Mánudagur, 8.10.2018
Þjóðverjar fjölga nú heimsendingum hælisleitenda frá Norður-Afríku
"Þýsk yfirvöld hafa undanfarið reynt að stöðva flóttafólk sem þangað kemur frá Alsír, Marokkó og Túnis og fellur ekki undir alþjóðlega skilgreiningu á flóttafólki. Það er fólk á flótta undan fátækt og örbirgð, ekki stríðsátökum." (Mbl.is)
Já, nú hafa þessi mál allvíða breytzt til batnaðar, m.a. hjá Dönum og Svíum. (Lesendur eru hvattir til að setja hér inn ábendingar um fleiri slíkar breytingar, hvar sem er í álfunni.)
Bild hefur eftir ónafngreindum heimildum innan úr stjórnkerfinu að ítrekaðir fundir og viðræður að undanförnu hafi skilað samstarfi við ríki Norður-Afríku um að skiptast á upplýsingum um þá sem vísa á úr landi og að tekið verði við þeim aftur í ríkjunum sem þeir koma frá. (Mbl.is)
Þetta má kalla góðan árangur þýzkrar diplómatíu, að beita sér þannig gegn skipulagslausu innstreymi fólks, án þess að því hafi verið boðið að vera og án tillits til hugsanlegra þarfa og getu landsins sjálfs.
Ríkisstjórn Þýskalands hefur jafnframt unnið að skráningu ríkjanna þriggja sem öruggra landa sem gerir þeim auðveldara um vik að senda flóttafólkið til baka ...
segir í sömu heimild, en að festa þetta í lög gengur aftur á móti miður, því að anarkískir Græningjar hafa beitt sér gegn lagasetningu í þessa átt, og var svo sem við því að búast úr þeirri áttinni (illa áttað lið). En ekki mun standa á því, að þýzk stjórnvöld vilji hjálpa þjóðum þessara þriggja landa til að bæta þar menntun og efnahag og auka þar atvinnutækifæri. Það er líka rétta leiðin til að taka á vanda þessara landa, í stað þess að sópa skipulagslítið inn fólki frá framandi menningarheimum, þar sem víða er pottur brotinn, ekki aðeins í menntunarstigi, heldur jafnvel í menningar- og siðahefðum sem rekast illilega á vestræna menningu, sem er í grunninn kristin og grísk-rómversk (með góðum viðaukum hér í norðrinu úr okkar norrænu menningu ) og hefur mótazt og slípazt á iðnbyltingar- og velferðartímum.
Jón Valur Jensson.
Vilja skrá ríkin sem örugg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Innflytjendamál | Aukaflokkar: Trúmál og siðferði, Islam, múslimar, Mið-Austurlönd, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:12 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.