki að hugleiða það að sameinast neinum öðrum, sízt af öllu sósíalískum flokkum, ESB-taglhnýtingaflokkum eða gírugum gróðapungum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. En ekki höfum við fyrir fram útilokað að taka þátt í því með öðrum að mynda regnhlífarsamtök eða kosningabandalag, sem sameinað getur okkar sterku rödd fyrir þjóðlegum áherzlum, landvarnarmálum sem og vörnina fyrir þá sem minnst mega sín í samfélaginu, allt frá fullkomlega mannlegum börnum í móðurkviði til elztu kynslóðarinnar sem á allan rétt á tillitssemi og virðingu, bæði til mannsæmandi kjara og traustrar heilsugæzlu.
Endilega haldið sambandi við flokkinn, látið vita af ykkur, en þessi umræða mun halda hér áfram, og allar athugasemdir og tillögur, hvort heldur um menn eða málefni, eru velkomnar.
JVJ.
Meginflokkur: Innanflokksmál | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:47 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.